Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 327. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Nr. 27/143.

Þingskjal 1128  —  327. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Kólumbíu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Lýðveldisins Kólumbíu.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd annars vegar fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Kólumbíu sem undirritaður var 25. nóvember 2008 í Genf og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Lýðveldisins Kólumbíu sem undirritaður var sama dag.

Samþykkt á Alþingi 14. maí 2014.