Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 313  —  304. mál.




Skýrsla


forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2023.


    Skýrsla þessi er lögð fram í samræmi við fyrirmæli 8. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991. Markmið hennar er að veita Alþingi yfirsýn yfir eftirfylgni framkvæmdarvaldsins með ályktunum þingsins. Til umfjöllunar er framkvæmd þeirra ályktana Alþingis frá árinu 2023 sem kalla á viðbrögð ráðherra eða ríkisstjórnar og meðferð málefna sem þingið hefur vísað til ríkisstjórnar eða einstakra ráðherra á því ári. Þá er hér einnig að finna yfirlit um sömu atriði frá árunum 2020–2022. Undanskilin eru þau málefni þar sem lög kveða á um að haga skuli skýrslugjöf til þingsins á annan hátt.
    Umræddar þingsályktanir á árunum 2020–2023 voru samtals 97, þar af 37 vegna staðfestinga ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar. Slíkar ályktanir eru reglubundinn þáttur í þinglegri meðferð EES-mála og fela í sér afléttingu á stjórnskipulegum fyrirvara við ákvörðun sem kallar á lagabreytingar á Íslandi. Þær hafa því nokkra sérstöðu miðað við aðrar ályktanir. Þá vísuðu þingnefndir 13 málum til ríkisstjórnarinnar. Í skýrslu þessari er þannig fjallað um samtals 110 þingmál, sem sum hver varða fleiri en eitt ráðuneyti.
    Fjöldi þingsályktana á hverju ári sem kalla á viðbrögð ráðherra eða ríkisstjórnar, auk málefna sem þingið vísar þangað í nefndaráliti, sveiflast talsvert eftir árum. Á árinu 2023 eru þetta samtals 19 þingmál, allt þingsályktanir. Á árinu 2022 voru þingmálin 29 talsins, 26 þingsályktanir en 3 nefndarálit. Á árinu 2021 voru þingmálin 28 talsins, 20 þingsályktanir en 8 nefndarálit. Að lokum voru þingmálin 34 árið 2020, 32 þingsályktanir en 2 nefndarálit.

Staða framkvæmdar

Framkvæmd lokið

Framkvæmd hafin

Framkvæmd ekki hafin

Samtals

2023

3

16

0

19

2022

18

11

0

29

2021

13

15

0

28

2020

25

7

2

34

Samtals

59

49

2

110

     Tafla 1. Yfirlit fjölda mála og stöðu framkvæmdar 2020–2023.

    Jafnframt er nokkur munur á fjölda þingmála eftir ráðuneytum. Utanríkisráðuneytið hefur á sinni könnu langflest málin, 52 talsins, eða um helming þeirra. Það skýrist af því að stór hluti málanna eru staðfestingar á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar sem gerðar eru í formi þingsályktana. Öll ráðuneytin koma í einhverjum mæli að framkvæmd þingsályktana þótt ekki sé víst að þau séu með framkvæmd á hendi á hverju ári. Hér á eftir verður gerð grein fyrir tölfræði um þessi atriði, sem endurspeglar flokkun bæði eftir árum og eftir ráðuneytum, sbr. töflur 2–5.
    Þingmálin sem hér eru til umfjöllunar eru flokkuð eftir stöðu hvers verkefnis. Greint er á milli verkefna þar sem framkvæmd er lokið, verkefna þar sem framkvæmd er hafin og svo verkefna þar sem framkvæmd er ekki hafin. Þetta er skýrt í tilfellum þeirra verkefna sem annað hvort er búið að ljúka framkvæmd við eða framkvæmd ekki hafin. Í öðrum tilfellum, þar sem framkvæmd er hafin en ekki lokið, geta verkefnin verið mismunandi langt komin. Aftar í skýrslunni er gerð nánari grein fyrir þessu.

2023 – staða framkvæmdar eftir ráðuneytum

Framkvæmd lokið

Framkvæmd hafin

Framkvæmd ekki hafin

Samtals

FOR

0

0

0

0

DMR

0

0

0

0

FRN

0

3

0

3

FJR

1

0

0

1

HVIN

0

0

0

0

HRN

0

1

0

1

IRN

0

1

0

1

MAR

0

2

0

2

MVF

0

4

0

4

MRN

0

1

0

1

URN

0

0

0

0

UTN

2

4

0

6

Samtals

3

16

0

19

     Tafla 2. Yfirlit yfir stöðu framkvæmdar eftir ráðuneytum fyrir árið 2023.

2022 – staða framkvæmdar eftir ráðuneytum

Framkvæmd lokið

Framkvæmd hafin

Framkvæmd ekki hafin

Samtals

FOR

0

3

0

3

DMR

0

0

0

0

FRN

0

1

0

1

FJR

2

0

0

2

HVIN

0

1

0

1

HRN

1

1

0

2

IRN

0

1

0

1

MAR

0

0

0

0

MVF

0

0

0

0

MRN

0

0

0

0

URN

0

1

0

1

UTN

15

3

0

18

Samtals

18

11

0

29

     Tafla 3. Yfirlit yfir stöðu framkvæmdar eftir ráðuneytum fyrir árið 2022.

2021 – staða framkvæmdar eftir ráðuneytum

Framkvæmd lokið

Framkvæmd hafin

Framkvæmd ekki hafin

Samtals

FOR

0

0

0

0

DMR

0

0

0

0

FRN

0

1

0

1

FJR

3

2

0

5

HVIN

0

1

0

1

HRN

0

1

0

1

IRN

1

1

0

2

MAR

0

0

0

0

MVF

1

0

0

1

MRN

0

4

0

4

URN

1

3

0

4

UTN

7

2

0

9

Samtals

13

15

0

28

     Tafla 4. Yfirlit yfir stöðu framkvæmdar eftir ráðuneytum fyrir árið 2021.

2020 – staða framkvæmdar eftir ráðuneytum

Framkvæmd lokið

Framkvæmd hafin

Framkvæmd ekki hafin

Samtals

FOR

0

0

0

0

DMR

0

1

0

1

FRN

0

1

0

1

FJR

4

0

0

4

HVIN

1

0

0

1

HRN

0

1

0

1

IRN

1

2

0

3

MAR

0

0

0

0

MVF

1

0

0

1

MRN

0

0

0

0

URN

0

2

1

3

UTN

18

0

1

19

Samtals

25

7

2

34

     Tafla 5. Yfirlit yfir stöðu framkvæmdar eftir ráðuneytum fyrir árið 2020.

    Ef litið er til utanríkisráðuneytisins sérstaklega á árunum fjórum sem eru til skoðunar, 2020–2023, sést að að jafnaði er aðeins um rúmlega fjórðungur ályktananna af öðrum toga en þingsályktanir til staðfestingar á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, eða 15 ályktanir af 52.

Þingsályktanir til staðfestingar vegna EES

Aðrar þingsályktanir

Samtals

2023

3

3

6

2022

12

6

18

2021

5

4

9

2020

17

2

19

Samtals

37

15

52

     Tafla 6. Hlutfall staðfestingamála hjá utanríkisráðuneytinu 2020–2023.

    Hlutfall þessara 37 þingsályktana á árunum 2020–2023 til staðfestingar á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, af samtals 97 þingsályktunum þessara ára, er rúmlega þriðjungur allra mála, eða 38%.
    Að síðustu er rétt að gera grein fyrir stöðu, fjölda og framgangi mála í öllum ráðuneytum á umræddu árabili. Framgangur mála er almennt góður en af þeim 110 málum sem hér eru til umfjöllunar er framkvæmd þegar lokið í 59 málum, eða í um 54% mála. Í um 44% mála er framkvæmd hafin en aðeins í tæplega 2% mála ekki hafin. Ef tekin eru saman þau mál þar sem framkvæmd er ýmist lokið að fullu eða komin áleiðis þá eru það liðlega 98% allra mála.
    Nánari grein er hér á eftir gerð fyrir framgangi einstakra mála eftir árum annars vegar og ráðuneytum hins vegar. Forsætisráðuneytið aflaði upplýsinga um framangreint frá öllum ráðuneytum í október 2024 og svör þeirra fara hér á eftir.


Framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2023.


Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.

Þingsályktun 10/153 um aukið aðgengi að hjálpartækjum fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
23. mars 2023, þskj. 1382 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með þingsályktuninni ályktaði Alþingi að ríkistjórninni yrði falið að auka aðgengi að hjálpartækjum fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu með úthlutun nýrra hjálpartækja. Í því skyni var ákveðið að veita 70 millj.kr. til Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu á árunum 2024 og 2025 til kaupa á hjálpartækjum í samræmi við lög um stofnunina og reglugerð um úthlutun hjálpartækja. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fékk úthlutað 35 milljónum af þessari aukafjárveitingu fyrir árið 2024.
    Tilefni þingsályktunar var ör þróun tæknilausna fyrir blinda og sjónskerta og þörf á aukinni fjárveitingu til kaupa á uppfærðum sjónhjálpartækjum. Umrædd hjálpartæki eru dýr en gjörbreyta aðstæðum blindra og sjónskertra og auka lífsgæði þessa hóps til muna. Aukið framboð hjálpartækja fer saman við aðgerð C4 í landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem samþykkt var á Alþingi í mars sl.
    Fjárveitingin hefur gert stofnuninni mögulegt að kaupa og úthluta mikilvægum hjálpartækjum á árinu 2024, þ.m.t. höfuðbornum stækkunartækjum, nýrri tegund borð-stækkunartækja og punktaletursskjáa, umferlistækja og skanna með íslenskum talgervli. Mikil ánægja er meðal notenda með öll framangreind hjálpartæki sem hafa í flestum tilvikum aukið lífsgæði framangreinds hóps til muna.


Þingsályktun 13/153 um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027.
10. maí 2023, þskj. 1761 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin
    Þingsályktunartillaga um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027 var lögð fram af félags- og vinnumarkaðsráðherra og byggist á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og viljayfirlýsingu félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. Þverfaglegt samstarf félags- og heilbrigðisþjónustu er grundvallaratriði til að ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hvoru sviði fyrir sig og tryggja þannig betri þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp, m.a. með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni. Aðgerðaáætlunin innifelur alls 19 aðgerðir sem skipt er í fimm þætti, hverjum með sínum undirverkefnum. Þættirnir eru: Samþætting, virkni, upplýsing, þróun og heimili. Vinna er hafin við 13 aðgerðir, og þremur er lokið. Verkefnastjórn, skipuð af félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra, hefur umsjón með framkvæmd og innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar.

Þingsályktun 16/153 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2022.
23. maí 2023, þskj. 1841 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Utanríkisráðuneytið hefur umsýslu með framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins með því að safna upplýsingum um gang mála hjá fagráðuneytum sem að málinu koma og upplýsa Vestnorræna ráðið um hvort og hvað hefur verið gert vegna þeirra. Í þessu tilviki er um að ræða framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins um ungt fólk á Vestur-Norðurlöndum, um útlistun og samanburð á áætlunum og fyrirkomulagi vestnorrænu landanna í náttúrutengdri ferðaþjónustu og aðgengi að náttúru og um vestnorrænt samstarf á sviði jafnréttis. Áfram verður unnið að málunum.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.


Þingsályktun 23/153 um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028.
9. júní 2023, 153. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    
Þingsályktunin byggist á 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem kveður á um að ráðherra skuli ár hvert leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta.
    Í fjárlögum og fjármálaáætlun er að finna yfirlit yfir meðferð og framkvæmd ályktunarinnar, sbr. einnig athugasemdir sem umræddum skjölum fylgja.


Heilbrigðisráðuneyti.


Þingsályktun 19/153 um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027.
31. maí 2023, þskj. 1912 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027 var samþykkt á Alþingi þann 31. maí 2023. Með ályktuninni ályktaði Alþingi að hrinda í framkvæmd 27 aðgerðum í geðheilbrigðismálum, í samræmi við þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, nr. 26/152, og að gert yrði ráð fyrir framkvæmdinni við gerð fjárlaga hvers árs.
    Þingsályktunartillagan um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum byggist á vinnu samráðshóps helstu hagaðila í geðheilbrigðismálum á landsvísu sem heilbrigðisráðherra skipaði í febrúar 2022. Samráðshópurinn vann drög að aðgerðaáætluninni sem birt voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og í framhaldi af því lögð fyrir Alþingi sem þingsályktunartillaga.
    Aðgerðum áætlunarinnar er ýmist lokið eða hefur verið hrundið af stað og teljast til lengri tíma verkefna.


Innviðaráðuneyti.


