Ferill 789. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1403  —  789. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

Frá atvinnuveganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Baldur P. Erlingsson, Jóhann Guðmundsson og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
    Í tillögunni er kveðið á um hvernig skuli ráðstafa því aflamagni sem er dregið frá heildarafla í hverri tegund skv. 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða. Í tillögunni felst ekki mikil breyting frá því sem kveðið er á um í gildandi þingsályktun nr. 15/144 en nefna má að aukið er við aflamagn til stuðnings byggðarlögum og til aflamarks Byggðastofnunar auk þess sem lagt er til minna magn til áframeldis á þorski.
    Nefndin leggur til að tillagan verði ekki bundin við fiskveiðiárið 2016/2017 og leggur því til breytingu á tillögugrein í þá veru. Hins vegar mælist nefndin til þess að ályktunin sæti endurskoðun fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 verði tillagan samþykkt.
    Jafnframt leggur nefndin til að 8. tölul. tillögugreinarinnar falli brott en þar er kveðið á um að allt að 1.000 tonn verði lögð til hliðar til sérstakra tímabundinna ráðstafana.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við tillögugrein:
     1.      Í stað orðanna „á fiskveiðiárinu 2016/2017 skuli því aflamagni sem dregið er frá heildarafla í hverri tegund skv. 3. mgr. 8. gr. laganna“ komi: því aflamagni sem dregið er frá heildarafla í hverri tegund skv. 3. mgr. 8. gr. laganna skuli.
     2.      8. tölul. falli brott.

    Kristján L. Möller var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Lilja Rafney Magnúsdóttir og Björt Ólafsdóttir rita undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 1. júní 2016.


Jón Gunnarsson,
form., frsm.
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
með fyrirvara.
Haraldur Benediktsson.
Ásmundur Friðriksson. Björt Ólafsdóttir,
með fyrirvara.
Páll Jóhann Pálsson.
Þorsteinn Sæmundsson. Þórunn Egilsdóttir.