Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 604  —  422. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum (endurbótaáætlun, tímanleg inngrip, eftirlit á samstæðugrunni, eftirlitsheimildir o.fl.).

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. a laganna:
     a.      29. tölul. orðast svo: Stór áhættuskuldbinding: Áhættuskuldbinding fjármálafyrirtækis vegna einstaks viðskiptamanns eða hóps tengdra viðskiptamanna telst vera stór áhættuskuldbinding ef hún nemur 10% eða meira af hæfu fjármagni.
     b.      Við bætast átta nýir töluliðir, svohljóðandi:
              40.      Móðurfélag í aðildarríki: Lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki í aðildarríki sem uppfyllir öll eftirtalin skilyrði:
                          a.      Á dótturfélag sem er lánastofnun, verðbréfafyrirtæki eða fjármálastofnun.
                          b.      Á hlutdeild í lánastofnun, verðbréfafyrirtæki eða fjármálastofnun, þannig að eitthvert framantalinna fyrirtækja teljist hlutdeildarfélag í eigu lánastofnunarinnar eða verðbréfafyrirtækisins.
                          c.      Er ekki dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis sem fengið hefur starfsleyfi í sama aðildarríki.
                          d.      Er ekki dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi sem staðsett er í sama aðildarríki.
              41.      Móðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu: Lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki sem staðsett er í aðildarríki og er hvorki dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með starfsleyfi í einhverju aðildarríki né dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í einhverju aðildarríki.
              42.      Móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu: Eignarhaldsfélag á fjármálasviði í aðildarríki sem er hvorki dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með starfsleyfi í einhverju aðildarríki né dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í einhverju aðildarríki.
              43.      Blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu: Blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki sem er hvorki dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með starfsleyfi í einhverju aðildarríki né dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í einhverju aðildarríki.
              44.      Móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði í aðildarríki: Eignarhaldsfélag á fjármálasviði sem hvorki er dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis sem hefur starfsleyfi í sama aðildarríki né dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða annars blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í sama aðildarríki.
              45.      Blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki: Blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi sem hvorki er dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með starfsleyfi í sama aðildarríki né dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða annars blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í sama aðildarríki.
              46.      Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu: Móðurfélag sem er móðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
              47.      Eftirlitsaðili á samstæðugrunni: Lögbært yfirvald á Evrópska efnahagssvæðinu sem ber ábyrgð á framkvæmd eftirlits á samstæðugrunni með einhverju eftirtalinna félaga:
                          a.      Móðurfélagi á Evrópska efnahagssvæðinu.
                          b.      Lánastofnun sem móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu fer með yfirráð í.
                          c.      Lánastofnun sem blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu fer með yfirráð í.
                          d.      Verðbréfafyrirtæki sem móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu fer með yfirráð í.
                          e.      Verðbréfafyrirtæki sem blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu fer með yfirráð í.

2. gr.

    6. tölul. 1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: hafi ráðstafanir sem gripið hefur verið til á grundvelli ákvæða 86. gr. h – 86. gr. j um tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins eða ákvæða um inngrip Fjármálaeftirlitsins í eignir, réttindi og skyldur fjármálafyrirtækis skv. 100. gr. a ekki skilað árangri eða hafi verið kveðinn upp úrskurður um slit fyrirtækisins skv. XII. kafla.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
     a.      Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Eftirlitskerfi með áhættu skal einnig taka til og innihalda skjalfesta innri ferla um hvers konar viðskipti við blandað eignarhaldsfélag og dótturfélög þess sé það blandað eignarhaldsfélag móðurfélags fjármálafyrirtækis.
     b.      Í stað „8. mgr.“ í 7. mgr. kemur : 9. mgr.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „reglum Fjármálaeftirlitsins“ í 1. mgr. kemur: reglugerð skv. 8. mgr.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar. Í reglugerðinni skal m.a. kveðið á um heimila frádráttarliði, áhættumildandi þætti, hámark samtölu stórra áhættuskuldbindinga og heimildir fjármálafyrirtækja til að reikna út eiginfjárkröfu vegna umframáhættu stórra áhættuskuldbindinga. Í reglugerðinni skal einnig kveðið á um takmarkanir á fjárfestingum fjármálafyrirtækja vegna skuggabankastarfsemi.

5. gr.

    Á eftir IX. kafla laganna kemur nýr kafli, IX. kafli A, Endurbótaáætlun, með sjö greinum, 82. gr. a – 82. gr. g, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (82. gr. a.)

Endurbótaáætlun lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis.

    Lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a skulu gera endurbótaáætlun sem skal a.m.k. innihalda eftirfarandi atriði:
     1.      Aðgerðir sem lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hyggst grípa tímanlega til, og það verklag sem viðhafa skal, komi upp rekstrarerfiðleikar hjá fyrirtæki sem geta haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu þess eða starfsemi, þ.m.t. ef aðstæður eru þannig að beita þurfi tímanlegum inngripum skv. 86. gr. h.
     2.      Sviðsmyndir sem gera ráð fyrir rekstrarerfiðleikum hjá lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki ásamt áföllum í fjármálakerfinu og hagkerfinu sem geta haft áhrif á rekstur eða starfsemi viðkomandi fyrirtækis.
     3.      Þegar við á, greiningu á því hvenær og undir hvaða kringumstæðum lánastofnanir geta óskað eftir lausafjárfyrirgreiðslu frá Seðlabanka Íslands. Ekki skal gera ráð fyrir annars konar opinberum fjárstuðningi í endurbótaáætlun.
    Stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skal samþykkja endurbótaáætlunina og afhenda hana Fjármálaeftirlitinu. Lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki skulu uppfæra endurbótaáætlun að lágmarki árlega en oftar ef breytingar verða á rekstri fyrirtækjanna eða ef annað í starfsemi þeirra veldur verulegum breytingum á áætluninni. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að endurbótaáætlun sé uppfærð oftar en árlega.
    Ráðherra skal setja reglugerð þar sem m.a. er kveðið á um nánari kröfur um innihald endurbótaáætlana skv. 1. mgr. og endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d.

    b. (82. gr. b.)

Mat á endurbótaáætlun.

    Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort endurbótaáætlun sé í samræmi við ákvæði 82. gr. a. Auk þess skal Fjármálaeftirlitið leggja mat á hvort sýnt hafi verið fram á eftirfarandi:
     1.      að verklag í endurbótaáætlun og aðgerðir séu líklegar til að viðhalda eða rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis eða samstæðu þess og tryggja heilbrigðan rekstur, og
     2.      að líklegt sé að áætluninni megi hrinda hratt í framkvæmd þegar óróleiki er á fjármálamörkuðum og að með innleiðingu áætlunarinnar megi draga úr neikvæðum áhrifum á fjármálakerfið, þ.m.t. þegar fleiri lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki þurfa að virkja endurbótaáætlun sína á sama tíma.
    Við mat á endurbótaáætlun skal horfa til þess hvernig eigið fé lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis er samsett og hvernig fjármögnun er háttað með hliðsjón af starfsemi, skipulagi og áhættusniði.
    Fjármálaeftirlitið skal leita álits Seðlabanka Íslands við mat á þeim þáttum endurbótaáætlunar lánastofnunar sem varða lausafjármál.
    Ráðherra skal setja reglugerð þar sem fram koma lágmarksviðmið sem Fjármálaeftirlitinu ber að líta til við mat á efnisþáttum skv. 1. mgr.

    c. (82. gr. c.)

Málsmeðferð og aðgerðir vegna ágalla við mat á endurbótaáætlun.

    Fjármálaeftirlitið skal innan sex mánaða frá móttöku endurbótaáætlunar ljúka mati á áætluninni og tilkynna lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki telji það verulega ágalla vera á áætluninni.
    Lánastofnun og verðbréfafyrirtæki skulu, innan tveggja mánaða frá móttöku tilkynningar Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr., bæta úr ágöllum á endurbótaáætluninni. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að framlengja þann frest um einn mánuð sé þess óskað. Ef úrbætur eru ófullnægjandi að mati Fjármálaeftirlitsins getur það krafist þess að gerðar verði tilgreindar breytingar á áætluninni innan hæfilegs frests sem Fjármálaeftirlitið ákveður.
    Ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki afhendir ekki endurskoðaða endurbótaáætlun innan tímafrests skv. 2. mgr. eða ef Fjármálaeftirlitið telur að endurskoðuð áætlun sé ekki fullnægjandi skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki, innan hæfilegs frests, geri tillögur að breytingum á starfsemi sinni til þess að ráða bót á þeim ágöllum sem eru að mati Fjármálaeftirlitsins á endurbótaáætluninni.
    Geri lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki ekki tillögur að breytingu á starfsemi sinni innan tímafrests skv. 3. mgr., eða teljist tillögur sem gerðar eru ófullnægjandi, er Fjármálaeftirlitinu heimilt, að teknu tilliti til alvarleika ágallanna, að krefjast þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki grípi til einhverra eftirfarandi aðgerða:
     1.      Dragi úr áhættusniði, þar á meðal lausafjáráhættu.
     2.      Tryggi að til staðar sé traust og tímanleg endurfjármögnun.
     3.      Endurskoði stefnu og skipulag fyrirtækisins eða samstæðu þess.
     4.      Breyti fjármögnunaráætlunum sínum til þess að bæta viðnámsþrótt kjarnastarfsemi og kerfislega mikilvægrar starfsemi.
     5.      Breyti stjórnskipulagi og viðskiptaáætlunum fyrirtækisins.
    Ef við á skal Fjármálaeftirlitið hafa samráð við lögbær yfirvöld aðildarríkja þar sem mikilvæg útibú fyrirtækisins eru staðsett.

    d. (82. gr. d.)

Endurbótaáætlun samstæðu.

    Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu skal gera og uppfæra endurbótaáætlun samstæðu. Ef Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili á samstæðugrunni skal það móttaka endurbótaáætlun og áframsenda til lögbærra yfirvalda dótturfélaga og mikilvægra útibúa í öðrum aðildarríkjum.
    Endurbótaáætlunin skal ná til samstæðu í heild og tilgreina aðgerðir sem grípa getur þurft til hjá móðurfélaginu og einstökum dótturfélögum þess. Endurbótaáætlun samstæðu skal samþykkt af stjórn móðurfélagsins.
    Endurbótaáætlun samstæðunnar skal taka mið af þeim efnisatriðum sem fram koma í 82. gr. a. Endurbótaáætlun samstæðu skal einnig innihalda upplýsingar sem varða samninga um fjárstuðning innan samstæðu skv. 109. gr. a, hafi slíkir samningar verið gerðir.
    Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki sem eru dótturfélög félaga skv. 1. málsl. 1. mgr. geri sjálfstæða endurbótaáætlun skv. 82. gr. a. Ef móðurfélag er staðsett í öðru aðildarríki skal Fjármálaeftirlitið leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum um endurbótaáætlun dótturfélags. Ef lögbært yfirvald hefur vísað ákvörðun eftirlitsaðila á samstæðugrunni til Eftirlitsstofnunar EFTA eða Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar skal Fjármálaeftirlitið fresta ákvörðun sinni um að dótturfélag geri sjálfstæða endurbótaáætlun og taka ákvörðun um það í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA, sbr. 7. mgr.
    Mat á endurbótaáætlun samstæðu skal grundvallast á 82. gr. b. Málsmeðferð og aðgerðir vegna ágalla á endurbótaáætlun samstæðu skal grundvallast á 82. gr. c. Ef Fjármálaeftirlitið telst eftirlitsaðili á samstæðugrunni skal tilkynningum skv. 82. gr. c beint til móðurfélags samstæðu.
    Við mat á endurbótaáætlun samstæðu skal Fjármálaeftirlitið leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum. Ef sameiginleg ákvörðun liggur ekki fyrir innan fjögurra mánaða frá því að Fjármálaeftirlitið, sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni, sendi endurbótaáætlun til viðeigandi lögbærra yfirvalda skv. 1. mgr., skal það taka sjálfstæða ákvörðun um áætlunina. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna móðurfélagi og lögbærum yfirvöldum um ákvörðunina.
    Fjármálaeftirlitið skal fresta ákvörðun sinni hafi eitthvert þeirra lögbæru yfirvalda sem aðild eiga að málinu vísað ákvörðun eftirlitsaðila á samstæðugrunni, þ.m.t. Fjármálaeftirlitsins ef við á, til Eftirlitsstofnunar EFTA eða til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunar í samræmi við lög nr. 24/2017, fyrir lok tímafrests skv. 6. mgr. og skal Fjármálaeftirlitið í þeim tilvikum bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka á grundvelli reglugerðarinnar. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA.

    e. (82. gr. e.)

Einföld endurbótaáætlun.

    Fjármálaeftirlitið ákveður hvort lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skv. 1. málsl. 1. mgr. 82. gr. a sé heimilt að gera einfalda endurbótaáætlun. Skilyrði slíkrar ákvörðunar eru að rekstrarerfiðleikar lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis og eftir atvikum slitameðferð fyrirtækjanna hafi ekki í för með sér verulega neikvæð áhrif á fjármálakerfið, aðrar lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki, miðlun fjármagns í fjármálakerfinu eða hagkerfið.
    Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er fallið frá ákvörðun um einfalda endurbótaáætlun skv. 1. mgr.
    Ráðherra setur reglugerð um einfaldar endurbótaáætlanir og skal í reglugerðinni m.a. kveðið nánar á um skilyrði fyrir einfaldri endurbótaáætlun skv. 1. mgr.

    f. (82. gr. f.)

Vísar í endurbótaáætlun.

    Lánastofnun og verðbréfafyrirtæki skv. 1. málsl. 1. mgr. 82. gr. a skal í endurbótaáætlun tilgreina vísa er gefa til kynna hvenær og þá til hvaða aðgerða þörf er á að grípa til á grundvelli endurbótaáætlunar. Vísarnir skulu ákveðnir í samræmi við starfsemi fyrirtækjanna og taka mið af innri sem ytri aðstæðum og fjárhagsstöðu fyrirtækis. Vísarnir skulu þannig framsettir að auðvelt sé að hafa yfirsýn yfir hvenær þeir gefa til kynna að viðbragða sé þörf. Vísarnir skulu sæta reglubundinni vöktun fyrirtækis og skal endurbótaáætlun tilgreina hvernig vöktun þeirra er háttað.
    Jafnvel þótt vísar gefi ekki til kynna að þörf sé á að grípa til aðgerða getur stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis eigi að síður gripið til þeirra aðgerða sem fram koma í endurbótaáætlun og stjórn telur viðeigandi með tilliti til aðstæðna. Stjórn getur einnig ákveðið, telji hún það viðeigandi með tilliti til aðstæðna, að grípa ekki til aðgerða þó að vísar gefi annað til kynna.
    Ákvörðun stjórnar skv. 2. mgr. skal án tafar tilkynnt Fjármálaeftirlitinu ásamt rökstuðningi.
    Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Seðlabanka Íslands ef tilkynning sem varðar lausafjármál berst skv. 3. mgr.
    Fjármálaeftirlitinu er heimilt, að undangengnu samráði við Seðlabanka Íslands, að setja reglur um þá vísa sem að lágmarki skal fjalla um í endurbótaáætlun.

    g. (82. gr. g.)

Skrá yfir fjárhagslega samninga.

    Lánastofnun skal halda skrá yfir fjárhagslega samninga sem hún er aðili að.
    Fjármálaeftirlitið getur farið fram á að eftirtaldir aðilar viðhaldi skrá yfir fjárhagslega samninga:
     1.      Verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a.
     2.      Eignarhaldsfélag á fjármálasviði.
     3.      Blandað eignarhaldsfélag.
     4.      Blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi.
     5.      Móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu.
     6.      Blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
     7.      Móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði í aðildarríki.
     8.      Blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki.
     9.      Fjármálastofnun, ef hún er dótturfélag lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a eða fyrirtækja skv. 2.–8. tölul. og fellur undir eftirlit á samstæðugrunni hér á landi.
    Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að upplýsingar skv. 1. og 2. mgr. séu afhentar Fjármálaeftirlitinu innan 24 klukkustunda gerist þess þörf.
    Fjármálaeftirlitið setur reglur um skrá um fjárhagslega samninga, þ.m.t. um hvaða lágmarksupplýsingar skuli koma fram í skrá yfir fjárhagslega samninga og hvaða samningar teljist fjárhagslegir samningar.

6. gr.

    86. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Tilkynning um brot gegn varfærniskröfum.

    Stjórn eða framkvæmdastjóri skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar uppfylli fjármálafyrirtæki ekki þær varfærniskröfur sem kveðið er á um í lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra. Stjórn eða framkvæmdastjóri skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar ef líklegt er að fjármálafyrirtæki muni á næstu tólf mánuðum ekki uppfylla þær varfærniskröfur sem kveðið er á um í lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum. Stjórn fjármálafyrirtækis skal greina Fjármálaeftirlitinu frá því til hvaða ráðstafana hún hyggst grípa til að koma starfsemi í lögmætt horf.
    Er tilkynning berst skv. 1. málsl. 1. mgr. er Fjármálaeftirlitinu heimilt að veita fjármálafyrirtæki frest í allt að sex mánuði til að koma starfsemi í lögmætt horf. Séu til þess ríkar ástæður er Fjármálaeftirlitinu heimilt að framlengja þann frest í allt að sex mánuði í viðbót.
    Er tilkynning berst skv. 1. og 2. málsl. 1. mgr. getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að stjórn fjármálafyrirtækis afhendi greinargerð og önnur gögn um úrbætur og ráðstafanir á grundvelli 1. mgr. Greinargerð og gögnum skal skilað til Fjármálaeftirlitsins innan tímamarka sem Fjármálaeftirlitið ákveður.
    Ákvæði þetta takmarkar á engan hátt aðrar heimildir Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum þessum, þ.m.t. heimildir í 9. gr., 86. gr. g – 86. gr. j og XII. kafla.

7. gr.

    Á eftir 86. gr. g laganna koma fjórar nýjar greinar, 86. gr. h – 86. gr. k, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (86. gr. h.)

Tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins.

    Fjármálaeftirlitið getur beitt tímanlegum inngripum gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a ef:
     1.      fyrirtækið brýtur gegn ákvæðum laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla settra á grundvelli þeirra, þ.m.t. reglugerð settri á grundvelli 117. gr. a, eða
     2.      líkur eru á því vegna versnandi fjárhagslegrar stöðu, þ.m.t. versnandi lausafjárstöðu, aukinnar vogunar, aukinna vanskila lántakenda eða samþjöppunar áhættuskuldbindinga, að fyrirtækið muni brjóta gegn lögum og stjórnvaldsfyrirmælum skv. 1. tölul.
    Ef aðstæður skv. 1. eða 2. tölul. 1. mgr. eru til staðar getur Fjármálaeftirlitið hrint í framkvæmd eða krafist þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hrindi í framkvæmd a.m.k. einni eða fleiri af eftirfarandi aðgerðum:
     1.      Grípi til aðgerða samkvæmt endurbótaáætlun eða uppfæri endurbótaáætlun og framkvæmi aðgerðir samkvæmt uppfærðri áætlun.
     2.      Afhendi Fjármálaeftirlitinu tímasetta aðgerðaáætlun.
     3.      Boði til hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda. Verði ekki farið að þeirri kröfu getur Fjármálaeftirlitið boðað til hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda. Í báðum tilvikum ákveður Fjármálaeftirlitið dagskrá fundarins og getur krafist þess að tiltekin mál verði tekin til umræðu og ákvörðunar.
     4.      Vikið einum eða fleiri stjórnarmönnum og/eða framkvæmdastjóra frá uppfylli þeir ekki kröfur skv. 52. gr., 52. gr. a og 54. gr.
     5.      Afhendi Fjármálaeftirlitinu áætlun um samningaviðræður um endurskipulagningu á skuldum við lánardrottna.
     6.      Breyti viðskiptastefnu fyrirtækisins.
     7.      Breyti skipulagi fyrirtækisins.
    Fjármálaeftirlitið skal veita fyrirtæki hæfilegan tímafrest, sem Fjármálaeftirlitið ákveður, til að ljúka við þær aðgerðir sem það hefur krafist skv. 2. mgr.
    Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Seðlabanka Íslands tímanlega ef aðstæður eru þannig að Fjármálaeftirlitið getur beitt tímanlegum inngripum skv. 1. mgr. Seðlabanki Íslands skal upplýsa Fjármálaeftirlitið tímanlega ef lausafjárstaða lánastofnunar fer versnandi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    Fjármálaeftirlitinu er heimilt að setja reglur sem skilgreina viðmið um hvenær Fjármálaeftirlitið getur beitt tímanlegum inngripum vegna versnandi fjárhagslegrar stöðu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skv. 2. tölul. 1. mgr.

    b. (86. gr. i.)

Brottvikning stjórnar og framkvæmdastjóra við tímanleg inngrip.

    Fjármálaeftirlitið getur vikið stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skv. 1. málsl. 1. mgr. 86. gr. h frá, í heild eða að hluta, sem og framkvæmdastjóra hafi fyrirtækið brotið alvarlega gegn ákvæðum laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykkta fyrirtækis eða ef alvarlegar athugasemdir hafa verið gerðar við stjórnun þess.
    Brottvikning Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr. á einnig við ef fjárhagur lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis hefur versnað verulega eða aðgerðir skv. 86. gr. h hafa ekki eða eru ekki líklegar að mati Fjármálaeftirlitsins til að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis.

    c. (86. gr. j.)

Bráðabirgðastjórnandi.

