Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 222  —  220. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn.


Frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 frá 12. júní 2020 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 frá 19. mars 2019 um að taka í notkun höfuðlénið .eu og hlutverk þess og um breytingu og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 733/2002 sem og niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 frá 12. júní 2020 um breytingu XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 (sbr. fskj. I), og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 frá 19. mars 2019 um að taka í notkun höfuðlénið .eu og hlutverk þess og um breytingu og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 733/2002 sem og niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 (sbr. fskj. II).
    Þar sem innleiðing fyrrnefndrar gerðar krefst breytinga á lögum var ákvörðun nr. 83/2020 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðanna sem hér um ræðir. Þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast.

2. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, „Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins“, kemur fram að frá árinu 1994 til ársloka 2016 hafi Ísland tekið upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Helstu efnistök reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2019/517 frá 12. júní 2019.
    Reglugerðin felur í sér breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 733/2002 frá 22. apríl 2002 um að taka í notkun .eu höfuðlénið sem og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 frá 28. apríl 2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu. Með tillögunni er ætlunin að gera reglurnar um höfuðlénið .eu sveigjanlegri og betri í notkun.
    Með tillögunni á að fella niður óþarfar reglur um lénið .eu og hafa reglurnar þannig að af þeim hljótist sem minnst umstang. Þetta er gert í ljósi þess að samkeppni fer væntanlega vaxandi um skráningu og úthlutun léna. Draga á úr íþyngjandi málsmeðferð og umsýslu við skráningu lénsins og slaka á úthlutunarskilyrðum.
    Tillagan felur hvorki í sér eðlisbreytingu á starfsemi höfuðlénsins .eu frá því sem nú er né er verið að auka íþyngjandi kvaðir. Fremur er markmiðið að slaka á kröfum og gera reglurnar sveigjanlegri og betri í notkun.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Afar takmarkað er fjallað í íslenskum lögum um lén og því er ekki til staðar lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðarinnar. Til að ráða bót á þessu var frumvarp til laga um íslensk landshöfuðlén lagt fram á Alþingi á vorþingi 2020 (612. mál, þskj. 1031), og verður lagt fram að nýju á haustþingi 2020. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir lagastoð vegna innleiðingar á reglum er varða .eu höfuðlénið.
    Með því að tryggja rétta innleiðingu á gerðum er varða .eu höfuðlénið eru íslenskum neytendum og fyrirtækjum tryggður aðgangur að því að skrá lén undir .eu höfuðléninu, líkt og öðrum borgurum innan Evrópska Efnahagssvæðisins stendur til boða.

5. Samráð við Alþingi.
    Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en taka ekki gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 var send utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfi frá utanríkismálanefnd Alþingis, dags, 26. febrúar 2020, kemur fram að nefndin hafi fjallað um gerðina og ekki hafi verið gerðar athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.


Fylgiskjal I.



Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 frá 12. júní 2020 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/151/fylgiskjol/s0222-f_I.pdf



Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 frá 19. mars 2019 um að taka í notkun höfuðlénið .eu og hlutverk þess og um breytingu og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 733/2002 sem og niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004.

www.althingi.is/altext/pdf/151/fylgiskjol/s0222-f_II.pdf