Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1344 — 360. mál.
Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um skýrslu forsætisráðherra um meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis 2011.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pál Þórhallsson frá forsætisráðuneyti.
Í skýrslunni er yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis 2011 ásamt yfirliti yfir framkvæmd þingsályktana þrjú ár aftur í tímann og er þetta í annað skipti sem forsætisráðherra skilar slíkri skýrslu, sbr. 8. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, en ákvæðið var fært inn í þingsköpin með lögum nr. 84/2011. Þingmannanefndin sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis lagði í skýrslu sinni til að Alþingi yrði árlega gefin skýrsla um framkvæmd þingsályktana og mála sem Alþingi vísar til ríkisstjórnarinnar. Með þessu væri aðhalds- og eftirlitshlutverk Alþingis styrkt gagnvart framkvæmdarvaldinu og þinginu tryggðar nauðsynlegar upplýsingar til að sinna þessu hlutverki sínu.
Nefndin fjallaði almennt um skýrsluna sem er byggð á upplýsingum frá ráðuneytunum. Hún gefur gott og greinilegt yfirlit um framkvæmd þingsályktunartillagna. Við umfjöllun nefndarinnar um skýrslu um meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis 2010 tók nefndin fram að hún teldi mikilvægt að á vef Alþingis verði skýrslan um framkvæmdina tengd þeim ályktunum sem fjallað er um í henni til þess að gera upplýsingarnar aðgengilegri. Á vef Alþingis er nú aðgengilegt þingsályktanasafn, m.a. flokkað eftir efni ályktananna, en sú tenging við framkvæmd ályktana sem nefndin lagði til hefur ekki verið framkvæmd. Nefndin telur að þegar litið er til eftirlitshlutverks Alþingis með framkvæmdarvaldinu yrði það mjög til bóta að upplýsingar um framkvæmd ályktana og mála sem vísað er til ríkisstjórnarinnar séu tengdar þeim þannig að unnt verði með einföldum hætti að nálgast þær.
Í yfirliti sem fylgir skýrslunni eru upplýsingar um stöðu þingsályktana Alþingis 2008– 2010. Þar kemur fram að fjórar ályktanir hafi ekki verið framkvæmdar. Þrjár þessara ályktana eru á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis og óskaði nefndin eftir nánari upplýsingum um ástæður þess að þær hafa ekki komið til framkvæmda. Með ályktun nr. 4/135 var umhverfisráðherra falið að skipa nefnd til að vinna að því að tryggja varðveislu, uppbyggingu og kynningu á þeim umhverfis- og menningarsögulegu verðmætum sem eru fólgin í kirkjugarðinum við Suðurgötu, Hólavallagarði. Mennta- og menningarmálaráðuneytið benti á að fornleifavernd ætti undir það ráðuneyti en ekki umhverfisráðuneyti. Þá var bent á að árið 2006 kom út skýrsla Fornleifaverndar um Hólavallagarð þar sem lýst væri 7.465 minningarmörkum í garðinum og þau flokkuð með tilliti til menningarsögulegs mikilvægis. Samkvæmt lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, eru minningarmörk í kirkjugörðum nú á ábyrgð nýstofnaðrar Minjastofnunar Íslands en jafnframt benti ráðuneytið á að kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmis séu einnig mjög meðvitaðir um þær menningarsögulegu og grasafræðilegu minjar sem í Hólavallagarði felast og þróunarnefnd til að styðja varðveislu hans og sjá um breytingar og viðgerðir í garðinum var stofnuð 1998. Ráðuneytið taldi því ekki að skipun sérstakrar nefndar líkt og mælt er fyrir um í ályktuninni mundi bæta við verndun og varðveislu garðsins. Nefndin bendir á að ekki var farið að ályktun Alþingis um skipun nefndar vegna Hólavallakirkjugarðs en svo virðist sem tilgangur ályktunarinnar hafi þó náð fram að ganga, sem m.a. var að tryggja varðveislu og uppbyggingu Hólavallakirkjugarðs. Nefndin áréttar mikilvægi þess að farið sé að ályktunum Alþingis en telur jafnframt rétt að Alþingi líti sér nær og tryggi að til staðar sé þörf á aðgerðum áður en ályktað er. Tryggja þarf jafnframt að verkefni sé skýrt skilgreint og það falið réttum aðila.
