Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 212  —  59. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um sáttameðferð.

     1.      Hve oft frá gildistöku laga nr. 61/2012, um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, til loka ársins 2016 áttu sér stað sáttaumleitanir í
                  a.      forsjár-,
                  b.      lögheimilis-,
                  c.      umgengnis- og
                  d.      dagsektarmálum? Hve mörg dómsmál voru höfðuð vegna framangreindra mála á sama tímabili?

    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og dómstólaráði og eru þau svör sem ráðuneytinu bárust sundurliðuð í töflum 1 og 2 hér á eftir. Hjá sýslumönnum er miðað við fjölda mála sem er lokið á þessu tímabili en hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu eru til dæmis enn opin yfir 100 mál sem stofnað var til á árinu 2016. Þá eru forsjár- og lögheimilismál flokkuð saman hjá embættum sýslumanna. Varðandi mál fyrir dómstólum þá er hægt að gera kröfu um umgengni, kostnað vegna umgengni og greiðslu meðlags fyrir dómi þegar ágreiningsmál um forsjá barns eða lögheimili er þar til meðferðar. Í 5. mgr. 34. gr. barnalaga, nr. 76/2003, kemur fram að í ágreiningsmáli um forsjá barns eða lögheimili ber dómara að kröfu annars foreldris eða beggja að kveða á um meðlag í dómi, sem og um inntak umgengnisréttar barns og foreldris og kostnað vegna umgengni, hafi sátt ekki tekist um þessi efni, enda hafi krafa um það verið gerð í stefnu eða greinargerð stefnda. Samkvæmt upplýsingum frá dómstólaráði býður málaskrá héraðsdómstólanna ekki upp á flokkun mála að öðru leyti en því að mál er varðar forsjá, lögheimili, umgengni eða dagsektir eru sett í sama flokk, þ.e. sem forsjármál. Þá eru kröfur um greiðslu dagsekta gerðar samhliða rekstri forsjármáls.

Tafla 1. Upplýsingar um fjölda sáttameðferðarmála hjá embættum sýslumanna 2013–2016.

         

Forsjár- og/eða lögheimilismál Umgengnismál Dagsektarmál
2013 149 120 18
2014 225 229 20
2015 213 204 25
2016 186 141 20
Samtals 773 694 83


Tafla 2. Upplýsingar um fjölda dómsmála sem höfðuð voru vegna forsjár- og/eða lögheimili barns þar sem einnig kann að vera fjallað um umgengni og/eða kröfu um greiðslu dagsekta 2013–2016.


2013

2014     2015 2016
Héraðsdómur Reykjavíkur 20 23 20 26
Héraðsdómur Reykjaness 19 18 24 28
Landsbyggðin 5 6 11 14
Samtals 44 47 55 68



     2.      Hvert var á sama tíma hlutfall sáttameðferðarmála sem lauk með sátt, greint á sama hátt og í 1. tölul. fyrirspurnarinnar, og hve mörg vottorð um sáttameðferð voru gefin út á þessu tímabili?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og eru þau svör sem bárust ráðuneytinu sundurliðuð í töflu 3.

Tafla 3. Upplýsingar um hlutfall sáttameðferðarmála sem lauk með sátt og fjölda vottorða um sáttameðferð hjá embættum sýslumanna 2013–2016.

    

Fjöldi mála Hlutfall mála
sem lauk með sátt
Fjöldi sáttavottorða
Forsjár- og/eða lögheimilismál 773 45% 431
Umgengnismál 694 55% 313
Dagsektarmál 83 40% 50
Samtals 1.550 49% 794

     3.      Hversu oft var vottorð um sáttameðferð gefið út frá ársbyrjun 2013 til ársloka 2016 án þess að tilkvaddir aðilar hefðu mætt til sáttafundar, sbr. 5. mgr. 33 gr. a barnalaga, og hversu hátt hlutfall forsjármála var það?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og fékk þær upplýsingar að frá ársbyrjun 2013 til ársloka 2016 hefði verið gefið út vottorð um sáttameðferð í 272 skipti án þess að tilkvaddir aðilar hefðu mætt til sáttafundar. Hlutfall forsjár- og/eða lögheimilismála var 55%.

