Ferill 705. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1213  —  705. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn.


Frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 frá 13. desember 2019 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     1.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/589 frá 13. apríl 2016 um vinnumiðlunarnet Evrópu (EURES-netið), aðgang launafólks að þjónustu vegna hreyfanleika og frekari samþættingu vinnumarkaða, og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) nr. 1296/2013.
     2.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/716 frá 11. maí 2016 um niðurfellingu framkvæmdarákvörðunar 2012/733/ESB um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 492/2011 að því er varðar afgreiðslu atvinnutilboða og atvinnuumsókna og endurreisn EURES-netsins.
     3.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1255 frá 11. júlí 2017 um sniðmát til að lýsa landsbundnum kerfum og verklagsreglum við að taka stofnanir eða fyrirtæki inn sem aðila og samstarfsaðila EURES-netsins.
     4.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1256 frá 11. júlí 2017 um sniðmát og verklagsreglur vegna skipta á upplýsingum um landsbundnar vinnuáætlanir EURES-netsins á vettvangi sambandsins.
     5.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1257 frá 11. júlí 2017 um nauðsynlega tæknistaðla og sniðmát vegna samræmds heildarkerfis sem gerir kleift að para saman lausar stöður við atvinnuumsóknir og ferilskrár í EURES-vefgáttinni.
     6.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/170 frá 2. febrúar 2018 um samræmdar ítarlegar forskriftir fyrir gagnasöfnun og -greiningu til að fylgjast með og meta virkni EURES-netsins.
     7.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1020 frá 18. júlí 2018 um samþykkt og uppfærslu á lista evrópska flokkunarkerfisins yfir færni, hæfni og starfsgreinar vegna sjálfvirkrar pörunar í gegnum sameiginlega EURES-upplýsingatækniverkvanginn.
     8.      Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1021 frá 18. júlí 2018 um samþykkt nauðsynlegra tæknistaðla og sniða til að starfrækja sjálfvirka pörun í gegnum sameiginlega upplýsingatækniverkvanginn með aðstoð evrópska flokkunarkerfisins og samvirkni milli landsbundinna kerfa og evrópska flokkunarkerfisins.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 (sbr. fskj. I) en með henni eru felldar inn í samninginn þær átta reglugerðir sem tilgreindar eru í 1.–8. tölul. þingsályktunartillögu þessarar (sbr. fskj. II).
    Þar sem innleiðing fyrrnefndra gerða krefst breytinga á lögum var ákvörðun nr. 302/2019 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðanna sem hér um ræðir. Þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast.

2. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, „Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins“, kemur fram að frá árinu 1994 til ársloka 2016 hafi Ísland tekið upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Gerðir sem felldar eru inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019.
    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/589 er ný heildarreglugerð um EURES sem felur einnig í sér breytingar á reglugerðum (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) nr. 1296/2013. Reglugerðin fjallar um vinnumiðlunarnet Evrópu (EURES-netið), aðgang launafólks að þjónustu vegna hreyfanleika og frekari samþættingu vinnumarkaða. Reglugerðin tekur til EURES-vinnumiðlunar sem rekin er á EES-svæðinu og gagnagrunn með upplýsingum um laus störf og atvinnuleitendur. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/589 er ein þeirra gerða sem felld var inn í EES-samninginn með ákvörðun 302/2019 og kallar á lagabreytingu. Framkvæmdaákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar eru afleiddar gerðir af fyrrnefndri reglugerð og kalla ekki á neinar lagabreytingar.
    EURES (European Employment Services) er samstarfsverkefni um opinbera vinnumiðlun á EES-svæðinu, rekið af framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Markmiðið er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast á milli EES-landa. Starfsfólk EURES kemur á sambandi milli atvinnurekenda og atvinnuleitenda. Ísland á aðild að verkefninu í gegnum EES-samninginn. Um er að ræða nýja reglugerð um EURES-vinnumiðlun og gagnagrunn með lausum störfum og atvinnuleitendum, sem rekin er á ESB-svæðinu.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Reglugerðin kallar á breytingar á lögum nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, en á grundvelli þeirra laga var reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 492/2011 frá 5. apríl 2011 um frjálsa för launafólks innan sambandsins innleidd og birt sem fylgiskjal. Því mun þurfa að uppfæra það fylgiskjal með þeim breytingum sem reglugerðin mælir fyrir um. Að öðru leyti mun lagastoð reglugerðirnar falla undir lög nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, og er yfirstandandi vinna í félagsmálaráðuneytinu við að skoða hvort ákvæði reglugerðarinnar kalli á efnislegar breytingar á þeim lögum.

5. Samráð við Alþingi.
    Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en taka ekki gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Reglugerð (ESB) nr. 2016/589 var send utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfi utanríkismálanefndar, dags. 8. maí 2018, kemur fram að gerðin hafi fengið efnislega umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd sem gerir ekki athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.


Fylgiskjal II.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 frá 13. desember 2019 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1213-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/589 frá 13. apríl 2016 um vinnumiðlunarnet Evrópu (EURES-netið), aðgang launafólks að þjónustu vegna hreyfanleika og frekari samþættingu vinnumarkaða, og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) nr. 1296/2013.


www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1213-f_II.pdf