Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 566. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Nr. 20/143.

Þingskjal 1082  —  566. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2014.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2014 sem gerðir voru í Reykjavík 28. mars 2014:
     1.      Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2014.
     2.      Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2014.
     3.      Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2014.

Samþykkt á Alþingi 12. maí 2014.