Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 33 — 33. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku,
nr. 88/1971 (lögbundnir frídagar).
Flm.: Þorsteinn Sæmundsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason,
Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ísleifsson,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson.
1. gr.
Í stað orðanna „og 17. júní“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 17. júní og 1. desember.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Hinn 1. desember 2018 eru liðin hundrað ár frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna. Af því tilefni eru margvísleg hátíðahöld á árinu, m.a. á vegum Alþingis, enda vel við hæfi að svo mikilvægra tímamóta í lífi þjóðarinnar sé minnst með jákvæðum og afgerandi hætti. Á sama grundvelli er því lagt til með frumvarpi þessu að frá og með hundrað ára afmæli fullveldisins verði 1. desember ár hvert lögbundinn frídagur.
Í lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, er nú, auk helgidaga þjóðkirkjunnar, sérstaklega kveðið á um fjóra heila frídaga: sumardaginn fyrsta, fyrsta mánudag í ágúst (frídag verslunarmanna), 1. maí (baráttudag verkalýðsins) og þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní.
Að mati flutningsmanna hefur enginn þessara daga haft í för með sér jafnmiklar grundvallarbreytingar á sögu og lífi íslensku þjóðarinnar og fullveldisdagurinn 1. desember 1918, dagurinn sem markaði fullnaðarsigur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Með því er ekki gert lítið úr sögu eða mikilvægi þessara daga, sem að sönnu er ærið, en í ljósi þess að mælt er fyrir um að þessir fjórir dagar skuli vera almennir frídagar samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, og þeir þannig festir í sameiginlegt minni þjóðarinnar, telja flutningsmenn eðlilegt og rétt að fullveldisdagurinn 1. desember verði jafnframt gerður að frídegi á sama hátt og mikilvægis hans verði þannig minnst um alla framtíð.