Þingsályktun 2/154 um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
5. desember 2023, þskj. 686 á 154. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára var samþykkt á Alþingi þann 5. desember 2023 og hófst vinna við framkvæmd áætlunarinnar strax á nýju ári. Stjórnartillagan var sett fram eftir víðtækt samráð við íbúa, sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila um allt land og er áhersla einkum lögð á tvö meginmarkmið. Fyrra markmiðið er að sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær og ýti undir lýðræðislega virkni íbúa. Seinna markmiðið er að sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Skilgreindar hafa verið áherslur við hvort meginmarkmið um sig sem leiða til skilgreindra aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum.
    Aðgerðaáætlun stefnunnar hefur að geyma 18 aðgerðir á sviði fjármála, þjónustu, lýðræðis og stafrænnar umbreytingar. Helstu nýmæli aðgerðaáætlunarinnar felast í því að innan hennar eru aðgerðir á ábyrgð annarra ráðuneyta í þágu ungra barna, fólks með fötlun og umhverfis. Rétt eins og í fyrri áætlun ber Samband íslenskra sveitarfélaga einnig ábyrgð á nokkrum aðgerðum, m.a. um lýðræðisvirkni, stafræna umbreytingu og fagteymi vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni og kynbundins ofbeldis í garð kjörinna fulltrúa.

Matvælaráðuneyti.


Þingsályktun 20//153 um matvælastefnu til ársins 2040.
31. maí 2023, þskj. 1913 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með stjórnartillögunni var ályktað að unnið yrði samkvæmt matvælastefnu til ársins 2040. Matvælastefna Íslands verði leiðandi í ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru. Matvælastefnunni er ætlað að vera leiðarstef fyrir matvælaframleiðslu í landinu og þar með talið þá stefnumótun sem undir hana fellur. Stefnan verður höfð til hliðsjónar við stefnumótun í landbúnaði, sjávarútvegi og fiskeldi.
    Á Íslandi er framleitt mikið magn matvæla og er framleiðslan mikilvæg með tilliti til allra lykilhagstærða svo sem landsframleiðslu, útflutningsverðmæta og fjölda starfa. Fá samfélög sem við berum okkur saman við eru jafn efnahagslega háð matvælaframleiðslu. Ísland er ríkt af auðlindum sem gerir landið að samkeppnishæfum matvælaframleiðanda innanlands sem og á alþjóðamörkuðum. Forsendur eru fyrir hendi að byggja velsæld þjóðarinnar áfram á sjálfbærri nýtingu auðlinda, m.a. til matvælaframleiðslu, og jafnframt að þróa áfram nýjar framleiðslugreinar á þeim grunni.
    Matvælastefnan sem hér var mörkuð nær til ársins 2040. Horft var til helstu áskorana og tækifæra í matvælaframleiðslu. Þegar drög matvælastefnunnar lágu fyrir var haldið matvælaþing sem opið var öllum áhugasömum og sýnt í opnu streymi. Þar voru fengnir aðilar úr öllum áttum til að ræða og gagnrýna stefnuna í heild sinni auk þess sem opið var fyrir spurningar. Umræður og athugasemdir frá matvælaþingi voru hafðar að leiðarljósi við lokafrágang matvælastefnu. Í stefnunni kemur fram metnaðarfull framtíðarsýn. Til þess að sú framtíðarsýn verði að veruleika verður lögð áhersla á sjálfbærni matvælaframleiðslu, samfélag, fæðuöryggi, matvælaöryggi, þarfir neytenda og rannsóknir, nýsköpun og menntun.
    Í stefnunni kemur fram að gerð verði aðgerðaráætlun til fimm ára í kjölfar samþykktar þingsályktunartillögunnar. Aðgerðaáætlun matvælastefnu Íslands til fimm ára var gefin út þann 10. september 2024. Aðgerðaáætlunin verður endurskoðuð árlega og uppfærð ef þörf þykir.

Þingsályktun 21/153 um landbúnaðarstefnu til ársins 2040.
1. júní 2023, þskj. 1930 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með stjórnartillögunni var ályktað að unnið yrði eftir heildstæðri landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til ársins 2040. Meginmarkmið landbúnaðarstefnunnar er að efla og styðja íslenskan landbúnað og styrkja stoðir hans til framtíðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Framleiðsla landbúnaðarafurða varðar samfélagið allt og er stefnunni ætlað að skapa sterkar stoðir fyrir innlenda landbúnaðarframleiðslu til framtíðar til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Landbúnaðarstefnan byggist á þremur lykilbreytum sem talið er að munu hafa mikil áhrif á þróun landbúnaðar á komandi árum, þ.e. 1) landnýtingu, 2) loftslagsmálum og umhverfisvernd og 3) tækni og nýsköpun. Þessar þrjár breytur setja sterkan svip á þau tíu áhersluatriði sem dregin eru fram í tillögunni. Í tillögunni er sett fram metnaðarfull framtíðarsýn sem snertir umgjörð landbúnaðar í heild sinni og tekur til umhverfis, samfélags og samkeppnishæfni þess starfsvettvangs sem framleiðsla landbúnaðarafurða er. Meginmarkmið stefnunnar er að efla og styðja við íslenskan landbúnað þannig að Ísland verði leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
    Í stefnunni kemur fram að gerð verði aðgerðaráætlun til fimm ára í kjölfar samþykktar þingsályktunartillögunnar. Aðgerðaráætlun landbúnaðarstefnu til fimm ára var gefin út þann 24. september 2024. Áætluninni er ætlað að ná yfir þau verkefni landbúnaðarstefnunnar sem eru á forræði matvælaráðuneytisins og verða í forgangi á tímabilinu. Aðgerðirnar eru ekki settar fram í forgangsröðun heldur er uppröðun aðgerðanna í samræmi við uppbyggingu landbúnaðarstefnunnar sjálfrar. Við gerð aðgerðaáætlunarinnar var lögð áhersla á að setja fram afmarkaðar og tímasettar aðgerðir sem raunhæft má telja að komist í framkvæmd á því tímabili sem áætlunin nær yfir. Tillögur að nýjum aðgerðum verða teknar til frekari skoðunar við endurskoðun áætlunarinnar.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti.


Þingsályktun 12/153 um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030.
3. maí 2023, þskj. 1684 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Tillaga til þingsályktunar um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030 byggist á tillögum starfshóps sem ráðherra menningarmála skipaði 1. desember 2020 og skilaði skýrslu sinni vorið 2021. Hlutverk starfshópsins var að rýna umhverfi tónlistargeirans á Íslandi, skoða hvernig stuðnings- og sjóðakerfi tónlistar væri best skipulagt, leggja drög að tónlistarstefnu og skilgreina hlutverk og ramma tónlistarmiðstöðvar, sem ráðgert var að setja á laggirnar.
    Skýrsla starfshópsins fól m.a. í sér drög að tónlistarstefnu og upplegg fyrir nýjan tónlistarsjóð. Á grunni þeirrar skýrslu var unnið að frekari mótun tónlistarstefnu með aðkomu hagaðila og annarra aðila tengdum menningu og listum. Við mótun stefnunnar var hliðsjón höfð af öðrum tengdum stefnum og sérstaklega menningarsókn sem er aðgerðaáætlun um listir og menningu til ársins 2030.
    Í tónlistarstefnunni var lögð fram aðgerðaáætlun í 32 liðum og hefur henni verið hrint í framkvæmd. Vel flestar aðgerðirnar eru vel á veg komnar og ber þar hæst stofnun Tónlistarmiðstöðvar og sameining tónlistarsjóðs, hljóðritasjóðs og útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar í einn deildaskiptan tónlistarsjóð sem styrkir fjölbreyttari verkefni en áður var. Endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskólanna er í vinnslu og tónlistarráð hefur verið skipað til að vera stjórnvöldum innan handar í málefnum tónlistar og taka þátt í mótun stefnu tónlistarmiðstöðvar. Aðgerðir tengdar stuðningi við útflutning íslenskrar tónlistar fara fram í gegnum tónlistarsjóð og tónlistarmiðstöð hefur umsýslu með því verkefni.

Þingsályktun 14/153 um myndlistarstefnu til 2030.
23. maí 2023, þskj. 1762 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktun um myndlistarstefnu til 2030 var samþykkt á Alþingi 10. maí 2023. Þingsályktunin og útgefin stefna byggir á vinnu verkefnahóps með fulltrúum stjórnvalda og myndlistarlífs, stofnana- og stuðningskerfis, félagasamtaka og atvinnulífs myndlistar sem var falið að móta heildstæða stefnu um málefni myndlistar á Íslandi til ársins 2030.
    Í myndlistarstefnunni eru lögð til fjögur meginmarkmið og 18 aðgerðir til að ná meginmarkmiðum stefnunnar. Í meðfylgjandi töflu má sjá framgang aðgerða myndlistarstefnu:

Aðgerð myndlistarstefnu Framkvæmd
1. Sterk staða myndlistar Framkvæmd lokið
2. Myndlistarkennsla Framkvæmd hafin
3. Aukið aðgengi að Listasafni Íslands Framkvæmd ekki hafin
4. Aukið samstarf um rannsóknir Framkvæmd hafin
5. Greining á stöðu Listasafns Íslands Framkvæmd lokið
6. Stofnun Myndlistarmiðstöðvar Framkvæmd lokið
7. Myndlistarráð verði gert sýnilegra og staða þess styrkt Framkvæmd lokið
8. Myndlistarsjóður verði efldur Framkvæmd lokið
9. List í opinberu rými – breytt skipulag og framkvæmd Framkvæmd hafin
10. Hagvísar Framkvæmd ekki hafin
11. Skattumhverfi myndlistar Framkvæmd hafin
12. Endurskoðuð skilgreining á myndlist í tollalögum Framkvæmd hafin
13. Endurgreiðslukerfi vegna þátttöku í alþjóðlegum kaupstefnum Framkvæmd hafin
14. Könnun á mögulegum hvötum til listaverkakaupa fyrirtækja Framkvæmd hafin
15. Markviss alþjóðleg kynning og þátttaka Framkvæmd lokið
16. Samstarf og þátttaka í erlendu samstarfi á sviði myndlistar Framkvæmd lokið
17. Gestavinnustofur Framkvæmd hafin
18. Höfundaréttarmál Framkvæmd hafin

Þingsályktun 15/153 um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028.
23. maí 2023, þskj. 1840 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar skipaði forsætisráðherra í mars 2022 starfshóp um mótun tillögu um framtíðarstefnumótun um eflingu barnamenningar og til að meta árangur af starfsemi Barnamenningarsjóðs frá árinu 2018. Þá var starfshópnum falið að meta samlegðaráhrif eða aukið samstarf sjóðsins við barnamenningarverkefnið List fyrir alla. Þingsályktun þessi byggist á tillögu starfshóps um framtíðarstefnumótun um eflingu barnamenningar, þingsályktun um menningarstefnu íslenska ríkisins frá 2013, nr. 16/141, og Menningarsókn – aðgerðaáætlun í menningarmálum til ársins 2030 en barnamenning er meðal megináherslna beggja stefna.
    Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar sem lögð er fram í þingsályktuninni er að auka samhæfingu hlutaðeigandi aðila, efla stefnumótun á sviði barnamenningar og samþættingu hennar við starfsemi opinberra menningarstofnana og -sjóða sem leggi reglulega áherslu á barnamenningu við úthlutanir og hvetji þannig samfélag listafólks til nýsköpunar á þessum vettvangi. Áhersla er jafnframt lögð á aukið framboð lista, menningar- og listfræðslu fyrir börn og ungmenni og lagt til að starfsemi barnamenningarverkefnisins List fyrir alla og Barnamenningarsjóðs Ísland verði fest í sessi.
    Gerð er tillaga um að verkefnið List fyrir alla verði varanlegt verkefni sem hefur það meginhlutverk að miðla listkynningum og menningarverkefnum í skólum landsins, gjarnan í samstarfi við opinberar menningarstofnanir. Listheimsóknir verði þannig sjálfsagður hluti skólastarfs á meðan skólaskylda varir og reglulegir listviðburðir hluti af daglegu lífi barna og ungmenna.
    Lagt er til að Barnamenningarsjóður Íslands verði varanlegur sjóður sem njóti framlaga af fjárlögum. Meginhlutverk Barnamenningarsjóðs Íslands verður að styrkja menningarverkefni fyrir börn og ungmenni, einkum verkefni listamanna, list- og menningartengdra stofnana, félagasamtaka og annarra sem sinna lista- og menningarstarfi í samræmi við opinbera menningarstefnu. Þá felur tillagan í sér að sett verði á fót Miðstöð barnamenningar sem hafi yfirumsjón með starfsemi barnamenningarverkefnisins List fyrir alla og Barnamenningarsjóðs Íslands.
    Barnamenningarsjóður hefur frá stofnun heyrt undir forsætisráðuneytið en færðist til menningar- og viðskiptaráðuneytis við samþykkt þingsályktunar. Stjórn miðstöðvar barnamenningar var skipuð af ráðherra en stjórnin fer jafnframt með stjórn barnamenningarsjóðs. Settar voru reglur um starfsemi sjóðsins sem birtar voru í Stjórnartíðindum. Rannís sér um umsýslu og vörslu sjóðsins og hefur verið úthlutað einu sinni úr sjóðnum. Samkvæmt tillögunni skyldi upphæð sjóðsins vera 120 m.kr. á ári en sjóðurinn sætir aðhaldskröfu fyrir úthlutun 2025.
    Ekki hefur tekist að tryggja fjármögnun fyrir stofnun Miðstöðvar barnamenningar en leitað er leiða til að fylgja eftir því hlutverki sem miðstöðinni er ætlað samkvæmt efni þingsályktunarinnar og hefur barnamenningarverkefnið List fyrir alla verið tryggt í sessi á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis.

