Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 958  —  75. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um greiningu á sameiginlegum ávinningi af
vestnorrænum fríverslunarsamningi og vestnorrænu viðskiptaráði.

Frá utanríkismálanefnd.

    
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Brá Konráðsdóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Ingu Dóru Markussen, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur, alþjóðaritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Högna S. Kristjánsson, Bergþór Magnússon og Ragnheiði Harðardóttur fá utanríkisráðuneyti, Sigurberg Björnsson frá innanríkisráðuneyti og Sigurgeir Þorgeirsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að skipa ásamt landsstjórnum Færeyja og Grænlands vinnuhóp sérfræðinga sem fengi það verkefni að greina sameiginlegan ávinning sem yrði af vestnorrænum fríverslunarsamningi og vestnorrænu viðskiptaráði. Samkvæmt tillögunni skal vinnuhópurinn m.a. greina kosti og galla þess að gera vestnorrænan fríverslunarsamning eða tvíhliða samninga milli landanna, á hvaða sviðum löndin hefðu gagnkvæman ávinning af aukinni fríverslun og á hvaða sviðum slík verslun væri ákjósanleg, kosti og galla þess að mynda vestnorrænt fríverslunarsvæði og kosti og galla þess að stofna vestnorrænt viðskiptaráð.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að hún er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 1/2015 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins í Runavík í Færeyjum 12. ágúst 2015. Þar kemur einnig fram að Vestnorræna ráðið hefur fjallað um möguleika á auknum viðskiptum og samstarfi landanna þriggja frá árinu 2007. Telur ráðið að aukin viðskipti yrðu til hagsbóta fyrir löndin þrjú með auknum atvinnutækifærum og hagvexti.
    Tillagan er í samræmi við afstöðu Vestnorræna ráðsins sem fram kom á þemaráðstefnu þess í byrjun árs þar sem ráðið komst að þeirri niðurstöðu að þörf væri á frekari greiningu á sameiginlegum hagsmunum landanna og jafnframt þyrfti að draga fram þau svið þar sem ekki er grundvöllur fyrir samstarfi. Loks taldi ráðið þörf á greiningu á mögulegum sameiginlegum ávinningi af vestnorrænum fríverslunarsamningi og viðskiptaráði.
    Nefndin telur jákvætt að unnið verði að greiningu á sameiginlegum ávinningi vestnorrænu landanna þriggja af vestnorrænum fríverslunarsamningi og viðskiptaráði. Ísland og Færeyjar gerðu fríverslunarsamning árið 2005, svokallaðan Hoyvíkursamning, og á milli Íslands og Grænlands er gamall fríverslunarsamningur, frá árinu 1972. Fyrir nefndinni kom fram vilji stjórnvalda til að uppfæra og útvíkka þessa samninga og auka fríverslunartengsl milli landanna. Telur nefndin tillögu þessa geta orðið til að styrkja slík tengsl, svo og efnahag hinna vestnorrænu landa. Sú greining sem tillagan kveður á um ætti að vera mikilvægt skref í átt að aukinni fríverslun við Grænland og Færeyjar sem og milli vestnorrænu landanna þriggja.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Elín Hirst var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Frosti Sigurjónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 3. mars 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form., frsm.
Karl Garðarson. Vilhjálmur Bjarnason.
Frosti Sigurjónsson. Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Valgerður Bjarnadóttir.