Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1282 — 231. mál.
Frumvarp til laga
um skóga og skógrækt.
(Eftir 2. umræðu, 2. apríl.)
I. KAFLI
Markmið og orðskýringar.
1. gr.
Markmið.
a. að vernda náttúruskóga landsins og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra,
b. að vernda og endurheimta líffræðilega fjölbreytni,
c. ræktun nýrra skóga til að byggja upp fjölbreytta skógarauðlind til sjálfbærra nytja,
d. að nýting skóga sé sjálfbær þannig að skógarnytjar skili sem mestum hagrænum, félagslegum og umhverfislegum ávinningi fyrir samfélagið,
e. að skógrækt verði í samræmi við skipulagsáætlanir og náttúruvernd,
f. að auðvelda aðgengi fólks að skógum til útivistar og auka þekkingu fólks á málefnum skóga og skógræktar,
g. að stuðla að kolefnisbindingu með ræktun skóga og aðlögun þeirra að loftslagsbreytingum,
h. að skógrækt stuðli að verndun jarðvegs og dragi úr hugsanlegu tjóni vegna náttúruvár.
2. gr.
Orðskýringar.
1. Endurheimt skógar: Það ferli að koma vistkerfum, vistkerfisferlum, eiginleikum vistkerfa og vistkerfaþjónustu náttúruskóga í það horf að þeir nái að þróast án hnignunar.
2. Endurnýjun skógar: Aðgerðir sem leiða til þess að ung tré taka að vaxa í kjölfar lokafellingar og í stað þeirra trjáa sem felld voru.
3. Felling: Framkvæmd sem felur í sér fellingu trjáa og endurnýjun skógarins í kjölfarið.
4. Fellingarkerfi: Kerfi aðferða við fellingu á skógi sem miðar að því að endurnýja hann hvort heldur sem er með gróðursetningu, beinni sáningu eða sjálfsáningu.
5. Grisjun: Framkvæmd sem felur í sér fellingu einstakra trjáa í skógi áður en þau hafa náð þeim aldri sem ætlað er að þau nái við fellingu, með það að markmiði m.a. að bæta vaxtarskilyrði trjánna sem eftir standa.
6. Kjarr: Land, a.m.k. 0,5 ha að flatarmáli og minnst 20 m breitt, þar sem ríkjandi trjágróður nær 0,5–2 m hæð fullvaxinn og er með minnst 10% krónuþekju.
7. Náttúruskógur: Land, a.m.k. 0,5 ha að flatarmáli, þar sem sjálfsánar, innlendar trjátegundir, þ.e. ilmbjörk, reyniviður, blæösp, gulvíðir eða loðvíðir, eru ríkjandi og ná a.m.k. tveggja metra hæð fullvaxnar og a.m.k. 10% krónuþekju.
8. Ræktunaráætlun: Áætlun um ræktun skógar á tilteknu landsvæði.
9. Sjálfbær nýting skóga: Ræktun, umsjón og nýting skóga og skóglendis sem er hagað þannig að efld er til frambúðar líffræðileg fjölbreytni, framleiðni, endurnýjun og þróttur skóga og gætt að samfélagslegum, hagrænum og vistfræðilegum þáttum og áhrifum á önnur vistkerfi nær og fjær.
10. Skjólbelti: Raðir eða þyrpingar trjáa og runna sem ræktaðar eru í því skyni að skapa skjól.
11. Skógrækt: Öll sú starfsemi sem snýr að vernd, endurheimt, ræktun, umhirðu, nýtingu og endurnýjun skóga, þ.m.t. rannsóknir, ráðgjöf, áætlanagerð og verklegar framkvæmdir.
12. Skógur: Land, a.m.k. 0,5 ha að flatarmáli og minnst 20 m breitt, þar sem ríkjandi trjágróður nær a.m.k. tveggja metra hæð fullvaxinn og er með minnst 10% krónuþekju.