Þingsályktun 17/153 um aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
30. maí 2023, þskj. 1893 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026 var samþykkt á Alþingi í lok maí 2023. Unnið er að framgangi alls 14 aðgerða áætlunarinnar en stýrihópur hönnunarstefnunnar vaktar framvindu þeirra. Stýrihópurinn hefur nú fundað í fjórgang en fulltrúa þar eiga Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins og Listaháskóli Íslands auk MVF.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir stöðu aðgerðanna í september 2024, sem og á vef ráðuneytisins:

Yfirskrift aðgerðar Staða Ábyrgð
1 Efling Hönnunarsjóðs Komin vel á veg MVF
2 Skilgreining mælikvarða og miðlun virðisauka hönnunar Hafið MVF
3 Virkjun hönnunardrifinnar nýsköpunar Hafið MVF
4 Lög um málefni hönnunar og arkitektúrs Ekki hafið MVF
5 Aukning hlutar hönnuða í úthlutun listamannalauna Lokið MVF
6 Samfélagsleg nýting hönnunardrifinnar nýsköpunar Undirbúningur hafinn MVF
7 Aukið vægi hönnunar í útboðum og samkeppnum Hafið Ríkiskaup
8 Heildstæð stefnumótun í mannvirkjagerð Undirbúningur hafinn IRN
9 Miðlægur rannsóknavettvangur fyrir innviði Hafið IRN
10 Aukið framboð náms og endurmenntunar í hönnunargreinum Komin vel á veg MVF
11 Verndun, miðlun og rannsóknir á menningararfi íslensks arkitektúrs Komin vel á veg MVF
12 Safnafræðsla í Hönnunarsafni Íslands Lokið MVF
13 Fræðsla um höfundarétt og hönnunarvernd Hafið MVF
14 Þátttaka í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Hafið MVF

Mennta- og barnamálaráðuneyti.


Þingsályktun 4/154 um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027.
11. desember 2023, þskj. 723 á 154. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Mennta- og barnamálaráðherra skal leggja fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum sbr. 5. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023–2027 er byggð á markmiðum barnaverndarlaga sem eru að tryggja börnum viðunandi uppeldisskilyrði og veita börnum sem búa við óviðunandi aðstæður og börnum sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu nauðsynlega aðstoð.
    Í framkvæmdaáætluninni er lögð áhersla á mannréttindi, þátttöku barna og að hver og ein aðgerð taki mið af þeim fjölbreytta hópi barna og fjölskyldna sem barnavernd þjónustar. Þá miða aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar að umfangsmiklum úrbótum í þjónustu við börn og fjölskyldur til að mynda með því að samhæfa verklag fyrir barnaverndarþjónustu á Íslandi og styrkja meðferðarúrræði barnaverndar.
    Í framkvæmdaáætluninni eru lagðar áherslur á 10 aðgerðir og eru margar af þeim aðgerðum nú þegar hafnar. Þar má meðal annars nefna vinnu við heildarendurskoðun á barnaverndarlögum sem hefur verið í víðtæku samráði við hagaðila en frumvarp þess efnis var á þingmálaskrá 155. löggjafarþings. Þá hefur Barna- og fjölskyldustofa hafið innleiðingu á nýju verklagi í barnavernd auk þess að skipaður hefur verið starfshópur vegna könnunar alvarlegra atvika sem tengjast börnum.

Utanríkisráðuneyti.


Þingsályktun 8/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka við EES-samninginn (Neytendavernd) og nr. 270/2022 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur).
8. mars 2023, þskj. 1276, 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvarðana nr.69/2021 og nr. 70/2021 hinn 1. febrúar 2024. Ákvarðanirnar öðluðust gildi 1. apríl 2024. Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 270/2022 eins fljótt og auðið er.

Þingsályktun 11/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn, nr. 145/2022 og nr. 329/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, nr. 333/2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn og nr. 337/2022 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn).
3. maí 2023, þskj. 1683, 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 hinn 1. febrúar 2024 og öðlaðist hún gildi 1. apríl 2024.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2022 hinn 15. júní 2023 og öðlaðist hún gildi 1. ágúst 2023.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 329/2022 hinn 26. maí 2023 og öðlaðist hún gildi 1. október 2024.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 337/2022 hinn 21. maí 2024. Ákvörðunin hefur ekki öðlast gildi þar sem Noregur hefur ekki aflétt stjórnskipulega fyrirvaranum.
    Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 333/2022 eins fljótt og auðið er.

Þingsályktun 18/153 um kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu.
31. maí 2023, þskj. 1911, 153. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Tillagan var lögð fram af formönnum allra flokka og var samþykkt á Alþingi þann 31. maí 2023. Ályktað var að fela utanríkisráðherra að festa kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi til notkunar fyrir særða hermenn og færa úkraínsku þjóðinni. Sjúkrahúsið var afhent Úkraínu í nóvember 2023 og samanstendur af tíu gámaeiningum sem hægt er að stilla upp eftir þörfum á hverjum stað. Uppsett er það eins og fullbúið sjúkrahús sem hægt er að reka sjálfstætt til að hlúa að særðum hermönnum og borgurum nærri vígvellinum. Í því eru meðal annars fullbúnar skurðstofur, gjörgæslurými, móttöku- og greiningarrými, stoðeiningar með rafstöð, súrefnispressu, salerni og bað- og þvottaaðstöðu auk sérhæfðra geymslurýma. Einnig eru þar 40 legurými og hægt að sinna 240 sjúklingum á sólarhring, þar af allt að 24 alvarlega slösuðum.
    Gámaeiningarnar eru fluttar á milli staða á sérútbúnum vörubílum sem þýski herinn gaf til verkefnisins. Heildarkostnaður við verkið nam 7,4 milljónum evra eða um það bil 1,1 milljarði króna. Verkefnið var unnið í samvinnu við Eistland, þar sem sjúkrahúsið var hannað og framleitt.

Þingsályktun 3/154 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið), nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi), nr. 17/2023 frá 3. febrúar 2023 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 50/2023 frá 17. mars 2023 um breytingu á V. viðauka (Frjáls för launþega) og VIII. viðauka (Staðfesturéttur) við EES-samninginn..
5. desember 2023, þskj. 383, 154. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2022: Ísland aflétti stjórnskipulega fyrirvaranum 21. maí 2024. Ákvörðunin hefur ekki enn öðlast gildi þar sem Noregur hefur ekki aflétt stjórnskipulega fyrirvaranum.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2023: Ísland aflétti stjórnskipulega fyrirvaranum 26. júní 2024. Ákvörðunin öðlaðist gildi 1. ágúst 2024.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2023: Ísland aflétti stjórnskipulega fyrirvaranum 20. desember 2023. Ákvörðunin öðlaðist gildi 1. febrúar 2024.

Þingsályktun 1/154 um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.
5. nóvember 2023, þskj. 522, 154. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillagan var lögð fram af utanríkismálanefnd Alþingis en tilefnið var hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael 7. október 2023 og viðbrögð Ísraelsríkis við henni. Mannfall hefur verið mikið í röðum óbreyttra palestínskra borgara í aðgerðum Ísraelshers og mikil neyð skapast á Gaza.
    Í samræmi við ályktun Alþingis hefur Ísland ítrekað og margoft kallað eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum, lausn allra gísla, óheftu aðgengi neyðaraðstoðar og annarra nauðþurfta og undantekningalausri virðingu við alþjóðalög. Sem dæmi má nefna þá var Ísland meðflytjandi að ályktun á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 12. desember 2023 þar sem kallað var eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza af mannúðarástæðum, framfylgd alþjóðalaga, vernd óbreyttra borgara, tafarlausri lausn gísla og tryggu mannúðaraðgengi. Var ályktun þessi samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi. Fjórum dögum fyrr sendi Ísland, ásamt hinum Norðurlöndunum, bréf til stuðnings ákalli aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til öryggisráðsins og alþjóðasamfélagsins um tafarlausar aðgerðir og vopnahlé af mannúðarástæðum. Sama dag var Ísland einnig, ásamt 101 ríki, meðflytjandi að ályktun sem lögð var fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna en náði ekki fram að ganga.
    Utanríkisráðherra áréttaði efnisatriði ályktunarinnar í ávarpi sínu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf 27. febrúar 2024 og þá voru þau einnig áréttuð í atkvæðaskýringu við afgreiðslu ályktunar í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 10. maí 2024 um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþingsins, en hún var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins.
    Í sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna 2024 átti Ísland aðild að tveimur sameiginlegum yfirlýsingum hóps ríkja sem allar náðu til þátta sem ályktunin kveður á um og loks má geta ávarps utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 28. september 2024 þar sem öllum aðalatriðum ályktunarinnar var haldið á lofti. Síðast en ekki síst greiddi Ísland atkvæði með ályktun í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 18. september 2024 sem fól í sér stuðning við ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag frá því í júlí þess efnis að landtaka Ísraela í Palestínu sé ólögmæt. Alls greiddu 124 ríki atkvæði með samþykkt ályktunarinnar, 14 voru á móti, 43 ríki sátu hjá, en hún felur í sér hvatningu til Ísraels að fylgja alþjóðalögum, kalla herlið sitt frá Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem, fjarlægja allar landtökubyggðir og rífa hluta aðskilnaðarmúrsins svonefnda sem reistur hefur verið á hernumdum svæðum Vesturbakkans.
    Hvað viðbótarframlög til mannúðaraðstoðar varðar og stuðning við rannsókn á öllum brotum stríðandi aðila á alþjóðalögum þá tilkynnti utanríkisráðherra um 100 m.kr. framlag 17. nóvember 2023 til annars vegar Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar (UNRWA) og hins vegar Alþjóðasakamáladómstólsins (ICC). Um svipað leyti var tilkynnt um 100 m.kr. viðbótarframlag í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (e. UN Central Emergency Response Fund, CERF) en hann hefur leikið stórt hlutverk í viðbrögðum við mannúðarneyð á Gaza. Í janúar 2024 voru undirritaðir nýir rammasamningar um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við CERF og Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) til næstu fimm ára; í febrúar var undirritaður nýr samstarfssamningur um stuðning Íslands við Alþjóðaráð Rauða krossins (International Committee of the Red Cross, ICRC) til næstu þriggja ára; og í apríl var undirritaður nýr rammasamningur um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) til næstu fimm ára. Þá var nýr rammasamningur um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til næstu fimm ára undirritaður einnig í apríl sl., en endurnýjun rammasamninga við samstarfsstofnanir í mannúðarmálum hefur haldist í hendur við samþykkt nýrrar þróunarsamvinnustefnu fyrir tímabilið 2024–2028. Loks má nefna að mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti um 100 m.kr. viðbótarframlag til UNRWA í júní en með framlaginu fór framlag íslenskra stjórnvalda til mannúðaraðstoðar í Palestínu á þessu ári í 290 milljónir króna.

Þingsályktun 5/154 um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028.
15. desember 2023, þskj. 811, 154. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillagan var lögð fram af utanríkisráðherra í samræmi við lög nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu sem kveður á um að ráðherra skuli leggja fram stefnu í málaflokknum á fimm ára fresti ásamt aðgerðaáætlun til tveggja ára í senn. Utanríkisráðuneytið hefur því starfað á grundvelli stefnunnar frá 1. janúar 2024. Við framkvæmdina hefur verið byggt á aðgerðaáætlun 2024–2025 ásamt því sem unnið hefur verið að því að koma nýjum og skerptum áherslum í framkvæmd. Í stefnunni er lögð sérstök áhersla á stuðning við fjóra málaflokka; mannréttindi og jafnrétti kynjanna, mannauð og grunnstoðir samfélaga, loftslagsmál og náttúruauðlindir auk mannúðaraðstoðar og starfs í þágu stöðugleika og friðar. Mannréttindi og jafnrétti kynjanna annarsvegar og loftslags- og umhverfismál hins vegar eru jafnframt þverlæg málefni sem tekið er tillit til í öllu starfi. Ísland starfar með fjölbreyttum aðilum við framkvæmd stefnunnar, þ.e. tvíhliða samstarfslöndum, fjölþjóðlegum stofnunum, félagasamtökum, GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, aðilum atvinnulífs og fræðasamfélaginu. Með alþjóðlegri þróunarsamvinnu leggja íslensk stjórnvöld sitt af mörkum í baráttunni gegn fátækt og fyrir bættum lífsskilyrðum í fátækustu löndum heims, og er hún mikilvægur þáttur í að Ísland uppfylli pólitískar, lagalegar og siðferðilegar skyldur sínar sem ábyrg þjóð í samfélagi þjóðanna.


Yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2022.


Forsætisráðuneyti.


Þingsályktun 21/152 um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025.
13. júní 2022 þskj. 1228 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    
Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 var lögð fram af forsætisráðherra og samþykkt á Alþingi í júní 2022. Áætlunin er sú fyrsta sem snýr eingöngu að málefnum hinsegin fólks. Aðgerðaáætlunin var unnin í samstarfi við samtök hinsegin fólks og felur í sér 21 aðgerð en hver og ein þeirra miðar að því að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks, samfélaginu öllu til hagsbóta. Aðgerðirnar eru margvíslegar og snerta sumar mörg svið og þar af leiðandi fleiri en eitt ráðuneyti, sem og stofnanir, sveitarstjórnir, félagasamtök og hagsmunaaðila. Lögð er áhersla á fræðslutengd verkefni og vitundarvakningu um málefni hinsegin fólks, enda mikilvægt að auka þekkingu og búa til farveg fyrir málefnalega umræðu um stöðu og réttindi hinsegin fólks. Jafnframt er vikið að lagabreytingum, rannsóknum, stefnumótun og fleiru. Vinna við flest verkefnin í aðgerðaáætluninni er komin vel á veg.
    Innleiðingu verkefna í aðgerðaáætluninni er fylgt eftir með mælaborði sem birt er á vef Stjórnarráðsins og er staða verkefna uppfærð tvisvar á ári, í apríl og október.

Þingsályktun 20/152 um minnisvarða um eldgosið í Heimaey.
13. júní 2022 þskj. 1227 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillaga var lögð fram af forsætisráðherra og mælti hún fyrir um að forsætisráðherra yrði falið að skipa nefnd til að undirbúa kaup á minnisvarða í tilefni þess að á árinu 2023 yrðu 50 ár liðin frá Heimaeyjargosinu. Tillagan var samþykkt á Alþingi í júní 2022 og undirbúningsnefndin skipuð fáeinum vikum seinna. Þar eru samtals fimm fulltrúar; tveir skv. tillögu bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar, tveir tilnefndir af Alþingi og einn án tilnefningar, sem jafnframt gegnir formennsku í nefndinni. Nefndin hefur fundað reglulega og sumarið 2023 var tekin ákvörðun um að ráðast í gerð minnisvarða á grundvelli hugmyndar listamannsins Ólafs Elíassonar. Vinna nefndarinnar stendur enn yfir þar sem til að mynda á eftir að ganga frá uppsetningu minnisvarðans.

Nefndarálit með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
14. júní 2022 þskj. 1292 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillagan mælti fyrir um að forsætisráðherra væri falið að hafa forgöngu um að ríkisstjórnin gerði tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks og að við vinnuna yrði miðað við að uppfylla að minnsta kosti markmið stöðuskýrslu ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur um einföldun gildandi regluverks frá september 2014 og sértækar jafnt sem almennar aðgerðir útlistaðar og tímasettar.
    Í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sagði að í tillögunni fælist að aðgerðaáætlun forsætisráðherra yrði kynnt á vorþingi 2022. Það myndi ekki nást. Meiri hlutinn tæki undir að einfalda þyrfti regluverk en teldi aftur á móti ekki æskilegt að slíkar aðgerðir og gerð áætlana byggðist á stöðuskýrslu sem gerð var fyrir tæplega átta árum. Margt hafði breyst innan íslensks stjórnkerfis og þyrftu slíkar aðgerðir að grundvallast á nýjustu gögnum og upplýsingum sem völ er á.
    Meiri hlutinn lagði því til að tillögunni yrði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera úttekt á nauðsyn þess að regluverk yrði einfaldað. Ekki hefur upp á síðkastið verið ráðist í skipulegt átak í þessu efni þvert á ráðuneyti. Við undirbúning lagasetningar er þetta markmið þó ætíð haft í huga. Rétt er að geta þess að forræði á vönduðum löggjafarháttum er nú hjá dómsmálaráðherra.
    Menningar- og viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laga um opinberar eftirlitsreglur en einföldunarstarf í Stjórnarráðinu hefur löngum tengst þeirri löggjöf og ráðgjafarnefndinni sem þar er gert ráð fyrir. Menningar- og viðskiptaráðuneytið telur nauðsynlegt að endurskoða löggjöfina, sem og reglugerð um eftirlitsreglur hins opinbera, nr. 812/1999, með tilliti til þeirrar þróunar og þeirra breytinga sem hafa orðið frá setningu þeirra með það fyrir sjónum að skýra betur hlutverk ráðgjafarnefndarinnar og skilgreina verkefni hennar, tilgang, umboð o.s.frv. Ráðuneytið hefur átt fundi um málefnið, m.a. með fulltrúum frá atvinnulífinu, þar sem hefur verið farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á frá gildistöku laganna, sem eru efnislega óbreytt frá setningu þeirra. Á fundi með fulltrúum Félags atvinnurekenda kom fram vilji félagsins til samstarfs við ráðuneytið um slíka endurskoðun og hefur ráðuneytið óskað eftir tillögum frá félaginu í því sambandi.
    Forsætisráðuneytið mun fylgjast með þessari stefnumótun og tryggja að á vegum ráðuneytanna verði lagt mat á hvort einföldun regluverks sé enn verðugt markmið og hvernig sé þá best að ná því fram.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.


Þingsályktun 29/152 um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022–2025.
16. júní 2022, þskj. 1364 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Gildandi framkvæmdaáætlun var samþykkt á Alþingi í júní árið 2022 og gildir fyrir árin 2022–2025 en hún var lögð fram á Alþingi af félags- og vinnumarkaðsráðherra í samræmi við 7. gr. laga um málefni innflytjenda, nr. 116/2012. Í áætluninni eru 34 aðgerðir, þar af er vinna ekki hafin vegna tveggja aðgerða, tíu aðgerðir eru hafnar, sextán aðgerðir eru komnar vel á veg og er sex aðgerðum lokið. Í meðfylgjandi töflu má sjá stöðuna á þeim aðgerðum sem um ræðir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.


Þingsályktun 22/152 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
13. júní 2022, þskj. 1229 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í þingsályktun Alþingis um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021 er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 1. september 2021, um aukið vestnorrænt samstarf á vettvangi umhverfis- og loftslagsmála (nr. 1/2021) og um samstarf vestnorrænna háskóla um fjarkennslu (nr. 2/2021). Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2021 hvetja menntamálaráðherrar Íslands, Grænlands og Færeyja til aukins samstarfs landanna þriggja um háskólamenntun með hjálp fjarkennslu. Tækniþróun, bætt fjarskipti og aukin reynsla af fjarkennslu hefur undanfarin ár gjörbreytt möguleikum íbúa strjálbýlla svæða til að sækja sér fjölbreytta háskólamenntun. Fjarnám getur haft jákvæð áhrif á þroska einstaklinga, búsetu í heimabyggð og þannig á heilbrigði samfélaga á norðurslóðum. Með það í huga er hvatt til þess að menntamálaráðherrar landanna þriggja skoði möguleika á að innleiða fjarnám í samstarfi háskóla í löndunum þremur.
    Í ljósi lögbundins sjálfstæðis háskóla samkvæmt lögum um háskóla, nr. 63/2006, koma stjórnvöld ekki með beinum hætti að ákvörðunum íslenskra háskóla um framboð fjarnáms í Grænlandi og Færeyjum, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna. Hlutverk stjórnvalda er að styðja við eflingu háskólanáms, sem getur m.a. falið í sér eflingu á alþjóðlegu starfi háskóla í samstarfi við aðra erlenda háskóla.
    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur sett nýjar reglur um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024. Reglurnar, sem tóku gildi hinn 27. júní sl., eru afrakstur af heildarendurskoðun ráðuneytisins á fjármögnun háskóla og fela í sér nýja og árangurstengda fjármögnun háskóla. Hið nýja fyrirkomulag fjármögnunar getur stutt við þau markmið sem koma fram í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2021. Í nýju fyrirkomulagi fjármögnunar ráðast fjárveitingar til kennslu og rannsókna í háskólum einnig af því hvernig háskólar sinna byggðahlutverki með framboði staðnáms á landsbyggðinni. Þá er sérstaklega gert ráð fyrir eflingu fjarnáms um allt land í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og markmiðum í gildandi fjármálaáætlun.

Heilbrigðisráðuneyti.


Þingsályktun 26/152 um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.
15. júní 2022, þskj. 1382 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi þann 15. júní 2022. Tillögunni er ætlað að styrkja stefnumótun á sviðinu og tekur mið af ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu og er í henni lögð áhersla á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum. Efni þingsályktunarinnar skiptist í fjóra áhersluþætti og er ítarlega fjallað um hvern og einn þeirra í greinargerð.
    Til að hrinda stefnunni í framkvæmd verða gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn í samráði við helstu hagsmunaaðila.

Innviðaráðuneyti.


Þingsályktun 27/152 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036.
15. júní 2022, þskj. 1383 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í samræmi við lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015, lagði innviðaráðherra fram á Alþingi stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 sem samþykkt var einróma í júní 2022. Í henni er sett fram aðgerðaáætlun fyrir árin 2022–2026 þar sem skilgreindar eru 44 aðgerðir. Öll ráðuneyti hafa beina aðkomu að aðgerðaáætluninni þar sem þau bera ábyrgð á minnst einni aðgerð hvert. Framkvæmdin gengur vel og allar aðgerðir eru hafnar, þó þær séu mislangt á veg komnar. Á vef innviðaráðuneytis er að finna upplýsingar um stöðu allra aðgerðanna.
    Í janúar 2024 lagði innviðaráðherra skýrslu fyrir Alþingi um framkvæmd byggðaáætlunar fyrir árin 2022 – 2023. Þar er upplýst um framvindu allra 44 aðgerða áætlunarinnar.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.


Þingsályktun 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
15. júní 2022, þskj. 1299 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
     Þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða var samþykkt á Alþingi 15. júní 2022 á grundvelli laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Þar ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd áætlunarinnar og kom áætlunin í stað verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt þingsályktun nr. 13/141, með síðari breytingu.
    Samkvæmt þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða skal tryggt að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið verði tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Í áætluninni skal í samræmi við markmið laga nr. 48/2011 lagt mat á verndar- og orkunýtingargildi landsvæða og efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif nýtingar, þ.m.t. verndunar.
    Svæði flokkuð í verndarflokk fara í friðlýsingarferli samkvæmt ákvæðum laga þar um, virkjunarkosti í nýtingarflokki er heimilt að þróa áfram og virkjunarkostir í biðflokki eru áfram í umfjöllun hjá verkefnisstjórn áætlunarinnar.


Utanríkisráðuneyti.


Nefndarálit með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um vistmorð (sameiginleg með dómsmálaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti).
15. júní 2022 þskj. 1330 á 152. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Utanríkisráðuneyti hefur falið sendiskrifstofum að fylgjast með framvindu og umfjöllun um málefnið, m.a. mögulegum undirbúningi löggjafar eða stefnumörkunar í líkt þenkjandi samstarfsríkjum, auk umfjöllunar hjá alþjóðastofnunum og í fjölþjóðasamstarfi. Auk þess kemur málefnið til umfjöllunar eftir atvikum í samráði norrænna utanríkisráðuneyta. Ekki hefur verið tilefni til frekara samráðs innan stjórnkerfisins að svo stöddu. Áfram verður fylgst með málinu.


Þingsályktun 4/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 396/2021 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál), nr. 398/2021 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og XX. viðauka (Umhverfismál), nr. 49/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 77/2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) og XIII. viðauka (Flutningastarfsemi), og nr. 78/2022 og nr. 155/2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.
6. desember 2022, þskj. 724 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 77/2022 hinn 16. júní 2023 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2023. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 386/2021 hinn 1. febrúar 2024. Öðlaðist ákvörðunin gildi 1. apríl 2024. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvarðana nr. 398/2021, nr. 78/2022 og nr. 155/2022 hinn 1. febrúar 2024. Öðluðust ákvarðanirnar gildi 1. apríl 2024. Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 49/2022 eins fljótt og auðið er.

Þingsályktun 1/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021, nr. 54/2021, nr. 385/2021 og nr. 146/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
9. nóvember 2022, þskj. 470 á 153. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 53/2021 15. júní 2023 og öðlaðist hún gildi 1. október 2024.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 54/2021 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2023.
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 385/2021 15. júní 2023 og öðlaðist hún gildi 1. ágúst 2024..
    Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr.146/2022 15. júní 2023 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2023.

Þingsályktun 2/153 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

9. nóvember 2022, þskj. 471 á 153. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    
Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, eins fljótt og auðið er.

Þingsályktanir frá 2022 þar sem framkvæmd telst lokið og

umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.


Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
          Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu og húsaleigulögum (aðgerðir til að sporna við áhrifum verðbólgu á húsnæðislán og húsaleigu). 13. júní 2022 þskj. – 1262 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 23/152 um fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027. 14. júní 2022 þskj. – 1271 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 10/152 um fjármálastefnu fyrir árin 2022–2026. 23. febrúar 2022 þskj. – 564 á 152. lögþ.
Heilbrigðisráðuneyti.
          Þingsályktun 25/152 um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. 15. júní 2022, þskj. 1381 á 152. lögþ.
Utanríkisráðuneyti.
          Þingsályktun 17/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1097 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 9/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 8. febrúar 2022, þskj. 472 á 152. lögþ. 30. maí 2022 þskj. – 1095 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 10/152 um fjármálastefnu fyrir árin 2022–2026. 23. febrúar 2022, þskj. 564 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 14/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1094 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 16/152 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn og nr. 275/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1096 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 12/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 28. apríl 2022, þskj. 953 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 7/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 8. febrúar 2022, þskj. 470 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 18/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1098 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 8/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla). 8. febrúar 2022, þskj. 471 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 11/152 um fullgildingu fríverslunarsamnings Íslands, Konungsríkisins Noregs og Furstadæmisins Liechtenstein og Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands. 7. mars 2022, þskj. 633 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 13/152 um staðfestingu samninga Íslands við Noreg annars vegar og Danmörku fyrir hönd Færeyja hins vegar um afmörkun landgrunnsins handan 200 sjómílna á svæðinu milli Færeyja, Íslands, meginlands Noregs og Jan Mayen (Síldarsmugan). 30. maí 2022, þskj. 1093 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 19/152 um staðfestingu viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Finnlands og Konungsríkisins Svíþjóðar. 7. júní 2022, þskj. 1177 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 3/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 og nr. 249/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 151/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn. 6. desember 2022, þskj. 723 á 153. lögþ.
          Þingsályktun 5/153 um staðfestingu rammasamnings um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja og samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2023. 15. desember 2022, þskj. 849 á 153. lögþ.


Yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2021.


Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.


Þingsályktun 34/151 um hagsmunafulltrúa eldra fólks.
13. júní 2021, þskj. 1826 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Mælt var fyrir þingsályktunartillögu um hagsmunafulltrúa aldraðra á 151. löggjafarþingi, 109. mál, þskj. 110, 26. nóvember 2020. Inga Sæland formaður og Guðmundur Ingi Kristinsson varaformaður Flokks fólksins fluttu tillöguna. Efni tillögunnar var að Alþingi fæli félags- og barnamálaráðherra að leggja fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra fyrir árslok 2021. Tilefni þingsályktunartillögunnar var að aldraðir væru fjölmennur og fjölbreyttur hópur og misjafnlega færir um að gæta að eigin réttindum og hagsmunum. Því væri rík þörf á málsvara fyrir þennan hóp.
    Velferðarnefnd lagði fram nefndarálit með breytingartillögu sem var samþykkt 13. júní 2021. Heiti tillögunnar var breytt í „Tillaga til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa eldra fólks“. Samkvæmt þingsályktuninni var félags- og barnamálaráðherra falið að stofna starfshóp með hagsmunaaðilum og starfsfólki ráðuneytisins sem semdi frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks. Verkefni starfshópsins væri m.a. að meta hvar slíku embætti væri best fyrir komið og hvert umfang þess ætti að vera.
    Skipun starfshópsins tafðist en félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði hann í apríl 2022.
    Í starfshópi um gerð frumvarps um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks áttu sæti fulltrúar Alzheimersamtakanna, Landssambands eldri borgara, Sambands íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytisins auk fulltrúa félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
    Það liggja ekki fyrir formlegar greiningar á því hvar skórinn kreppir helst varðandi ráðgjöf og upplýsingar til eldra fólks. Því var lagt til, í samstarfi við verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að ráðist yrði í að setja á fót tilraunaverkefni til 2–3 ára um sérstaka ráðgjafarþjónustu fyrir eldra fólk. Samhliða ráðgjöfinni yrði gögnum safnað um þau helstu atriði sem eldra fólk þarf ráðgjöf og stuðning með.
    Þá eru nú þegar til staðar formlegar eftirlitsstofnanir sem taka við erindum þeirra sem telja að þjónustu sé ábótavant s.s. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Embætti landlæknis auk úrskurðarnefndar velferðarmála.
    Með hliðsjón af ofangreindu lagði starfshópurinn til við félags- og vinnumarkaðsráðherra að frekari vinnu við smíði frumvarps um hagsmunafulltrúa fyrir eldra fólk yrði frestað í 2–3 ár til að safna frekari upplýsingum um stöðu hópsins á grunni Gott að eldast, aðgerðaáætlunar um þjónustu við eldra fólk.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.


Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa).
12. júní 2021, þskj. 1755 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    
Frumvarpið fól í sér að við mat ráðherra á áhrifum stjórnarfrumvarpa yrði sérstaklega litið til tveggja meginþátta til viðbótar við mat á fjárhagslegum áhrifum frumvarpa, þ.e. til mats á loftslagsáhrifum auk þess sem jafnréttismat það sem framkvæmt hefur verið á hluta frumvarpa yrði gert að almennri reglu. Í álitinu er lagt til að fjármála- og efnahagsráðuneytið taki tillögur frumvarpsins til athugunar þegar farið verður í heildarendurskoðun laga nr. 123/2015.
    Heildarendurskoðun á lögum um opinber fjármál er ekki hafin en að einhverju leyti hefur þó verið brugðist við nefndarálitinu. Í samþykkt ríkisstjórnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, frá 24. febrúar 2023, er nú sérstaklega kveðið á um mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa á jafnrétti, umhverfi og loftslag.

Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (sjóðir um sameiginlega fjárfestingu).
12. júní 2021, þskj. 1748 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    
Með frumvarpinu sem sex alþingismenn lögðu fram var lagt til að XXI. ákvæði til bráðabirgða í lögum um heimild lífeyrissjóða til að eiga allt að 35% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra yrði gerð varanleg, þó með breytingum.
    Í frávísunartillögunni kom fram að efnahags- og viðskiptanefnd styddi þau markmið sem frumvarp þingmanns fól í sér en taldi nauðsynlegt að vinna það nánar í samráði við hagaðila. Nefndin benti á að ákvæði sama efnis og frumvarp þingmannsins innihélt hefði verið lögfest með lögum nr. 37/2020. Við meðferð þeirra laga hefðu komið fram sjónarmið frá Landssamtökum lífeyrissjóða sem voru mjög í samræmi við frumvarp þingmannsins. Með vísan til þessa lagði nefndin til að frumvarpinu yrði vísað til ríkisstjórnar.
    Á haustþingi 2024 var ráðgert að leggja til að lögfest verði til frambúðar heimild lífeyrissjóða til að eiga allt að 35% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum skv. 1. og 2. tölul. 3. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki eða einstakri deild þeirra, þó aldrei umfram 1% heildareigna sinna í hverjum sjóði. Núgildandi heimild er tímabundin og fellur niður 1. janúar 2025. Fyrirætlan þessa efnis hefur verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.

Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001 (takmarkanir á notkun verðtryggingar í lánssamningum til neytenda).
12. júní 2021, þskj. 1750 á 151. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Frumvarpið, sem fjármála- og efnahagsráðherra flutti, fól í sér annars vegar að hámarkstími verðtryggðra jafngreiðslulána til neytenda yrði almennt 25 ár og hins vegar að lágmarkstími lánanna yrði tíu ár í stað fimm. Í frávísunartillögu efnahags- og viðskiptanefndar var lagt til að frumvarpinu yrði vísað til ríkisstjórnarinnar til skoðunar í ljósi athugasemda í umsögnum við þinglega meðferð þess.
    Frá því að málinu var vísað til ríkisstjórnar árið 2021 hefur sú þróun orðið að íslenskir lánveitendur hafa hætt að veita verðtryggð jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára, þó með einhverjum undantekningum varðandi fasteignalán til fyrstu kaupenda.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

Þingsályktun 20/151 um mótun sjálfbærrar iðnaðarstefnu.
6. maí 2021, þskj. 1384 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    
Tillaga til þingsályktunar um mótun sjálfbærrar iðnaðarstefnu var lögð fram af hálfu alþingismanna á 151. löggjafarþingi. Í tillögunni var lagt til að Alþingi ályktaði að fela ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að koma á fót nefnd sem ynni að opinberri iðnaðarstefnu. Tillagan var áður lögð fram á 149. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Þá var sambærileg tillaga lögð fram á 151. löggjafarþingi. Flutningsmenn tillögunnar töldu nauðsynlegt að í iðnaðarstefnu yrði litið til langs tíma og í henni yrði sett fram skýr framtíðarsýn með mælanlegum viðmiðum. Áhersla skyldi lögð á að benda á mikilvægi þess að iðnaðarstefnan tæki ekki eingöngu tillit til efnahags þjóðarinnar heldur tæki einnig mið af líffræðilegum fjölbreytileika Íslands og hamfarahlýnun jarðar. Í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu liggja nú fyrir drög að sjálfbærri iðnaðarstefnu. Fyrirhugað er samráð og rýni með hlutaðeigandi ráðuneytum og hagaðilum.

Heilbrigðisráðuneyti.


Þingsályktun 29/151 um lýðheilsustefnu til ársins 2030.
12. júní 2021, þskj. 1759 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um lýðheilsustefnu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi þann 12. júní 2021. Tillögunni er ætlað að styrkja stefnumótun á sviðinu og felur það í sér að leiðarljós lýðheilsustefnu til ársins 2030 verði heilsuefling og forvarnir sem hluti af allri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Framtíðarsýn fyrir lýðheilsu á Íslandi feli þannig í sér að lýðheilsustarf verði markvisst, á heimsmælikvarða og einkennist m.a. af þverfaglegu samstarfi heilbrigðisþjónustu með áherslu á heilsueflingu og forvarnir. Þá verði lýðheilsustarf metið með því að mæla gæði, öryggi, aðgengi og kostnað sem og kostnaðarhagkvæmni. Til þess að framtíðarsýn þessi verði að veruleika er lögð áhersla á eftirfarandi meginviðfangsefni til þess að styrkja stoðir lýðheilsustarfs hér á landi: 1. Forysta til árangurs, 2. Rétt þjónusta á réttum stað, 3. Fólkið í forgrunni, 4. Virkir notendur, 5. Skilvirk þjónustukaup, 6. Gæði í fyrirrúmi og 7. Hugsað til framtíðar.
    Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram tvær skýrslur á Alþingi um framkvæmd lýðheilsustefnu, þ.e. á 153. og 154. löggjafarþingi.

Innviðaráðuneyti.


Þingsályktun 14/151 um aðgerðir vegna rakaskemmda í fasteignum.
23. febrúar 2021, þskj. 933 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Alþingi samþykkti 23. febrúar 2021 þingsályktun um að leggja til nauðsynlegar breytingar á lögum og reglugerðum til að uppræta og koma í veg fyrir tjón vegna rakaskemmda á fasteignum.
    Með þingsályktuninni fól Alþingi félags- og barnamálaráðherra að grípa til aðgerða sem stuðla að því að draga úr líkum á tjóni vegna rakaskemmda í fasteignum, greiða fyrir nauðsynlegum viðgerðum vegna rakaskemmda og efla þekkingu fagaðila á rakaskemmdum og forvörnum tengdum þeim. Félags- og barnamálaráðherra greip til ýmissa aðgerða í þessa átt en málaflokkurinn mannvirkjamál var fluttur til innviðaráðuneytis, sbr. forsetaúrskurð 28. nóvember 2021, og hefur starfinu verið haldið áfram í innviðaráðuneyti.
    Í janúar 2023 skilaði innviðaráðherra skýrslu til Alþingis um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í fasteignum og um réttarstöðu eigenda þeirra, sjá þingskjal 940 – 268. mál. 1 Skýrslan veitir upplýsingar um hvernig tryggingavernd varðandi raka- og mygluskemmdir er háttað í nágrannaríkjunum og hvaða aðgerða væri hægt að grípa til hér á landi til að auka tryggingavernd þeirra sem verða fyrir tjóni vegna rakaskemmda á íbúðarhúsnæði.
    Skýrslan lýsir ýmsum aðgerðum sem framkvæmdar hafa verið til að efla þekkingu fagaðila á rakaskemmdum og forvörnum tengdum þeim. Til að mynda hafa verið gefin út þrjú leiðbeiningablöð til fagaðila um málefnið, aðgengileg á vefsíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
    Askur – mannvirkjarannsóknarsjóður var settur á stofn árið 2021 og veitir sjóðurinn styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar. Áherslur sjóðsins snúa einkum að samfélagslegum áskorunum í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum í mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors. Árin 2022 og 2023 hlutu mörg rannsóknarverkefni tengd raka og myglu í byggingum styrki.
    Verkefni sem varða rafræna skráningu fasteigna hafa verið flutt frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), sem nú hefur sett upp rafræna Mannvirkjaskrá. Stefnt er að því að þar verði vistuð öll hönnunargögn bygginga sem fá byggingarleyfi, að lögbundnar úttektir fari fram samkvæmt skoðunarhandbókum HMS og að niðurstöður úttekta verði vistaðar rafrænt í skránni, með það fyrir augum að auðvelda sönnunarstöðu eiganda húsnæðis þegar byggingargalli kemur í ljós, oft mörgum árum eftir eigendaskipti. Ætlunin er að í hinni rafrænu skrá sé einnig hægt að vista gögn um fyrri byggingargalla og viðgerðir sem farið hafa fram.

