Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1130 — 573. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá
Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um landgræðslu.
1. Hver er skilgreiningin á landgræðslu?
Lög nr. 17/1965, um landgræðslu, skilgreina landgræðslu ekki með beinum hætti en tilgangur laganna og þar með landgræðslu er:
1. Að koma í veg fyrir eyðingu gróðurs og jarðvegs.
2. Að græða upp eydd og vangróin lönd.
Samkvæmt lögunum skiptist starfsemin í:
1. Sandgræðslu, sem er hefting jarð- og sandfoks og græðsla gróðurlausra og gróðurlítilla landsvæða.
2. Gróðurvernd, sem stuðlar að eflingu gróðurs til að auka mótstöðuafl lands gegn eyðingu.
3. Gróðureftirlit sem fylgist með notkun gróðurs, vinnur gegn ofnotkun hans og hvers konar skemmdum á gróðurlendum.
Síðan lögin voru sett af Alþingi hefur starfsemin á sviði landgræðslu þróast mikið en snýst þó um þennan megintilgang. Hugtakið sandgræðsla er lítið notað í daglegu tali nú orðið en þess í stað m.a. talað um uppgræðslu og síðustu ár hefur verið skírskotað til víðari tilgangs með því að tala um endurheimt vistkerfa eða vistheimt.
Varnir gegn landbroti af völdum fallvatna sem er á hendi Landgræðslu ríkisins samkvæmt lögum nr. 91/2002, um varnir gegn landbroti, má flokka undir landgræðslu enda um aðgerðir að ræða sem fela í sér vernd gróðurs og jarðvegs.
2. Hversu mörg félög og samtök eru á Íslandi um málefni landgræðslu?
Fjöldi félaga og samtaka á landinu tengist landgræðslu. Landgræðslufélög starfa víða um land og vinna að fjölbreyttum landgræðsluverkefnum og standa fyrir fræðsluferðum og fræðslufundum um landgræðslumálefni. Þau eru nú 12 talsins:
– Landgræðslufélag Biskupstungna.
– Landgræðslufélag Héraðsbúa.
– Landgræðslufélag Skaftárhrepps.
– Landgræðslufélag Öræfinga.
– Landgræðslufélag við Skarðsheiði.
– Landgræðslufélag Svalbarðshrepps.
– Landgræðslufélag Reykjahlíðar.
– Landgræðslufélag Eyrarsveitar.
– Landgræðslufélag Öxfirðinga.
– Landgræðslufélag Hrunamanna.
– Landbótafélag Gnúpverja.
– Upprekstrar- og landbótafélag Vopnfirðinga.
Skógræktarfélög á Íslandi vinna mörg hver að skógrækt á illa grónu landi, m.a. innan verkefnisins Landgræðsluskóga. Landvernd, landgræðslu- og náttúruverndarsamtök Íslands, voru stofnuð til að græða upp landið og hafa því frá upphafi ávallt haft landgræðslu á sinni stefnuskrá. Auk þess starfar fjöldi annarra félaga að landgræðslu: afréttamálafélög, fjallskiladeildir, grunn- og framhaldsskólar, Rótarý- og Lionsklúbbar, UMFÍ og ungmennafélögin, hestamannafélög og búnaðarfélög svo eitthvað sé nefnt.
3. Hversu mörg verkefni eru í gangi er varða landgræðslu?
Verkefni sem varða landgræðslu eru á mörgum sviðum og dreifð um allt land. Á vegum Landgræðslu ríkisins má nefna nokkra stóra verkefnaflokka:
1. Verkefnið Bændur græða landið hefur verið starfrækt frá árinu 1990, þar sem bændur og aðrir landeigendur eru styrktir til uppgræðslu á sínu landi. Þátttakendur eru um 600.
2. Landbótasjóður Landgræðslunnar er sjóður á vegum Landgræðslu ríkisins sem leggur honum til fé til úthlutunar. Tilgangur með stofnun sjóðsins er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð og veita landeigendum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands styrki til landbótaverkefna. Við ákvörðun um styrkveitingar er einkum lögð áhersla á: Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar, endurheimt gróðurs, jarðvegs og votlendis, sjálfbæra landnýtingu og bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi. Árið 2015 var alls úthlutað um 33 millj. kr. til 50 verkefna. Gert er ráð fyrir að á þessu ári fái 66 verkefni úthlutað um 56 millj. kr.
3. Varnir gegn landbroti. Árlega er unnið að fjölda verkefna samkvæmt lögum um varnir gegn landbroti af völdum fallvatna. Árið 2014 var t.d. unnið að 26 verkefnum um allt land og heildarkostnaður nam tæplega 55 millj. kr.
4. Gæðastýring í hrossarækt er verkefni sem Landgræðsla ríkisins stofnaði og annast þar sem lagt er mat á landnýtingu hrossaræktarbúa sem taka þátt í verkefninu. Þátttakendur árið 2015 voru 39 talsins.
5. Rannsóknir og fræðsla. Fjölmörg rannsóknarverkefni eru í gangi á sviði landgræðslu, bæði að frumkvæði Landgræðslu ríkisins og með þátttöku stofnunarinnar í innlendum og erlendum rannsóknarverkefnum er lúta að landgræðslu. Verkefnin lúta m.a. að vistheimt, hagavist, nýtingu á lífrænum úrgangsefnum til áburðar, framvinduferli, námsverkefnum og starfsþjálfun háskólanema.