    Telji Fjármálaeftirlitið að brottvikning stjórnar og framkvæmdastjóra skv. 86. gr. i sé ekki fullnægjandi til að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skv. 1. málsl. 1. mgr. 86. gr. h getur það skipað fyrirtækinu bráðabirgðastjórnanda.
    Skipun bráðabirgðastjórnanda skv. 1. mgr. getur tekið til þess:
     1.      að einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur leysi stjórn af í heild sinni, eða
     2.      að einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur starfi með starfandi stjórn.
    Ákvæði þessara laga og ákvæði um félagsstjórn í lögum um hlutafélög gilda eftir því sem við á um bráðabirgðastjórnanda sem skipaður er skv. 1. tölul. 2. mgr. Ákvæði 63. og 68. gr. hlutafélagalaga gilda ekki um skipun bráðabirgðastjórnanda sem skipaður er skv. 1. tölul. 2. mgr. og fundur stofnfjáreigenda eða hluthafa getur ekki leyst bráðabirgðastjórnanda frá störfum.
    Skipi Fjármálaeftirlitið bráðabirgðastjórnanda skal í skipunarbréfi til hans, eftir því sem við á, kveða á um:
     1.      Skipunartíma.
     2.      Helstu verkefni.
     3.      Skyldur.
     4.      Valdsvið, bæði heimildir og takmarkanir.
     5.      Hvaða ákvarðanir stjórn þarf að bera fyrir fram undir bráðabirgðastjórnanda, hafi hún ekki verið leyst frá störfum.
     6.      Hvaða ákvarðanir bráðabirgðastjórnandi þarf að bera undir Fjármálaeftirlitið.
     7.      Skýrsluskil til Fjármálaeftirlitsins.
    Skipunartími bráðabirgðastjórnanda skal að hámarki vera eitt ár. Við sérstakar aðstæður er Fjármálaeftirlitinu heimilt að framlengja skipunartímann. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er breytt skipun bráðabirgðastjórnanda skv. 2. mgr. og umboði hans skv. 4. mgr. eða leyst hann frá störfum.
    Fjármálaeftirlitið leggur mat á hæfi bráðabirgðastjórnanda. Um hæfisskilyrði bráðabirgðastjórnanda fer skv. 52. gr. og 52. gr. a.
    Telji Fjármálaeftirlitið skipun bráðabirgðastjórnanda ekki hafa borið tilætlaðan árangur getur það skipað fjármálafyrirtækinu bráðabirgðastjórn. Ákvæði 100. gr. a gilda að öðru leyti um slíka stjórn og störf hennar.
    Bráðabirgðastjórnandi er einungis ábyrgur fyrir tjóni sem hann veldur í störfum sínum af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi.

    d. (86. gr. k.)

Samningsákvæðum vikið til hliðar.

    Ef Fjármálaeftirlitið grípur til aðgerða skv. 86. gr. h – 86. gr. j gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skulu aðgerðirnar, þ.m.t. atburðir sem leiðir af þeim, hvorki samsvara vanefnd samkvæmt samningi um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir né jafngilda úrskurði um heimild til greiðslustöðvunar, nauðasamningsumleitana eða gjaldþrotaskipta samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. Ákvæði 1. málsl. er háð því skilyrði að fyrirtæki haldi áfram að efna meginskyldur samningssambands, þ.m.t. um greiðslu, afhendingu og veitingu tryggingarréttinda.
    Efni fyrirtæki áfram meginskyldur samningssambands skv. 1. mgr. veita aðgerðir Fjármálaeftirlitsins skv. 86. gr. h – 86. gr. j samningsaðilum fyrirtækisins ekki sjálfkrafa rétt til að:
     1.      Beita rétti til uppsagnar, gjaldfellingar, frestunar eða breytingar samningsskuldbindinga eða greiðslu- eða skuldajöfnunar á grundvelli samnings.
     2.      Öðlast eignarhald, fá yfirráð eða ganga að tryggingarréttindum í eigu fyrirtækisins.
     3.      Hafa áhrif á samningsbundin réttindi fyrirtækisins.
    Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda um samninga sem dótturfélag hefur gert og móðurfélag eða annað félag innan samstæðu ábyrgist eða styður á annan hátt. Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda einnig um samninga á milli félaga innan samstæðu sem innihalda víxlvanefndarákvæði.

8. gr.

    Í stað „4. mgr. 86. gr.“ í 1. tölul. 2. mgr. og í 5. mgr. 101. gr. laganna kemur: 2. mgr. 86. gr.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 107. gr. laganna:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                      Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi sem stofnsett eru eða starfa hér á landi. Eftirlit Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni nær einnig til starfsemi eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi, móðurfélags slíkra félaga og dótturfélaga þeirra, þegar þau eru staðsett í öðru ríki, m.a. þegar starfsemi slíks félags fer fram hér á landi, og getur eftirlitið þá verið í samstarfi og samráði við eftirlitsaðila í viðkomandi aðildarríki í samræmi við 108. gr.
     b.      Í stað orðanna „eignarhaldsfélögum á fjármálasviði og blönduðum eignarhaldsfélögum“ í 4. mgr. kemur: eignarhaldsfélögum á fjármálasviði, blönduðum eignarhaldsfélögum og dótturfélögum slíkra félaga.
     c.      Á eftir orðinu „dagsektir“ í 8. mgr. kemur: vettvangskönnun.
     d.      Fyrirsögn greinarinnar verður: Fjármálaeftirlitið og eftirlit á samstæðugrunni.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 108. gr. laganna:
     a.      Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                      Þegar Fjármálaeftirlitið telst eftirlitsaðili á samstæðugrunni eða þegar fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélag á fjármálasviði, blandað eignarhaldsfélag, blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi eða móðurfélag fjármálafyrirtækis hér á landi heyrir undir eftirlit á samstæðugrunni annars eftirlitsaðila í aðildarríki er Fjármálaeftirlitinu heimilt að eiga samstarf við eftirlitsaðila í öðru aðildarríki og samræma eftirlit með samstæðu, þ.m.t. með samstarfssamningum, upplýsingaskiptum og starfrækslu sérstakrar samstarfsnefndar eftirlitsaðila. Um samstarf og upplýsingaskipti skal fara eftir lögum þessum, lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og samstarfssamningum sem Fjármálaeftirlitið gerir á grundvelli þeirra.
                      Fjármálaeftirlitinu er heimilt að eiga í samstarfi við Eftirlitsstofnun EFTA og eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina í samræmi við lög þessi og lög nr. 24/2017, um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar verður: Aðstoð og samstarf við yfirvöld annarra EES-ríkja, Eftirlitsstofnun EFTA og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina.

11. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 109. gr. laganna:
     a.      1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Ákvæði IV. kafla C, IX. kafla A, X. kafla og reglugerð sett á grundvelli 117. gr. a skulu gilda um samstæðu þar sem móðurfélagið er fjármálafyrirtæki, blandað eignarhaldsfélag eða eignarhaldsfélag á fjármálasviði.
     b.      Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þegar kröfur á grundvelli laga þessara og laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum um starfsemi blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi eru sambærilegar er Fjármálaeftirlitinu, sé það eftirlitsaðili á samstæðugrunni, heimilt að höfðu samráði við lögbær yfirvöld, sbr. 108. gr., að ákveða að um eftirlit með félaginu fari í einstökum atriðum, eða að öllu leyti, eftir lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum. Ef blandað eignarhaldsfélag telst móðurfélag fjármálafyrirtækis skal eftirlitskerfi með áhættu skv. 17. gr. ná til viðskipta fjármálafyrirtækis við móðurfélagið og dótturfélög þess.
     c.      Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Fjármálaeftirlitinu er heimilt að víkja stjórnarmanni eða framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi frá störfum fyrir brot gegn XIII. kafla og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli kaflans.
     d.      Fyrirsögn greinarinnar verður: Varfærniskröfur á samstæðugrunni og nánari reglur um eftirlit á samstæðugrunni.

12. gr.

    Á eftir 109. gr. laganna koma sex nýjar greinar, 109. gr. a – 109. gr. f, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (109. gr. a.)

Samningur um fjárstuðning innan samstæðu.

    Félögum innan samstæðu er heimilt að gera sérstakan samning um fjárstuðning innan samstæðu. Slíkir samningar mega vera á milli eftirtalinna félaga, tveggja eða fleiri:
     1.      Móðurfélags í aðildarríki ef það er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a.
     2.      Móðurfélags á Evrópska efnahagssvæðinu ef það er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a.
     3.      Eignarhaldsfélags á fjármálasviði.
     4.      Blandaðs eignarhaldsfélags.
     5.      Blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi.
     6.      Móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu.
     7.      Blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
     8.      Móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði í aðildarríki.
     9.      Blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í aðildarríki.
     10.      Dótturfélags í öðru aðildarríki eða í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins sem er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. gr. 14. gr. a eða fjármálastofnun sem fellur undir eftirlit á samstæðugrunni hér á landi.
    Ekki er hægt að gera samning um fjárstuðning innan samstæðu nema ætlunin sé að hann komi einungis til framkvæmda ef hægt er að beita tímanlegum inngripum gagnvart aðila samnings eftir að samningur hefur verið gerður.
    Samningur um fjárstuðning innan samstæðu og það hvaða aðilar verða samningsaðilar slíkra     samninga er háð fyrirframsamþykki Fjármálaeftirlitsins skv. 109. gr. b og skal að öðru leyti vera í samræmi við þessa grein og 109. gr. b – 109. gr. f.
    Samningur um fjárstuðning skal tilgreina reglur um útreikning á endurgjaldi sem tekur til allra viðskipta samkvæmt samningnum. Fjárhæð endurgjalds skal liggja fyrir áður en fjárstuðningur er veittur. Samningur um fjárstuðning skal samræmast eftirfarandi meginreglum:
     1.      Hver og einn samningsaðili gengur sjálfviljugur til samninga.
     2.      Samningsaðilar hafa eigin hag að leiðarljósi.
     3.      Aðili sem veitir fjárstuðning skal hafa fullnægjandi upplýsingar frá viðtakanda fjárstuðnings áður en endurgjald fyrir fjárstuðning er ákvarðað og ákvörðun tekin um að veita fjárstuðninginn.

    b. (109. gr. b.)

Staðfesting samnings.

    Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu skal leita samþykkis og fá staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á samningi um fjárstuðning innan samstæðu. Með umsókn skal fylgja afrit samnings, tilgreining á samningsaðilum og önnur gögn sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynleg til þess að taka afstöðu til umsóknarinnar. Fjármálaeftirlitið sendir afrit af umsókninni og viðeigandi gögn til Seðlabanka Íslands og lögbærra yfirvalda þeirra félaga sem áætlað er að verði aðilar að samningnum.
    Staðfesting Fjármálaeftirlitsins á samningi er háð því að öll skilyrði 109. gr. d séu uppfyllt.
    Fjármálaeftirlitið skal leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum um umsókn um staðfestingu á samningi þar sem tekið skal tillit til þess hvaða áhrif samningurinn kann að hafa í þeim aðildarríkjum sem samstæðan starfar í. Sameiginleg ákvörðun skal liggja fyrir innan fjögurra mánaða frá því að fullbúin umsókn barst og skal hún tilkynnt umsækjanda ásamt rökstuðningi.
    Ef sameiginleg ákvörðun liggur ekki fyrir innan tímamarka skv. 3. mgr. skal Fjármálaeftirlitið taka sjálfstæða ákvörðun um umsókn skv. 1. mgr. að teknu tilliti til mats lögbærra yfirvalda. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna umsækjanda og lögbærum yfirvöldum um ákvörðunina.
    Fjármálaeftirlitið skal fresta ákvörðun skv. 4. mgr. hafi eitthvert þeirra lögbæru yfirvalda sem aðild eiga að málinu vísað ákvörðun Fjármálaeftirlitsins til Eftirlitsstofnunar EFTA eða eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í samræmi við lög nr. 24/2017 fyrir lok tímafrests skv. 3. mgr. og skal Fjármálaeftirlitið í þeim tilvikum bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka á grundvelli reglugerðarinnar. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA.

    c. (109. gr. c.)

Samþykki hluthafa.

    Að fenginni staðfestingu Fjármálaeftirlitsins skv. 109. gr. b skulu allir aðilar samnings um fjárstuðning innan samstæðu leggja samninginn fyrir hluthafafund til samþykktar eða synjunar. Samningur telst bindandi fyrir fyrirtæki þegar hann hefur verið samþykktur á hluthafafundi.
    Stjórn skal gera hluthöfum grein fyrir viðskiptum samkvæmt samningnum á hverju ári á aðalfundi félagsins.

    d. (109. gr. d.)

Skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu.

    Heimilt er að veita fjárstuðning skv. 109. gr. a ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
     1.      Ástæða er til að ætla að fjárstuðningur sé mikilvægur til þess að leysa úr fjárhagserfiðleikum viðtakanda.
     2.      Fjárstuðningi er ætlað að viðhalda eða rétta af fjárhag samstæðunnar eða félaga innan samstæðu, og í þágu þess sem veitir fjárstuðninginn.
     3.      Fjárstuðningur er í samræmi við skilmála samningsins, þ.m.t. um endurgjald skv. 4. mgr. 109. gr. a.
     4.      Verulegar líkur eru á því að endurgjald fyrir veittan fjárstuðning verði greitt.
     5.      Fjárstuðningur stofnar ekki í hættu lausafjárstöðu eða gjaldfærni fyrirtækis sem veitir fjárstuðning.
     6.      Fjárstuðningur ógnar ekki fjármálastöðugleika.
     7.      Fyrirtæki sem veitir fjárstuðning uppfyllir allar kröfur laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla settra á grundvelli þeirra um eigið fé, laust fé og stórar áhættuskuldbindingar og ekki er fyrirsjáanlegt að fyrirtæki brjóti gegn lögum með veitingu fjárstuðnings. Fjármálaeftirlitið getur veitt undanþágu frá þessu skilyrði.
    Skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu skv. 1. mgr. skal afmarka nánar með reglugerð sem ráðherra setur og skal í reglugerðinni a.m.k. kveðið á um nánari skilyrði skv. 1., 3. og 5. tölul. 1. mgr.

    e. (109. gr. e.)

Ákvörðun um fjárstuðning.

    Ákvörðun um að veita fjárstuðning sem byggist á samningi skv. 1. mgr. 109. gr. a skal tekin af stjórn þess fyrirtækis sem veitir fjárstuðning. Ákvörðun stjórnar skal vera rökstudd og skulu markmið fjárstuðningsins koma fram. Þá skal sérstaklega gera grein fyrir því hvernig ákvörðunin samræmist skilyrðum skv. 109. gr. d.
    Stjórn þess fyrirtækis sem fjárstuðningur beinist að skal taka ákvörðun um viðtöku fjárstuðningsins með þeim skilmálum sem leiðir af samningi skv. 1. mgr. 109. gr. a.
    Stjórn fyrirtækis sem hyggst veita fjárstuðning skv. 109. gr. a skal tilkynna það eftirfarandi aðilum áður en fjárstuðningur er veittur:
     1.      Fjármálaeftirlitinu.
     2.      Seðlabanka Íslands.
     3.      Eftirlitsaðila á samstæðugrunni, ef hann er annar en Fjármálaeftirlitið.
     4.      Lögbærum yfirvöldum í því aðildarríki þar sem viðtakandi fjárstuðningsins er staðsettur, ef þau eru önnur en þau sem koma fram í 1. eða 2. tölul.
     5.      Eftir atvikum Eftirlitsstofnun EFTA og/eða Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni.
    Með tilkynningu skv. 3. mgr. skal fylgja rökstudd ákvörðun stjórnar skv. 1. mgr. og nákvæm lýsing á fyrirhuguðum fjárstuðningi, þ.m.t. afrit af samningnum.
    Fjármálaeftirlitið hefur að hámarki fimm virka daga frá því að fullbúin tilkynning skv. 3. mgr. barst til að hafna eða takmarka fjárstuðning innan samstæðu með rökstuddri ákvörðun. Höfnun eða takmörkun á fjárstuðningi skal grundvallast á því að skilyrði 109. gr. d séu ekki uppfyllt. Fjármálaeftirlitið skal hafa samráð við Seðlabanka Íslands áður en ákvörðun er tekin. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að heimila, hafna eða takmarka fjárstuðning innan samstæðu skal án tafar tilkynnt aðilum skv. 2.–5. tölul. 3. mgr.
    Ef eftirlitsaðili á samstæðugrunni eða lögbær yfirvöld viðtakanda fjárstuðnings, þ.m.t. Fjármálaeftirlitið, fallast ekki á takmörkun eða synjun á fjárstuðningi geta viðkomandi yfirvöld innan tveggja daga frá móttöku tilkynningar vísað ágreiningi til Eftirlitsstofnunar EFTA eða eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í samræmi við lög nr. 24/2017.
    Ef Fjármálaeftirlitið hvorki hafnar né takmarkar fjárstuðning innan samstæðu innan tímafrests skv. 5. mgr. er fyrirtæki heimilt að veita fjárstuðning í samræmi við tilkynningu skv. 3. mgr.
    Ákvörðun stjórnar fyrirtækis um að veita fjárstuðning innan samstæðu skal tilkynnt til aðila skv. 1.–5. tölul. 3. mgr.
    Ef Fjármálaeftirlitið, sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni, hafnar eða takmarkar fjárstuðning innan samstæðu skv. 5. mgr., og endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d gerir ráð fyrir slíkum fjárstuðningi, getur lögbært yfirvald í því aðildarríki þar sem fyrirtækið sem veita átti fjárstuðningi viðtöku er staðsett, óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið hafi frumkvæði að því að endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d verði endurskoðuð, sbr. 82. gr. c. Ef endurbótaáætlun hefur verið gerð fyrir dótturfélag skv. 4. mgr. 82. gr. d og Fjármálaeftirlitið hefur hafnað eða takmarkað fjárstuðning innan samstæðu skv. 5. mgr. getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að fyrirtæki uppfæri endurbótaáætlun og afhendi Fjármálaeftirlitinu.

    f. (109. gr. f.)

Opinber birting.

    Fyrirtæki skal greina frá því opinberlega hvort það er aðili að samningi um fjárstuðning innan samstæðu skv. 109. gr. a. Ef fyrirtæki er aðili að slíkum samningi skal það gera grein fyrir aðilum samnings og helstu ákvæðum samnings í samandregnu formi. Upplýsingar um samninginn skulu birtar árlega, þ.m.t. breytingar sem kunna að verða á skilmálum eða aðild að samningnum. Um opinbera birtingu gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar skv. 117. gr. a.
    Ráðherra setur reglugerð um innihald og form birtinga skv. 1. mgr.

13. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 110. gr. laganna:
     a.      29. tölul. orðast svo: 1., 4. og 5. mgr. 54. gr. um skyldur stjórnar, starfsreglur og bann við starfandi stjórnarformanni.
     b.      45. tölul. orðast svo: 1. mgr. 86. gr. um tilkynningu um brot gegn varfærniskröfum.
     c.      Við 53. tölul. bætist: og eftirlit á samstæðugrunni, þ.m.t. með því að hindra eftirlit, afhenda ekki gögn eða upplýsingar eða afhenda ófullnægjandi gögn eða upplýsingar.
     d.      Við bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:
                  63.      1. og 2. mgr. 82. gr. a um að gera endurbótaáætlun eða uppfæra hana.
                  64.      1. og 2. mgr. 82. gr. g um að halda skrá yfir fjárhagslega samninga.
                  65.      2. mgr. 109. gr. e um að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um fyrirhugaðan fjárstuðning innan samstæðu.
                  66.      109. gr. um varfærniskröfur og eftirlit á samstæðugrunni og eftirlitskerfi með áhættu vegna starfsemi blandaðra eignarhaldsfélaga.

14. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 112. gr. b laganna:
     a.      25. tölul. orðast svo: 1. mgr. 86. gr. um tilkynningu um brot gegn varfærniskröfum.
     b.      Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: 107. gr. um að hindra eftirlit eða veita villandi og/eða rangar upplýsingar.

15. gr.

    Við 1. málsl. 117. gr. a laganna bætist: með áorðnum breytingum.

16. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, til að innleiða í íslenskan rétt annars vegar hluta tilskipunar 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og hins vegar nokkur ákvæði tilskipunar 2013/36/ESB um stofnun og starfsemi fjármálafyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja.
    Sá hluti frumvarpsins sem lýtur að innleiðingu ákvæða tilskipunar 2014/59/ESB var saminn í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og af nefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði hinn 10. febrúar 2014 til að semja frumvarp til nýrra laga um endurreisn og skilameðferð sem tæki mið af tilskipuninni. Tilskipunin var birt í Stjórnartíðindum ESB 12. júní 2014 og tók gildi í ríkjum ESB 2. júlí 2014. Samkvæmt tilskipuninni áttu aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) að innleiða ákvæði hennar í landsrétt fyrir 31. desember 2014 og áttu reglurnar að gilda frá sama tímamarki að undanskildum ákveðnum hlutum tilskipunarinnar sem tóku gildi í aðildarríkjum ESB 1. janúar 2016. Tilskipunin sem er á ensku er jafnan kölluð „Bank Recovery and Resolution Directive“ eða „BRRD Directive“ var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn) 9. febrúar 2018, með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2018.
    Sá hluti frumvarpsins sem lýtur að lagabreytingum á grundvelli tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 er einnig saminn í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Tilskipunin og reglugerðin hafa ekki verið teknar upp í EES-samninginn en upptaka Evrópugerða á fjármálamarkaði dróst um tíma vegna upptöku reglugerða ESB um stofnun nýrra evrópskra eftirlitsstofnana sem gefnar voru út árið 2010. Þær reglugerðir hafa nú verið teknar upp í EES-samninginn og í íslenskan rétt með lögum nr. 24/2017, um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, sem samþykkt voru á 146. löggjafarþingi. Unnið er að upptöku tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 í EES-samninginn á vettvangi EFTA og má búast við að gerðirnar verði orðnar hluti EES-samningsins síðar á árinu 2018.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Vegna aðildar Íslands að EES-samningnum byggist stór hluti íslenskrar löggjafar á sviði fjármálaþjónustu á gerðum ESB. Á undanförnum árum hefur ESB lagt mikla áherslu á að bæta regluverk á sviði fjármálaþjónustu til að draga úr líkum á því að fjármálaáföll eins og bankahrunið árið 2008 endurtaki sig. Endurskoðun ESB hefur náð til nær allra þátta fjármálaþjónustunnar og leitt til grundvallarbreytinga á reglum Evrópuréttar, m.a. með aukna einsleitni á innri markaðnum að leiðarljósi.
    Alþjóðlega fjármálakreppan sem hófst árin 2007–2008 leiddi í ljós að algengt var að eftirlitsstjórnvöld bæði innan og utan Evrópu höfðu ekki fullnægjandi valdheimildir til að takast á við rekstrarerfiðleika eða áföll hjá fjármálafyrirtækjum. Algeng lausn hjá ríkjum heims var að leggja fjármálafyrirtækjum til fjármagn úr opinberum sjóðum til að takast á við rekstrarerfiðleika eða fjármálaáföll. Sú ráðstöfun þótti nauðsynleg meðal annars vegna náinna tengsla fyrirtækja á fjármálamarkaði, hættu á smitáhrifum og kerfislegum áhrifum. Með þeim aðgerðum að leggja fjármálafyrirtækjum til opinbera fjármuni (e. bail-out) var komið í veg fyrir fall ýmissa fyrirtækja með það að markmiði að vernda fjármálastöðugleika. Ein helsta ástæða þess að ESB ákvað að semja nýjar samræmdar reglur um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja var sú að með regluverkinu mætti sporna við því að gripið væri inn í rekstur fallandi fjármálafyrirtækja með opinberum fjármunum. Höfuðmarkmið nýs regluverks um endurreisn og skilameðferð er því að hluthafar og lánardrottnar fjármálafyrirtækis, sem ekki getur staðið við skuldbindingar sínar, taki á sig það tap sem hlýst af erfiðleikum fyrirtækisins.
    Með setningu hinna svokölluðu neyðarlaga, sbr. lög nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., var tekið á þeim miklu erfiðleikum sem sköpuðust hér á landi við bankahrunið 2008. Með lögunum var fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs veitt heimild, við sérstakar aðstæður, til að leggja fram fjármagn til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yfirtaka fjármálafyrirtæki í heild eða að hluta. Með frumvarpinu voru einnig samþykktar ýmsar breytingar á öðrum lögum. Ber þar helst að nefna breytingu sem gerð var á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Við lögin bættist nýtt ákvæði 100. gr. a sem veitti Fjármálaeftirlitinu víðtækar heimildir til að grípa inn í starfsemi fjármálafyrirtækja til að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði. Ákvæði 100. gr. a var lögfest sem bráðabirgðaákvæði VI við lög um fjármálafyrirtæki með lögum nr. 44/2009. Gildistími ákvæðisins hefur verið framlengdur sex sinnum, nú síðast með lögum nr. 94/2017, sem samþykkt voru á 148. löggjafarþingi. Þegar innleiðingu á tilskipun 2014/59/ESB verður að fullu lokið, samhliða innleiðingu á tilskipun 2014/49/ESB um innstæðutryggingar, sem unnið er að, verður til nýtt heildstætt regluverk á fjármálamarkaði sem leysir þá umgjörð af hólmi sem komið var á fót haustið 2008. Tilskipanirnar tvær, ásamt tilskipun 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013, mynda samtengdan hluta af nýrri heildarumgjörð fyrir fjármálafyrirtæki og fjármálamarkaðinn sem ætlað er að taka á erfiðleikum og áföllum í rekstri fjármálafyrirtækja.

Tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
    Í tilskipun 2014/59/ESB er mælt fyrir um viðbrögð og aðgerðir til að takast á við erfiðleika eða áföll í rekstri fjármálafyrirtækja. Helstu markmið tilskipunarinnar eru annars vegar að koma í veg fyrir erfiðleika eða áföll í rekstri fjármálafyrirtækja. Til að ná því markmiði þurfa fyrirtæki sem heyra undir gildissvið tilskipunarinnar og stjórnvöld að grípa til undirbúningsaðgerða í því skyni að bregðast við erfiðleikum. Hins vegar er það markmið að lágmarka neikvæðar afleiðingar fjármálaáfalla ef til þeirra kemur með því að tryggja stjórnvöldum nauðsynlegar valdheimildir til inngripa í rekstur fyrirtækis og aðgerða til að greiða úr erfiðleikunum. Með því er lagt upp með að vernda fjármálastöðugleika, tryggja áframhaldandi kerfislega mikilvæga starfsemi fyrirtækis, draga úr hættu á að ráðstafa þurfi fé úr ríkissjóði og vernda tryggðar innstæður, fé og eignir viðskiptamanna fyrirtækis sem stendur frammi fyrir rekstrarerfiðleikum.
    Umfang innleiðingar á tilskipun 2014/59/ESB er meira en að innleiða efnisreglur hennar þar sem tilskipunin gerir einnig ráð fyrir að koma þurfi á fót nýjum stofnunum. Tilskipunin gerir ráð fyrir að sérstakt stjórnvald – skilavald (e. resolution authority) verði stofnað sem fari með undirbúning og framkvæmd skilameðferðar. Í tilskipuninni er einnig kveðið á um skyldu stjórnvalda til að setja á stofn sérstakan fjármögnunarfarveg – skilasjóð (e. resolution financing arrangement) til að tryggja skilvirkni og fjármögnun skilameðferðar án framlaga úr ríkissjóði. Huga þarf sérstaklega að fyrirkomulagi, umfangi og rekstrarkostnaði við þessa nýju lögaðila og er stefnt að því að það verði gert með öðru lagafrumvarpi á næsta löggjafarþingi.
    Nánari útfærslur einstakra ákvæða tilskipunar 2014/59/ESB koma m.a. fram í framseldum reglugerðum (e. delegated regulation) eða framkvæmdarreglugerðum (e. implementing regulation) framkvæmdastjórnar ESB sem byggjast á tæknilegum eftirlitsstöðlum eða framkvæmdarstöðlum sem Evrópska bankaeftirlitsstofnunin gefur út. Þessar Evrópugerðir verða innleiddar hér á landi með stjórnvaldsfyrirmælum.

Afmörkun við innleiðingu á tilskipun 2014/59/ESB í íslenskan rétt.
    Á starfstíma nefndar sem kemur að innleiðingu á tilskipun 2014/59/ESB var lagt upp með að efnisákvæði BRRD-tilskipunarinnar yrðu innleidd hér á landi með nýjum heildarlögum um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja þannig að fylgt væri uppbyggingu tilskipunarinnar við samningu slíkra laga. Jafnframt var lagt upp með að efnisákvæði XII. kafla laga um fjármálafyrirtæki um endurskipulagningu fjárhags og slit sem byggist á tilskipun 2001/24/EB um endurskipulagningu og slit lánastofnana yrðu sameinuð nýju lögunum. Með því að sameina ákvæði XII. kafla laga um fjármálafyrirtæki frumvarpi til nýrra heildarlaga yrði til heildstæður lagabálkur um viðbrögð við rekstrarerfiðleikum, skilameðferð og slit lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
    Að teknu tilliti til umfangs tilskipunar 2014/59/ESB var tekin sú ákvörðun í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samráði við nefndina að skipta efninu upp í a.m.k. tvo meginhluta og innleiða tilskipunina í áföngum með fleiri en einu lagafrumvarpi. Tilskipunin er yfirgripsmikil en í heild spannar hún 132 greinar og er með viðaukum 159 blaðsíður. Þá er regluverk tilskipunarinnar nokkuð flókið og afar nákvæmt enda um að ræða nýjar efnisreglur sem byggjast ekki á grunni eldri Evrópureglna. Ríki Evrópu hafa nú þegar innleitt regluverk tilskipunar 2014/59/ESB í landsrétt sinn. Af hálfu EFTA-ríkjanna hefur Liechtenstein innleitt regluverkið og lagafrumvarp til innleiðingar er til meðferðar hjá norska þinginu. Ísland þarf sem aðili að EES-samningnum að tryggja einsleitni á innri markaðnum og brýnt þykir því að tekið verði fyrsta skrefið í innleiðingu og hluti af heimildum tilskipunar 2014/59/ESB innleiddar í íslenskan rétt.
    Ef litið er til Norðurlandanna þá hafa Danir innleitt hluta af ákvæðum tilskipunar 2014/59/ESB, með breytingu á lögum um fjármálastarfsemi (d. lov om finansiel virksomhed) og hluta með nýjum lögum um skilameðferð (d. lov om restrukturering og afvikling af visse finansielle virksomheder). Hið sama á við um Svía sem innleiddu ákvæði tilskipunarinnar m.a. með breytingu á lögum um banka- og fjármálastarfsemi (e. lag om bank- och finansieringsrörelse) og nýjum lögum um skilameðferð (s. lag om resolution). Þau ákvæði tilskipunarinnar sem lagt er til að bætist við lög um fjármálafyrirtæki með frumvarpi þessu voru lögfest með breytingu á lögum um fjármálastarfsemi bæði í Danmörku og Svíþjóð. Í Noregi er hins vegar lagt til að ákvæði tilskipunarinnar verði í heild innleidd með breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og fjármálastarfsemi (n. lov om finansforetak og finanskonsern (n. finansforetaksloven)).
    Frumvarp þetta er fyrsti áfangi í þeirri vegferð að taka efnisreglur tilskipunar 2014/59/ESB inn í íslenskan rétt. Í þessum fyrsta hluta innleiðingar eru lagðar til breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem innleiða efni tilskipunarinnar um endurbótaáætlanir (e. recovery plan), tímanleg inngrip (e. early intervention) og fjárstuðning innan samstæðu (e. intra-group financial support). Þessar heimildir lúta allar eftirliti og ákvarðanatöku Fjármálaeftirlitsins en ekki skilavaldi samkvæmt tilskipuninni og falla því undir starfssvið Fjármálaeftirlitsins.
    Stefnt er að því að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja á næsta löggjafarþingi. Það frumvarp mun m.a. innleiða reglur um undirbúning og framkvæmd skilameðferðar, úrræði og heimildir skilameðferðar, nýja fjármögnun lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem samanstendur af lágmarkhlutfalli eiginfjárgrunns og hæfra skuldbindinga og ákvarða skal fyrir hvert og eitt fyrirtæki (e. minimum requirement for own funds and eligible liabilities, MREL), réttindi hluthafa og lánardrottna, skilameðferð yfir landamæri og fjármögnun skilameðferðar. Einnig verða lagðar til nauðsynlegar breytingar á ákvæðum XII. kafla laga um fjármálafyrirtæki um endurskipulagningu fjárhags og slit en tilskipun 2014/59/ESB breytir tilskipun 2001/24/EB um endurskipulagningu og slit. Þar að auki er lagt til að efnisákvæði tilskipunarinnar sem varða nýja lögaðila, skilavald og skilasjóð, verði innleidd með frumvarpinu.

Tilskipun 2013/36/ESB um stofnun og starfsemi fjármálafyrirtækja.
    Á undanförnum árum hefur verið unnið að upptöku tilskipunar 2013/36/ESB um stofnun og starfsemi fjármálafyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim (CRD IV-tilskipunin) og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja (CRR-reglugerðin) í íslenskan rétt. Þetta evrópska regluverk innleiðir Basel III staðalinn í Evrópurétt. Með lögum nr. 57/2015, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum, sem samþykkt voru á 144. löggjafarþingi, var fyrsta skrefið stigið í því að aðlaga íslenska löggjöf að Basel III staðlinum og nýju regluverki ESB. Að hluta til tóku lög nr. 58/2015, um breytingar á lagaákvæðum um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði o.fl., sem einnig voru samþykkt á 144. löggjafarþingi, til efnis tilskipunar 2013/36/ESB sem varðaði stjórnsýsluviðurlög o.fl. Með lögum nr. 96/2016, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem samþykkt voru á 145. löggjafarþingi var fjöldi ákvæða tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 tekin upp í lögin. Með lögum nr. 23/2017, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi á 146. löggjafarþingi voru tekin upp í íslenskan rétt ákvæði tilskipunar 2013/36/ESB um uppljóstrun. Þá var reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að stærstum hluta tekin upp hér á landi í byrjun árs 2017 með reglugerð nr. 233/2017, um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja.
    Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar sem byggjast á efni tilskipunar 2013/36/ESB sem varðar að meginstefnu til eftirlit á samstæðugrunni, varfærniskröfur á samstæðugrunni, samstarf eftirlitsaðila vegna eftirlits með starfsemi fjármálafyrirtækja í aðildarríkjum, lagastoð fyrir reglugerð vegna stórra áhættuskuldbindinga. Þá er lagt til með frumvarpi þessu að lagastoð sé uppfærð fyrir heimild til að taka upp reglugerð (ESB) nr. 575/2013 með reglugerð sem ráðherra birtir.
    Meginhluti þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu og byggjast á tilskipun 2013/36/ESB varða eftirlit á samstæðugrunni og tengjast samspili við efnisákvæði tilskipunar 2014/59/ESB um samstæður, t.d. endurbótaáætlun á samstæðugrunni og fjárstuðning innan samstæðu. Því stendur eftir að yfirfara aðra hluta þess efnis sem kemur fram í tilskipun 2013/36/ESB og varðar eftirlit á samstæðugrunni.
    Verði þetta frumvarp að lögum á eftir að endurskoða reglur um útibú og þjónustustarfsemi á milli landamæra, reglur um eiginfjárauka með tilliti til starfsemi alþjóðlegra kerfislega mikil fjármálafyrirtækja, aðkomu Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar að heimildum á grundvelli tilskipunar 2013/36/ESB og þær reglur sem varða eftirlit á samstæðugrunni sem ekki eru hluti þessa frumvarps.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, hvað varðar endurbótaáætlun, tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins, fjárstuðning innan samstæðu og breytingar á viðurlagakafla laganna til samræmis við framangreindar breytingar sem miða að því að innleiða ákvæði tilskipunar 2014/59/ESB um sama efni. Einstök efnisatriði ákvæða tilskipunarinnar varða upplýsingaskipti og aðkomu yfirvalda, þ.m.t. skilavalds, sem ekki er fjallað um í frumvarpi þessu eða lögum. Þessi efnisákvæði eru tilgreind sérstaklega í greinargerð við einstakar greinar frumvarpsins og bíða innleiðingar.
    Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki vegna tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 hvað varðar eftirlit á samstæðugrunni, samstarf við yfirvöld annarra aðildarríkja, varfærniskröfur á samstæðugrunni, reglugerðarheimild vegna stórra áhættuskuldbindinga og lagastoð vegna reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.

A. Tilskipun 2014/59/ESB
Gildissvið.
    Ákvæði frumvarpsins um endurbótaáætlun, sbr. 82. gr. a – 82. gr. f í 5. gr., tímanleg inngrip og aðgerðir vegna þeirra, sbr. 86. gr. h – 86. gr. k í 7. gr. og fjárstuðning innan samstæðu, sbr. 109. gr. a – 109. gr. f í 12. gr. taka mið af gildissviði tilskipunar 2014/59/ESB sem gildir að meginstefnu til um lánastofnanir og stærri verðbréfafyrirtæki. Með hugtakinu verðbréfafyrirtæki í frumvarpinu er átt við fjármálafyrirtæki sem fengið hefur starfsleyfi skv. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr., sbr. 5. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna að undanskildum þeim sem bera takmarkaðar starfsskyldur skv. 3. mgr. 25. gr. laganna. Þá þarf stofnframlag verðbréfafyrirtækis að lágmarki að nema jafnvirði 730 þúsund evra (EUR) í íslenskum krónum, sbr. 2. mgr. 14. gr. a laganna. Skilgreining á hugtakinu verðbréfafyrirtæki byggist á skilgreiningu reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja 1 með þeirri viðbót sem fram kemur í skilgreiningu tilskipunar 2014/59/ESB um lágmarks stofnfé verðbréfafyrirtækis. 2 Í frumvarpinu er vísað til verðbréfafyrirtækja með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a enda stofnframlag verðbréfafyrirtækja sem bera takmarkaðar starfsskyldur lægra en jafnvirði 730 þúsund evrur í íslenskum krónum.
    Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um valdheimildir sem heimilt verður að beita gagnvart tilteknum fyrirtækjum innan samstæðu. Slík fyrirtæki þurfa ekki að vera lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki. Ástæða þess að tilskipunin kveður á um þessar heimildir er sú hætta sem hrun fjármálakerfisins endurspeglaði. Þannig getur ógjaldfærni fyrirtækja innan sömu samstæðu haft margvísleg áhrif á gjaldfærni samstæðu í heild, þar á meðal smitáhrif og kerfisleg áhrif. Frumvarpið gildir um ýmis eignarhaldsfélög og móðureignarhaldsfélög þeirra sem nú þegar eru skilgreind í lögum, sbr. 14.–16. tölul. 1. gr. a laganna eða eru skilgreind í frumvarpi þessu, sbr. 1. gr. frumvarpsins (tillögur að 42.–45. tölul. 1. gr. a laganna). Einnig gilda reglurnar um fjármálastofnanir að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Endurbótaáætlun.
    Með 82. gr. a – 82. gr. g í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að lögfest verði ákvæði tilskipunar 2014/59/ESB um endurbótaáætlun (e. recovery plan). Þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins þýðir ensku hugtökin „recovery“ og „recovery plan“ sem „endurreisn“ og „endurreisnaráætlun“. Því er vísað til tilskipunar 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja þegar fjallað er um heiti tilskipunarinnar í frumvarpi þessu. Hugtakið „endurreisnaráætlun“ getur verið nokkuð misvísandi á íslensku máli í því samhengi sem það á við hér og því er lagt til í frumvarpinu að hugtakið „endurbótaáætlun“ verði notað yfir enska hugtakið „recovery plan“. Leggja má þann skilning í hugtakið „endurreisnaráætlun“ að viðkomandi fjármálafyrirtæki sé fallið, sem einkar ólíklegt er að sé raunin þrátt fyrir að grípa þurfi til aðgerða á grundvelli áætlunarinnar. Um fyrsta aðgerðarfasa tilskipunarinnar er að ræða og ef aðgerðir á grundvelli endurbótaáætlunar eru ekki til þess fallnar að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis geta aðstæður kallað á tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins, sem er annar aðgerðarfasi tilskipunarinnar og einnig umfjöllunarefni þessa frumvarps. Ef ástæða er til að ætla að tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins séu ekki nægjanleg aðgerð til að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis getur því komið til þriðja aðgerðarfasa tilskipunarinnar sem er skilameðferð með aðkomu skilavalds.
    Með endurbótaáætlun er átt við áætlun sem lánastofnun, verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a eða samstæða gerir og skal áætlunin tilgreina aðgerðir og verklag sem það hyggst grípa til við fjárhagslega erfiðleika eða áfall með það að markmiði að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækisins. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að fyrirtæki eða samstæða virki sjálf endurbótaáætlun sína og leysi þannig tímanlega úr fjárhagserfiðleikum sínum. Ef fyrirtæki eða samstæða dregur þá aðgerð að virkja endurbótaáætlun sína getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að áætlun verði virkjuð og fyrirtæki eða samstæða grípi til viðeigandi aðgerða á grundvelli hennar. 3

Skrá yfir fjárhagslega samninga.
    Í 82. gr. g í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að lánastofnanir og eftir atvikum verðbréfafyrirtæki og önnur fyrirtæki sem tilgreind eru í ákvæðinu haldi skrá yfir fjárhagslega samninga sem viðkomandi fyrirtæki eru aðilar að. 4 Helstu efnisatriði hugtaksins fjárhagslegur samningur (e. financial contract) og hvað fellur undir slíka samninga er að finna í skýringum við 5. gr. (82. gr. g). 5
    Í frumvarpinu er lagt til að lánastofnunum sé skylt að halda skrá yfir fjárhagslega samninga en Fjármálaeftirlitið fái heimild til að skylda verðbréfafyrirtæki og önnur fyrirtæki til að halda skrá yfir fjárhagslega samninga. Í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1712 kemur fram nánari útfærsla á þeim upplýsingum er varða fjárhagslega samninga sem fram skulu koma í skránni. Í reglugerðinni er gert ráð fyrir að lánastofnununum, verðbréfafyrirtækjum og öðrum tilgreindum fyrirtækjum verði gert skylt að halda skrá yfir fjárhagslega samninga ef gert er ráð fyrir að úrræði skilameðferðar geti átt við í tilviki viðkomandi fyrirtækis. 6 Þar sem skilameðferð er líklegri í tilfelli lánastofnana þykir rétt að kveða á um skyldu gagnvart þeim en Fjármálaeftirlitinu verði veitt heimild til að óska eftir að verðbréfafyrirtæki og önnur fyrirtæki haldi slíka skrá yfir fjárhagslega samninga. Gert er ráð fyrir að reglugerð (ESB) nr. 2016/1712 verði tekin upp í íslenskan rétt með reglum Fjármálaeftirlitsins.

Tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins.
    Á grundvelli laga nr. 94/2017, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, var gildistími bráðabirgðaákvæðis VI framlengdur til ársloka 2020. Á grundvelli bráðabirgðaákvæðisins er Fjármálaeftirlitinu heimilt að grípa inn í rekstur fjármálafyrirtækja við sérstakar aðstæður eða atvik til að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði. Heimildir bráðabirgðaákvæðis VI eru um margt sambærilegar þeim heimildum sem lagðar eru til með greinum 86. gr. h – 86. gr. j í 7. gr. frumvarpsins.
    Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI getur Fjármálaeftirlitið til dæmis tekið yfir vald hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda og tekið nauðsynlegar ákvarðanir, þ.m.t. um takmörkun á ákvörðunarvaldi stjórnar, brottvikningu stjórnar að hluta eða í heild, yfirtöku eigna, réttinda eða skyldna fjármálafyrirtækis, sölu eigna fjármálafyrirtæki eða samruna þess við annað fyrirtæki. Víki Fjármálaeftirlitið stjórn fjármálafyrirtækis í heild frá störfum er skipuð bráðabirgðastjórn og gilda ákvæði 100. gr. a um slíka stjórn og störf hennar.
    Andstætt við framkvæmd bráðabirgðaákvæðis VI er ákvæðum tilskipunarinnar um tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins ætlað að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis áður en sú staða hefur raungerst að lögbæri eftirlitsaðilinn á þann kost einan að leysa upp það fyrirtæki sem í hlut á, sbr. 40. lið aðfararorða tilskipunarinnar. Ákvæði III. kafla tilskipunarinnar um tímanleg inngrip (e. early intervention) eru ítarleg þar sem aðstæður sem kallað geta á tímanleg inngrip og aðgerðir sem lögbæri eftirlitsaðilinn getur gripið til eru skýrt afmarkaðar. Aðgerðir samkvæmt ákvæðum 86. gr. h – 86. gr. j eru misjafnlega íþyngjandi og ber Fjármálaeftirlitinu fyrst að líta til vægari aðgerða á borð við ýmsar úrbótakröfur skv. 86. gr. h áður en ákvæði 86. gr. i um brottvikningu stjórnar og framkvæmdastjóra eða skipun bráðabirgðastjórnanda samkvæmt 86. gr. j kemur til álita. Á grundvelli 100. gr. a er skipunartíma bráðabirgðastjórnar markaður þriggja mánaða gildistími en á grundvelli 86. gr. j í 7. gr. frumvarpsins skal skipunartími bráðabirgðastjórnanda vera að hámarki eitt ár og heimilt að framlengja skipunartímann við sérstakar aðstæður. Í ítarlegum skýringum við 86. gr. h – 86. gr. j var horft til innleiðingar í Danmörku á sömu ákvæðum, sbr. 15. kafla a dönsku laganna um fjármálastarfsemi (d. lov om finansiel virksomhed).
    Ekki er lagt til með frumvarpi þessu að bráðabirgðaákvæði VI eða 100. gr. a falli brott. Nauðsynlegt er talið að hafa þessi ákvæði til staðar í lögum á meðan tilskipun 2014/59/ESB hefur ekki að fullu verið innleidd hér á landi. Heimildir Fjármálaeftirlitsins til að grípa inn í rekstur fjármálafyrirtækis samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI eru víðtækari en inngripsheimildir og aðgerðir sem Fjármálaeftirlitið getur gripið til skv. 86. gr. h – 86. gr. j. Bráðabirgðaákvæði VI gildir um öll fjármálafyrirtæki en ákvæði frumvarpsins um tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins gilda aðeins um lánastofnanir og stærri verðbréfafyrirtæki, þ.e. með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a laganna. Þá er heimilt samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI að taka yfir eignir, réttindi og skyldur fjármálafyrirtækis í heild eða ráðstafa fyrirtæki í heild eða hluta, til dæmis með samruna. Slíkar heimildir er einnig að finna í tilskipun 2014/59/ESB en ekki í þeim efnisákvæðum sem lagt er til að verði lögfest með frumvarpi þessu. Því er lagt til að Fjármálaeftirlitið fari með þær víðtæku heimildir sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði VI og hægt sé að ljúka störfum bráðabirgðastjórnar með greiðslustöðvun, nauðasamningi eða slitameðferð. Ákvæði 100. gr. a laganna gildir nú ef Fjármálaeftirlitið víkur stjórn fjármálafyrirtækis frá í heild og skipar því bráðabirgðastjórn, sbr. 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI. Þannig getur bráðabirgðastjórn krafist slita á fyrirtæki eða yfirráðum lokið þar sem fyrirtæki hefur verið veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings, sbr. 1. og 2. tölul. 3. mgr. 100. gr. a. Innleiðing á þeim hluta tilskipunarinnar sem varðar skilameðferð mun leysa þessi ákvæði af hólmi og er því látið við það sitja nú að leggja til að Fjármálaeftirlitið taki afstöðu til þess hvort skipaður verður bráðabirgðastjórnandi eða bráðabirgðastjórn án þess þó að bráðabirgðastjórnandi fái sömu heimildir og slík stjórn til að ljúka störfum sínum. Að því marki sem unnt er að beita heimildum og aðgerðum skv. 86. gr. h – 86. gr. j til að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis verður að ætla að gripið verði til þeirra í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar enda meti Fjármálaeftirlitið það svo að þau úrræði dugi með tilliti til alvarleika þeirra fjárhagserfiðleika sem fyrirtæki stendur frammi fyrir. Beri skipun bráðabirgðastjórnanda ekki tilætlaðan árangur og ekki er unnt að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis á grundvelli ákvæða frumvarpsins, kemur skipun bráðabirgðastjórnar til álita samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI og getur bráðabirgðastjórnin, eftir atvikum, lokið störfum sínum í samræmi við 3. og 4. mgr. 100. gr. a laganna. Síðastgreinda ákvæðið gefur jafnframt stjórn fjármálafyrirtækis kost á því að leita upp á sitt eindæmi eftir því við Fjármálaeftirlitið að það taki við ráðum yfir fyrirtækinu.

