Ferill 968. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2060  —  968. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðjóni S. Brjánssyni um framkvæmd ákvæða um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.


     1.      Hefur framkvæmd ákvæða um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri verið óbreytt frá því að lög nr. 13/2016 um breytingar á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, tóku gildi sem fela í sér rétt sjúklinga sem sjúkratryggðir eru á Íslandi til að sækja sér heilbrigðisþjónustu yfir landamæri? Ef ekki, hvaða þáttum hefur verið breytt, hvenær voru breytingar gerðar og hverjar voru röksemdirnar fyrir þeim?
    Framkvæmd ákvæðis 23. gr. a laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sbr. lög nr. 13/2016 og reglugerð nr. 484/2016, hefur verið óbreytt frá gildistöku 1. júní 2016.

     2.      Er framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/24/ESB frá 9. mars 2011 og tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar 2012/52/ESB frá 20. desember 2012 framfylgt með sama hætti innan annarra EES-ríkja annars vegar og hins vegar almennt innan aðildarríkja ESB?
    Framkvæmdin er í grundvallaratriðum sú sama. Ákveðin ríki hafa ákveðið að einstaklingar geti sótt heilbrigðisþjónustu til einkaaðila innan viðkomandi lands (tryggingalands), þ.e. að þjónustan þurfi ekki að vera yfir landamæri. Einnig greiða ákveðin ríki fulla upphæð reikninga, þegar sjúkratryggðir einstaklingar sækja sér þjónustu til annarra aðildarríkja EES, án tillits til hver meðferðarkostnaður er í viðkomandi landi (tryggingalandi). Fram hefur komið á sameiginlegum fundum Norðurlandanna að sú framkvæmd sé viðhöfð vegna gríðarlegs umfangs gjaldskráa í þeim löndum, sem oft á tíðum eru jafnvel mismunandi eftir umdæmum (regionum).