6. Landupplýsingadeild Landgræðslu ríkisins skráir aðgerðir stofnunarinnar og bænda, vinnur að fjarkönnun er varðar ástand lands og mati á árangri aðgerða. Fjölþætt verktakavinna er fyrir bæjar- og sveitarfélög og orkufyrirtæki, á sviði vöktunar á útbreiðslu gróðurs og áfoki.
Önnur stór landgræðsluverkefni eru:
1. Landgræðsluskógar sem er í umsjón Skógræktarfélags Íslands samkvæmt samningi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og í samstarfi við Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins og hefur að markmiði að vinna að endurheimt landgæða með ræktun og gróðursetningu í rýrt og ógróið land. Í gildi eru 142 landgræðsluskógasamningar þar sem eru gróðursettar um 600 þúsund trjáplöntur árlega. Árleg fjárveiting til verkefnisins samkvæmt gildandi samningi er 35 millj. kr.
2. Hekluskógar sem er samvinnuverkefni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skógræktar ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Markmið Hekluskóga er m.a. að nýta birkiskóga til að verjast náttúruhamförum, bæta landgæði og binda kolefni.
3. Gæðastýrð sauðfjárrækt er hluti af búvörusamningi um framleiðslu sauðfjárafurða og felur í sér að sett eru skilyrði um sjálfbæra landnýtingu til að framleiðandi njóti svokallaðra álagsgreiðslna. Landgræðsla ríkisins fer með landnýtingarþátt reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu fyrir hönd Matvælastofnunar. Landbótaáætlanir sem hluti þátttakenda þarf að vinna eftir á illa förnu landi til að hljóta gæðastýringarálag fela í sér árlega uppgræðslu á nokkur þúsund hekturum og friðun fyrir búfjárbeit á allt að 300.000 hekturum auðna.
4. Fjölmargir einkaaðilar og fyrirtæki vinna að landgræðslu, bæði á frístundalóðum og landnemalóðum og á svæðum þar sem fyrirtæki fá flög í fóstur. Orkufyrirtækin græða upp árlega mjög stór landsvæði langt umfram stærð þeirra sem fara undir miðlunarlón og framkvæmdir.
5. Mörg sveitarfélög og kaupstaðir eru árlega með umfangsmikla landgræðslu innan sinna vébanda, oftast í nánu samstarfi við Landgræðslu ríkisins.
6. Hvaða stofnun fer með rannsóknir og athuganir er varða landgræðslu á Íslandi?
Rannsóknir og athuganir er varða landgræðslu á Íslandi eru einkum á hendi tveggja stofnana, Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands. Samkvæmt 40. gr. landgræðslulaga ber Rannsóknastofnun landbúnaðarins að annast rannsóknir á beitarþoli og orsökum gróðureyðingar og ber jafnframt í samvinnu við Landgræðslu ríkisins að leita eftir nýjum plöntutegundum sem vænlegar eru til landgræðslu. Árið 2005 varð Rannsóknastofnun landbúnaðarins hluti af Landbúnaðarháskóla Íslands, sem vinnur samkvæmt lögum um háskóla, nr. 63/2006, og lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008.
7. Hvað leggur ríkið af mörkum til landgræðslu?
Ríkið leggur af mörkum fjárveitingar til Landgræðslu ríkisins, alls 699,6 millj. kr. á árinu 2016. Eins eru verkefnin Hekluskógar og Landgræðsluskógar starfrækt fyrir fjárveitingar frá ríkinu.
8. Í hvaða farvegi telur ráðherrann landgræðslu vera og hvaða stefna er höfð að leiðarljósi?
Landgræðsla stendur að sumu leyti á tímamótum sem málaflokkur. Núverandi löggjöf er frá 1965 og stendur vinna við endurskoðun á lögunum nú yfir í ráðuneytinu. Ný lög um landgræðslu þurfa að hvetja til og stuðla að því að græða og bæta land til nytja og endurheimta vistkerfi. Þá hefur starfshópur um landnotkun í dreifbýli og sjálfbæra landnýtingu skilað niðurstöðum sínum sem snúast m.a. um mótun sjálfbærniviðmiða fyrir mismunandi landnotkun.
Auk þess hafa fjöldamargar áskoranir og verkefni hlotist af örri fjölgun ferðamanna og miklu álagi á náttúruna. Ráðherra hefur verið að skoða leiðir að samþættingu verkefna á sviði náttúruverndar og landgræðslu með skýrari verkaskiptingu stofnana að leiðarljósi. Meðal annars þarf að samhæfa betur starfsemi ríkisins við uppbyggingu innviða á svæðum sem margir ferðamenn sækja heim og brýnt er að byggja upp meiri fag- og verkþekkingu á því sviði hér á landi. Þá samþykkti Alþingi 16. mars sl. lög um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Markmiðið með lagasetningunni er m.a. að móta og samræma stefnu í þágu náttúruverndar vegna álags af völdum ferðamennsku. Að auki leggur Sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum m.a. áherslu á landgræðslu sem leið til að binda kolefni úr andrúmslofti í gróðri og jarðvegi. Einnig mun Landgræðslu ríkisins verða falið það verkefni að framkvæma verkefni á sviði endurheimtar votlendis.