Fjárstuðningur innan samstæðu.
    Sú ráðstöfun að veita fjárstuðning innan samstæðu sem starfar yfir landamæri er óheimil í landsrétti ýmissa aðildarríkja en tilgangur slíks banns er að standa vörð um hagsmuni lánardrottna og hluthafa hvers félags. Sökum þess hversu háð félög innan samstæðu geta verið hvort öðru mælir tilskipunin fyrir um ákvæði sem taka til þeirra kringumstæðna og skilyrða sem skulu vera til staðar til að hægt sé að veita fjárstuðning innan samstæðu til að tryggja fjárhagslega stöðu samstæðu í heild án þess að stofna lausafjárstöðu eða gjaldfærni þess fyrirtækis sem veitir fjárstuðning innan samstæðu í hættu, sbr. 38. lið aðfararorða tilskipunarinnar. Geta félaga innan samstæðu til að veita fjárstuðning innan samstæðu getur haft veigamikla þýðingu ef nauðsynlegt þykir að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis, til dæmis með því að virkja endurbótaáætlun, ef beita þarf tímanlegum inngripum Fjármálaeftirlitsins eða ef taka þarf fyrirtæki innan samstæðu eða samstæðu í heild til skilameðferðar.
    Í 12. gr. frumvarpsins er fjallað um fjárstuðning innan samstæðu. Um er að ræða heimild en ekki skyldu sem félög innan samstæðu, eitt eða fleiri, geta nýtt sér. Ákveði félög innan samstæðu að ganga til samnings um fjárstuðning innan samstæðu er samningurinn háður ýmsum reglum og skilyrðum sem sett eru í öryggisskyni. Fjárstuðningur innan samstæðu getur verið í ýmsu formi, þ.m.t. lánveitingu eða með veitingu ábyrgðartrygginga. Gert er ráð fyrir að fjárstuðningur innan samstæðu sé veittur á grundvelli sömu kjara og á við í sambærilegum viðskiptum. Armslengdarsjónarmið skulu þannig ráða för þegar samningur er gerður milli félaga innan samstæðu um fjárstuðning. Fjármögnun fyrirtækja innan samstæðu er með ýmsu móti sem getur útsett samstæðu fyrir margvíslegum vandamálum. Af þeim sökum gerir tilskipunin ráð fyrir fyrirframsamþykki hluthafa og ákvörðunar stjórnar fyrirtækis um fjárstuðning innan samstæðu, sbr. 109. gr. c og 1. mgr. 109. gr. e, í stað þess að ákvörðun sé tekin þegar álag skapast í starfsemi félags innan samstæðu eða samstæðu í heild. Einnig gerir tilskipunin ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið samþykki umsókn og heimili fjárstuðning innan samstæðu, sbr. 109. gr. b og 109. gr. e.

B. Tilskipun 2013/36/ESB.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem byggjast á tilskipun 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013. Helstu breytingarnar tengjast efni sem kemur úr 111.–127. gr. tilskipunarinnar og varða eftirlit á samstæðugrunni þ.m.t. samstarf eftirlitsaðila við eftirlit á samstæðugrunni, upplýsingaskipti o.fl. Einnig eru lagðar til breytingar á 30. gr. laganna sem inniheldur reglur um stórar áhættuskuldbindingar en lagt er til að ráðherra fái heimild til að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar. Þá er lögð til breyting á orðalagi 117. gr. a laganna sem inniheldur lagastoð fyrir upptöku reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 hér á landi. Markmið þeirrar breytingar er að tryggja lagastoð fyrir heimild ráðherra til að gera breytingar á reglugerð 233/2013, um varfærniskröfur um starfsemi fjármálafyrirtækja sem sett hefur verið á grundvelli 117. gr. a laganna, til að taka upp seinni breytingar á reglugerð (ESB) nr. 575/2013. Því er lagt til að lagaheimildin nái til þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á reglugerðinni eftir að hún var gefin út á vettvangi ESB en í nokkrum afleiddum gerðum ESB (e. delegated act) sem gefnar hafa verið út seinustu ár hafa verið gerðar breytingar á efni reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.

Eftirlit á samstæðugrunni.
    Eftirlit á samstæðugrunni er mikilvægur þáttur í eftirliti með fjármálastarfsemi. Í mörgum tilvikum fer starfsemi fjármálafyrirtækis, oftast lánastofnunar, fram í gegnum dótturfélög, útibú eða tengd félög. Fjármálafyrirtæki eru oft tengd eða í eigu sérstakra eignarhaldsfélaga og í slíkum tilvikum þarf eftirlitsaðili að taka mið af starfsemi eignarhaldsfélagsins eða annarra tengdra félaga við eftirlitsstörf. Eftirlit á samstæðugrunni felur þannig í sér að eftirlitsaðili þarf að taka mið af starfsleyfisskyldum aðila og allra tengdra félaga hans við eftirlitið. Í þessu felst að við eftirlit á samstæðugrunni er ekki einungis tekið mið af styrk og áhættu í starfsemi einstaks fjármálafyrirtækis heldur einnig þeirri áhættu sem felst í starfsemi félaga sem tilheyra samstæðu þess, hvort sem áhættan er í bókum fjármálafyrirtækisins eða annarra tengdra félaga.
    Fjárhagsstaða einstakra félaga sem tengd eru fjármálafyrirtæki geta haft áhrif á starfsemi fjármálafyrirtækisins. Sem dæmi geta rekstrarerfiðleikar tengds félags leitt til rekstrarerfiðleika fjármálafyrirtækis. Á grundvelli eftirlits á samstæðugrunni er því ekki einungis horft til starfsemi einstaks fjármálafyrirtækis heldur horft til starfsemi tengdra félaga, eigna þeirra og skulda og áhrifa þeirra á fjármálafyrirtæki. Þannig er m.a. komið í veg fyrir að eigið fé sé tvítalið eða áhætta af eignum sé vanmetin. Eftirlit á samstæðugrunni er sérstaklega mikilvægt þegar kemur að eiginfjárreglum, greiðslufærni og lausafjárstöðu, stórum áhættuskuldbindingum, markaðsáhættu og heimildum fjármálafyrirtækja til að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru í óskyldum rekstri. Tilgangur eftirlitsreglna um samstæðueftirlit er einnig að koma í veg fyrir að fjármálafyrirtæki stundi óleyfilega starfsemi í gegnum tengt félag.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 107. gr. laganna sem varða eftirlit á samstæðugrunni þ.m.t. varðandi eftirlit með eignarhaldsfélögum sem eru eftirlitsskyld á grundvelli laganna og aðilum sem tengdir eru slíkum félögum, eins og dótturfélög þeirra. Breytingar eru lagðar til á 108. gr. laganna sem varðar samstarf eftirlitsaðila, m.a. þegar eftirlit á samstæðugrunni fer fram og það teygir sig yfir landamæri tveggja eða fleiri ríkja. Með breytingunni er Fjármálaeftirlitinu heimilað að taka þátt í víðtæku samstarfi við eftirlitsaðila í öðrum ríkjum og sérstaklega í þeim tilvikum þegar eftirlit á samstæðugrunni fer fram. Breytingar á 109. gr. laganna eiga einnig uppruna sinn í ákvæðum tilskipunar 2013/36/ESB um eftirlit á samstæðugrunni og þá sérstaklega þegar varfærniskröfur eru ákvarðaðar fyrir samstæðu fjármálafyrirtækis en ítarlega er kveðið um þetta efni í reglugerð (ESB) nr. 575/2013 og þá sérstaklega í 6.–24. gr. reglugerðarinnar.
    Nánast allar breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu á 107.–109. gr. laganna byggjast á ákvæðum 111.–127. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Megintilefni þess að í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 107.–109. gr. laganna er að æskilegt er að samspil verði á milli laganna og þeirra ákvæða tilskipunar 2014/59/ESB sem lagt er til að innleidd verði hér á landi með frumvarpi þessu. Nokkur ákvæði úr 111.–127. gr. tilskipunar eru því ekki tekin upp í lögin um sinn.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið felur í sér upptöku á afmörkuðum efnisákvæðum tilskipunar 2014/59/ESB í íslenskan rétt og aðlögun íslenskra laga að tilskipun 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013. Sum ákvæði frumvarpsins varða samstæður, þar á meðal eftirlit á samstæðugrunni, en fjármálafyrirtæki og tengd félög geta starfað í fleiri en einu ríki.. Í frumvarpinu er kveðið á um aðkomu og heimildar Eftirlitsstofnunar EFTA til ákvörðunartöku ef til ágreinings kemur milli Fjármálaeftirlitsins og lögbærs yfirvalds í öðru aðildarríki um endurbótaáætlun samstæðu eða fjárstuðning innan samstæðu. Ekki er talið að eðli þeirra heimilda sé verulega íþyngjandi eða umfram það sem áður hefur verið talið heimilt vegna EES-samningsins. 7

5. Samráð.
    Efni frumvarpsins felur í sér innleiðingu á afmörkuðum efnisákvæðum tilskipunar 2014/59/ESB í íslenskan rétt og var unnið með aðkomu nefndar sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði. Í nefndinni sátu fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Fjármálaeftirlitsins, Seðlabanka Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja og Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Við vinnslu frumvarpsins gafst þeim aðilum sem fulltrúa hafa í nefndinni kostur á að koma að athugasemdum sínum á framfæri. Sá hluti frumvarpsins sem varðar efnisákvæði tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013 var unnið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Breytingarnar voru kynntar Fjármálaeftirlitinu, Seðlabanka Íslands, Samtökum fjármálafyrirtækja og Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta við vinnslu frumvarpsins í gegnum nefnd sem vann að þeim þætti frumvarpsins sem varðar tilskipun 2014/59/ESB.

6. Mat á áhrifum.
    Innleiðing tilskipunar 2014/59/ESB mun breyta mjög eftirliti á fjármálamarkaði, bæði fyrir Fjármálaeftirlitið, lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki. Með þessu frumvarpi eru stigin fyrstu skref í átt að þeim breytingum og verði það að lögum munu nýjar reglur er varða viðbrögð og aðgerðir vegna erfiðleika eða fjármálaáfalla líta dagsins ljós. Er hér um að ræða endurbótaáætlanir fyrir lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki, tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins, samninga um fjárstuðning innan samstæðu og skrá yfir fjárhagslega samninga.

Áhrif á almenning.
    Með því að auka undirbúning undir erfiðleika eða áföll á fjármálamarkaði og tryggja að lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki sjálf séu meðvituð um þá áhættu sem felst í rekstri þeirra og hvaða leiðir séu þeim færar til þess að takast á við fyrstu merki um erfiðleika er dregið úr líkum á því að truflun á fjármálamarkaði hafi áhrif á þjónustu þeirra við almenning. Þá er leitast við að draga úr líkum á því að rekstrarerfiðleikarnir leiði af sér meiri erfiðleika innan hvers félags eða nái til annarra lánastofnana eða verðbréfafyrirtækja á markaði og myndu þannig hafa áhrif á fjármálastöðugleika eða fela í sér kostnað sem lenda mundi beint eða óbeint á almenningi.

Áhrif á eftirlitsskylda aðila.
    Lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a skulu gera endurbótaáætlun um mögulega erfiðleika eða áföll í rekstri sínum og þær endurbætur sem hægt væri að gera á rekstrinum til þess að mæta áföllunum. Þó nokkur vinna mun fara í gerð fyrstu endurbótaáætlana hvers fyrirtækis, en töluverð vinna er nú þegar að baki í samstarfi Fjármálaeftirlitsins og stærstu fjármálafyrirtækjanna, enda hefur verið búist við því í nokkurn tíma að endurbótaáætlanir yrðu lögbundnar hér á landi. Viðvarandi aukin verkefni fyrir aðila á fjármálamarkaði er að fylgjast með því hvort þörf sé á því að uppfæra endurbótaáætlanir. Þá er fyrirtækjunum gert að búa til vísa sem auðvelda þeim að átta sig á því hvort óæskilegar aðstæður séu fyrir hendi sem og að vakta þessa vísa. Ekki munu öll fyrirtæki á fjármálamarkaði þurfa að gera umfangsmiklar endurbótaáætlanir því Fjármálaeftirlitið getur ákveðið að tiltekin fyrirtæki skuli gera einfalda endurbótaáætlun, ef rekstrarerfiðleikar félagsins sem um ræðir eru ekki líklegir til þess að hafa mikil neikvæð áhrif á fjármálakerfið í heild sinni.
    Gerð samninga um fjárstuðning innan samstæðu felur í sér vinnu við slíka samninga og samþykkt þeirra á hluthafafundi. Frumvarpið felur í sér heimild til fyrirtækja til að gera slíkan samning og má því leiða að því líkum að fyrirtækin muni ekki ráðast í gerð slíkra samninga nema þau telji hagsmunum sínum betur borgið þannig.
    Verði frumvarpið að lögum munu lánastofnanir, og þau verðbréfafyrirtæki og eftir atvikum önnur fyrirtæki sem Fjármálaeftirlitið fer fram á, þurfa að halda skrá yfir fjárhagslega samninga. Fjárhagslegir samningar eru m.a. samningar tengdir verðbréfum, hrávöruafleiður, framtíðarsamningar, framvirkir samningar, skiptasamningar, stuttir millibankalánssamningar og rammasamningar. Einhver kostnaður mun felast í því að halda utan um þessa samninga þannig að hægt sé að verða við kröfum Fjármálaeftirlitsins til að afhenda upplýsingar um þá, jafnvel með 24 stunda fyrirvara, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
    Verði frumvarpið að lögum munu auknar kröfur vera gerðar til lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem uppfylla viðeigandi skilyrði, m.a. um gerð og eftirfylgni endurbótaáætlana og um að halda skrá yfir fjárhagslega samninga. Með þessum kvöðum munu fyrirtækin aftur á móti auka áhættumeðvitund sína og verða betur í stakk búin til þess að takast á við erfiðleika í rekstri sem eykur líkur á því að komist verði hjá alvarlegum áföllum.
    Í ljósi aukins kostnaðar Fjármálaeftirlitsins við þau nýju eftirlitsverkefni sem það mun takast á hendur verði þetta frumvarp að lögum má gera ráð fyrir því að það gjald sem eftirlitsskyldir aðilar greiða til stofnunarinnar muni hækka sem því nemur.

Áhrif á Fjármálaeftirlitið.
    Verði frumvarpið að lögum mun eftirlitsverkefnum Fjármálaeftirlitsins fjölga. Það mun þurfa að meta og samþykkja endurbótaáætlanir og eiga í samskiptum við fjármálafyrirtækin um nauðsynlegar úrbætur á þeim. Mat á samningum um fjárstuðning innan samstæðu krefst einhvers vinnuframlags af hálfu Fjármálaeftirlitsins, sem að svo stöddu er ekki talið verða verulegt miðað við núverandi uppbyggingu fjármálamarkaðar hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið muni nýta tímanleg inngrip með reglulegum hætti. Mat á því hvort nýta eigi heimildir til tímanlegra inngripa mun byggjast á upplýsingum sem nú þegar er safnað með reglulegum hætti og því ekki við því að búast að verkefni muni aukast mikið að ráði hvað þetta varðar. Komi til þess að nýta þurfi heimildir til tímanlegra inngripa munu þær verða svipaðar að eðli og umfangi og þær sem Fjármálaeftirlitið hefur haft á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þó hægt verði að beita þeim heimildum sem lagðar eru til í þessu frumvarpi fyrr en gert er ráð fyrir með heimildir bráðabirgðaákvæðisins. Í frumvarpinu er lagt til að eftirlitsheimildir Fjármálaeftirlitsins verði efldar, einkum hvað varðar samstæður og eignarhaldsfélög. Þá er þar að finna heimildir til að taka þátt í víðtæku samstarfi eftirlitsaðila í öðrum aðildarríkjum, sérstaklega þegar um er að ræða eftirlit á samstæðugrunni. Ekki er talið að þessar breytingar muni hafa mikil áhrif á starfsemi Fjármálaeftirlitsins að svo stöddu.

Áhrif á markaði.
    Eitt af meginmarkmiðum tilskipunar 2014/59/ESB er að draga úr líkum á áföllum á fjármálamarkaði, og verði slík áföll, að þau verði í minna mæli borin af ríkissjóði eða almenningi. Þetta sjónarmið endurspeglar þau sem höfð hafa verið til hliðsjónar við endurskoðun á regluverki á fjármálamarkaði í Evrópu. Þessi breyting hefur í för með sér að hluthafar í fjármálafyrirtækjum, og í einhverjum tilfellum eigendur skuldabréfa sem útgefin eru af fjármálafyrirtækjum, munu þurfa að taka á sig meiri áhættu af rekstri fyrirtækjanna. Þessu gæti fylgt minni áhugi fjárfesta eða hærri ávöxtunarkrafa.
    Frumvarpið kveður á um að hluthafar þurfi að samþykkja samning um fjárstuðning innan samstæðu og þeir eiga rétt á reglulegri upplýsingagjöf um slíkan samning, hafi hann verið samþykktur. Þessar upplýsingar styrkja stöðu hluthafa, þar sem þeir geta tekið þátt í því að ákveða hvort, og hvernig fyrirtæki innan samstæðu myndu styrkja hvert annað í rekstrarerfiðleikum.

Áhrif á ríkissjóð.
    Bein áhrif frumvarpsins á fjárhag ríkissjóðs eru hverfandi. Hins vegar mun aukin viðbrögð við erfiðleikum eða áföllum á fjármálamarkaði stuðla að fjármálastöðugleika og draga úr líkum á því að ríkissjóður þurfi að veita fjármálafyrirtækjum fjárhagsaðstoð líkt og raunin varð í kjölfar fjármálaáfallsins haustið 2008.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Lagðar eru til breytingar á 1. mgr. 1. gr. a laganna sem inniheldur orðskýringar. Í a-lið er lögð til breyting á skilgreiningu á stórri áhættuskuldbindingu í samræmi við 392. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Í b-lið greinarinnar er lagt til að átta nýjar orðskýringar bætist við 1. gr. a laganna en sjö þeirra má rekja til skilgreininga í tilskipun 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013 en eina til skilgreiningar í tilskipun 2014/59/ESB. Skilgreiningarnar sem koma úr tilskipun 2013/36/ESB koma fram í 24.–29. tölul. 1. mgr. 3. gr. tilskipunar 2013/36/ESB, sbr. 28.–33. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Þessar skilgreiningar eru móðurfélag í aðildarríki (e. parent institution in a member state), móðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu (e. EU parent institution), móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu (e. EU parent financial holding company), blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki (e. parent mixed financial holding company in a member state), móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu (e. parent financial holding company in a member state) og blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu (e. EU parent mixed financial holding company). Auk þess er lagt til að eftirlitsaðili á samstæðugrunni (e. consolidating supervisor) verði skilgreindur í 47. tölul. 1. mgr. greinarinnar en skilgreiningin kemur úr 37. tölul. 1. mgr. 3. gr. tilskipunar 2013/36/ESB, sbr. 41. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Skilgreining á móðurfélagi í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu (e. union parent undertaking) kemur úr 85. tölul. 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og er lagt til að hún verði að 46. tölul. 1. mgr. greinarinnar. Skilgreiningarnar varða flestar efni sem kemur fram í XIII. kafla laganna, m.a. afmörkun á eftirliti á samstæðugrunni í heimaríki og í gistiríki, varfærniskröfur á samstæðugrunni og afmörkun á því hvaða félög geta átt undir gildissvið tilskipunar 2014/59/ESB sem lagt er til að verði að hluta innleidd hér á landi með frumvarpinu.

Um 2. gr.

