Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1643, 145. löggjafarþing 856. mál: þingsköp Alþingis (samkomudagur reglulegs Alþingis 2016).
Lög nr. 89 9. september 2016.

Lög um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum (samkomudagur reglulegs Alþingis 2016).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir 4. mgr. 1. gr. skal 145. löggjafarþingi ljúka 29. október 2016.
     Reglulegt Alþingi 2016, 146. löggjafarþing, skal koma saman þegar forseti Íslands hefur stefnt saman Alþingi, sbr. 22. og 24. gr. stjórnarskrárinnar, og standa fram til reglulegs samkomudags Alþingis 2017, annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar og 4. mgr. 1. gr. laga þessara.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 8. september 2016.