Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 803, 150. löggjafarþing 371. mál: þinglýsingalög og skráning og mat fasteigna (aflýsingar).
Lög nr. 161 23. desember 2019.
I. KAFLI
Breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, með síðari breytingum.
II. KAFLI
Breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Í þeim tilvikum þegar kröfuhafi er ríkissjóður, opinber stofnun, banki, sparisjóður, lífeyrissjóður, tryggingafélag eða verðbréfasjóður ber kröfuhafa ekki, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 24. gr., að greiða gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók ef fyrirspurnin er nauðsynleg og í beinum tengslum við leiðréttingu á skráningu kröfuhafa og fyrir liggur þjónustusamningur við Þjóðskrá Íslands.
Þingskjal 803, 150. löggjafarþing 371. mál: þinglýsingalög og skráning og mat fasteigna (aflýsingar).
Lög nr. 161 23. desember 2019.
Lög um breytingu á þinglýsingalögum og lögum um skráningu og mat fasteigna (aflýsingar).
1. gr.
Á eftir orðinu „þinglýsinga“ tvívegis í 5. mgr. 5. gr. laganna kemur: og aflýsinga.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Veðskuldabréf og tryggingarbréf skulu ávallt árituð um veðbreytinguna.
- Í stað orðsins „handhafabréf“ í 2. málsl. kemur: þinglýsingu á skjali.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist: eða aflýsing fer fram með rafrænni færslu.
- Orðin „sbr. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um aukatekjur ríkissjóðs“ í 2. mgr. falla brott.
4. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Í þeim tilvikum þegar kröfuhafi er ríkissjóður, opinber stofnun, banki, sparisjóður, lífeyrissjóður, tryggingafélag eða verðbréfasjóður ber kröfuhafa ekki, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 24. gr., að greiða gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók ef fyrirspurnin er nauðsynleg og í beinum tengslum við leiðréttingu á skráningu kröfuhafa og fyrir liggur þjónustusamningur við Þjóðskrá Íslands.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. desember 2019.