    Lagt er til að Fjármálaeftirlitinu verði veitt heimild til að afturkalla starfsleyfi lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis ef ekki hefur tekist að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis með aðgerðum á grundvelli tímanlegra inngripa sem kveðið er á um í 7. gr. frumvarpsins (86. gr. h – 86. gr. j laganna). Afturköllun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem byggð skal á heildarmati og er Fjármálaeftirlitinu veitt svigrúm til mats á því hvort rétt þykir að beita afturköllun.

Um 3. gr.

    Lögð er til breyting á 17. gr. laganna sem fjallar um eftirlitskerfi með áhættu. Í greininni er lagt til að eftirlitskerfi með áhættu skuli taka til og innihalda skjalfesta innri ferla sem tak til hvers konar viðskipta (e. transactions) fjármálafyrirtækis við blandað eignarhaldsfélag og dótturfélög þess sé blandað eignarhaldsfélag móðurfélag fjármálafyrirtækisins. Breytingin byggist á 2. mgr. 123. gr. tilskipunar 2013/36/ESB.

Um 4. gr.

    Lagðar eru til tvær breytingar á 30. gr. laganna sem fjallar um stórar áhættuskuldbindingar. Fyrri breytingin þarfnast ekki skýringa en í b-lið er lagt til að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar. Samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 575/2013, sem tekin hefur verið upp í íslenskan rétt á grundvelli 117. gr. a laganna, er skilgreint nánar hvernig taka skuli áhættuskuldbindingar vegna skuggabankastarfsemi með í útreikningi vegna stórra áhættuskuldbindinga fjármálafyrirtækis. Ný lokamálsgrein greinarinnar kveður einnig á um að ráðherra skuli í reglugerðinni kveða á um tæknileg atriði úr þeim viðmiðunarreglum (e. guidelines) sem Evrópska bankaeftirlitsstofnunin hefur birt og varða stórar áhættuskuldbindingar.

Um 5. gr.

    Lagt er til að nýr kafli, IX. kafli A, bætist við lögin og innihaldi ákvæði sem varða endurbótaáætlun lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis. Þá er lagt til að kaflinn innihaldi sjö nýjar greinar, 82. gr. a – 82. gr. g.
     Um a-lið (82. gr. a).
    Hér er 1. –7. mgr. og 9.–10. mgr. 5. gr. tilskipunar 2014/59/ESB innleidd í lögin sem fjallar um endurbótaáætlun lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
    Í 1. mgr. er kveðið á um skyldu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem falla undir 2. mgr. 14. gr. a laganna til að gera endurbótaáætlun og hvert innihald slíkrar áætlunar skuli vera. Í 1. tölul. er kveðið á um að fyrirtæki skuli gera ráðstafanir með undirbúningi á aðgerðum og verklagi sem þau geta virkjað með skömmum fyrirvara til að rétta af fjárhag fyrirtækisins standi það frammi fyrir rekstrarerfiðleikum. Það er fyrirtækjanna að meta hvaða áhætta er í rekstri þeirra og um hvaða aðgerðir og verklag skuli kveðið í endurbótaáætlunum. Ákvæðið byggist á því sjónarmiði að fyrirtæki geti sjálft leyst tímanlega úr fjárhagserfiðleikum sínum með því að beita þeim aðgerðum sem eiga að koma fram í endurbótaáætlun. Þeim aðgerðum og verklagi sem fjallað er um í töluliðnum er einnig ætlað að taka til þeirra aðstæðna ef Fjármálaeftirlitið beitir tímanlegum inngripum skv. 86. gr. h – 86. gr. j, sbr. 7. gr. frumvarpsins. Á grundvelli 86. gr. h getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að fyrirtæki grípi til tilgreindra aðgerða í endurbótaáætlun og skal fyrirtækið sjálft vera undir það búið og fjalla um mögulegar aðgerðir og verklag við tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins sem geta verið annars eðlis en þegar fyrirtæki virkjar sjálft endurbótaáætlun. Í 2. tölul. er fjallað um sviðsmyndir sem fyrirtækjum er skylt að hafa í endurbótaáætlun. Sviðsmyndir skulu gera ráð fyrir áföllum sem snerta fyrirtækið sjálft og áföllum í hagkerfinu og fjármálakerfinu, þ.m.t. vegna kerfisáhættu. Aðgerðir og verklag í endurbótaáætlun tilgreina svo með hvaða hætti fyrirtækið geti brugðist við ef einhver þeirra sviðsmynda sem koma fram í endurbótaáætlun raungerist. Í 3. tölul. er kveðið á um að í endurbótaáætlun skuli vera umfjöllun um lausafjárfyrirgreiðslu frá Seðlabanka Íslands, ef það á við. Með lausafjárfyrirgreiðslu er átt við þá fyrirgreiðslu sem fjallað er um í 1. mgr. 7. gr. laga, nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands. Auk þess skal kveðið á um hvaða eignir eru þá ætlaðar til tryggingar fyrir slíkri fyrirgreiðslu. Af ákvæðinu leiðir einnig að óheimilt er að gera ráð fyrir öðrum opinberum fjárstuðningi, hvers eðlis sem hann kann að vera.
    Í 2. mgr. kemur fram að endurbótaáætlun sé háð samþykki stjórnar viðkomandi fyrirtækis sem skuli sjá um að afhenda hana Fjármálaeftirlitinu árlega. Á það við hvort sem um er að ræða fyrstu endurbótaáætlun fyrirtækisins, eða seinni uppfærslu hennar í heild eða að hluta. Mikilvægt er að fyrirtæki uppfæri endurbótaáætlun sína að eigin frumkvæði ef breytingar verða sem geta haft veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Margvíslegar ástæður geta legið að baki uppfærslu endurbótaáætlunar, t.d. breytingar á eignarhaldi, stjórnskipulagi, starfsemi eða fjárhagslegri stöðu fyrirtækisins sem m.a. geta komið til vegna almennra eða sértækra erfiðleika á fjármálamörkuðum. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að endurbótaáætlun sé uppfærð telji það ástæðu til og innan þeirrar heimildar rúmast bæði heildaruppfærsla og uppfærsla á afmörkuðum þáttum áætlunarinnar.
    Í 3. mgr. er kveðið á um að ráðherra setji reglugerð sem afmarki nánar innihald endurbótaáætlana skv. 1. mgr. Reglugerð ráðherra skal byggjast á viðauka A við tilskipun 2014/59/ESB, þar sem tilgreindar eru upplýsingar sem fram skulu koma í endurbótaáætlunum. Þá hefur framkvæmdastjórn ESB gefið út framselda reglugerð nr. 2016/1075 sem byggist á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar. 8 Í reglugerð ráðherra skulu tekin upp viðeigandi ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar.
     Um b-lið (82. gr. b).
    Í nýrri 82. gr. b er lagt er til að 1.–3. mgr. og 8. mgr. 6. gr. tilskipunar 2014/59/ESB verði innleidd. Greinin fjallar um mat Fjármálaeftirlitsins á endurbótaáætlun sem lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum er skylt að gera eftir því sem við á skv. 82. gr. a eða 82. gr. e laganna, verði frumvarpið samþykkt óbreytt.
    Í 1. og 2. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. er fjallað um atriði sem líta ber til við mat á endurbótaáætlun. Þau eru annars vegar hvort endurbótaáætlunin sé líkleg til að stuðla að heilbrigðum rekstri og möguleika á skjótri framkvæmd endurbótaáætlunar án neikvæðra áhrifa á fjármálakerfið. Hins vegar ber að líta til samsetningar eigin fjár fyrirtækis og hvernig fjármögnun þess er háttað.
    Eftirlit með lausafjáráhættu er tvískipt hér á landi. Seðlabanki Íslands setur reglur um lausafjárhlutfall lánastofnana og stöðuga fjármögnun þeirra og hefur eftirlit með þeim þáttum samkvæmt lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands. Eftirlit með lausu fé annarra fjármálafyrirtækja er í höndum Fjármálaeftirlitsins. Í 3. mgr. er því kveðið á um skyldu Fjármálaeftirlitsins til að hafa samráð við Seðlabanka Íslands sem valdbæra stofnun við mat á þáttum endurbótaáætlunar sem varða lausafjármál.
    Í 4. mgr. er kveðið á um að ráðherra setji reglugerð um lágmarksviðmið við mat á efnisþáttum sem fjallað er um í 1. mgr. Mat á endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d skal grundvallast á þessari grein og ná því efnisatriði reglugerðarinnar til endurbótaáætlana lánastofnana, verðbréfafyrirtækja og samstæðu þeirra. Reglugerð ráðherra mun byggjast á og taka upp viðeigandi ákvæði framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnar ESB nr. 2016/1075. 9
     Um c-lið (82. gr. c).
    Lagt er til að 5.–7. mgr. 6. gr. tilskipunar 2014/59/ESB verði innleidd í nýrri 82. gr. c laganna. Greinin fjallar um málsmeðferð og aðgerðir vegna ágalla á endurbótaáætlunum. Ákvæði 4. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar varðar aðkomu skilavalds að endurbótaáætlun vegna undirbúnings skilameðferðar. Efnisákvæði um skilavald og skilameðferð bíða síðari innleiðingar og er framangreint ákvæði því ekki innleitt með frumvarpi þessu.
    Í 1.–3. mgr. er fjallað um málsmeðferðarreglur þegar endurbótaáætlun er haldin verulegum ágöllum að mati Fjármálaeftirlitsins. Ákvörðun um það hvort verulegir ágallar séu á endurbótaáætlun ræðst af heildstæðu mati á grundvelli ákvæða 82. gr. a um endurbótaáætlun lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis og 82. gr. d um endurbótaáætlun samstæðu þegar það á við, ákvæði 82. gr. b um mat á endurbótaáætlun, þ.m.t. reglugerð sem ráðherra setur á grundvelli 4. mgr. þeirrar greinar, og ákvæði 82. gr. f um vísa. Með verulegum ágöllum er t.d. átt við að einstakir efnisþættir séu ekki raunhæfir eða framkvæmanlegir, sviðsmyndagreiningu sé ábótavant, ekki sé unnt að hrinda einstökum ráðstöfunum í framkvæmd með skömmum fyrirvara o.s.frv.
    Í 4. mgr. er fjallað um þær aðgerðir sem Fjármálaeftirlitið getur gripið til ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hefur ekki bætt úr ágöllum og endurskoðað endurbótaáætlun sína í samræmi við 1.–3. mgr. Ákvæði 1.–5. tölul. 4. mgr. kveða á um íþyngjandi aðgerðir sem einungis er heimilt að beita við þær aðstæður þegar Fjármálaeftirlitið hefur reynt að ná fram úrbótum á grundvelli vægari krafna skv. 1.–3. mgr. Kröfur um aðgerðir skv. 4. mgr. þurfa að vera nauðsynlegar að mati Fjármálaeftirlitsins og í réttu hlutfalli við alvarleika ágallana og áhrifa þeirra á viðkomandi lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki. Þegar Fjármálaeftirlitið metur hvort grípa skuli til aðgerða samkvæmt ákvæðinu skal stofnunin líta til þess hvort viðkomandi aðgerð er líkleg til að viðhalda eða rétta af fjárhag viðkomandi fyrirtækis til langs tíma litið. Ákvæðið hefur ekki áhrif á sjálfstæða valdheimild Fjármálaeftirlitsins vegna eftirlits skv. 86. gr. g laganna. Þá hafa aðgerðir skv. 1.–5. tölul. 4. mgr. ekki að geyma tæmandi talningu á þeim aðgerðum sem Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera kröfu um heldur getur Fjármálaeftirlitið einnig krafist annarra aðgerða lögum samkvæmt. Ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvæðinu skulu rökstuddar og tilkynntar lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skriflega.
    Í 5. mgr. er fjallað um að Fjármálaeftirlitið skuli hafa samráð við lögbær yfirvöld þar sem mikilvæg útibú eru staðsett. Hér er ekki verið að vísa til sameiginlegra ákvarðana með lögbærum yfirvöldum dótturfélaga eins og þörf er á við mat á endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d heldur samráð við lögbær yfirvöld þar sem mikilvæg útibú fyrirtækisins eru staðsett. Fjallað er um þau atriði sem líta ber til við mat á því hvort útibú telst mikilvægt í 108. gr. laganna.
     Um d-lið (82. gr. d).
    Greinin innleiðir 7. og 8. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjalla um endurbótaáætlun samstæðu. Hluti ákvæða 3. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar varðar veitingu upplýsinga til yfirvalda sem ekki hefur enn þá verið fjallað um í lögum, þ.m.t. samstæðuskilvalds og skilavalds. Þau ákvæði eru því ekki innleidd hér.
    Í 1. mgr. er kveðið á um að móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu skuli semja og uppfæra endurbótaáætlun fyrir samstæðu. Hugtakið móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu er skilgreint í 1. gr. frumvarpsins, sbr. nýjan 46. tölul. 1. gr. a laganna. Skv. 2. málsl. móttekur Fjármálaeftirlitið endurbótaáætlun samstæðu sé það eftirlitsaðili á samstæðugrunni og er stofnunni skylt að sinna upplýsingaskyldu með því að áframsenda áætlunina. Með lögbæru yfirvaldi í 2. málsl. er átt við þá stofnun eða stjórnvald sem falið er að landsrétti að annast eftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum og slíkt eftirlit er hluti af eftirlitsstarfsemi í viðkomandi aðildarríki. Fjármálaeftirlitið metur það með hliðsjón af þagnarskyldu hverju sinni hvaða lögbæru yfirvöldum beri að senda endurbótaáætlun samstæðu.
    Af 2. mgr. leiðir að í endurbótaáætlun samstæðu skal leitast við að tryggja áframhaldandi rekstur samstæðunnar í heild og einstakra lánastofnana eða verðbréfafyrirtækja innan samstæðunnar. Áætlunin skal hafa þann tilgang að takast á við fjárhagslegt álag í starfsemi, ýmist samstæðu í heild eða einstakra lánastofnana eða verðbréfafyrirtækja innan samstæðu, með það að markmiði að rétta af fjárhagslega stöðu samstæðu eða þess fyrirtækis sem í hlut á. Áætlunin skal þannig tryggja samhæfingu og samræmi í aðgerðum sem hægt verður að grípa til hjá móðurfélagi í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu og öðrum félögum innan samstæðu. Með öðrum félögum í ákvæðinu er átt við félög sem tilgreind eru í 2.–9. tölul. 2. mgr. 82. gr. g sem fjallar um skrá yfir fjárhagslega samninga, dótturfélög þeirra og eftir atvikum mikilvæg útibú.
    Í 3. mgr. er kveðið á um að efnisinnihald endurbótaáætlunar samstæðu skuli taka mið af 82. gr. a. Endurbótaáætlun samstæðu skal þannig innihalda ýmsar aðgerðir sem ætlað er að mæta þeim sviðsmyndum sem gera þarf ráð fyrir skv. 2. tölul. 1. mgr. 82. gr. a. Fyrir sérhverja sviðsmynd skal endurbótaáætlun samstæðu tilgreina hvort hindranir séu á framkvæmd aðgerða innan samstæðu, þ.m.t. hjá einstökum félögum sem heyra undir áætlunina, og hvort framkvæmdarlegir eða lagalegir annmarkar komi í veg fyrir að hægt sé að flytja eigið fé eða endurgreiða skuldbindingar eða eignir með skjótum hætti hjá fyrirtækjum innan samstæðu. Fjallað er um fjárstuðning innan samstæðu í ákvæðum 109. gr. a – 109. gr. f, sbr. 12. gr. frumvarpsins. Séu slíkir samningar gerðir í samræmi við þær kröfur sem kveðið er á um í framangreindum ákvæðum skulu þeir tilgreindir í endurbótaáætlun samstæðu.
    Í 4. mgr. kemur fram að Fjármálaeftirlitið geti við ákveðnar kringumstæður farið fram á að tiltekin dótturfélög, sem eru lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki, skili endurbótaáætlun skv. 82. gr. a. Ef Fjármálaeftirlitið tekur ákvörðun um að dótturfélag hér á landi skuli skila endurbótaáætlun skv. 82. gr. a tekur stofnunin sjálfstæða ákvörðun um mat á endurbótaáætlun dótturfélags, þ.m.t., ef við á, um beitingu aðgerða skv. 4. mgr. 82. gr. c. Í þeim tilvikum þar sem dótturfélög heyra undir eftirlit á samstæðugrunni í öðru aðildarríki er Fjármálaeftirlitinu skylt að leita eftir sameiginlegri ákvörðun með lögbærum yfirvöldum dótturfélaga lánastofnana eða verðbréfafyrirtækja um hvort sjálfstæð endurbótaáætlun skuli gerð fyrir þau, sbr. 6. mgr. Skilyrði ákvæðisins um að sameiginleg ákvörðun milli Fjármálaeftirlitsins og lögbærra yfirvalda sé forsenda þess að sjálfstæð endurbótaáætlun sé gerð fyrir einstök dótturfélög ber ekki að skilja á þann hátt að nauðsyn krefji að öll lögbær yfirvöld komist að sameiginlegri ákvörðun. Fjármálaeftirlitinu og lögbærum yfirvöldum sem standa utan ágreinings er því heimilt að taka sameiginlega ákvörðun um að endurbótaáætlun skuli gerð fyrir dótturfélög innan þeirra lögsögu og mat á aðgerðum skv. 4. mgr. 82. gr. c. Fjármálaeftirlitið hefur því sjálfstæða heimild til að krefja dótturfélög hér á landi um að skila endurbótaáætlun skv. 82. gr. a en skal leitast eftir sameiginlegri ákvörðun um slíkt með öðrum lögbærum yfirvöldum. Einungis Eftirlitsstofnun EFTA getur komið í veg fyrir að farið verið að kröfu Fjármálaeftirlitsins í kjölfar málsmeðferðar skv. 7. mgr.
    Í 5.–7. mgr. er fjallað um mat á endurbótaáætlun samstæðu. Í 5. mgr. er vísað til þess að matið sjálft, málsmeðferð við matið og þær aðgerðir sem hægt er að grípa til ef ágallar eru á endurbótaáætlun samstæðu skuli grundvallast á því sem fram kemur í 82. gr. b – 82. gr. c. Samstarf Fjármálaeftirlitsins við lögbær yfirvöld í öðrum aðildarríkjum skal taka til allra þeirra þátta sem fjallað er um í 82. gr. b – 82. gr. c. Sérreglur gilda þó um mat og málsmeðferð á endurbótaáætlun samstæðu með starfsemi yfir landamæri, sbr. 6.–7. mgr., og skal beita þeim ákvæðum til fyllingar ákvæðum 82. gr. b – 82. gr. c.
    Af 6. mgr. leiðir að Fjármálaeftirlitið skal leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum um mat á endurbótaáætlun samstæðu. Ef Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili á samstæðugrunni er það leiðandi við slíka ákvörðunartöku og skal sameiginleg ákvörðun tekin í samstarfi við lögbær yfirvöld dótturfélaga að höfðu samráði við lögbær yfirvöld þar sem mikilvæg útibú eru staðsett ef það er þýðingarmikið fyrir viðkomandi útibú. Ákvörðunin tekur bæði til mats á áætluninni sem grundvallast á skilyrðum og viðmiðum samkvæmt þessari grein og 82. gr. b – 82. gr. c, þ.m.t., ef við á, beitingu nauðsynlegra aðgerða skv. 4. mgr. 82. gr. c. Þá skal sameiginleg ákvörðun taka tillit til mögulegra áhrifa af aðgerðum á fjármálastöðugleika allra aðildarríkja þar sem samstæðan er með starfsemi. Ef ekki næst samstaða um sameiginlega ákvörðun skal Fjármálaeftirlitið taka sjálfstæða ákvörðun um endurbótaáætlun samstæðu. Þrátt fyrir að um sjálfstæða ákvörðun Fjármálaeftirlitsins sé að ræða skal sú ákvörðun taka tillit til mats lögbærra yfirvalda að því marki sem unnt er.
    Í 7. mgr. er að finna lýsingu á því ferli sem skal gilda í þeim tilvikum þar sem ekki næst sameiginleg ákvörðun um mat á endurbótaáætlun og beitingu aðgerða skv. 6. mgr. Ferlið tekur bæði til mats á endurbótaáætlun samstæðu í heild ef Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili á samstæðugrunni og mats á endurbótaáætlun dótturfélaga ef Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili dótturfélags. Fjármálaeftirlitið og önnur lögbær yfirvöld hafa fjóra mánuði til að taka sameiginlega ákvörðun og telst það tímabil til sáttatímabils í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010 sem veitt var lagagildi hér á landi með lögum 24/2017. Á grundvelli ákvæðis 19. gr. reglugerðarinnar getur komið til þess að Fjármálaeftirlitið þurfi að hlíta bindandi ákvörðun eftirlitsstofnunar EFTA.
     Um e-lið (82. gr. e).
    Í greininni er innleidd 1.–6. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um einfaldar skuldbindingar (e. simplified obligations) fyrir tilteknar lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki. Ákvæði 4. gr. tilskipunarinnar gildir bæði um endurbótaáætlanir og skilaáætlanir sem verða á verksviði skilavalds samkvæmt tilskipuninni. Ákvæði um undirbúning skilameðferðar, þ.m.t. skilaáætlanir, er ekki innleitt með frumvarpi þessu og því er ákvæði 4. gr. einungis innleitt að hluta. Ákvæðið byggist á meðalhófi (e. proportionality principle) sem felur í sér að gerðar eru minni kröfur til smærri fyrirtækja heldur en þeirra sem stærðar sinna vegna hafa meiri áhrif á fjármálakerfið og hagkerfið.
    Í 1. mgr. er fjallað um skilyrði fyrir því að veitt verði heimild til einfaldrar endurbótaáætlunar. Fjármálaeftirlitið leggur mat á það hvaða áhrif rekstrarerfiðleikar eða slitameðferð lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis hafi á aðrar lánastofnanir, verðbréfafyrirtæki, fjármálamarkaðinn, fjármögnunarvalkosti eða hagkerfið í heild og hvort áhrifin séu veruleg. Heildarmat Fjármálaeftirlitsins ræðst af ýmsum þáttum, þar á meðal umfangi og eðli þeirrar starfsemi sem viðkomandi fyrirtæki stundar, áhættusniði, stærð fyrirtækis og stjórnskipulagi, þátttöku fyrirtækis í greiðsluuppgjörskerfum og tengslum þess við aðrar lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um einfalda endurbótaáætlun hefur ekki áhrif á heimildir stofnunarinnar til að grípa til aðgerða gegn lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki ef upp koma aðstæður sem kalla á aðgerðir skv. 82. gr. c eða 86. gr. h – 86. gr. j.
    Í 2. mgr. kemur fram að Fjármálaeftirlitið sé ekki bundið af ákvörðun um einfalda endurbótaáætlun. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er, telji það ástæðu til, fallið frá ákvörðun sinni og krafið lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki um að gera ítarlegri endurbótaáætlun í samræmi við 82. gr. a.
    Í 3. mgr. er mælt fyrir um að skilyrði fyrir einfaldri endurbótaáætlun skuli afmörkuð frekar í reglugerð ráðherra. Reglugerðin mun byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar sem gefnir hafa verið út en bíða samþykkis framkvæmdastjórnar ESB.
     Um f-lið (82. gr. f).
    Í greininni er innleidd 9. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um vísa í endurbótaáætlun, en vísarnir eiga að auðvelda viðkomandi fyrirtæki að átta sig á því þegar óæskilegar aðstæður, hvort sem er innri eða ytri, eru fyrir hendi. Hugtakið „vísar“ í ákvæðinu er þýðing á enska orðinu „indicators“.
    Í 1. mgr. er kveðið á um skyldu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja að útbúa vísa sem skuli vera hluti að endurbótaáætlun. Þar sem vísar eru hluti af endurbótaáætlun falla þeir undir þá þætti sem Fjármálaeftirlitinu ber að yfirfara og taka afstöðu til þegar það leggur mat á endurbótaáætlun skv. 82. gr. b – 82. gr. c. Með vísum er átt við mælikvarða sem byggjast hvort sem er á eigindlegum (e. qualitative) eða megindlegum (e. quantitative) upplýsingum sem gefa tímanlega til kynna hvenær aðstæður fyrirtækis eru með þeim hætti að grípa beri til einnar eða fleiri aðgerða sem kveðið er á um í endurbótaáætlun. Gerð er sú krafa að vísarnir sæti reglubundinni vöktun sem felur í sér að vöktun þeirra þarf að vera möguleg. Vísar sem ekki er hægt að vakta uppfylla þar af leiðandi ekki kröfur ákvæðisins.
    Í 2. mgr. er fjallað um heimild til að víkja frá þeim viðbrögðum sem tilgreind eru í endurbótaáætlun þegar vísar gefa til kynna að viðbragða sé þörf. Þar sem um frávik frá endurbótaáætlun er að ræða eru gerðar ríkar kröfur til rökstuðnings stjórnar. Stjórn skal a.m.k. tilgreina nákvæmar upplýsingar um það hvers vegna gripið sé til aðgerða skv. 1. málsl. eða að ekki sé gripið til aðgerða skv. 2. málsl. þvert á það sem vísar gefa til kynna og hvaða aðgerða stjórn hyggst grípa til. Ákvæðið er ekki tæmandi um innihald rökstuðnings stjórnar og metur Fjármálaeftirlitið hvort rökstuðningur sé fullnægjandi. Fjármálaeftirlitið getur því samkvæmt almennum heimildum sínum krafist úrbóta eða gripið til aðgerða á grundvelli tímanlegra inngripa skv. 86. gr. h ef aðstæður eru með þeim hætti.
    Í 4. mgr. er kveðið á um upplýsingaskyldu Fjármálaeftirlitsins til Seðlabanka Íslands ef aðgerðir skv. 2. mgr. tengjast lausafjármálum. Sú upplýsingaskylda tengist eftirlitshlutverki Seðlabankans með lausu fé lánastofnana en bankinn setur reglur um lausafjárhlutfall þeirra og stöðuga fjármögnun.
    Í 5. mgr. er kveðið á um heimild Fjármálaeftirlitsins til að setja reglur um vísa sem fjalla skal um í endurbótaáætlunum. Evrópska bankaeftirlitsstofnunin hefur gefið út viðmiðunarreglur (e. guidelines) sem tilgreina lágmarksvísa, bæði eigindlega og megindlega, sem fram skulu koma í endurbótaáætlunum. Rétt þykir að kveða á um heimild Fjármálaeftirlitsins til að setja reglur um vísa enda mikilvægt að lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki taki mið að þeim leiðbeiningum sem Evrópska bankaeftirlitsstofnunin hefur gefið út. Fjármálaeftirlitinu er þá í sjálfsvald sett hvort stofnunin gefur út reglur eða leiðbeinandi tilmæli.
     Um g-lið (82. gr. g).
    Í greininni eru innleidd ákvæði 8. mgr. 5. gr. og 7. mgr. 71. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjalla um fjárhagslega samninga (e. financial contracts). Fjárhagslegir samningar eru samningar er hafa fjárhagslegt gildi fyrir aðila og til slíkra samninga teljast m.a. samningar sem tengjast verðbréfum (e. securities contracts), hrávöruafleiður (e. commodities contracts), framtíðarsamningar (e. futures contracts), framvirkir samningar (e. forwards contracts), skiptasamningar (e. swaps contracts), millibankalánssamningar (e. inter-bank borrowing agreements) þar sem lánstími er styttri en þrír mánuðir og rammasamningar (e. master agreements) fyrir allar framangreindar samningstegundir. Í ákvæðinu er þess krafist að lánastofnanir haldi sérstaka skrá þar sem tilgreindar eru viðeigandi upplýsingar um alla þá fjárhagslegu samninga sem viðkomandi fyrirtæki hefur stofnað til og eru enn þá í gildi. Slíkar skrár skulu vera aðgengilegar í viðeigandi kerfum sem tryggja að hægt sé að óska eftir upplýsingum um meðal annars innihald, tegundir og aðila samninga með mjög skömmum fyrirvara.
    Í 2. mgr. er heimild fyrir Fjármálaeftirlitið að krefjast þess að verðbréfafyrirtæki eða fyrirtæki sem tilgreind eru ákvæðinu skuli halda skrá um fjárhagslega samninga sem þau eru aðilar að. Fjármálaeftirlitið getur meðal annars krafið fyrirtæki um slíkt ef fyrirtækið er hluti af samstæðu og það er nauðsynlegt að mati Fjármálaeftirlitsins að fyrirtæki haldi slíka skrá vegna stærðar fyrirtækisins eða samstæðunnar, mögulegra smitáhrifa á viðkomandi fyrirtæki vegna versnandi fjárhagsstöðu annarra aðila, mögulegra áhrifa á viðskiptavini félagsins eða annarra atriða. Getur slíkt einnig átt við ef Fjármálaeftirlitið metur það svo að fjöldi fjármálasamninga eða umfang þeirra hjá fyrirtækinu sé með þeim hætti að nauðsynlegt sé að slík skrá liggi fyrir.
    Líklegt þykir að Fjármálaeftirlitið krefji viðkomandi lánastofnun, verðbréfafyrirtæki eða önnur fyrirtæki er undir ákvæðið falla um að afhenda upplýsingar úr skrá um fjárhagslega samninga eftir að endurbótaáætlun hefur verið virkjuð. Þegar svo háttar til getur því verið nauðsynlegt að grípa til viðeigandi ráðstafana innan skamms tíma og því talið nauðsynlegt að Fjármálaeftirlitinu geti borist upplýsingarnar innan 24 tíma sé tilefni til. Um er að ræða sama tímafrest og Danir lögðu til við innleiðingu ákvæða tilskipunarinnar um fjárhagslega samninga og mælt er fyrir um í 245. gr. a dönsku laganna um fjármálastarfsemi.
    Fjármálaeftirlitið skal setja reglur þar sem nánar er kveðið á um þær upplýsingar sem þurfa að lágmarki að koma fram í skrá er heldur utan um upplýsingar um samningsaðilann og innihald og efni viðkomandi samnings. Reglur Fjármálaeftirlitsins skulu innleiða framselda reglugerð (ESB) nr. 2016/1712. Fyrirtækjum er heimilt að vera með ítarlegri skráningu vegna slíkra samninga.

