Ferill 120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 799  —  120. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um rannsóknir á örplasti í lífverum sjávar í Norður-Atlantshafi.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðjón S. Brjánsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Sigurð Ólafsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, Bylgju Árnadóttur, ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Huga Ólafsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
    Með tillögunni er ríkisstjórn Íslands hvött til að hefja samstarf við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um rannsóknir á örplasti í sjávarlífverum og útbreiðslu plastmengunar í Norður-Atlantshafi. Tillagan er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 3/2017 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 1. september 2017 í Reykjavík.
    Í greinargerð er m.a. lögð áhersla á stöðu sjávarútvegs sem undirstöðuatvinnugreinar á Vestur-Norðurlöndum og mikilvægi þess að standa vörð um auðlindir sjávar. Plastmengun í hafi ógni vistkerfi sjávar og geti haft langtímaáhrif á sjávarlífverur og þar með afkomu landanna. Þörf sé á auknum rannsóknum á því hvort og hvar örplast finnist í fæðukeðju sjávar og hvaða afleiðingar það hafi. Einnig þurfi stjórnvöld að grípa til ráðstafana til að draga úr mengun af völdum alls kyns plasts í stærri mælikvarða en örplast og áhrifum hennar á umhverfið.
    Nefndin tekur undir áskorun Vestnorræna ráðsins til ríkisstjórnarinnar um að undirbúa og hefja samstarf við landsstjórnir Færeyja og Grænlands í samræmi við efni þingsályktunartillögunnar. Nefndin vill um leið árétta þá skoðun að samstarfið sé árangursríkast um hríð með því að beina mestri vinnu að rannsóknum á örplasti í lífverum í hafinu við löndin þrjú. Samhliða því verður að kanna og ákvarða með hvaða hætti unnt er að vinna gegn slíkri mengun. Hvað varðar rannsóknir á útbreiðslu plastmengunar í Norður-Atlantshafi, eins og farið er fram á í tillögunni, tekur nefndin fram að þjóðirnar þrjár verða að leita víðtæks samstarfs þjóða við þetta hafsvæði og hagnýta sér þegar fengnar upplýsingar um plastmengun í hafi frá alþjóðastofnunum. Rannsóknir á plastmengun í Norður-Atlantshafi eru tíma- og fjárfrek verkefni og vart á könnu þriggja smæstu þjóðanna í þessum heimshluta en afar brýnar eins og hvers kyns aðgerðir gegn plastmengun eru nú orðnar.
    Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt.

    Inga Sæland, áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, lýsir sig samþykka áliti þessu.

Alþingi, 16. apríl 2018.


Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
form.
Ari Trausti Guðmundsson, frsm. Álfheiður Eymarsdóttir.
Bryndís Haraldsdóttir. Gunnar Bragi Sveinsson. Logi Einarsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Þorgerður K. Gunnarsdóttir.