Þingsályktun 13/151 um orkuskipti í flugi á Íslandi
3. febrúar 2021, þskj. 849 á 151. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis ályktaði að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra að setja á fót starfshóp sérfræðinga til að móta stefnu og aðgerðaáætlun um orkuskipti í flugi á Íslandi.
    Starfshópurinn átti að gera tillögur um hvernig Ísland gæti orðið í fremstu röð í orkuskiptum í flugi, hvernig styðja mætti við nýsköpun á sviði orkuskipta í flugi, hve fýsilegt landið væri með tilliti til veðurfars og innviða sem þyrftu að vera til staðar hér á landi vegna orkuskipta í flugi, m.a. í tengslum við nýsköpun, umhverfisvæna orkugjafa og þátttöku í prófunum og alþjóðlegri þróun orkuskipta í flugi og þess að sett yrðu markmið um að byrjað yrði að nota umhverfisvæna orkugjafa í innanlandsflugi fyrir árið 2030 og hvernig áætlun um það samrýmdist öðrum áætlunum ríkisins í orkuskiptum, nýsköpun og loftslagsmálum.
    Árið 2022 var gerð skýrsla um efnið. Í skýrslunni voru lagðar til aðgerðir til stuðnings við orkuskipti í flugi. Flestar aðgerðirnar eiga sér hliðstæðu í nýuppfærðri aðgerðaráætlun í loftslagsmálum þar sem haldið er utan um framgang þeirra og eru þær á ábyrgð umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti.


Þingsályktun 23/151 um ástandsskýrslur fasteigna.
18. maí 2021, þskj. 1461 á 151. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Starfshópur var skipaður 2022 sem falið var að fylgja eftir þingsályktuninni. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni og tillögum til ráðherra í byrjun október 2024. Lagabreytingar munu fylgja í kjölfar skýrslunnar.

Mennta- og barnamálaráðuneyti.


Þingsályktun 28/151 um barnvænt Ísland – framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
10. júní 2021, þskj. 1702 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í þingsályktun um barnvænt Ísland er að finna tímasetta og fjármagnaða stefnu og aðgerðaáætlun um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2021–2024. Helsta markmið stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar er að uppfylla kröfur Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna og skyldur stjórnvalda samkvæmt barnasáttmálanum. Með stefnunni er lögfestingu sáttmálans fylgt eftir með markvissum hætti og tryggt að sáttmálinn sé rauður þráður í stefnumótun og aðgerðum stjórnvalda. Markmið stefnunnar er enn fremur að tryggja jafnræði og markvissa þátttöku barna og ungmenna innan stjórnsýslunnar, auka samstarf milli opinberra aðila með velferð og réttindi barna að leiðarljósi, tryggja markvisst verklag við hagsmunamat út frá réttindum og velferð barna og auka þekkingu á réttindum barna innan samfélagsins. Unnið er að framkvæmd aðgerða í samræmi við aðgerðaáætlun þingsályktunarinnar.

Þingsályktun 16/151 um menntastefnu fyrir árin 2021–2030
24. mars 2021, þskj. 1111 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillagan var lögð fram af þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra eftir víðtækt samráð við hagaðila og ráðleggingar sérfræðinga, bæði innlendra og frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD). Á grundvelli samþykktrar þingsályktunar var fyrsta aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2021–2024 gefin út haustið 2021. Í áætluninni eru 9 aðgerðir sem skipt er upp í 41 verkþátt. Unnið er að annarri aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2024–2027. Áætlunin er unnin í víðtæku samráði við hagsmunaaðila, m.a. með Menntaþingi 2024 sem haldið var í október 2024.

Þingsályktun 33/151 um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.
13. júní 2021, þskj. 1825 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Málefni afreksfólks í íþróttum hafa meðal annars verið til skoðunar í starfshóp um stefnu í íþróttamálum sem skipaður var í júlí 2021. Í upphafi árs 2023 var skipaður starfshópur um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks með það hlutverk að yfirfara og leggja til breytingar á fyrirkomulagi, löggjöf og öðru sem þurfa þykir til að stuðningur við afreksíþróttafólk hér á landi verði í fremstu röð. Hópurinn skilaði af sér skýrslu 30. apríl 2024 og hefur síðan verið unnið að því að undirbúa innleiðingu tillagna hópsins. Mennta- og barnamálaráðherra skipaði þverpólitískan stýrihóp til að vinna tímasetta innleiðingaráætlun nýrrar afreksstefnu og afreksmiðstöðvar í formi þingsályktunartillögu. Samhliða var stýrihópnum falið að teikna upp áætlun um fjármögnun stefnunnar en gert var ráð fyrir að innleiðing myndi hefjast 1. janúar 2025.

Nefndarálit með frávísunartillögu til þingsályktunar um launasjóð íslensks afreksíþróttafólks (sameiginleg með fjármála- og efnahagsráðuneyti).
12. júní 2021, þskj. 1752 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Tillagan felur í sér að mennta- og menningarmálaráðherra undirbúi og leggi fram frumvarp til laga um launasjóð íslensks afreksíþróttafólks í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra. Samhliða tillögu þessari fjallaði allsherjar- og menntamálanefnd um tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum. Málin eru efnislega sambærileg og því taldi nefndin fullt tilefni til að þau yrðu unnin í sameiningu innan ráðuneytisins. Það hefur verið gert, eins og nánar hefur verið fjallað um í tengslum við þingsályktun 33/151.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.


Nefndarálit með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu (sameiginleg með forsætisráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, innviðaráðuneyti, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, menningar- og viðskiptaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og matvælaráðuneyti)
12. júní 2021, þskj. 1753 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar vísaði málinu til ríkisstjórnarinnar. Í áliti nefndarinnar kemur fram að í tillögunni séu lögð til mikilvæg atriði er varða atvinnustefnu til framtíðar og græna hagkerfið. Umfang málsins sé hins vegar mikið og lagðar til aðgerðir sem fela sér töluverð fjárútlát af hálfu hins opinbera sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum. Í framhaldinu var þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra falið að taka tillöguna til skoðunar og meðferðar í samráði við viðkomandi ráðherra.
    Aukin áhersla hefur verið lögð á samstarf og stuðning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins við nýsköpunarverkefni hvað varðar loftslagsmál, orkuskipti og hringrásarhagkerfið í samstarfi við fyrirtæki, opinber orkufyrirtæki og sveitarfélög.
    Ráðuneytið hefur verið með samning við Klak – Icelandic Startups um stuðning við hringrásarhraðalinn Hringiðu en hann getur dregið fram, eflt og stutt nýja tækni og aðferðir sem leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum. Ráðuneytið hefur einnig orðið bakhjarl frumkvöðlakeppninnar Gulleggsins sem er í umsjón Klak – Icelandic Startups. Þá hefur ráðuneytið stutt við nýsköpun á Norðurlandi í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Eim í gegnum verkefnið Norðanátt.
    Þá var jafnframt gert samkomulag um aðkomu ráðuneytisins að Bláma, sem er samstarfsverkefni ráðuneytisins, Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu. Meginmarkmið Bláma er að styðja við og efla nýsköpun og þróun orkuskiptaverkefna með því að auka hlut vistvæns eldsneytis, vetnis og rafeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Eins gerðist ráðuneytið aðili að Orkídeu, sem er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Landbúnaðarháskóla Íslands. Enn fremur hefur ráðuneytið gerst aðili að Eimi á Norðurlandi eystra, sem er samstarfsverkefni með Landsvirkjun, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur. Þá hefur ráðuneytið stofnað samstarfsverkefnið Eygló á Austurlandi með Landsvirkjun og Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi. Þá hefur ráðuneytið gerst aðili að Gleipni á Vesturlandi, sem er samstarfsverkefni, m.a. með Landbúnaðarháskóla Íslands, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Landsvirkjun.
    Ráðuneytið hefur unnið að undirbúningi að nýjum samstarfsverkefnum með atvinnulífinu meðal annars í tengslum við Loftslagsvegvísa atvinnulífsins og uppfærslu á aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum sem var birt á árinu 2024.
    Starfshópur sem ráðherra skipaði haustið 2022 og fékk það hlutverk að koma með tillögur að því hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis kynnti sumarið 2023 tillögur sínar: „200 þúsund tonn af tækifærum“. Heitið vísaði til þess að starfshópurinn kortlagði um 200 þúsund tonn af úrgangi sem hafði verið urðaður árlega en sem tækifæri eru til að breyta í verðmæti og draga með því úr sóun. Í framhaldi af kynningu starfshópsins hafði ráðuneytið frumkvæði að stofnun hringrásarklasa í nánu samstarfi við félög, fyrirtæki og klasa. Hringrásarklasinn hefur það hlutverk að fylgja hringrásarverkefnunum eftir á forsendu klasahugmyndafræði, sem felur í sér að lögð er áhersla á að koma verkefnum í framkvæmd með samstarfi hagaðila.

Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um brottfall laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001 (bann við leit og vinnslu jarðefnaeldsneytis) (sameiginlegt með háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti).
12. júní 2021, þskj. 1788 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í þingmannafrumvarpi var lagt til að felld yrðu brott lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001, og að með því yrði leit og vinnsla jarðefnaeldsneytis bönnuð hér á landi. Í ákvæði til bráðabirgða var lagt til að ráðherra gerði tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar væru í kjölfar samþykktar frumvarpsins. Meiri hluti nefndarinnar taldi betur fara á því, ef vilji væri til að setja bann við leit og vinnslu jarðefnaeldsneytis, að málið yrði skoðað heildstætt og frumvarp lagt fram sem fæli í sér allar nauðsynlegar breytingar á lögum. Meiri hluti atvinnuveganefndar vísaði frumvarpinu því til ríkisstjórnarinnar til frekari skoðunar og vinnslu.
    Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna banns við leit, rannsóknum og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni (bann við olíuleit) var á þingmálaskrá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á 153. löggjafarþingi en var ekki lagt fram. Ekki er gert ráð fyrir framlagningu á 155. löggjafarþingi.

Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð.
9. júní 2021, þskj. 1682 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að „stofnaður verði þjóðgarður á þegar friðlýstum svæðum og jöklum á hálendinu með breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð“. Til undirbúnings verkefnisins skipaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra starfshóp 6. maí 2022 sem var falið það hlutverk að vinna skýrslu um stöðu og áskoranir í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum. Í skýrslunni eru helstu niðurstöður dregnar saman í svokallaða lykilþætti auk gagnlegra upplýsinga um stöðu málaflokksins. Ein helsta niðurstaða skýrslunnar er að samræma þarf stjórnsýslu og stjórnskipulag stofnana sem reka friðlýst svæði, sem og einfalda og samræma atvinnustefnu og ferli leyfisveitinga. Unnið hefur verið að þessum málum m.a. með sameiningu stofnana sem hafa umsjón með friðlýstum svæðum. Ný Náttúruverndarstofnun tekur til starfa 1. janúar 2025.

Utanríkisráðuneyti.


Þingsályktun 26/151 um aukið samstarf Grænlands og Íslands.
31. maí 2021, þskj. 1560 á 151. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um aukið samstarf Grænlands og Íslands sem samþykkt var í maí 2021. Nefnd um gerð tillagna um aukið samstarf Grænlands og Íslands á nýjum norðurslóðum var skipuð í apríl 2019 og skilaði ítarlegri skýrslu með tillögum um aukið samstarf landanna. Að baki tillögum nefndarinnar var umfangsmesta og ítarlegasta greining á stöðu tvíhliða samskipta landanna sem gerð hafði verið. Skýrslan ber heitið „Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum“. Í henni forgangsraðar nefndin tíu tillögum til stefnumörkunar. Samtals eru tillögur nefndarinnar 99 talsins og fjalla um möguleika á auknu samstarfi stjórnvalda, sveitarfélaga og stofnana, einkageirans, frjálsra félagasamtaka, íþrótta, lista og menningar. Þingsályktunartillagan var lögð fram í framhaldi af skýrslunni. Þann 13. október 2022 undirrituðu forsætisráðherrar Grænlands og Íslands samstarfsyfirlýsingu um aukið samstarf landanna á sviði viðskipta, fiskveiða, efnahagssamstarfs, orku, ferðaþjónustu, flugsamgangna, byggingariðnaðar, loftslagsmála og líffræðilegs fjölbreytileika, jafnréttismála, menningar, menntunar og rannsókna. Á miðju ári 2024 náðu íslensk og grænlensk stjórnvöld samkomulagi um framkvæmdaáætlun á grundvelli samstarfsyfirlýsingar forsætisráðherra landanna, jafnframt því sem litið var til fyrri yfirlýsinga, Grænlandsskýrslunnar og þess mikla samstarfs sem komið hefur til framkvæmda síðasta áratug. Er nú unnið samkvæmt þeirri framkvæmdaáætlun. Sendiskrifstofur Íslands í Nuuk og Grænlands í Reykjavík hafa jafnframt náið samstarf sín á milli.