Um 6. gr.

    Lögð er til breyting á 86. gr. laganna sem miðar að því að aðlaga núgildandi lög þeim heimildum sem lagt er til að bætist við lögin í 7. gr. frumvarpsins og byggjast á tilskipun 2014/59/ESB. Í 7. gr. frumvarpsins (nýrri 86. gr. h) er m.a. lagt til að við lögin bætist heimild fyrir Fjármálaeftirlitið til að beita tímanlegum inngripum ef rekstur fjármálafyrirtækis kallar á slíkar aðgerðir. Þessar nýju heimildir eru mun ítarlegri en mælt er fyrir um í gildandi lögum. Núgildandi 86. gr. laganna sem hefur fyrirsögnina „upphafsaðgerðir vegna ónógs eigin fjár“ kveður á um skyldur stjórnar og framkvæmdastjóra til að tilkynna um ófullnægjandi eigið fé, boða til fundar hluthafa eða stofnfjáreigenda, heimildir Fjármálaeftirlitsins til að veita fjármálafyrirtæki úrbótafrest o.fl. Með frumvarpinu er lagt til að greinin endurspegli betur ákvæði 102. gr. tilskipunar 2013/36/ESB og samspil þeirrar reglu við 104. gr. sömu tilskipunar og 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem innleidd er hér á landi með 7. gr. frumvarpsins. Með greininni er lagt til og í samræmi við gildandi 86. gr. laganna að skylda hvíli á stjórn og/eða framkvæmdastjóra til að tilkynna um þau tilvik þegar fjármálafyrirtæki brýtur gegn þeim varfærniskröfum sem kveðið er á um í lögunum og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra þ.m.t. reglugerð sem sett er á grundvelli 117. gr. a laganna. Með frumvarpinu er lagt til að sú skylda hvíli áfram á stjórn og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækis að tilkynna um þau tilvik þegar líklegt er að fjármálafyrirtæki muni á næstu tólf mánuðum brjóta gegn einhverjum þeim varfærniskröfum sem gilda um starfsemi þess. Fjármálafyrirtæki skal strax við tilkynningu greina Fjármálaeftirlitinu frá því til hvaða ráðstafana fyrirtækið hyggst grípa til að koma starfseminni í lögmætt horf og á það bæði við um þau tilfelli þegar fjármálafyrirtæki brýtur gegn einhverjum varfærniskröfum og einnig þegar líklegt er að fyrirtæki muni gera það á næstunni. Eins og fram kemur í 3. mgr. greinarinnar er Fjármálaeftirlitinu heimilt að óska eftir greinargerð og öðrum gögnum varðandi þær úrbætur og ráðstafanir sem fjármálafyrirtæki hyggst grípa til. Eins og fram kemur í 4. mgr. greinarinnar er Fjármálaeftirlitið óbundið af tillögu fjármálafyrirtækis um ráðstafanir og úrbætur og getur strax við tilkynningu gripið til annarra heimilda sem kveðið er á um í lögunum, t.d. beitt heimildum sem kveðið er á um í 86. gr. g laganna eða tímanlegum inngripum sem mælt er um í 7. gr. frumvarpsins eða sett fjármálafyrirtæki í það ferli sem mælt er fyrir um í XII. kafla, þ.e. fjárhagslega endurskipulagningu eða slit. Greinin kveður ekki á um skyldu Fjármálaeftirlitsins til að veita fjármálafyrirtæki sem brýtur gegn varfærniskröfum tíma til úrbóta en sé hins vegar sannanlega um tímabundna rekstrarerfiðleika að ræða sem rökstutt er að muni vera liðnir hjá á stuttum tíma er Fjármálaeftirlitinu heimilt að veita fjármálafyrirtæki slíkan frest til úrbóta í samræmi við lögin að öðru leyti. Fjármálaeftirlitið leggur mat á það hvað er sannanlegt í þessu tilviki og getur kallað eftir öllum þeim gögnum sem það telur sig þurfa frá fjármálafyrirtæki í því skyni. Lagt er til að fyrirsögn greinarinnar sé breytt í samræmi við inntak nýs ákvæðis.

Um 7. gr.