13. Varanleg eyðing skógar: Aðgerðir eða breyting á landnotkun sem veldur því að svo mörg tré drepast að landsvæði uppfyllir ekki lengur skilgreiningu skógar og komið er í veg fyrir endurnýjun trjánna með aðgerðum eða landnýtingu.
14. Þjóðskógur: Skógur og lönd í umsjón Skógræktarinnar, hvort heldur sem er á landi í eigu ríkisins eða í einkaeigu, eins og nánar er skilgreint í reglugerð skv. 9. gr.
II. KAFLI
Stjórn skógræktarmála, áætlanir og samstarf.
3. gr.
Stjórn skógræktarmála.
Ríkið starfrækir stofnun sem nefnist Skógræktin. Hlutverk stofnunarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd laga þessara og daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til. Önnur helstu verkefni Skógræktarinnar eru:
a. að leiðbeina um vernd, endurheimt, ræktun, meðferð og sjálfbæra nýtingu skóga,
b. að vinna að og hvetja til þátttöku í skógrækt,
c. að vinna að þróun skógræktar, m.a. með því að stunda rannsóknir og þróunarstarf,
d. að afla upplýsinga um skóga og skógrækt og miðla þeim,
e. að hafa yfirsýn yfir og eftirlit með áætlunum og framkvæmdum í skógrækt,
f. að hafa umsjón með leyfisveitingum vegna fellingar skóga og varanlegrar skógareyðingar,
g. að hafa umsjón með þjóðskógum.
Ráðherra skipar forstöðumann Skógræktarinnar, skógræktarstjóra, til fimm ára í senn. Hann skal hafa háskólagráðu á málefnasviði stofnunarinnar. Skógræktarstjóri ber ábyrgð á stjórn, rekstri og starfsskipulagi Skógræktarinnar og ræður annað starfsfólk hennar.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um starfsemi Skógræktarinnar.
4. gr.
Landsáætlun í skógrækt.
Við gerð landsáætlunar í skógrækt skal taka mið af markmiðum laga þessara og horft til þess að ná fram hagkvæmri notkun fjármagns og mannafla og samþættingu við aðrar áætlanir ríkis og sveitarfélaga. Nánar tiltekið skal í áætluninni gerð grein fyrir:
a. forsendum fyrir vali á landi til skógræktar með tilliti til náttúruverndar, minjaverndar og landslags,
b. vernd og endurheimt náttúruskóga,
c. ræktun skóga til uppbyggingar skógarauðlindar og umfangi og horfum hvað varðar nýtingu,
d. sjálfbærri nýtingu skóga,
e. áhrifum skógræktar á atvinnuþróun og byggð,
f. aðgengi fólks að skógum til útivistar,
g. skógrækt í samhengi líffræðilegrar fjölbreytni,
h. skógrækt í samhengi loftslagsbreytinga,
i. öflun þekkingar á skógum og skógrækt og miðlun hennar,
j. eftirliti með ástandi og nýtingu skóga,
k. eldvörnum og öryggismálum.
Ráðherra skipar sjö manna verkefnisstjórn sem hefur umsjón með gerð landsáætlunar í skógrækt og skilar tillögu til ráðherra. Verkefnisstjórnin skal skipuð einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fimm án tilnefningar og skulu a.m.k. tveir þeirra hafa fagþekkingu á málefnasviði laga þessara. Skógræktarstjóri skal vera formaður verkefnisstjórnar.
Verkefnisstjórn skal í upphafi taka saman lýsingu á verkefninu þar sem gerð er grein fyrir þeim áherslum sem fyrirhugað er að hafa við gerð landsáætlunar, svo sem um forsendur, viðfangsefni og fyrirhugaða kynningu og samráð við mótun stefnunnar. Lýsing verkefnisstjórnar á gerð landsáætlunar skal kynnt opinberlega og skal almenningi gefinn að lágmarki sex vikna frestur til að koma á framfæri athugasemdum.