Þingsályktun 17/151 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2020 (sameiginleg með félags- og vinnumarkaðsráðherra).
27. apríl 2021 – þskj. 1297 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunartillagan var lögð fram af Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins og var hún samþykkt á Alþingi 27. apríl 2021. Með þingsályktuninni skorar Alþingi á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd þriggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 6. nóvember 2020, um aukið samstarf vestnorrænna samstarfsráðherra Norðurlandanna (nr. 1/2020), um aukið samstarf vestnorrænna ráðherra sem fara með málefni norðurslóða (nr. 2/2020) og um stuðning við aukaaðild Færeyinga og Grænlendinga að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (nr. 3/2020).
    Utanríkisráðuneytið hefur umsýslu með framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins með því að safna upplýsingum um gang mála hjá fagráðuneytum sem að málinu koma og upplýsa Vestnorræna ráðið um hvort og hvað hefur verið gert vegna þeirra. Í þessu tilviki er um að ræða aukið samstarf vestnorrænna samstarfsráðherra Norðurlanda, um aukið samstarf vestnorrænna ráðherra sem fara með málefni norðurslóða og um stuðning við aukaaðild Færeyinga og Grænlendinga að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Áfram verður unnið að málunum.

Þingsályktun 24/151 um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.
19. maí 2021 – þskj. 1478 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Ályktunin byggði á tillögum þingmannanefndar sem utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skipaði til að endurskoða stefnu Íslands í málefnum norðurslóða, en fyrri stefna var komin til ára sinna (samþykkt 2011). Í nefndinni áttu sæti fulltrúar allra flokka á þingi og skilaði nefndin tillögum sínum 19. mars 2021, en þær urðu grundvöllur þingsályktunartillögu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sem var samþykkt einróma. Þingsályktunin felur ríkisstjórninni að fylgja nítján áhersluþáttum sem spanna allt frá alþjóðlegri samvinnu, sjálfbærri þróun, efnahagslegum tækifærum og vísindarannsóknum til öryggismála og norðurslóðamiðstöðva í Reykjavík og á Akureyri. Ráðherra utanríkismála er ennfremur falið að móta framkvæmdaáætlun með norðurslóðastefnunni í samráði við aðra hlutaðeigandi ráðherra. Vinna við gerð framkvæmdaáætlunarinnar hófst með opnum fundi í Háskólanum á Akureyri, 31. mars 2022, sem jafnframt var fjarfundur. Á fundinum var stefnan kynnt og verkáætlun við mótun framkvæmdaáætlunar fyrir hana. Hinum nítján áhersluþáttum stefnunnar var skipt niður á fimm þemahópa sem safna skyldu tillögum að framkvæmdaþáttum og um hundrað þátttakendur skráðu sig í hópana. Samráð þemahópanna fór að öllu leyti fram með fjarfundum. Hóparnir skiluðu tillögum sínum, alls 75 talsins, 15. september 2022 og var haldinn annar opinn fundur með sama sniði þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar 28. september 2022. Þá tók við starf við forgangsröðun, frágang og framsetningu í nánu samráði við þau ráðuneyti sem hlut eiga að máli. Áætlunin eru nú tilbúin og inniheldur alls 39 tillögur. Gert er ráð fyrir að áætlunin komi til framkvæmdar hjá þeim ráðuneytum, sem ábyrgð bera á hverjum verkþætti fyrir sig.

Þingsályktun 4/152 um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2022.
28. desember 2021 – þskj. 277 á 152. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Samningurinn var staðfestur af forseta Íslands 29. desember 2021. Hann gilti samkvæmt efni sínu um fiskveiðar á árinu 2022.

Þingsályktanir frá 2021 þar sem framkvæmd telst lokið og

umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.


Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
          Þingsályktun 25/151 um fjármálaáætlun fyrir árin 2022–2026, 31. maí 2021 – þskj. 1559 á 151. lögþ.
          Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign (lágmarkstryggingavernd o.fl.), 12. júní 2021 – þskj. 1751 á 151. lögþ.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
          Þingsályktun 15/151 um mat og endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár.
Utanríkisráðuneyti.
          Þingsályktun 18/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2020 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES- samninginn. 4. maí 2021, þskj. 1347 á 151. lögþ.
          Þingsályktun 3/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 28. desember 2021, þskj. 276 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 2/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 371/2021 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn (dýralyf). 28. desember 2021, þskj. 275 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 1/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 384/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (endurbótalýsing verðbréfa). 28. desember 2021, þskj. 274 á 152. lögþ.
          Þingsályktun 19/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn (Fjármálaþjónusta). 4. maí 2021, þskj. 1348 á 151. lögþ.


Yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2020.


Dómsmálaráðuneyti.


Þingsályktun 23/150 um meðferðar- og endurhæfingarstefnu í málefnum fanga.
29. janúar 2020, þskj. 892 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Þingsályktunin felur í sér að dómsmálaráðherra í samráði við félags- og barnamálaráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og heilbrigðisráðherra setji á fót starfshóp um mótun heildstæðrar meðferðar- og endurhæfingarstefnu í fangelsismálakerfinu, þ.m.t. að leggja til nauðsynlegar breytingar á lögum og greina fjárþörf í því skyni að allir fangar fái einstaklingsbundna meðferðaráætlun, bættan aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu og aukinn stuðning að afplánun lokinni. Starfshópurinn skili skýrslu með niðurstöðum eigi síðar en 1. maí 2020. Dómsmálaráðherra kynni Alþingi niðurstöður starfshópsins.
    Dómsmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra skipuðu 29. maí 2020 sameiginlega stýrihóp um málefni fanga en hlutverk hópsins var í samræmi við ályktun Alþingis þar um. Formaður hópsins var fulltrúi félags- og barnamálaráðherra og varaformaður hópsins var fulltrúi Fangelsismálastofnunar. Auk þess áttu sæti í hópnum fulltrúar dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Vinnumálastofnunar. Þá var forstöðumaður Batahúss ráðgjafi hópsins og starfsmenn hans voru tveir sérfræðingar á skrifstofu barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu. Stýrihópurinn fundaði reglubundið frá 29. maí 2020 til 28. apríl 2021 og á fundi hópsins voru kallaðir hagaðilar sem tengjast málefnum fanga til að veita upplýsingar og miðla af þekkingu sinni og reynslu.
    Skýrslan var afhent ráðherrum 15. september 2021 og í henni eru lagðar til breytingar á málaflokknum. Gerðar eru tillögur um húsnæðismál, t.d. um endurbætur og langtímastefnumótun og lagðar til umbætur á flestum fangelsum landsins. Þá eru gerðar tillögur um heildstæða meðferðarstefnu þannig að aukið verði aðgengi fanga að skimun fyrir geðrænum erfiðleikum þegar dómur fellur, stöðugildum sérfræðinga á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar verði fjölgað sem og stöðugildum í geðheilsuteymi fanga og að boðið verði upp á eftirfylgd geðheilsuteymisins í allt að 12 mánuði eftir að afplánun lýkur fyrir þá sem þurfa. Gerð var tillaga um menntun og virkni, atvinnu, hæfingu og félagslegan stuðning að lokinni afplánun, framfærslu og virknigreiðslur og tillögur um aukinn félagslegan stuðning að lokinni afplánun. Þá benti stýrihópurinn á að föngum á bataleið þurfi að standa til boða fjölbreyttari og einstaklingsmiðaðri úrræði en nú gefst kostur á við hefðbundna afplánun.
    Frá því að skýrslan kom út hafa tillögur hennar verið til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu og hefur ráðuneytið átt samtal og samstarf við önnur ráðuneyti sem að málefnum fanga koma. Unnið hefur verið að því að greina tillögurnar og hefur vinna að framkvæmd sumra tillagnanna þegar hafist. Á árinu 2024 hófst stefnumótunarvinna sem ætlað er að taka til fullnustukerfisins með heildstæðum hætti. Við þá vinnu verður tekið mið af framangreindri skýrslu og þeim tillögum sem þar koma fram.


Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.


Þingsályktun 43/150 um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til
þátttöku í samfélaginu.
30. júní 2020, þskj. 1972 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með samþykkt þingsályktunar 29/152 um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022–2025 samþykkti Alþingi að mótuð yrði stefna í málefnum innflytjenda, flóttafólks og fjölmenningar líkt og það er orðað í fyrstu aðgerð fyrrnefndrar áætlunar. Tillaga að stofnun stýrihóps um stefnumótun í málefnum innflytjenda- og flóttafólks var samþykkt af ríkisstjórn í ágúst 2022 og í kjölfarið skipaði félags- og vinnumarkaðsráðherra stýrihópinn. Þá tók félags- og vinnumarkaðsráðuneytið þá ákvörðun við upphaf stefnumótunarvinnunnar að ganga til samstarf við OECD til að treysta hið faglega stefnumótunarferli í heild og fá utanaðkomandi sjónarmið að borðinu.
    Fyrir liggur grænbók sem og hvítbók auk þess sem vinna við gerð tillögu til þingályktunar er langt komin.


Heilbrigðisráðuneyti.


Þingsályktun 38/150 um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.
9. júní 2020, þskj. 1659 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með samþykkt heilbrigðisstefnu til 2030 ákvað Alþingi eftirfarandi markmið: „Almenn sátt ríki um þær siðferðilegu meginreglur sem liggi til grundvallar forgangsröðun og ákvörðunum í heilbrigðiskerfinu og stöðug umræða verði um siðferðileg leiðarljós.“ Í kjölfar samþykktar á heilbrigðisstefnu var ákveðið samkvæmt fimm ára aðgerðaáætlun að ná þessu markmiði innan þriggja ára. Heilbrigðisráðherra mælti fyrir þingsályktuninni og er hún liður í því að ná þessu markmiði. Hún er enn fremur liður í að skapa umræðu um siðferðileg gildi þegar kemur að forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni. Þau gildi sem höfð skuli að leiðarljósi eru í fyrsta lagi mannhelgi, í öðru lagi þörf og samstaða og í þriðja lagi hagkvæmni og skilvirkni.


Innviðaráðuneyti.


Þingsályktun 21/150 um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019–2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019–2023.
29. janúar 2020, þskj. 890 á 150. lögþ.