     Um a-lið (86. gr. h).
    Í greininni er innleidd 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um þær aðstæður sem geta valdið því að Fjármálaeftirlitið beiti tímanlegum inngripum og þær aðgerðir sem Fjármálaeftirlitið getur gripið til ef slíkar aðstæður raungerast. Ákvæði h-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 27. gr. tilskipunarinnar fjalla um veitingu upplýsinga til skilavalds vegna undirbúnings skilameðferðar en þau ákvæði eru ekki innleidd með frumvarpi þessu.
    Ákvæði 1. mgr. fjallar um aðstæður sem geta orðið grundvöllur þess að Fjármálaeftirlitið telji að grípa þurfi inn í rekstur fyrirtækis með aðgerðum skv. 2. mgr. Tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins og þær aðgerðir sem hægt er að grípa til með þeim, þ.m.t. aðgerðir sem fyrirtæki tilgreinir sjálft í endurbótaáætlun, koma einungis til álita ef aðgerðir fyrirtækisins sjálfs við að rétta af fjárhagslega stöðu þess hafa ekki borið árangur eða ekki náð að koma til framkvæmda. Fjármálaeftirlitið getur gripið til þeirra valdheimilda sem mælt er fyrir um í ákvæðinu ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki uppfyllir ekki eða fyrirséð er að fyrirtæki muni ekki í náinni framtíð uppfylla kröfur laga og reglna um áframhaldandi rekstur. Þær lagakröfur sem tilgreindar eru í 1. tölul. ákvæðisins byggjast á 1. mgr. 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB. Um er að ræða lög og reglur sem innleiða annars vegar tilskipun 2013/36/ESB um stofnun og starfsemi fjármálafyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim og hins vegar reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Í 1. mgr. 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB er vísað til þess að aðstæður til að grípa til tímanlegra inngripa geti komið upp ef um er að ræða brot eða væntanleg brot á afmörkuðum þáttum og ákvæðum tilskipunar 2014/65/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga. Þar sem tilskipun 2014/65/ESB og reglugerð (ESB) nr. 600/2014 hafa ekki verið innleiddar hér á landi tekur ákvæði 1. mgr. þessarar greinar einungis mið af hluta ákvæðis 1. mgr. 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB. Í kjölfar nýrrar heildarlagaumgjörðar um markaði fyrir fjármálagerninga sem innleiðir tilskipun 2014/65/ESB og reglugerð (ESB) nr. 600/2014 verður því nauðsynlegt að gera breytingar á 1. mgr. greinarinnar og innleiða ákvæðið að fullu í íslenskan rétt. Tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins eru íþyngjandi aðgerðir sem hafa þann tilgang að grípa tímanlega inn í rekstur fyrirtækja í erfiðleikum og tryggja áframhald á mikilvægri starfsemi þeirra. Því er sá áskilnaður gerður að um alvarlegt brot eða fyrirséð alvarlegt brot sé að ræða og aðgerðir sem Fjármálaeftirlitið getur krafist skv. 2. mgr. séu til þess fallnar að rétta af fjárhagslega stöðu viðkomandi fyrirtækis.
    Í 2. mgr. er að finna upptalningu á þeim aðgerðum sem Fjármálaeftirlitið getur gripið til gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki við tímanleg inngrip.
     Um 1. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis hrindi í framkvæmd einni eða fleiri þeirra aðgerða sem lýst er í endurbótaáætlun sem kveðið er á um í 5. gr. frumvarpsins eða uppfæri og hrindi í framkvæmd uppfærðri áætlun. Ástæða þess að fjallað er um að hrinda í framkvæmd uppfærðri áætlun er sú að aðstæður sem leiddu til tímanlegra inngripa kunna að vera frábrugðnar þeim sviðsmyndum sem lagt var upp með í endurbótaáætlun. Skal lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki þá uppfæra endurbótaáætlun í samræmi við 2. mgr. 82. gr. a og hrinda í framkvæmd aðgerðum samkvæmt uppfærðri áætlun. Að jafnaði er gert ráð fyrir að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hafi þegar hrint endurbótaáætlun sinni í framkvæmd áður en til tímanlegra inngripa kemur enda á forræði hvers og eins fyrirtækis að virkja áætlun sína. Sú staða getur þó komið upp að fyrirtæki hafi ekki hrint í framkvæmd aðgerðum samkvæmt endurbótaáætlun, t.d. vegna skyndilegrar versnandi eiginfjárstöðu eða lausafjárstöðu eða ef fyrirtækið hefur, af einhverjum ástæðum, valið að virkja ekki endurbótaáætlun sína. Fjármálaeftirlitið getur þá gripið til aðgerða skv. 1. tölul. og krafið lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki um að hrinda í framkvæmd aðgerðum í endurbótaáætlun sem ætlað er að takast á við þær áskoranir sem viðkomandi fyrirtæki stendur frammi fyrir.
     Um 2. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis semji aðgerðaáætlun og afhendi stofnuninni. Það mun leiða til þess að stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis verður að rannsaka aðstæður með nákvæmum hætti og greina þá erfiðleika og áskoranir sem fyrirtæki stendur frammi fyrir. Aðgerðaáætlun skal innihalda aðgerðir sem eru bæði nauðsynlegar og nægjanlegar að mati fyrirtækis til að ráða bót á og komast yfir þá erfiðleika og áskoranir sem fyrirtækið stendur frammi fyrir. Áætlunin skal afhent Fjármálaeftirlitinu sem ákveður frest til afhendingar og skal innihalda tímaramma um framkvæmd aðgerða.
     Um 3. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis boði til hluthafafundar. Verði stjórn ekki við kröfu Fjármálaeftirlitsins um að boða til hluthafafundar getur Fjármálaeftirlitið tekið slíka ákvörðun og boðað til fundarins. Ef stjórn fyrirtækis fellst á kröfu Fjármálaeftirlitsins og boðar til hluthafafundar skal það gert í samræmi við samþykkir viðkomandi fyrirtækis og lög um hlutafélög, nr. 2/1995. Verði stjórn fyrirtækis ekki við kröfu Fjármálaeftirlitsins getur stofnunin sjálf boðað til hluthafafundar og þarf Fjármálaeftirlitið þá ekki að fylgja samþykktum fyrirtækisins eða lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, varðandi boðun á hlutafund o.fl. Fjármálaeftirlitið ákveður dagskrá hluthafafundar óháð því hvort stjórn fyrirtækis eða Fjármálaeftirlitið sjálft boðar til hluthafafundarins. Viðeigandi ákvæði hlutafélagalaga um dagskrá hluthafafundar gilda því ekki. Meginreglur félagaréttar og lög um hlutafélög skulu að öðru leyti gilda um aðgerðir skv. 3. tölul. að því marki sem unnt er. Af málum sem gæti komið til álita að setja á dagskrá hluthafafundar má nefna hækkun hlutafjár viðkomandi fyrirtækis eða önnur mál sem kunna að vera til þess fallin að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis.
     Um 4. tölul. Fjármálaeftirlitið getur vikið stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra frá uppfylli þeir ekki kröfur skv. 52. gr., 52. gr. a og 54. gr. laganna.
     Um 5. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis útbúi áætlun um viðræður við lánardrottna, hluta þeirra eða alla, um endurskipulagningu skulda fyrirtækis. Áætlunin skal innihalda yfirlit yfir þær skuldir sem ætlunin er að hefja viðræður um, skilmála og tímafrest fyrir endurskipulagningu.
     Um 6. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki geri breytingar á viðskiptastefnu sinni. Ákvæðið kann að eiga við ef viðskiptastefna fyrirtækis er of áhættusöm að mati Fjármálaeftirlitsins og það er ástæðan fyrir broti fyrirtækis eða yfirvofandi broti á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum skv. 1. tölul. 1. mgr.
     Um 7. tölul. Fjármálaeftirlitið getur krafið lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki um breytingar á skipulagi fyrirtækis (e. operational structure). Með ákvæðinu er Fjármálaeftirlitinu fengin heimild til að bregðast við og grípa til aðgerða ef skipulag fyrirtækis veldur því að fyrirtækið á það á hættu að missa starfsleyfi sitt eða skipulag fyrirtækisins kemur í veg fyrir að hægt sé að rétta af fjárhagslega stöðu þess. Heimildin kemur einnig til skoðunar ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki er hluti af samstæðu þar sem flókið skipulag kemur í veg fyrir að hægt sé að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækisins. Hægt er að beita heimildinni í þeim tilfellum þegar áfall í rekstri getur haft óveruleg áhrif á samstæðu í heild en mikil áhrif á einstakar lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki. Fjármálaeftirlitið skal taka tillit til áhrifa á fjárhagslega stöðu viðkomandi fyrirtækis við beitingu ákvæðisins. Veigamikil rök mæla með því að lengri tímafrestur sé veittur af hálfu Fjármálaeftirlitsins við beitingu ákvæðisins, t.d. ef breyta þarf samþykktum fyrirtækis.
    Í 3. mgr. kemur fram að Fjármálaeftirlitið skuli veita lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum tímafrest til að ljúka aðgerðum skv. 2. mgr. Tímafrestur Fjármálaeftirlitsins skal veittur samhliða kröfu um aðgerðir skv. 2. mgr. og vera viðeigandi að teknu tilliti til eðlis þess máls sem um ræðir og þeirra aðgerða sem fyrirtæki er gert að grípa til. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er ákveðið að framlengja veittan tímafrest sé það nauðsynlegt að mati stofnunarinnar. Við mat á því hvort tímafrestur verður framlengdur skal m.a. líta til þess hvort viðkomandi fyrirtæki hafi lagt sig fram við að grípa til þeirra aðgerða sem það er krafið um innan upphaflegs frests.
    Í 4. mgr. er fjallað um gagnkvæma upplýsingaskyldu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Rétt þykir að kveða á um slíka upplýsingaskyldu í ákvæðinu þrátt fyrir að nú þegar sé kveðið á um gagnkvæma upplýsingaskyldu stofnananna í lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, og lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, og um framkvæmd slíks samstarfs í sérstökum samstarfssamningi. Tímanleg inngrip í rekstur lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skulu eiga sér stað nægjanlega snemma svo unnt sé að rétta af fjárhagsstöðu fyrirtækis, m.a. svo fjármálastöðugleiki sé tryggður. Ákvæði 4. mgr. tryggir þann grunn sem upplýsingaskipti stofnananna byggjast á og kveðið er á um í framangreindum lögum og samstarfssamningi. Ef aðstæður eru þannig að grípa þarf til tímanlegra inngripa Fjármálaeftirlitsins eða ef lausafjárstaða lánastofnunar fer versnandi þannig að upplýsingaskylda Seðlabankans virkist veitir ákvæðið því skýra heimild til tímanlegra upplýsingaskipta án þess að metið sé í hvert og eitt skipti hvort upplýsingaskylda sé til staðar og án þess að mat fari fram á því hvort skyldan heyri undir samstarfssamning stofnananna. Upplýsingaskylda ákvæðisins er samkvæmt orðanna hljóðan matskennd þar sem hún er bundin við aðstæður sem kalla á tímanleg inngrip lánastofnana eða verðbréfafyrirtækja eða versnandi lausafjárstöðu lánastofnunar. Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum er því eftirlátið ákveðið svigrúm við mat á því hvort og hvenær nauðsynlegt er að upplýsa hina stofnunina. Upplýsingaskylda Fjármálaeftirlitsins skv. 1. málsl. vegna tímanlegra inngripa er víðtæk en gert er ráð fyrir að upplýsingaskyldan eigi við ef meiri líkur en minni eru á því að beita þurfi tímanlegum inngripum gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki að mati Fjármálaeftirlitsins.
    Fjármálaeftirlitinu er heimilt að setja reglur sem innihalda viðmið um hvenær Fjármálaeftirlitið telur að beita þurfi til tímanlegum inngripum vegna versnandi fjárhagslegrar stöðu.
     Um b-lið (86. gr. i).
    Greinin innleiðir 28. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og fjallar um brottvikningu stjórnar og framkvæmdastjóra. Skilyrði fyrir brottvikningu eru þau að fjármálafyrirtæki hafi gerst brotlegt við lög eða reglur eða fjárhagsstaða fyrirtækis hafi versnað verulega.
    Til að hægt sé að beita heimild skv. 1. mgr. ákvæðisins þarf að vera til staðar brot á lögum eða óreiða í rekstri fyrirtækis. Fjármálaeftirlitið leggur mat á það með hliðsjón af aðstæðum hvaða brot teljast falla undir heimildina. Til að hægt sé að grípa til úrræða skv. 2. mgr. ákvæðisins á grundvelli versnandi fjárhagslegrar stöðu er ekki nægjanlegt að fjárhagsstaða lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis sé versnandi heldur þarf fjárhagsstaðan að hafa versnað verulega. Ríkari kröfur eru gerðar um aðgerðir samkvæmt þessu ákvæði en skv. 2. mgr. 86. gr. h um tímanleg inngrip og skulu þær ekki eiga við ef ein eða fleiri aðgerðir skv. 2. mgr. 86. gr. h þykja nægjanlegar til að rétta af fjárhagslega stöðu viðkomandi fyrirtækis. Ákvæðið felur í sér viðbót við heimild skv. 4. tölul. 2. mgr. 86. gr. h um brottvikningu eins eða fleiri stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, þar sem ákvæðið felur í sér skýra heimild til að víkja allri stjórn og framkvæmdastjóra frá. Skipan nýrra stjórnarmanna og framkvæmdastjóra skal fara samkvæmt lögum og verklagi Fjármálaeftirlitsins um mat á hæfi.
     Um c-lið (86. gr. j).
    Greinin innleiðir 29. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og fjallar um skipun bráðabirgðastjórnanda.
    Af 1. mgr. ákvæðisins leiðir að Fjármálaeftirlitið getur skipað lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur (e. temporary administrator). Kostnaður af störfum bráðabirgðastjórnanda skal greiddur af viðkomandi lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki. Til að unnt sé að grípa til heimilda ákvæðisins skulu skilyrði fyrir tímanlegum inngripum skv. 1. mgr. 86. gr. h vera uppfyllt og aðgerðir skv. 2. mgr. 86. gr. h og 86. gr. i um brottvikningu stjórnar og framkvæmdastjóra ekki vera nægjanlegar að mati Fjármálaeftirlitsins til að rétta af fjárhagslega stöðu viðkomandi fyrirtækis. Líkt og á við um skilyrði fyrir beitingu heimilda á grundvelli 86. gr. i er ekki nægjanlegt að fjárhagsstaða fyrirtækis sé versnandi heldur eru ríkari kröfur gerðar samkvæmt ákvæðinu og þarf fjárhagsstaðan að hafa versnað verulega. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að skipa einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur telst meiri háttar ákvörðun skv. 2. mgr. 4. gr. laga, nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, og skal ákvörðunin því borin undir stjórn Fjármálaeftirlitsins til samþykktar eða synjunar. Að öðru leyti en leiðir af ákvæðum þessarar greinar víkur skipun bráðabirgðastjórnanda ekki til hliðar réttindum og skyldum hluthafa samkvæmt lögum um hlutafélög, nr. 2/1995.
    Í 2. mgr. er að finna nánari útfærslu á skipun bráðabirgðastjórnanda og með hvaða hætti slík skipun getur verið. Ákvæðið gildir einungis um stjórnarmenn en ekki stjórnendur fyrirtækis.
     Um 1. tölul. Skipun bráðabirgðastjórnanda getur verið til að leysa af starfandi stjórn, sbr. 1. tölul. 2. mgr. Bráðabirgðastjórnandi, einn eða fleiri, kemur þá til með að starfa sem stjórn fyrirtækis á því tímabili sem ákveðið er af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við 5. mgr., þar sem lög þessi og ákvæði laga um hlutafélög, nr. 2/1995, sem varða félagsstjórn skulu gilda, sbr. 3. mgr. Starfandi stjórn skal þegar í stað láta af störfum og bráðabirgðastjórn taka við strax í kjölfar skipunar. Réttindi og skyldur stjórnar, þar á meðal á grundvelli V. kafla laga um hlutafélög um hækkun hlutafjár og áskriftaréttindi færast þá til bráðabirgðastjórnanda. Þetta felur í sér að bráðabirgðastjórnanda skal skrá sem prókúruhafa hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra út skipunartíma og Fjármálaeftirlitið skal birta opinberlega upplýsingar um skipun bráðabirgðastjórnanda.
     Um 2. tölul. Skipun bráðabirgðastjórnanda getur einnig verið í þeim tilgangi að hann aðstoði starfandi stjórn, sbr. 2. tölul. 2. mgr. Hlutverk skipaðs bráðabirgðastjórnanda verður þá fremur í formi ráðgjafar við starfandi stjórn og hefur hann því ekki þær heimildir sem stjórn hefur samkvæmt lögunum eða lögum um hlutafélög, hvorki til töku ákvarðana né til að koma fram fyrir hönd fyrirtækis. Viðkomandi fyrirtæki ber hins vegar að taka tillit til ráðgjafar og leiðsagnar bráðabirgðarstjórnanda við endanlega ákvarðanatöku mála sem þýðingu hafa fyrir fjárhagslega stöðu fyrirtækis.
    Af 3. mgr. leiðir að ef bráðabirgðastjórnandi er skipaður á grundvelli 1. tölul. 2. mgr. skulu ákvæði laga þessara og reglna ásamt viðeigandi ákvæðum laga um hlutafélög sem varða félagsstjórn gilda eftir því sem við á um bráðabirgðastjórnanda. Þannig tekur bráðabirgðastjórnandi t.d. við réttindum stjórnar til að koma fram út á við fyrir hönd félags og rita firma þess skv. 74. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, og réttindum skv. V. kafla sömu laga, sbr. umfjöllun um 1. tölul. 2. mgr. Með ákvæði 3. mgr. er leitast við að tryggja að hlutafélagalög gildi um störf bráðabirgðastjórnanda eftir því sem unnt er. Takmarkanir eru þó á þessu, sem ráðast af nauðsynlegum frávikum vegna eðlis bráðabirgðastjórnanda og þeirri umgjörð og fyrirmælum sem bráðabirgðastjórnanda verða sett á grundvelli 4. mgr. Bráðabirgðastjórnandi verður ekki leystur frá störfum með ákvörðun hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda. Sem dæmi um önnur nauðsynleg frávik má nefna 63. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, þar sem m.a. er áskilið að stjórn sé skipuð þremur mönnum og tryggt sé að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Bráðabirgðastjórnendur geta verið færri en þrír og því getur reynst nauðsynlegt að víkja frá þessu ákvæði.
    Í 4. mgr. er fjallað um þá umgjörð og fyrirmæli sem Fjármálaeftirlitið skal setja bráðabirgðastjórnendum við skipun þeirra. Sú umgjörð sem Fjármálaeftirlitinu ber að skapa skv. 4. mgr. ræðst af því hvort bráðabirgðastjórnendur eru skipaðir á grundvelli 1. eða 2. tölul. 2. mgr. Tilgangur með skipun bráðabirgðastjórnanda er að stuðla að leiðum til að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis. Til að það geti átt sér stað verður umgjörð bráðabirgðastjórnanda að innihalda skýrt afmörkuð verkefni og heimildir, sbr. 2. og 4. tölul. ákvæðisins. Helstu verkefni bráðabirgðastjórnanda skulu liggja fyrir ekki síðar en við skipun hans. Verkefnin geta t.d. falið í sér mat á fjárhagsstöðu fyrirtækis eða stjórnarháttum þess, í heild eða hluta. Verkefni skulu ávallt ákvörðuð með hliðsjón af því markmiði að varðveita eða rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis. Að sama skapi skulu nauðsynlegar heimildir veittar sem taka m.a. mið af ákvæðum laga þessara og hlutafélagalaga. Á meðal heimilda bráðabirgðastjórnanda getur verið að boða til hluthafafundar og ákveða dagskrá fundarins. Takmarkanir á verkefnum og heimildum skulu einnig liggja fyrir og tilgreindar í skipunarbréfi. Sem dæmi má nefna að hluthafafundur getur ekki vikið frá bráðabirgðastjórnanda og gildir 1. mgr. 64. gr. hlutafélagalaga því ekki um bráðabirgðastjórnanda. Við skipun bráðabirgðastjórnanda skal Fjármálaeftirlitið gera grein fyrir einni eða fleiri ákvörðunum bráðabirgðastjórnanda sem krefjast fyrirframsamþykkis Fjármálaeftirlitsins. Slíkar ákvarðanir geta verið ákvarðanir sem hafa verulega þýðingu fyrir fyrirtækið, t.d. sala á eignum fyrirtækis eða hluta eigna sem ekki hafa óverulegt verðmæti. Ákvörðun frá bráðabirgðastjórnanda um að boða til hluthafafundar skal ávallt háð fyrirframgefnu samþykki Fjármálaeftirlitsins. Á grundvelli 6. tölul. getur Fjármálaeftirlitið ákveðið að bráðabirgðastjórnandi taki saman skýrslu og afhendi stofnuninni. Efni skýrslunnar getur varðað áhrif og þróun á fjárhagsstöðu fyrirtækisins, heimildir sem bráðabirgðastjórnandi telur þörf á að framkvæma eða aðgerðir sem hann hyggst grípa til. Það er Fjármálaeftirlitsins að ákveða form og efni skýrslunnar, þar á meðal hvenær henni skal skilað.
    Kveðið er á um skipunartíma bráðabirgðastjórnanda í 5. mgr. og skal hann að jafnaði ekki vera lengri en eitt ár. Fjármálaeftirlitinu er þó heimilt við sérstakar aðstæður að framlengja skipunartíma ef aðstæður sem kröfðust skipunar eru enn fyrir hendi. Við mat á því hvort ástæða þykir til að framlengja skipunartíma ber að líta til þess hvort aðrar og minna íþyngjandi aðgerðir séu nægjanlegar til að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis og hvort fjárhagsstaða viðkomandi lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis sé enn verulega versnandi. Fjármálaeftirlitið skal rökstyðja ákvörðun sína um framlengingu á skipunartíma fyrir viðkomandi fyrirtæki. Af ákvæðinu leiðir einnig að Fjármálaeftirlitið getur breytt skipun bráðabirgðastjórnanda skv. 2. tölul. 2. mgr. og skipað hann í samræmi við 1. tölul. 2. mgr. Þetta getur t.d. komið til ef Fjármálaeftirlitið metur það svo að starfandi stjórn taki ekki nægjanlega vel mið af ráðgjöf og leiðsögn bráðabirgðastjórnanda eða ef ekki er farið eftir því sem segir í 5. tölul. 4. mgr. um að tilteknar ákvarðanir stjórnar skuli bornar undir bráðabirgðastjórnanda. Fjármálaeftirlitið getur einnig breytt umboði bráðabirgðastjórnanda. Breyting á umboði getur stafað af bæði neikvæðri og jákvæðri þróun á fjárhagslegri stöðu fyrirtækis sem veldur því að umboð bráðabirgðastjórnanda er ekki lengur til þess fallið að varðveita eða rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis. Breyting á umboði skal taka gildi þegar bráðabirgðastjórn og viðkomandi fyrirtæki hafa móttekið tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu um breytt umboð bráðabirgðastjórnanda. Af ákvæðinu leiðir einnig að Fjármálaeftirlitið getur á hvaða tíma sem er ákveðið að leysa bráðabirgðastjórnanda frá störfum. Aðstæður sem geta valdið því eru t.d. að viðkomandi fyrirtæki sé orðið ógjaldfært eða að aðstæður sem kölluðu á tímanleg inngrip eru ekki lengur fyrir hendi. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra ef bráðabirgðastjórnandi er leystur frá störfum.
    Fjármálaeftirlitið ber ábyrgð á því á grundvelli 6. mgr. að bráðabirgðastjórnandi sé óháður og búi yfir fullnægjandi hæfni til að sinna þeim störfum sem honum eru falin. Hætta á hagsmunaárekstrum má ekki vera til staðar milli bráðabirgðastjórnanda og viðkomandi fyrirtækis og má hann því til dæmis ekki eiga hlut í fyrirtækinu eða hafa komið að gerð samninga fyrir hönd fyrirtækisins. Til að tryggja hæfi bráðabirgðastjórnanda er kveðið á um að fylgja skuli viðeigandi ákvæðum um mat á hæfisskilyrðum framkvæmdastjóra og stjórnarmanna, þ.e. 52. gr. og 52. gr. a laga þessara, og því verklagi sem Fjármálaeftirlitið fylgir við hæfismat.
    Í 7. mgr. er kveðið á um heimild Fjármálaeftirlitsins til að skipa fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórn ef skipun bráðabirgðastjórnanda hefur ekki dugað til að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis. Um störf bráðabirgðastjórnar gilda þá ákvæði 100. gr. a laganna en ekki er ráðgert að bráðabirgðastjórnandi njóti samsvarandi heimilda til að ljúka störfum sínum og mælt er fyrir um í 3. og 4. mgr. 100. gr. a. Skipunartími bráðabirgðastjórnar er stuttur og ekki er loku fyrir það skotið að bráðabirgðastjórnandi taki sæti í slíkri stjórn.
    Í 8. mgr. er kveðið á um að skaðabótaábyrgð bráðabirgðastjórnanda skuli takmörkuð við tjón vegna ásetnings eða stórkostlegs gáleysis. Ákvæði 9. mgr. 29. gr. tilskipunar 2014/59/ESB heimilar aðildarríkjum að takmarka skaðabótaábyrgð bráðabirgðastjórnanda. Rétt þykir að skaðabótaábyrgð bráðabirgðastjórnanda taki einungis til tjóns sem valdið er af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Þessi útfærsla er í samræmi við innleiðingu sama ákvæðis í Danmörku, sbr. 8. mgr. 243. gr. c í dönsku lögunum um fjármálastarfsemi (d. lov om finansiel virksomhed) og þá nálgun sem lagt er upp með við innleiðingu sama ákvæðis í Noregi. Bráðabirgðastjórnandi sem skipaður er skv. 2. tölul. 2. mgr. skal ekki teljast skuggastjórnandi.
     Um d-lið (86. gr. k).
    Í greininni eru innleidd ákvæði 1., 3. og 4. mgr. 68. gr. tilskipunar 2014/59/ESB. Ákvæði 68. gr. tilskipunarinnar tekur bæði til tímanlegra inngripa og skilameðferðar og er ákvæðið því einungis innleitt hvað tímanleg inngrip varðar í samræmi við frumvarpið.
    Í 1. mgr. er lagt til að samningsaðili lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis geti ekki borið fyrir sig að aðgerðir Fjármálaeftirlitsins á grundvelli 86. gr. h – 86. gr. j veiti honum sjálfstæðan rétt til að krefjast fullnustu samningsskuldbindinga. Þá getur samningsaðili ekki borið fyrir sig að aðgerðir Fjármálaeftirlitsins skv. 86. gr. h – 86. gr. j geti haft sömu áhrif, í samningssambandi, og heimild til greiðslustöðvunar, nauðasamningsumleitana eða úrskurður um gjaldþrotaskipti samkvæmt lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., sem samsvari vanefnd sem veiti rétt til fullnustu. Ákvæði frumvarpsins tekur til allra samninga lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis og er ætlað að tryggja að áframhald geti orðið á samningum fyrirtækis þrátt fyrir aðgerðir Fjármálaeftirlitsins. Í ákvæðinu er þó sett fram það skilyrði fyrir framangreindu að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki efni samningsskyldur sínar, þar á meðal þær sem tilgreindar eru í ákvæðinu til að samningsaðila þess sé óheimilt að leita fullnustu á samningsskuldbindingum sínum. Skilja ber hugtakið vanefnd samningsskuldbindinga í samhengi við skilgreiningu l-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2002/47/EB um samninga um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir, sem innleidd hefur verið hér á landi með lögum nr. 46/2005, um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir. Þannig er átt við vanefnd, eða annan atburð sem aðilar hafa komið sér saman um, sem verður til þess samkvæmt skilmálum í samningi um fjárhagslega tryggingarráðstöfun eða ákvæðum laga, að tryggingarhafi eigi rétt á að innleysa eða taka til eignar fjárhagslega tryggingu eða að ákvæði um greiðslujöfnun til uppgjörs (e. close-out netting) taki gildi. Tilvísun til aðgerða og úrræða samkvæmt lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., ber að skilja í samhengi við tilskipun 98/26/EB sem innleidd hefur verið hér á landi með lögum nr. 90/1999, um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum.
    Í 2. mgr. er kveðið á um að samningsaðili geti ekki vísað til aðgerða Fjármálaeftirlitsins skv. 86. gr. h – 86. gr. j. sem grundvöll vanefndar eða grundvöll annarra samningsbundinna réttinda. Með öðrum samningsbundnum réttindum í skilningi 3. tölul. ákvæðisins er m.a. átt við réttindi eða samningsákvæði sem kveða á um umsamdar skaðabætur, févíti og hækkun vaxta og sambærileg ákvæði sem auka skyldur fyrirtækisins. Þetta er gildir óháð því hvort að slík samningsbundin réttindi tilheyri þeim fyrirtækjum sem nefnd eru í 3. mgr.
    Í 3. mgr. er kveðið á um að aðgerðir Fjármálaeftirlitsins skv. 86. gr. h – 86. gr. j gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skuli ekki leiða til þess að samningsaðili geti beitt samningsbundnum vanefndaúrræðum skv. 2. mgr. gagnvart dótturfélagi fyrirtækis. Þá leiðir af ákvæðinu að félög innan samstæðu geta ekki borið fyrir sig víxlvanefndarákvæði. Með hugtakinu víxlvanefnd (e. cross-default) eða víxlvanefndarákvæði er átt við ákvæði þess efnis að vanefndir á einum samningi leiði sjálfkrafa til þess að aðrir samningar milli aðila teljist vanefndir. Með félögum innan samstæðu er átt við félög sem tilgreind eru í 2.–9. tölul. 2. mgr. 82. gr. g um skrá yfir fjárhagslega samninga.

Um 8. gr.

    Lagfærðar eru millivísanir sem leiðir af breytingum sem gerðar eru á 86. gr.

Um 9. gr.

    Lagðar eru til breytingar á 107. gr. laganna sem fjallar um eftirlitsheimildir Fjármálaeftirlitsins. Allar breytingarnar byggjast á tilskipun 2013/36/ESB. Í a–d-lið greinarinnar er lagðar til ýmsar breytingar sem tengjast eftirliti Fjármálaeftirlitsins með ýmsum tegundum eignarhaldsfélaga sem heyra undir gildissvið laganna og félögum tengdum slíkum félögum. Slík félög skulu heyra undir eftirlit í aðildarríkjunum á grundvelli tilskipunar 2013/36/ESB, sbr. 4. mgr. 2. gr. hennar. Allar breytingarnar tengjast þeim tilvikum þegar Fjármálaeftirlitið telst eftirlitsaðili á samstæðugrundvelli (e. consolidating supervisor) í skilningi laganna og Evrópuréttar eða þegar Fjármálaeftirlitið aðstoðar eftirlitsstjórnvöld í öðrum aðildarríkjum við eftirlit á samstæðugrunni. Þannig getur eignarhaldsfélag verið staðsett hér á landi en lánastofnun í eigu eignarhaldsfélagsins verið staðsett og starfað í öðru aðildarríki með starfsleyfi á grundvelli laga þar í landi. Breytingarnar taka til efnis 111.–127. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Við mat á því hver telst eftirlitsaðili á samstæðugrunni þarf að horfa til tilskipunar 2013/36/ESB og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 hvað varðar varfærniskröfur á samstæðugrunni. Í 1. málsl. b-liðar greinarinnar kemur fram að Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi eignarhaldsfélaga á fjármálasviði, blandaðra eignarhaldsfélaga og blandaðra eignarhaldsfélaga í fjármálastarfsemi sem eru annaðhvort stofnsett hér á landi eða starfa hér á landi. Reglan byggist á 111. gr., 1. mgr. 119. gr. og 123. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Með því að starfa hér á landi í skilningi málsliðarins falla einnig tilvik þegar dótturfélag eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi, sem er t.d. lánastofnun, er staðsett í öðru aðildarríki. Í slíkum tilvikum getur t.d. farið um eftirlit á samstæðugrunni eftir 1. mgr. 111. gr. tilskipunarinnar og er eftirlit á samstæðugrunni þá í höndum eftirlitsaðila í því ríki sem veitti lánastofnuninni starfsleyfi en þar sem eignarhaldsfélagið, t.d. eignarhaldsfélag á fjármálasviði, er staðsett hér á landi þarf Fjármálaeftirlitið að aðstoða eftirlitsyfirvöld í viðkomandi aðildarríki við eftirlit með því. Í 2. málsl. a-liðar kemur fram að eftirlit Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni getur einnig náð til eignarhaldsfélaga á fjármálasviði, blandaðra eignarhaldsfélaga og blandaðra eignarhaldsfélaga í fjármálastarfsemi, móðurfélaga slíkra félaga og dótturfélaga, þegar þau eru staðsett í öðru ríki. Undir þetta geta fallið tilvik þegar slík félög teljast móðurfélag a.m.k. tveggja fjármálafyrirtækja, hvort í sínu aðildarríkinu, og annað þeirra hefur starfsleyfi hér á landi. Um það hver telst eftirlitsaðili á samstæðugrunni í slíkum tilvikum gildir sú regla að eftirlitsaðili þess fjármálafyrirtækis sem hefur stærri efnahagsreikning (e. balance sheet total) skuli teljast eftirlitsaðili á samstæðugrunni, sbr. 3. mgr. 111. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Tilgangur breytingar í a-lið greinarinnar er ekki að þrengja eftirlitshlutverk Fjármálaeftirlitsins á neinn hátt og skal túlka 2. mgr. greinarinnar sem sjálfstæða heimild gagnvart öðrum heimildum í 107. gr. laganna. Þær reglur sem a-liður greinarinnar kveður á um skulu einnig túlkaðar í samræmi við tilskipun 2013/36/ESB. Í b-lið greinarinnar er lagt til að við bætist tilvísun til þess að Fjármálaeftirlitið geti einnig krafið dótturfélög eignarhaldsfélaga á fjármálasviði og blandaðra eignarhaldsfélaga um hvers konar gögn eða upplýsingar sem nauðsynlegar eru í eftirliti með fjármálafyrirtækjum og samstæðu þeirra. Þessi regla kemur fram í 122. gr. tilskipunar 2013/36/ESB en byggist einnig á 119. og 124. gr. sömu tilskipunar. Í c-lið greinarinnar er lagt til að tilvísun til vettvangskönnunar bætist við heimildir í 8. mgr. til að beita ákvæðum laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og byggist sú breyting á 2. mgr. 122. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Í d-lið er lagt til að fyrirsögn greinarinnar verði breytt þannig að hún samræmist betur inntaki ákvæðisins.

