Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 980  —  410. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana þess.


    Velferðarráðuneytið var starfrækt til 31. desember 2018 en þá var því skipt upp í félagsmálaráðuneyti og heilbrigðismálaráðuneyti. Svar ráðherra miðast við undirstofnanir þess nú og það sem snýr beint að aðalskrifstofu hins gamla velferðarráðuneytis mun því vera eins og svar heilbrigðisráðherra.

     1.      Hversu oft á undanförnum sjö árum hefur ráðuneytið eða stofnanir þess greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna vegna annars vegar dómsmála, sátta fyrir dómstólum og sáttamála hjá ríkislögmanni og hins vegar annars konar sáttar eða samkomulags?
     2.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir undanfarin sjö ár í ráðuneytinu annars vegar og stofnunum ráðuneytisins hins vegar? Hver var árleg heildarfjárhæð í hverjum flokki uppgjörs fyrir sig?
    Ráðuneytið sendi fyrirspurnina til undirstofnanna sinna, 13 talsins, og bárust svör frá öllum. Heildarfjárhæð er reiknuð með launatengdum gjöldum.

Fjöldi ólögmætra uppsagna Fjöldi starfslokasamninga Heildarfjárhæð starfslokasamninga
Ráðuneyti 0 1 16,4 millj. kr.
Stofnanir 2 14 84,7 millj. kr.

     3.      Hver er ábyrgð forstöðumanna sem segja starfsmanni upp á ólögmætan hátt á því tjóni sem þeir valda ríkissjóði og hvernig hefur verið farið með þá ábyrgð?
Samkvæmt lögum bera forstöðumenn ríkisstofnana ábyrgð á starfsmannamálum sinnar stofnunar. Forstöðumenn bera jafnframt ábyrgð á fjárreiðum stofnunar og að rekstur sé innan heimilda fjárlaga. Forstöðumenn sæta ábyrgð eins og kveðið er á um í 2. mgr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, en þar segir: „Forstöðumaður ber ábyrgð á að stofnun, sem hann stýrir, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf skv. 1. mgr. Forstöðumaður ber og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðunandi getur ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.“

     4.      Hversu áreiðanlegar telur ráðherra að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu? Telur ráðherra hugsanlegt að gerðir séu starfslokasamningar sem fela í sér greiðslur úr ríkissjóði umfram lagaskyldur og kjarasamninga án vitneskju ráðuneytisins?
    
Ráðherra hefur enga ástæðu til að ætla annað en að forstöðumenn veiti réttar upplýsingar um þessi mál sem og önnur mál.
    Hvað varðar síðari hluta spurningarinnar er rétt að benda á að heimild 2. mgr. 39. gr. c laga nr. 70/1996 veitir forstöðumanni ákveðið svigrúm við mat á því hvort gerður skuli starfslokasamningur. Slíkt er hins vegar almennt ekki skylt lögum samkvæmt. Þá er það skilningur ráðuneytisins að einungis sé um starfslokasamning að ræða þegar greiðslur fara fram úr lögbundnum eða kjarasamningsbundnum réttindum starfsmanns. Það á því við um þau tilvik sem getið hefur verið um hér að framan. Ráðuneytið er almennt ekki upplýst um einstaka starfslok innan undirstofnana þess hvort sem gerðir eru um þau starfslokasamningar eða ekki enda er það á ábyrgð forstöðumanns. Hins vegar telur ráðuneytið að séu gerðir starfslokasamningar sem séu mjög óvenjulegir að efni kunni að vera rétt að upplýsa ráðuneytið um það.

     5.      Hversu oft hafa starfsmenn ráðuneytisins eða stofnana þess haft forgang að sambærilegum störfum hjá ríkinu eftir að starf þeirra hefur verið lagt niður eða þeim hefur verið sagt upp og hvernig tryggir ráðuneytið að starfsmenn njóti þeirra réttinda?
    Starfsmönnum ríkisins er ekki tryggður forgangur til annarra starfa hjá ríkinu við starfslok, enda er það meginregla að auglýsa skuli öll laus störf, sbr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Dæmi eru um að Alþingi hafi samþykkt lög um sameiningar stofnana þar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði að starfsmönnum skuli boðið starf hjá nýrri stofnun. Á þeim forsendum var t.d. starfsmönnum úrskurðar- og kærunefnda sem lagðar voru niður við stofnun úrskurðarnefndar velferðarmála boðið starf þar og eins þegar velferðarráðuneytið var stofnað á sínum tíma.