Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1239, 141. löggjafarþing 542. mál: virðisaukaskattur (gagnaver, EES-reglur).
Lög nr. 24 20. mars 2013.
Þingskjal 1239, 141. löggjafarþing 542. mál: virðisaukaskattur (gagnaver, EES-reglur).
Lög nr. 24 20. mars 2013.
Lög um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (gagnaver).
1. gr.
Orðin „sama gildir um sölu gagnavera á hvers kyns blandaðri þjónustu til kaupenda sem búsettir eru erlendis og hafa ekki fasta starfsstöð hér á landi“ í d-lið 10. tölul. 1. mgr. 12. gr. laganna falla brott.2. gr.
42. gr. A laganna fellur brott.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 43. gr. laganna:- Við 1. málsl. bætist: eða innflutning á vörum.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fyrirtæki telst erlent í skilningi þessarar málsgreinar þegar aðili hefur hvorki búsetu né starfsstöð hér á landi.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. mars 2013.