Um 10. gr.

    Lagðar eru til tvær breytingar á 108. gr. laganna sem fjallar um aðstoð við yfirvöld annarra EES-ríkja. Breytingarnar tengjast allar breytingum sem gerðar eru með 9. og 11. gr. frumvarpsins varðandi eftirlit á samstæðugrunni og byggjast breytingarnar því einnig á 111.–127. gr. tilskipunar 2013/36/ESB. Í a-lið greinarinnar er lagt til að tvær nýjar málsgreinar bætist við 108. gr. laganna. Sú fyrri varðar annars vegar þau tilvik þegar Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili á samstæðugrunni og hins vegar þegar aðili hér á landi heyrir undir eftirlit á samstæðugrunni eftirlitsaðila í öðru aðildarríki. Í báðum tilfellum er gert ráð fyrir að eftirlitsaðilar eigi í samstarfi varðandi eftirlitið og er því markmið greinarinnar að veita Fjármálaeftirlitinu víðtæka heimild til samstarfs í þessum efnum. Í flestum ákvæðum 111.–127. gr. tilskipunar 2013/36/ESB er gert ráð fyrir því að eftirlitsaðilar á EES-svæðinu eigi í samráði, samstarfi, upplýsingaskiptum og sameiginlegu eftirliti þegar starfsemi eftirlitsskylds aðila samkvæmt lögun teygir sig yfir í a.m.k. tvö aðildarríki. Með breytingu sem lögð er til í a-lið greinarinnar er Fjármálaeftirlitinu einnig veitt heimild til að eiga í samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina en reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1093/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni) var tekin upp í íslensk lög með lögum nr. 24/2017. Á grundvelli ákvæðisins er Fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að eiga í samstarfi við Eftirlitsstofnun EFTA og eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina á grundvelli laganna og í samræmi við lög nr. 24/2017. Í b-lið er lagt til að fyrirsögn greinarinnar verði breytt í samræmi við inntak ákvæðisins.

Um 11. gr.

    Lagðar eru til fjórar breytingar á 109. gr. laganna sem fjallar um varfærniskröfur á samstæðugrunni og eftirlit á samstæðugrunni. Í d-lið greinarinnar er lögð til breyting á fyrirsögn greinarinnar í samræmi við inntak greinarinnar. Í a-lið er lagt til að tilvísun til IX. kafla og reglugerðar sem sett er á grundvelli 117. gr. a laganna bætist við í tilvísun til þess hvaða reglur taka til samstæðu fjármálafyrirtækja og móðurfélags þess. Í 6.–24. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 sem tekin hefur verið upp í landsrétt á grundvelli 117. gr. a laganna, sbr. reglugerð 233/2017 um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja er m.a. að finna nánari afmörkun á því hvenær tiltekin félög samkvæmt lögunum skuli miða við varfærniskröfur á samstæðugrunni. Breytingin tekur einnig mið af því að ákvæði frumvarpsins um endurbótaáætlun sem lagt er til að bætist við lögin í nýjum IX. kafla A skulu einnig gilda um samstæðu fjármálafyrirtækis eftir því sem við á. Í b-lið greinarinnar eru lagðar til tvær breytingar sem byggjast annars vegar á 1. og 2. mgr. 120. gr. tilskipunar 2013/36/ESB og hins vegar á 2. mgr. 123. gr. sömu tilskipunar. Fyrri málsliður b-liðar kveður á um heimild eftirlitsaðila á samstæðugrunni til að ákveða að eftirlit með blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi fari í einstökum atriðum eða einungis eftir lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum. Síðari málsliðurinn tengist breytingu sem lögð er til í 5. gr. frumvarpsins á 17. gr. laganna varðandi eftirlitskerfi með áhættu. Með c-lið greinarinnar kemur nýtt ákvæði til áréttingar á því að heimild Fjármálaeftirlitsins til að víkja frá stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra nær einnig til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í eignarhaldsfélögum á fjármálasviði, blandaðra eignarhaldsfélaga og blandaðra eignarhaldsfélaga í fjármálastarfsemi. Í greininni er sérstaklega vísað til þess að Fjármálaeftirlitið geti vísað stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra frá fyrir brot gegn ákvæðum í XIII. kafla laganna, þ.e. um eftirlit. Breytingin byggist á 126. gr. tilskipunar 2013/36/ESB.

Um 12. gr.

     Um a-lið (109. gr. a).
    Lagt er til að 19. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um heimild móðurfélaga, dótturfélaga og annarra félaga innan samstæðu til að gera samning um fjárstuðning innan samstæðu verði innleidd í lögin með greininni. Ákvæðið ber ekki að skilja á þann hátt að samningur um fjárstuðning skv. 1. mgr. sé forsenda þess að hægt sé að veita fjárstuðning innan samstæðu til fyrirtækis í fjárhagserfiðleikum. Hægt er að veita fjárstuðning innan samstæðu óháð ákvæðum 109. gr. a – 109. gr. f enda sé slíkur fjárstuðningur veittur í samræmi við ákvörðun félags innan samstæðu í hverju tilfelli fyrir sig og fjárstuðningurinn sé í samræmi við stefnu samstæðunnar og ekki til þess fallinn að valda áhættu fyrir samstæðu í heild. Ákvæði 109. gr. b – 109. gr. f gilda ekki um hefðbundin viðskipti og fjárstuðning við slíkar aðstæður.
    Af 1. mgr. leiðir að félögum innan samstæðu sem tilgreind eru í ákvæðinu er heimilt að gera samning um fjárstuðning. Samningurinn getur tekið til fyrirtækja sem vísað er til í 1. mgr., óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki er staðsett hér á landi, í aðildarríki eða eftir atvikum utan aðildarríkja. Samningur um fjárstuðning getur náð til eins eða fleiri dótturfélaga, hann getur verið á frá móðurfélagi til dótturfélags, frá dótturfélagi til móðurfélags eða milli einstakra dótturfélaga. Þá geta lánaskilmálar samnings kveðið á um að fjárstuðningur verði veittur í formi láns, ábyrgðarveitingar, lánsveðs eða samsetningar af þessum tegundum lánsforma í einum eða fleiri viðskiptum. Fjármálaeftirlitið skal á grundvelli 109. gr. b samþykkja fyrirhugaðan samning áður en hann er gerður milli viðkomandi félaga eins og fram kemur 3. mgr.
    Í 2. mgr. kemur fram að skilyrði fyrir samþykkt samningsins er að hann skuli nýttur ef einn eða fleiri samningsaðilar komast í þá aðstöðu að lögbært yfirvald hafi heimild til að beita tímanlegum inngripum skv. 27. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og slíkur samningur hafi verið gerður áður en þær aðstæður skapast. Samning skv. 1. mgr. er einungis hægt að gera og hann getur einungis komið til framkvæmda ef hann var gerður áður en einhver samningsaðila hans komst í aðstæður sem valda því að heimilt er að beita tímanlegum inngripum.
    Af 3. mgr. leiðir að í samningi um fjárstuðning innan samstæðu skulu koma fram sérstaklega tilgreindar reglur um endurgjald fyrir veittan fjárstuðning. Á grundvelli reglnanna er ekki skylda að tekið verði tillit til tímabundinna áhrifa á markaðsverð sem fyrirséð er að geti stafað frá atburðum utan áhrifa samstæðunnar við ákvörðun á endurgjaldi. Þá skal samningur einnig vera í samræmi við ákveðnar meginreglur sem taka til samnings í heild, þ.m.t. reglur um endurgjald. Þessar meginreglur kveða m.a. á um að allir samningsaðilar skuli starfa í eigin þágu og þannig óháð hagsmunum annarra. Þeir geta því tekið mið af bæði beinum og óbeinum ávinningi sem getur komið í hlut hvers og eins samningsaðila, sbr. 1. og 2. tölul. Þá er mælt fyrir um þá meginreglu í 3. tölul. að það er samningsaðila sem veitir fjárstuðning að meta hvenær fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir svo hægt sé að ganga til samnings um fjárstuðning og skal endurgjald ákvarðað að teknu tilliti til upplýsinganna.
     Um b-lið (109. gr. b).
    Í greininni er innleidd 20. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um umsókn um staðfestingu samnings um fjárstuðning innan samstæðu og málsmeðferð þegar samningsaðilar hafa staðfestu í fleiri en einu aðildarríki.
    Í 1. mgr. kemur fram að móðurfélagi í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu sé skylt að óska eftir staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á samningi um fjárstuðning innan samstæðu. Móðurfélag gerir það með formlegri umsókn ásamt því að skila inn gögnum sem teljast nauðsynleg að mati Fjármálaeftirlitsins.
    Í 3. og 4. mgr. er fjallað um þann verkferil sem gildir við töku á sameiginlegri ákvörðun með lögbærum yfirvöldum og fjallað hefur verið um í skýringum við 82. gr. d í 5. gr. frumvarpsins. Vísast til umfjöllunar um þá grein til nánari skýringar. Fjármálaeftirlitið skal í samstarfi við lögbær yfirvöld greina áhrif áætlaðs samnings í aðildarríkjum, sbr. 3. mgr. Við mat á áhrifum skal sérstaklega taka tillit til áhrifa á ríkisfjármál í öllum aðildarríkjum þar sem samstæðan er með starfsemi.
     Um c-lið (109. gr. c).
    Í greininni er innleidd 21. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um samþykki hluthafa fyrir samningi um fjárstuðning innan samstæðu. Sá áskilnaður er gerður að samningur um fjárstuðning innan samstæðu verði samþykktur á hluthafafundi. Skal það gert eftir að Fjármálaeftirlitið hefur staðfest umsókn um samninginn. Ákvæði X. kafla laga um hlutafélög, nr. 2/1995, gilda um hluthafafundi.
    Í 2. mgr. er mælt fyrir um upplýsingaskyldu stjórnar til hluthafa. Upplýsingaskylda stjórnar er víðtæk og tekur til allra viðskipta samkvæmt samningnum, bæði efndum hans og framkvæmd einstakra ákvarðana í samræmi við samninginn. Upplýsingaskyldan varir á meðan samningur er í gildi.
     Um d-lið (109. gr. d).
    Í greininni er innleidd 23. gr. tilskipunar 2014/59/ESB sem fjallar um skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu. Ákvæði i-liðar 1. mgr. 23. gr. tilskipunarinnar fjallar um skilyrði sem tengist undirbúningi skilameðferðar og er ekki innleitt með ákvæðinu. Af 109. gr. b leiðir að umsókn um fjárstuðning innan samstæðu skv. 1. mgr. 109. gr. a skal samþykkt af Fjármálaeftirlitinu sem leggur mat á skilyrði fyrir fjárstuðningi samkvæmt greininni. Fjárstuðningur innan samstæðu verður ekki veittur nema aðstæður séu með þeim hætti að heimilt sé að beita til tímanlegum inngripum gagnvart aðila samnings. Mat á skilyrðum fyrir fjárstuðningi samkvæmt þessari grein skal því einnig fara fram áður en ákvörðun um að veita fjárstuðning er borin undir stjórn fyrirtækis skv. 1. mgr. 109. gr. e enda eru skilyrðin forsenda þess að Fjármálaeftirlitið taki ákvörðun um að heimila fjárstuðning skv. 5. mgr. 109. gr. e.
    Í 1. mgr. eru tilgreind í sjö töluliðum þau skilyrði sem uppfylla þarf fyrir fjárstuðning innan samstæðu. Ákvæðinu er m.a. ætlað að tryggja að fjárstuðningur ógni hvorki fjárhagsstöðu þess fyrirtækis sem veitir fjárstuðning né fjármálastöðugleika. Í 5. tölul. kemur fram að fjárstuðningur megi ekki stofna í hættu lausafjárstöðu eða gjaldfærni (e. solvency) fyrirtækis sem veitir fjárstuðning. Á grundvelli 7. tölul. er sá áskilnaður gerður að fyrirtæki sem veitir fjárstuðning fullnægi kröfum laga þessara um eigið fé, laust fé og stórar áhættuskuldbindingar, bæði áður en ákvörðun er tekin um að veita fjárstuðning og eftir að fjárstuðningurinn er veittur.
    Í 2. mgr. er kveðið á um að ráðherra setji reglugerð sem útfærir nánar skilyrði fyrir fjárstuðningi. Reglugerð ráðherra mun innleiða ákvæði um fjárstuðning innan samstæðu sem fram koma í framseldri reglugerð (ESB) nr. 2016/1075. 10
     Um e-lið (109. gr. e).
    Í greininni eru innleiddar 24. gr. og 25. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og fjallar hún um ákvörðun um fjárstuðning innan samstæðu og þá málsmeðferð sem gildir um slíka ákvörðunartöku, bæði af hálfu stjórnar fyrirtækisins og Fjármálaeftirlitsins. Í 1. og 2. mgr. er kveðið á um að stjórn viðkomandi fyrirtækis, bæði þess sem veitir fjárstuðning og viðtakanda hans, skuli taka ákvörðun um fjárstuðninginn.
    Ákvæði 3.–5. mgr. fjalla um þær reglur sem gilda þegar fyrirtæki sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins hyggst veita fjárstuðning innan samstæðu. Það er verkefni lögbærs yfirvalds þess fyrirtækis sem hyggst veita fjárstuðning að móttaka tilkynningu og taka afstöðu til hennar eftir því sem segir í 5. mgr. Ef Fjármálaeftirlitið er lögbært yfirvald sem tekur afstöðu til tilkynningar getur það heimilað, hafnað eða takmarkað fjárstuðninginn. Forsenda þess að fjárstuðningi sé hafnað eða hann sæti takmörkunum er að skilyrði sem kveðið er á um 109. gr. d séu ekki uppfyllt. Ef Fjármálaeftirlitið grípur til þess að hafna eða takmarka fjárstuðning skal það gert með rökstuddri ákvörðun og tilkynnt viðeigandi yfirvöldum þegar í stað, sbr. 5. mgr.
    Í 6. mgr. er kveðið á um þann rétt sem lögbær yfirvöld hafa til að vísa ágreiningi um höfnun eða synjun á fjárstuðningi til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA. Ef viðtakandi fjárstuðnings er í öðru aðildarríki kemur það í hlut lögbærs yfirvalds þar í landi að leita til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA. Ef viðtakandi fjárstuðnings er fyrirtæki hér á landi sem sætir eftirliti Fjármálaeftirlitsins hefur Fjármálaeftirlitið þann rétt á grundvelli ákvæðisins að bera ágreining um höfnun eða takmörkun af hálfu lögbærs yfirvalds í öðru aðildarríki til Eftirlitsstofnunar EFTA. Í stað fjögurra mánaða frests líkt og á við um ágreining skv. 82. gr. d og 109. gr. b skal ágreiningur samkvæmt ákvæði þessu borinn undir Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina eða Eftirlitsstofnun EFTA innan tveggja daga frá móttöku tilkynningarinnar.
    Af 7. mgr. leiðir að heimilt er að veita fjárstuðning innan samstæðu í samræmi við samning ef Fjármálaeftirlitið hefur ekki hafnað eða takmarkað fjárstuðning innan tímamarka skv. 5. mgr.
    Í 8. mgr. er fjallað um endurskoðun og uppfærslu endurbótaáætlunar í kjölfar höfnunar eða takmörkunar Fjármálaeftirlitsins á fjárstuðningi innan samstæðu. Frumkvæði Fjármálaeftirlitsins á endurskoðun á endurbótaáætlun samstæðu að beiðni viðeigandi lögbærs yfirvalds skv. 1. málsl. ákvæðisins er háð því að Fjármálaeftirlitið sé eftirlitsaðili á samstæðugrunni. Af 2. málsl. ákvæðisins leiðir að ef endurbótaáætlun er gerð fyrir einstök dótturfélög skv. 4. mgr. 82. gr. d er Fjármálaeftirlitið ekki eftirlitsaðili á samstæðugrunni og því í sjálfsvald sett að krefjast uppfærslu og afhendingar á endurbótaáætlun dótturfélags.
     Um f-lið (109. gr. f).
    Í greininni er innleidd 26. gr. tilskipunar 2014/59/ESB og er þar fjallað um opinbera birtingu upplýsinga um samning um fjárstuðning innan samstæðu. Af 1. mgr. leiðir að skylda fyrirtækis til opinberrar birtingar, t.d. á vef sínum, er óháð því hvort fyrirtæki hefur gerst aðili að samningi. Þannig skal félag innan samstæðu birta opinberlega upplýsingar þrátt fyrir að það hafi ekki gerst aðili að samningi um fjárstuðning skv. 109. gr. a. Efnisatriði opinberrar birtingar koma hins vegar eðli máls samkvæmt einungis til álita ef fyrirtæki hefur gerst aðili að samningi. Af 4. málsl. 1. mgr. leiðir að ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem innleidd er með stoð í 117. gr. a laganna, gildir að öðru leyti um opinbera birtingu en í ákvæðum 431.–434. gr. reglugerðarinnar er fjallað um opinbera birtingu.
    Í 3. mgr. kemur fram að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins. Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út framkvæmdarreglugerð nr. 2016/911 sem byggist á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar. Reglugerð ráðherra mun byggjast á og taka upp viðeigandi ákvæði reglugerðar ESB. 11

Um 13. gr.

    Lagðar eru til breytingar í fjórum liðum á 1. mgr. 110. gr. laganna sem fjallar um stjórnvaldssektir. Í a-lið er lagt til að við 29. tölul. 1. mgr. bætist tilvísun til 1. mgr. 54. gr. sem kveður á um skyldur stjórnar til að sjá til þess að til staðar sé virkt eftirlitskerfi með áhættu innan fjármálafyrirtækis. Breytingin byggist á d-lið 1. mgr. 67. gr. tilskipunar 2013/36/ESB, sbr. 74. gr. sömu tilskipunar. Breyting sem lögð er til í b-lið skýrist af breytingu sem lagðar eru til á 86. gr. laganna í 6. gr. frumvarpsins. Breyting í c-lið greinarinnar byggist á þeim breytingum sem lagðar eru til í 9. gr. frumvarpsins á 107. gr. laganna. Í d-lið greinarinnar er lagt til að fjórir nýir töluliðir bætist við greinina en þrjá þeirra má rekja til breytinga sem lagðar eru til á lögunum og tengjast innleiðingu á ákvæðum tilskipunar 2014/59/ESB hér á landi en sá fjórði varðar breytingu sem lögð er til í 11. gr. frumvarpsins á 109. gr. laganna, þar á meðal á grundvelli 126. gr. tilskipunar 2013/36/ESB.

Um 14. gr.

    Lagðar eru til tvær breytingar á 112. gr. b laganna sem fjallar um brot gegn lögunum og reglum settum á grundvelli þeirra og varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Breyting í a-lið tengist breytingu sem lögð er til í 6. gr. frumvarpsins á 86. gr. laganna. Í b-lið er lagt til að nýr töluliður bætist við 1. mgr. greinarinnar sem kveður á um heimild til að beita sekt eða fangelsisrefsingu fyrir að brjóta gegn þeim skyldum sem kveðið er á um í 107. gr. laganna.

Um 15. gr.

    Lagt er til að orðin „með áorðnum breytingum“ bætist við fyrir aftan tilvísun til reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 í 117. gr. a laganna. Með þessari breytingu verður skýrari lagaheimild til að taka upp seinni breytingar á reglugerð (ESB) nr. 575/2013. Lagaheimildin nær þannig til þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á reglugerðinni eftir að hún var gefin út á vettvangi Evrópusambandsins en í nokkrum afleiddum gerðum Evrópusambandsins (e. delegated act) sem gefnar hafa verið út síðustu ár hafa verið gerðar breytingar á efni reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Þannig var t.d. gerð breyting á reglugerðinni með reglugerð (ESB) 2017/2395 frá 12. desember 2017 þar sem mælt er fyrir um aðlögunartíma fyrir Evrópsk fjármálafyrirtæki vegna upptöku IFRS 9 staðalsins.

Um 16. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.

1    Sjá 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
2    Sjá 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2014/59/ESB.
3    Sjá nánari skýringar á endurbótaáætlun í athugasemdum við 82. gr. a – 82. gr. g.
4    Sjá upptalningu á öðrum fyrirtækjum en lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum í 2.–9. tölul. 2. mgr. 82.
gr. g í 5. gr. frumvarpsins.
5    Skilgreining á fjárhagslegum samningum er að finna í 100. tölul. 2. gr. tilskipunar 2014/59/ESB.
6    Sjá nánar í reglugerð (ESB) nr. 2016/1712.
7    Hvað nánari rökstuðning varðar vísast til umfjöllunar í 4. kafla greinargerðar frumvarps er varð að lögum
nr. 24/2017, um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði (þingskjal 301, 217. mál á 146. löggjafarþingi).
8    Nánari umfjöllun um kröfurnar er að finna í 2. undirkafla 1. kafla reglugerðar (ESB) nr. 2016/1075.
9    Nánari umfjöllun um kröfurnar er að finna í 3. undirkafla 1. kafla reglugerðar (ESB) nr. 2016/1075.
10    Nánari umfjöllun um kröfurnar er að finna í 3. kafla reglugerðar (ESB) nr. 2016/1075.
11    Sjá nánar í reglugerð (ESB) nr. 2016/911.