Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 62, 142. löggjafarþing 26. mál: neytendalán (frestun gildistöku).
Lög nr. 85 11. júlí 2013.

Lög um breytingu á lögum um neytendalán (frestun gildistöku).


1. gr.

     Í stað orðanna „1. september 2013“ í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 33/2013 kemur: 1. nóvember 2013.

2. gr.

     Í stað orðanna „1. september 2013“ í ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 121/1994 kemur: 1. nóvember 2013.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 1. júlí 2013.