     4.      Hafa starfsmenn sýslumannsembætta ávallt annast sáttameðferð eða hefur verið leitað til annarra aðila, sbr. 2. mgr. 33 gr. a barnalaga, og þá hversu oft?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum vegna fyrirspurnarinnar. Hjá sýslumanninum á Austurlandi fengust þær upplýsingar að árið 2013 hafi sáttameðferðarmál í fyrstu verið unnin í samstarfi milli embætta sýslumannsins á Seyðisfirði og Eskifirði. Fljótlega hafi verið gerður samningur við sérfræðing utan embættis. Árin 2014, 2015 og hluta ársins 2016 hafi sáttameðferðarmál verið send til aðila utan embættis. Seinni hluta ársins 2016 voru öll mál send til sérfræðingateymis hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem sinnir nú þessum verkefnum á landsvísu og eru með starfsmann á Akureyri.
    Hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fengust þær upplýsingar að hjá embættum sýslumannsins í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði og síðar sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefði sáttameðferð undantekningarlítið verið unnin af starfsmönnum þessara embætta en í örfáum málum hafi verið fenginn sáttamaður utan embættis. Þá kom fram að ekki hafi verið skráð sérstaklega hversu margir hefðu komið með sáttavottorð frá sáttamönnum utan embætta en slík mál hafi verið innan við fimm hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
    Hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra fengust þær upplýsingar að gerður hafi verið verktakasamningur við sérfræðing á Akureyri og Húsavík en fulltrúar embættanna á Akureyri og Húsavík hefðu einnig fengið mál til meðferðar.
    Hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra fengust þær upplýsingar að starfsmenn hefðu ávallt annast sáttameðferð.
    Hjá sýslumanninum á Suðurlandi fengust þær upplýsingar að starfsmenn hefðu ekki ávallt annast sáttameðferð og leitað hefði verið til annarra aðila í 21 skipti á þessu tímabili, aðallega á árunum 2013 og 2014. Eftir sameiningu sýslumannsembætta hefðu starfsmenn embættisins nánast alfarið annast sáttameðferð, en jafnframt er átt við starfsmenn embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem annast nú sáttameðferð fyrir allt landið.
    Hjá sýslumanninum á Suðurnesjum fengust þær upplýsingar að löglærðir fulltrúar sýslumannsins á Suðurnesjum, áður Keflavík, hefðu ávallt annast sáttameðferð en þeir hefðu getað leitað til sérfræðinga í málefnum barna þegar þörf hefði verið á. Umræddir sérfræðingar eru félagsráðgjafar og starfa sem verktakar fyrir embættið.
    Hjá sýslumanninum á Vestfjörðum fengust þær upplýsingar að leitað hefði verið til annarra aðila utan embættis í öllum tilvikum, þ.e. í fjögur skipti, áður en sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu fór að annast sáttameðferð fyrir allt landið.
    Hjá sýslumanninum á Vesturlandi fengust þær upplýsingar að leitað hafi verið til sérfræðings utan embættis hjá sýslumanninum í Borgarnesi í þrjú skipti árin 2013 og 2014. Hin embættin sem heyra nú undir sýslumanninn á Vesturlandi hefðu sjálf séð um sáttameðferð.
    Hjá sýslumanninum í Vestmanneyjum fengust þær upplýsingar að árin 2013 og 2014 hafi embættið sjálft annast sáttameðferð. Engin sáttameðferð fór fram hjá embættinu árið 2015 en öll mál voru send sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Í lok ársins 2015 hafi embættið hins vegar gert samning við sérfræðing utan embættis um að annast sáttameðferð og voru þrjú mál send til hans. Í maí 2016 voru svo mál aftur send sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

     5.      Hefur landinu verið skipt niður í sáttaumdæmi eins og heimilt er skv. 4. gr. reglna um ráðgjöf og sáttameðferð skv. 33. og 33. gr. a barnalaga og hver eru mörk umdæmanna ef svo er?
    Frá því í apríl 2016 er landið orðið að einu sáttaumdæmi að undanskildu embætti sýslumannsins á Suðurnesjum. Síðastliðið haust voru ráðnir tveir nýir sérfræðingar í málefnum barna hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu til að sinna sáttameðferð og sérfræðiráðgjöf og sinna nú fjórir sérfræðingar þessum verkefnum á landsvísu. Ráðuneytið telur rétt að stefna að því að embætti sýslumannsins á Suðurnesjum verði einnig hluti af fyrrnefndu sáttaumdæmi.

     6.      Hversu langur tími líður að jafnaði frá því að sáttameðferð hefst uns henni lýkur?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og fékk þær upplýsingar að tveir til þrír mánuðir líði að jafnaði frá því að sáttameðferð hefst uns henni lýkur. Sáttameðferð geti þó tekið lengri tíma í einstökum málum, allt upp í níu til tólf mánuði.

    7.     Hversu oft á tímabilinu 1. janúar 2013 til 1. janúar 2017 hafa sáttafundir farið fram í síma eða með fjarfundabúnaði eða annars konar fjarskiptatækni?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og fékk þær upplýsingar að sáttafundir hafi farið fram í 81 skipti í síma eða með fjarfundabúnaði eða annars konar fjarskiptatækni. Ekki hefur þó verið haldið sérstaklega utan um þessa tölfræði.

    8.     Hve mörgum sáttameðferðum lauk eftir einn sáttafund á tímabilinu 1. janúar 2013 til 1. janúar 2017 og hversu hátt hlutfall allra sáttameðferða var það?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum og fékk þær upplýsingar að 314 sáttameðferðarmálum hafi lokið eftir einn sáttafund á tímabilinu 1. janúar 2013 til 1. janúar 2017, eða um 20% allra sáttameðferða hjá embættum sýslumanna sem lokið var á þessu tímabili.

    9.     Er unnið að samningu reglugerðar sem kæmi í stað bráðabirgðareglna um ráðgjöf og sáttameðferð frá 14. febrúar 2013 og hvenær er hennar að vænta?
    Reglur um ráðgjöf og sáttameðferð skv. 33. og 33. gr. a barnalaga, nr. 76/2003, með síðari breytingum samkvæmt lögum nr. 61/2012 og 144/2012 voru settar til bráðabirgða og gilda þar til sett hefur verið reglugerð um ráðgjöf og sáttameðferð eða málsmeðferð og starfshætti sýslumanns. Sú reglugerð hefur ekki verið sett en undirbúningur er þegar hafinn í ráðuneytinu, m.a. með því að óska eftir umsögnum allra sýslumannsembætta vegna fyrirhugaðrar reglugerðar. Ráðuneytið taldi mikilvægt að fá reynslu af þessu fyrirkomulagi áður en reglugerð yrði sett og hefur jafnframt lagt áherslu á að hafa samráð við embætti sýslumanna í tengslum við þá vinnu. Fyrirhugað er að reglugerðin verði sett í lok þessa árs.