Framkvæmd lokið.
    Vel gekk að framkvæma stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi í janúar 2020. Stjórnartillagan var sett fram eftir víðtækt samráð um allt land og var áhersla einkum lögð á tvö meginmarkmið. Fyrra markmiðið snýr að sjálfbærni sveitarfélaga og lýðræðislegri starfsemi þeirra og seinna markmiðið lýtur að sjálfstjórn sveitarfélaga og ábyrgð þeirra, m.a. við að tryggja sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Skilgreindar voru áherslur við hvort meginmarkmið um sig sem leiddu til skilgreindra aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum.
    Alls fól tillagan í sér 11 aðgerðir. Flestar aðgerðirnar voru komnar vel á veg eða lokið en aðgerðaráætlun þingsályktunarinnar rann sitt skeið á enda árið 2023. Þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 var samþykkt Alþingi hinn 5. desember 2023. Hluti aðgerðanna sem þar eru settar fram eru framhald af aðgerðum úr aðgerðaráætlun fyrir árin 2019–2023.
    Eftirfarandi aðgerðir voru komnar vel á veg eða var lokið:
    – Lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga. Alþingi samþykkti breytingar á sveitarstjórnarlögum sem innleiddu aðgerðina. Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá sveitarstjórnum tíu sveitarfélaga með færri en 250 íbúa um hvernig ákvæði laganna um lágmarksíbúafjölda hefði verið framfylgt. Eftirgrennslan ráðuneytisins leiddi í ljós að þrjú af sveitarfélögunum tíu höfðu hafið óformlegar viðræður um sameiningu við annað eða önnur sveitarfélög. Fimm sveitarfélög voru jákvæð eða útiloka ekki sameiningu. Þá sögðu tvö sveitarfélög ekki hafa áhuga á sameiningu. Þróað hefur verið vefsvæði með leiðbeiningum og upplýsingum um sameiningar sveitarfélaga.
    – Fjárhagslegur stuðningur við sameiningar. Nýjar reglur um stuðning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við sameiningar tóku gildi á árinu og eru þær til viðmiðunar fyrir þau sveitarfélög sem hyggjast vinna að sameiningu. Þeim hefur verið fylgt eftir með vefsvæði með upplýsingum um hversu miklum fjárstuðningi sveitarfélög geti átt von á í tengslum við sameiningar óháð því hvaða sveitarfélagi þau sameinast. Yfirstandandi endurskoðun regluverks jöfnunarsjóðs styður jafnframt við sameiningu sveitarfélaga.
    – Tekjustofnar sveitarfélaga. Nefnd um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga hefur lokið kortlagningu á tekjustofnum sveitarfélaga. Áfram verður unnið út frá greiningarvinnu hópsins en aðgerðina er einnig að finna í aðgerðaáætlun 2024–2028.
    – Fjármál og skuldaviðmið. Starfshópur um fjármálareglur fyrir sveitarfélög hefur skilað niðurstöðuskýrslu. Unnið hefur verið með niðurstöður nefndarinnar við endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga en aðgerðin heldur áfram í aðgerðaáætlun 2024–2028.
    – Starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. Verkefnisstjórn um starfsaðstæður kjörinna fulltrúa hefur skilað tillögum. Innviðaráðuneytið vinnur að eftirfylgni tillagnanna í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi aðila. Tillögur um lagabreytingar renna inn í endurskoðun ráðuneytisins á gildandi sveitarstjórnarlögum. Tillaga um stofnun fagteymis vegna kynferðislegrar áreitni og ofbeldis er hluti af aðgerðaáætlun 2024–2028.
    – Rafræn stjórnsýsla sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa byggt upp miðlægt samstarf og sett hefur verið á fót samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga um stafræna umbreytingu undir samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga, Jónsmessunefnd. Áhersla er lögð á hagnýtingu upplýsingatækniinnviða sem byggðir hafa verið upp og þekkingu á rafrænum lausnum hins opinbera. Ríkið hefur veitt 100 millj. kr. í átak til að efla stafræna stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélaga og hefur sambandið yfirumsjón með framkvæmdinni. Stafræn umbreyting sveitarfélaga er ein af aðgerðum í aðgerðaáætlun 2024–2028.
    – Fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Stjórnvöld hafa ákveðið að öll störf verði auglýst án staðsetningar nema eðli þeirra krefjist annars og markmið verði sett um hlutfall opinberra starfa á landsbyggðinni. Verkefninu er fylgt eftir innan byggðaáætlunar.
    Eftirfarandi aðgerðir voru skemmra á veg komnar:
    – Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. Samkomulag varð um að hefja ekki vinnu við aðgerðaáætlun um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga fyrr en búið væri að leysa úr helstu ágreiningsmálum ríkis og sveitarfélaga á sviði fjármála. Verkefnið heldur áfram innan aðgerðaáætlunar 2024–2028 en markmið áætlunarinnar er að skapa sameiginlega framtíðarsýn um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og eyða til frambúðar svokölluðum gráum svæðum í opinberri þjónustu á milli þessara þjónustustiga.
    – Landshlutasamtök sveitarfélaga og samvinna sveitarfélaga. Fyrir liggur skýrsla nefndar um landshlutasamtök sveitarfélaga. Þá liggur fyrir úttekt ráðuneytisins á öllum samstarfssamningum sveitarfélaga. Unnið hefur verið að því að greina nánar þau atriði hvað þessar tvær úttektir varðar sem eiga erindi í boðaða endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Verkefnið heldur því áfram undir aðgerðaáætlun 2024–2028.
    – Lýðræðislegur vettvangur. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur þróað og gefið út leiðbeiningar til sveitarfélaga um ólíkar leiðir til samráðs og íbúalýðræðis. Með sama hætti hefur sambandið stutt sveitarfélög við framkvæmd tilraunaverkefna á sviði íbúalýðræðis. Vangaveltur hafa verið uppi um hvort sveitarfélögin muni nýta sameiginlegan stafrænan lýðræðisvettvang. Innviðaráðuneytið hefur stutt við íbúalýðræði með breytingum á sveitarstjórnarlögum í því skyni að auðvelda sveitarfélögum að efna til skoðanakannana og íbúakosninga. Verkefnið heldur áfram innan aðgerðaáætlunar 2024–2028 en annað af aðal markmiðum áætlunarinnar er að sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær og ýti undir lýðræðislega virkni íbúa.
    – Samskipti ríkis og sveitarfélaga. Með hliðsjón af upplýsingum um reynslu annarra Norðurlandaþjóða af starfrækslu gerðardóms var ákveðið að vinna ekki frekar að framgangi verkefnisins. Samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga sker því áfram úr um ágreiningsmál milli stjórnsýslustiganna. Horfur eru á að þeim fækki með vinnu við aðgerðaráætlun og varanlegum lausnum á gráum svæðum í opinberri þjónustu

Þingsályktun 40/150 um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024.
29. júní 2020, þskj. 1943 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í samgönguáætlun er mörkuð stefna og markmið fyrir allar greinar samgangna næstu fimmtán árin. Þá er gerð aðgerðaáætlun fyrir fyrsta fimm ára tímabil hverrar samgönguáætlunar. Í aðgerðaáætlun skal vera áætlun fyrir hvert ár tímabilsins fyrir hverja stofnun og fyrirtæki samgöngumála sem eiga undir ráðuneytið.
    Samgönguáætlun til fimmtán ára 2020–2034 og aðgerðaáætlun til fimm ára 2020–2024 voru samþykktar samhljóða á Alþingi 29. júní 2020. Um var að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun á grunni þeirrar sem samþykkt var á Alþingi í febrúar 2019. Núgildandi samgönguáætlun er ein sú umfangsmesta sem samþykkt hefur verið og felur í sér mikilvæga framtíðarsýn og víðtæk áform um nýframkvæmdir og viðhald á vegum, höfnum og flugvöllum um land allt. Bein framlög til samgöngumála nema um 640 milljörðum króna á fimmtán ára tímabili áætlunarinnar.
    Vinna við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2025–2039 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2025–2029 er langt komin og stefnt hefur verið að framlagningu í haust.


Þingsályktun 41/150 um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034.
29. júní 2020 – þskj. 1944 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Um framkvæmd samgönguáætlunar fyrir árin 2020–2034 er vísað í texta um framkvæmd
fimm ára samgönguáætlunar 2020–2024.


Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.


Þingsályktun 8/151 um ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.
8. desember 2020, þskj. 525 á 151. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Með tillögunni er lagt til að fela ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að vinna áætlun um takmörkun á notkun pálmaolíu í allri framleiðslu á Íslandi og leggja fram frumvarp um bann við notkun hennar í lífdísil. Þá er lagt til að ráðherra kynni Alþingi niðurstöður sínar og leggi fram frumvarp til laga um bann við notkun pálmaolíu í lífdísil eigi síðar en í lok árs 2021.
    Í nefndaráliti atvinnuveganefndar um tillöguna er bent á að innan ESB taki á árinu 2021 gildi ný tilskipun um endurnýjanlegt eldsneyti 2018/2001/EB (RED II) sem tekur við af tilskipun 2009/28/EB (RED I). Í tilskipuninni eru m.a. hertar þær kröfur sem gerðar eru til endurnýjanlegs eldsneytis sem unnið er úr fóðurplöntum og stefnt að því að draga markvisst úr notkun slíks eldsneytis fram til ársins 2030. Jafnframt er þar gert ráð fyrir að dregið verði úr notkun pálmaolíu frá árinu 2023 uns notkun hennar verði hætt árið 2030. Tilskipunin er hluti af svokölluðum hreinorkupakka ESB og samkvæmt tilskipuninni skulu ríki ESB hafa lokið við að lögleiða hana á árinu 2021. Tilskipunin er enn til skoðunar hjá EES/EFTA-ríkjunum en hún verður líklega tekin upp í EES samninginn 2025.


Þingsályktun 44/150 um náttúrustofur.
30. júní 2020, þskj. 1973 á 150. lögþ.

Framkvæmd hafin.
    Í ályktuninni var umhverfis- og auðlindaráðherra falið að koma á fót starfshópi til að meta reynsluna af starfi náttúrustofa og kanna hvort hagkvæmt sé að náttúrustofur taki formlega að sér fleiri svæðisbundin verkefni en þær hafa nú með höndum. Starfshópnum verði falið að móta leiðir til að styrkja samstarf náttúrustofa og stofnana ríkisins í þeim tilgangi að nýta fjármagn til þekkingaröflunar og vöktunar á náttúru landsins sem best og til að auka skilvirkni í samstarfi um náttúruvernd. Starfshópurinn ljúki störfum og skili tillögum til ráðherra fyrir 1. desember 2020.
    Starfshópurinn tók til starfa vorið 2024 og hefur fundað með öllum sveitarstjórnum sem koma að rekstri náttúrustofanna, ásamt forstöðumönnum þeirra. Á fundunum voru sveitarfélögin beðin um að leggja mat á árangur af starfsemi stofanna undanfarin ár. Einnig voru tækifæri og áskoranir í rekstri þeirra rædd. Og þá var velt upp hvaða samstarfs- og samþættingarmöguleikar væru til staðar fyrir stofurnar, og hvort þau sæju samstarfsfleti við fleiri aðila. Í kjölfar fundanna tók starfshópurinn sama drög að skýrslu. Framundan er samtal við sveitarfélögin um þá samantekt og um tillögur að framtíðarsýn fyrir náttúrustofurnar.


Þingsályktun 24/150 um vestnorræn umhverfisverðlaun hafsins.
25. febrúar 2020, þskj. 1012 á 150 lögþ.

Framkvæmd ekki hafin.
    Tillaga þessi var lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2019 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 23. október 2019 í Nuuk.
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti hefur ekki hafið vinnu við að hrinda þessum tilmælum í framkvæmd.

Utanríkisráðuneyti.

Þingsályktun 25/150 um niðurgreiðslu flugfargjalda ungmenna milli Vestur-Norðurlanda.
25. febrúar 2020, þskj. 1013 á 150. lögþ.

Framkvæmd ekki hafin.
    Tillaga þessi er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 1/2019 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 23. október 2019 í Nuuk.
    Vinna hefur ekki verið hafin við að hrinda þessum tilmælum í framkvæmd.

Þingsályktanir frá 2020 þar sem framkvæmd telst lokið og

umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.


Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
          Þingsályktun 22/150 um tæknilega innviði Stjórnarráðsins og rafræna þjónustu hins opinbera, 29. janúar 2020 – þskj. 891.
          Þingsályktun 28/150 um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak, 30. mars 2020 – þskj. 1203.
          Þingsályktun 45/150 um breytingu á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022, 3. september 2020 – þskj. 2095.
          Þingsályktun 11/151 um fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025, 17. desember 2020 – þskj. 675.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
          Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um félög til almannaheilla, 23. júní 2020 – þskj. 1799 á 150. lögþ.
Menningar- og viðskiptaráðuneyti.
          Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um félög til almannaheilla, 23. júní 2020 – þskj. 1799 á 150. lögþ.
Utanríkisráðuneyti.
          Þingsályktun 26/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 um breytingu á bókun 31 (samvinna á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn (sameiginlegar efndir samkvæmt Parísarsamningnum fyrir árin 2021–2030), 5. mars. 2020 – þskj. 1080.
          Þingsályktun 29/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn, 11. maí 2020 – þskj. 1374.
          Þingsályktun 31/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 259/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 11. maí 2020 – þskj. 1376.
          Þingsályktun 32/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 311/2019 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn, 11. maí 2020 – þskj. 1377.
          Þingsályktun 33/150 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 288/2019 og nr. 301/2019 um breytingar á I. viðauka (heilbrigði dýra og plantna) og II. viðauka (tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, 11. maí 2020 – þskj. 1378.
          Þingsályktun 34/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 19. maí 2020 – þskj. 1461.
          Þingsályktun 35/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn, 19. maí 2020 – þskj. 1462.
          Þingsályktun 36/150 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 19. maí 2020 – þskj. 1463.
          Þingsályktun 2/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 25. nóvember 2020 – þskj. 406.
          Þingsályktun 3/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 25. nóvember 2020 – þskj. 407.
          Þingsályktun 4/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 25. nóvember 2020 – þskj. 408.
          Þingsályktun 5/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn, 25. nóvember 2020 – þskj. 409.
          Þingsályktun 6/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 25. nóvember 2020 – þskj. 410.
          Þingsályktun 7/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/2020 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn, 7. desember 2020 – þskj. 513.
          Þingsályktun 9/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2020 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn, 8. desember 2020 – þskj. 527.
          Þingsályktun 30/150 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2019 og nr. 305/2019 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, 11. maí 2020 – þskj. 1375 á 150. lögþ.
          Þingsályktun 1/151 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. 25. nóvember 2020 – þskj. 405 á 151. lögþ.
          Þingsályktun 10/151 um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2021, 16. desember 2020 – þskj. 634 á 151. lögþ.


1     Skýrsla innviðaráðherra um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í fasteignum og um réttarstöðu eigenda þeirra, 153. löggjafarþing 2022–2023, þingskjal 940 – 268. mál.