Þegar drög að áætluninni liggja fyrir skal verkefnisstjórn kynna þau opinberlega ásamt umhverfismati áætlunar, þegar við á. Jafnframt skal óska sérstaklega eftir umsögnum frá viðeigandi stofnunum, stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga, félagasamtökum og hagsmunaaðilum. Frestur til að skila umsögnum um drögin skal vera að lágmarki sex vikur.
Ráðherra skal samræma landsáætlun í skógrækt og landgræðsluáætlun samkvæmt landgræðslulögum.
Áður en landsáætlun tekur gildi skal hún kynnt þeirri nefnd Alþingis sem fer með málefni skógræktar.
5. gr.
Landshlutaáætlanir.
6. gr.
Ræktunaráætlanir.
Ráðherra getur kveðið nánar á um gerð og efni ræktunaráætlana í reglugerð.
7. gr.
Samstarf um skógrækt.
Auglýsa skal á opinberum vettvangi fyrirhugað samstarf um skógrækt. Í auglýsingu skal koma fram hvaða reglur gilda um meðferð umsókna og til hvaða skilyrða verði litið við ákvörðun um styrk eða annað framlag.
Gera skal skriflega samninga um samstarfsverkefni þar sem kveðið er á um gagnkvæmar skyldur og réttindi aðila. Þinglýsa skal slíkum samningum feli þeir í sér kvaðir á land eða aðrar fasteignir.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um stuðning við skógrækt og form samninga.
III. KAFLI
Skógar landsins.
8. gr.
Skógaskrá.
Skógræktinni er heimil umferð um land, óháð eignarhaldi, til mælinga og úttekta í tengslum við gerð skógaskrár.
9. gr.
Þjóðskógar og önnur svæði í umsjón Skógræktarinnar.
a. vernd skóga og einstakra tegunda,
b. menningarminjar og saga sem tengist skógrækt,
c. aðgengi og útivist almennings,
d. fræðsla,
e. þekkingaröflun og vettvangur rannsókna,
f. sjálfbær nýting skóga.
Ráðherra skal jafnframt í reglugerð, sbr. 1. mgr., m.a. kveða á um umgengni, aðgengi almennings og þjónustu innan þjóðskóga og annarra svæða í umsjón Skógræktarinnar. Í reglugerðinni skal einnig færa fram rökstuðning fyrir ákvörðun ráðherra skv. 1. mgr. um hvern þjóðskóg fyrir sig. Landfræðileg afmörkun skal sett fram í viðauka við reglugerðina.
Skógræktin skal halda skrá yfir þá skóga og þau landsvæði sem flokkast sem þjóðskógar og er hún hluti af skógaskrá. Unnin skal nýtingar- og verndaráætlun fyrir þjóðskóga.
Skógræktin getur haft í sinni umsjón önnur svæði sem ekki teljast þjóðskógar.
Skógræktinni er heimilt að fela einstaklingum, sveitarfélögum eða lögaðilum umsjón og rekstur þjóðskóga og annarra svæða í umsjón stofnunarinnar, eða afmarkaðra þátta innan þeirra, með samningi sem ráðherra staðfestir. Landeigandi getur óskað eftir því við Skógræktina að lönd og skógar í hans eigu fái stöðu þjóðskóga, sbr. 1. mgr., og skal gera samning um slík not sem ráðherra staðfestir.
IV. KAFLI
Skógrækt á lögbýlum.
10. gr.
Skógrækt á lögbýlum og skjólbeltarækt.
Skógræktin skal auglýsa eftir þátttakendum í skógrækt á lögbýlum eftir því sem fjárveitingar heimila. Skógræktinni er heimilt að forgangsraða og hafna umsóknum um þátttöku í skógrækt á lögbýlum í samræmi við markmið laga þessara og landsáætlun í skógrækt, sbr. 4. gr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um málsmeðferð og forgangsröðun umsókna um þátttöku í skógrækt.
