Ferill 953. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
2. uppprentun.

Þingskjal 1881  —  953. mál.
Leiðrétting.

Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022.

Frá 4. minni hluta fjárlaganefndar.


Veikleiki í fjármálastjórn.
    Það kemur skýrlega fram í umsögn fjármálaráðs um breytingu á fjármálastefnu að vandi sá sem við stöndum frammi fyrir sé til kominn að ákveðnu leyti vegna veikleika í fjármálastjórn, m.a. vegna þess að fjármálastefna hafi frá upphafi verið óraunhæf. Hún hafi ekki verið nægilega sveigjanleg til að takast á við hagsveiflur. Þegar stjórnvöld leggja fram fjármálastefnu til fimm ára ber þeim að hafa slíka stefnu þannig úr garði gerða að hún virki þrátt fyrir sveiflur í hagkerfinu. Því á stefnan að gera ráð fyrir því að áföll geti orðið í hagkerfinu og jafnframt að veita svigrúm svo stjórnvöld geti tekist á við slík áföll. Að þessu var ekki hugað við gerð gildandi fjármálastefnu og því stöndum við frammi fyrir endurskoðun hennar. Sá samdráttur sem nú blasir við gefur einn og sér ekki tilefni til endurskoðunar fjármálastefnu. Lögin tala um efnahagsáföll sem grundvöll endurskoðunar. Hér er þó ekki um að ræða það mikla hagsveiflu að leggja megi það að jöfnu við efnahagsáfall. Nú er uppi sú staða að ágallar fyrri fjármálastefnu ásamt þeirri niðursveiflu sem hagkerfið er í leiða saman til þess að nauðsynlegt er að endurskoða fjármálastefnu. Þetta er að mati 4. minni hluta áfellisdómur á fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar.

Kröfur laga um opinber fjármál gagnvart endurskoðun fjármálastefnu.
    Endurskoðuð fjármálastefna skal ná til a.m.k. fimm ára skv. 1. mgr. 10. gr. laga um opinber fjármál. Þó er ekki gert ráð fyrir því í tillögu ríkisstjórnar að endurskoðuð fjármálastefna skuli gilda lengur en næstu fjögur árin. Því er tillaga um breytingu á fjármálastefnu á skjön við skýr fyrirmæli 10. gr. laga um opinber fjármál. Ekki dugar að fjalla um viðmið ársins 2018 við endurskoðun stefnunnar árið 2019. Að mati 4. minni hluta þarf endurskoðuð stefna að gilda árin 2019–2023 ef fylgja á fyrirmælum 10. gr. laga um opinber fjármál.

Bjartsýnustu spár verða grundvöllur fjármálastefnu.
    Ljóst er að fjármálastefna ríkisstjórnarinnar byggðist ekki á raunhæfum forsendum. Stefnan var sett fram í þeim tilgangi að draga fram sem bjartasta mynd af ríkisfjármálum sem síðan hefur brugðist. Nú er sett fram tillaga að breytingu og ekki verður séð að hún veiti lítið meira svigrúm en upphafleg fjármálastefna. Í stað þess að gera ráð fyrir frekari áföllum sem kynnu að eiga sér stað er enn á ný brugðist við með því að draga fram eins bjarta mynd og hægt er. Tillaga þessi um breytingu á fjármálastefnu byggist m.a. á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem birtist í byrjun maí. Sú hagspá sýnir 0,2% samdrátt á árinu. Nú þegar hefur Seðlabanki Íslands uppfært hagspá sína en hún sýnir 0,4% samdrátt. Þá hefur greiningardeild Íslandsbanka spáð því að samdráttur verði 1,8% í ár. Því byggist tillagan engu síður en áður á bjartsýnustu spánni þrátt fyrir afdrif fyrri fjármálastefnu. Það má draga þann lærdóm af þeirri fjármálastefnu sem nú er til endurskoðunar að varhugavert sé að byggja aðeins á einni hagspá, hvað þá þeirri sem sýnir minnstan samdrátt.