Með ályktun nr. 5/135 skoraði Alþingi á ríkisstjórnina að gera samkomulag við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um gerð námsefnis fyrir unglinga um ólík kjör og hlutskipti kvenna á norðurslóðum og mannréttindi. Orðalag ályktunarinnar felur þannig ekki í sér fortakslausa skyldu til aðgerða. Mennta- og menningarmálaráðuneyti benti á að ekki væri ljóst við hvaða skólastig væri átt en jafnframt að jafnrétti og mannréttindi verða hluti af þeim grunnþáttum sem lögð er áhersla á í námskrám fyrir öll skólastig sem unnið er að í ráðuneytinu. Þá benti ráðuneytið á að skólar og kennarar á Íslandi hafa sjálfdæmi um hvaða kennsluefni þeir nýta við kennslu og að ekki er heimilt að skylda þá til að kenna tiltekið námsefni.
Alþingi fól með ályktun nr. 21/135 menntamálaráðherra að skipa starfshóp til að útfæra hugmyndir um alþjóðlegt skáksetur í Reykjavík sem helgað yrði afrekum stórmeistaranna Friðriks Ólafssonar annars vegar og Bobbys Fischers hins vegar. Nefndin fékk þær upplýsingar að slíkur starfshópur hefði verið skipaður og að hann hefði skilað ítarlegri greinargerð í apríl 2011 þar sem m.a. kemur fram að betur þurfi að skilgreina skipulag og staðsetningu skákseturs í samræmi við það hlutverk sem því væri ætlað. Óskað var upplýsinga og tillagna frá Skáksambandi Íslands um kostnað við hugmyndir starfshópsins en svör hafa ekki borist og því hefur ekkert fleira verið aðhafst í málinu. Nefndin bendir þó á að ráðherra skipaði starfshópinn í samræmi við ályktunina og hann skilaði hugmyndum sínum af sér þó svo að þær hafi þurft frekari vinnslu. Ástæður þess að málinu hefur ekki verið framhaldið virðist ekki hægt að rekja til aðgerða eða aðgerðaleysis ráðherra og ráðuneytis. Verður því ekki annað séð en að í meginatriðum hafi verið farið að ályktuninni.
Sú ályktun á málefnasviði velferðarráðuneytis sem ekki hefur komið til framkvæmda er ályktun nr. 12/136 þar sem félags- og tryggingamálaráðherra var falið að gera úttekt á aðgengi í gömlu íbúðarhúsnæði á Íslandi svo að fötluðum, öldruðum, barnafólki og öðrum sem þess þarfnast verði gert mögulegt að búa lengur í íbúðum sínum en nú er hægt eða festa kaup á hentugum íbúðum í eldra húsnæði. Jafnframt var ráðherranum falið að leggja fyrir Alþingi tillögur til úrbóta. Í skýrslunni kemur fram að ástæður þess að ályktunin hefur ekki komið til framkvæmda sé að henni hafi ekki fylgt fjárveitingar. Nefndin áréttar að þegar svo háttar til að fjármagn fylgir ekki ályktun Alþingis er mikilvægt að ráðuneytin geri ráð fyrir fjármögnun slíkra verkefna við undirbúning næstu fjárlaga þannig að unnt verði að framfylgja ályktuninni. Þá er brýnt að við samþykkt fjárlaga taki Alþingi afstöðu til þessara mála. Hvað umrædda ályktun varðar telur nefndin rétt að taka fram að tiltekin verkefni um aðgengi fatlaðs fólks eru hluti af framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var 2012, þingsályktun nr. 43/140.
Nefndin leggur áherslu á að farið sé að ályktunum Alþingis og telur ljóst af skýrslunni og því yfirliti sem henni fylgir að þeim er að meginstefnu fylgt.
Birgir Ármannsson, Sigríður Á. Andersen og Vigdís Hauksdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 26. mars 2013.
Valgerður Bjarnadóttir,
form.
Róbert Marshall.
Lúðvík Geirsson.
Magnús Orri Schram.
Margrét Tryggvadóttir.
Bjarkey Gunnarsdóttir.