11. gr.
Samningar.
Samningar skv. 1. mgr. skulu að lágmarki vera til 40 ára og vera á formi sem ráðherra hefur staðfest.
Ef annar en landeigandi eða rétthafi lands undirritar samning um skógræktarverkefni skal landeigandi samþykkja hann með áritun sinni. Samningnum skal þinglýst sem kvöð á þá fasteign sem hann tekur til.
Á grundvelli samnings um skógrækt er heimilt að greiða allt að 97% af samþykktum kostnaði við skógrækt.
12. gr.
Uppsögn samnings og endurgreiðsla framlaga.
Óski Skógræktin eftir að hætta þátttöku í skógræktarverkefni skal skógarbónda og landeiganda tilkynnt um það með sannanlegum hætti. Uppsögn samkvæmt þessari málsgrein skal tilkynnt fyrir 1. október og tekur gildi frá og með næstu áramótum. Ekki skal endurgreiða samningsbundin framlög vegna uppsagnar samkvæmt þessari málsgrein.
13. gr.
Um samningsbrot.
Áður en Skógræktin tekur ákvörðun skv. 1. mgr. skal skógarbónda eða landeiganda, sem er aðili að samningi um skógræktarverkefni, með sannanlegum hætti gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ákvörðun Skógræktarinnar um riftun samnings og endurheimt framlaga skv. 1. mgr. er kæranleg til ráðherra sem kveður upp endanlegan úrskurð á stjórnsýslustigi. Kæra frestar réttaráhrifum ákvörðunar.
14. gr.
Samráð.
15. gr.
Reglugerð.
V. KAFLI
Vernd, endurheimt, umhirða og nýting skóga.
16. gr.
Vernd og endurheimt náttúruskóga.
17. gr.
Sjálfbærni nýtingar.
Ráðherra setur í reglugerð viðmið um sjálfbæra skógrækt, þ.m.t. um grisjun.
18. gr.
Fellingarleyfi.
Skógræktin hefur eftirlit með endurnýjun skóga skv. 1. mgr. Hefjist aðgerðir til endurnýjunar skóga ekki í samræmi við skilyrði fellingarleyfis er Skógræktinni heimilt að beita þvingunarúrræðum, sbr. 22. gr.
19. gr.
Varanleg eyðing skóga.
Sé varanleg eyðing skógar óhjákvæmileg skal tilkynna Skipulagsstofnun um fyrirhugaða framkvæmd í samræmi við ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun leitar um það efni umsagnar Skógræktarinnar.
Komi til varanlegrar eyðingar skógar skal framkvæmdaraðili ráðast í mótvægisaðgerðir til að draga úr eða koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið af eyðingu skógarins, með hliðsjón af markmiðum laga þessara, svo sem með endurheimt náttúruskógar eða ræktun nýrra skóga, og skal framkvæmdaraðili leita álits Skógræktarinnar á útfærslu mótvægisaðgerða. Mótvægisaðgerðir skulu hefjast eigi síðar en tveimur árum eftir eyðingu.
Sveitarfélag skal leita álits Skógræktarinnar á framkvæmd sem felur í sér varanlega eyðingu skógar áður en ákvörðun er tekin um útgáfu framkvæmdaleyfis. Ákveði sveitarfélag að heimila framkvæmd sem Skógræktin leggst gegn í áliti sínu skal rökstyðja þá ákvörðun sérstaklega.
20. gr.
Varsla skóga.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
21. gr.
Gjaldtaka.
22. gr.
Þvingunarúrræði.
23. gr.
Stjórnvaldssektir.
24. gr.
Gildistaka og brottfall eldri laga.
25. gr.
Breyting á öðrum lögum.
Áður en landgræðsluáætlun tekur gildi skal hún kynnt þeirri nefnd Alþingis sem fer með málefni landgræðslumála.