Óvissusvigrúm aukið en betur má ef duga skal.
    Þó það sé af hinu góða að veita ákveðið svigrúm vegna óvissu þá er óvissusvigrúmið ekki meira en svo að niðursveifla sambærileg þeirri sem þegar hefur gengið yfir myndi ganga langt með að tæma það svigrúm. Þá hefur það verið gagnrýnt af Viðskiptaráði að ekki sé rökstutt hvers vegna óvissusvigrúm fjármálastefnu miðast við 0,4% af vergri landsframleiðslu. Jafnframt er bent á að ekki komi fram hverjir megi ganga á það svigrúm og hvenær. Staðalfrávik hagvaxtar á árunum 1981–2018 var um 3,5%. Þetta er talsvert meira en þekkist í stærri hagkerfum. Vegna smæðar hagkerfisins þarf lítið til að koma svo mikið breytist. Því ber að gæta þess við gerð fjármálastefnu að hún sé þannig úr garði gerð að hægt sé að takast á við ófyrirséðar hagsveiflur. Meiri hlutinn hefur lagt til að óvissusvigrúmið verði aukið í 0,8%. 4. minni hluti telur að slík breyting sé skynsamleg en telur engu síður að endurskoðuð fjármálastefna yrði traustari ef svigrúmið yrði aukið enn frekar.

Byggjum upp í stað þess að skera niður.
    Á samdráttartímum er hlutverk ríkisins að stíga inn í tómarúmið með því að auka fjárfestingu sína inn í hagkerfið. Allt frá tímum síðari heimsstyrjaldar hafa vestræn ríki byggt á þeirri hagfræði (keynesískri hagfræði). Því á ekki að draga saman seglin, líkt og boðað er í fjármálastefnunni, heldur á ríkisstjórnin að nýta tækifærið og fjárfesta í innviðum. Þannig má nýta 110 milljarða kr. arðgreiðslur úr Landsvirkjun næstu fimm árin í mótvægisaðgerðir í stað þess að safna þeim í erlendan fjárfestingarsjóð (Þjóðarsjóð). Slík fjárfesting myndi auka starfsframboð og skilja eftir sig áþreifanleg verðmæti. Breytt fjármálastefna boðar hins vegar lækkun á útgjöldum ríkissjóðs og áframhaldandi niðurgreiðslu skulda. Fjármálastefnan hefur þegar boðað rúmlega 10 milljarða kr. samdrátt fjárveitinga til velferðarmála. Lífeyrisþegar eru sá þjóðfélagshópur sem minnst hefur á milli handanna og því mótmælir 4. minni hluti að fjárframlög til þeirra verði skert frá því sem segir í gildandi fjármálastefnu. Þá eru heilbrigðismál ekki í viðunandi ástandi og heilbrigðiskerfið glímir við ýmis vandamál, á borð við tækjaskort, manneklu og fráflæðisvanda Landspítalans. Þó að fjármálastefna fjalli ekki um nánar tilgreind útgjöld eftir málefnasviðum þá byggist fjármálaáætlun á viðmiðum fjármálastefnu um útgjöld og tekjur ríkissjóðs. Því er mikilvægt að fjármálastefna boði ekki svo umtalsverðar skerðingar á útgjöldum ríkissjóðs að það leiði til niðurskurðar í velferðarmálum. Ríkissjóður hefur tækifæri til þess að koma í veg fyrir frekari niðurskurð með aukinni fjármögnun og ætti frekar að grípa til þess heldur en að skera niður í rekstri á tímum niðursveiflu.

Lokaorð.
    Fjórði minni hluti telur að fyrirhuguð breyting á fjármálastefnu muni leiða til óboðlegs niðurskurðar, m.a. í velferðarmálum. Sá niðurskurður sem tillaga um breytingu á fjármálastefnu boðar mun auka samdráttaráhrif í hagkerfinu. Frekar á að breyta fjármálastefnu svo ráðast megi í frekari framkvæmdir af hálfu hins opinbera sem komi til móts við samdrátt í hagkerfinu. Því er lagt til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 19. júní 2019.

Inga Sæland.