Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 858 — 454. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um rannsókn á Julian Assange.
1. Hvað er hæft í fullyrðingum, sem m.a. komu fram á mbl.is og ruv.is 4. janúar sl., um að Ísland hafi veitt bandarískum stjórnvöldum leyfi til að útbúa fölsuð trúnaðargögn í tengslum við rannsókn á Julian Assange?
Samkvæmt lögum er dómsmálaráðuneytið miðlægt stjórnvald þegar kemur að gagnkvæmri alþjóðlegri réttaraðstoð. Hlutverk ráðuneytisins í slíkum málum er eingöngu að leggja mat á hvort skilyrði laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984, sem og ákvæði annarra laga sem við eiga séu uppfyllt. Telji ráðuneytið svo vera er beiðnin framsend viðeigandi stjórnvaldi, þ.e. ríkissaksóknara, til frekari meðferðar.
Rétt er að taka fram að íslenskt sakamálaréttarfar byggist á því grundvallarsjónarmiði að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa á hverjum tíma. Af þessu leiðir að dómsmálaráðuneyti og dómsmálaráðherra hafa engin afskipti af sakamálarannsóknum á Íslandi. Ráðuneytið getur enn fremur ekki tjáð sig um einstök sakamál sem eru til rannsóknar.
Alþjóðleg samvinna á sviði sakamála felur þó í sér, þrátt fyrir framangreint, ákveðna aðkomu dómsmálaráðuneytisins en sú aðkoma fer þó sífellt minnkandi, sbr. m.a. lög nr. 157/2020 um breytingu á lögum nr. 13/1984 sem tóku gildi 6. janúar 2021. Brýnt er að túlka hlutverk ráðuneytisins í alþjóðlegum sakamálarannsóknum í samræmi við þá meginreglu sem fjallað er um hér á undan.
Varðandi málsmeðferð erlendra réttarbeiðna þá er dómsmálaráðuneytið miðlægt stjórnvald eins og áður segir og er mælt fyrir um meðferð slíkra mála í lögum nr. 13/1984 og samningum sem íslenska ríkið hefur gengist undir. IV. kafli laganna geymir ákvæði um réttaraðstoð í sakamálum, en gagnkvæm réttaraðstoð í sakamálum hefur einkum snúist um að afla sönnunargagna vegna rannsóknar í sakamálum í öðru ríki. Hún kann að vera fólgin í yfirheyrslu vitna eða grunaðra, húsleit, haldlagningu, lokun reikninga, birtingu fyrirkalla eða annarra skjala, svo dæmi séu tekin.
Ef erlent ríki óskar eftir aðstoð skal leita eftir henni með svokallaðri réttarbeiðni. Sé ekki til staðar samningur við ríki um framsal og aðra aðstoð í sakamálum skal beiðnin send ráðuneytinu, sbr. 3. mgr. 22. gr. laga nr. 13/1984. Í réttarbeiðni skulu vera upplýsingar um tegund afbrots og hvar og hvenær það var framið, sbr. 3. mgr. 22. gr. laganna. Er hér átt við afbrot það sem er til rannsóknar í því ríki sem biður um aðstoð. Samkvæmt 4. mgr. 3. gr. er óheimilt að verða við beiðni ef verknaðurinn sem hún er tilkomin vegna eða sambærilegur verknaður er ekki refsiverður samkvæmt íslenskum lögum eða ef hann samkvæmt ákvæðum í 5.–7. gr. laganna getur ekki verið grundvöllur framsals. Hafni dómsmálaráðuneytið ekki þegar beiðni um réttaraðstoð, sbr. skilyrði 3. mgr. 22. gr. laganna, eða vegna þess að ljóst þykir að ekki er hægt að verða við henni, skal málið sent til ríkissaksóknara til frekari fyrirgreiðslu og skal hann hlutast til um að nauðsynleg rannsókn fari fram, sbr. 5. mgr. 22. gr. laganna.
Réttarbeiðni um aðstoð frá erlendum yfirvöldum ber að meta með sama hætti og ef aðgerðirnar ætti að framkvæma í íslensku sakamáli á grundvelli íslenskra laga. Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, skulu erindi frá erlendum dómstólum og yfirvöldum um aðgerðir hér á landi í tengslum við sakamál sæta meðferð samkvæmt þeim lögum, þ.e. íslenskum lögum um meðferð sakamála. Í einhverjum tilvikum kunna erlend yfirvöld að setja fram sérstakar formkröfur í tengslum við rannsóknaraðgerðir, t.d. um eiðfastar skýrslur eða annað slíkt. Orðið er við slíkum beiðnum nema þær eða framkvæmd þeirra sé í andstöðu við íslensk lög.
Þegar efni réttarbeiðninnar hefur verið framkvæmt og rannsókn hefur verið lokið sendir ríkissaksóknari dómsmálaráðuneytinu öll gögn málsins og álitsgerð um það. Í kjölfarið sendir ráðuneytið gögn málsins til viðkomandi ríkis.
Fyrirspurn þessi varðar rannsókn á sakamáli í Bandaríkjunum en sem liður í rannsókninni hefur alþjóðleg réttarbeiðni borist til Íslands, nánar tiltekið til ráðuneytisins. Líkt og að framan greinir getur ráðuneytið ekki tjáð sig um einstök sakamál sem eru til rannsóknar enda hefur ráðuneytið ekki upplýsingar um að rannsókn málsins sé lokið í Bandaríkjunum. Fyrirspurnin lýtur þannig ekki að opinberu málefni skv. 1. mgr. 57. gr., sbr. 3. mgr. 49. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis. Með vísan til þess að margir þættir þessa máls hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarin ár og margsinnis hefur komið opinberlega fram að alþjóðleg réttarbeiðni hafi borist ráðuneytinu vegna málsins, er þó talið rétt að upplýsa um eftirfarandi. Eins og hér hefur verið lýst kemur ekki til þess að ráðuneytið taki efnislega afstöðu til einstakra rannsóknaraðgerða í þeim réttarbeiðnum sem berast heldur er það í höndum þar til bærra yfirvalda hér á landi, þ.e. ákæruvalds og lögreglu, að leggja mat á aðgerðirnar og hvort þær samræmist íslenskum lögum. Í tilefni af fyrirspurninni þótti samt sem áður rétt að yfirfara öll gögn sem til eru í málaskrá fyrrum innanríkisráðuneytis og málaskrá dómsmálaráðuneytisins og varða mál þetta. Að þeirri yfirferð lokinni, og með vísan til þess sem hér hefur verið rakið um hlutverk ráðuneytisins í þessum málum, er unnt að fullyrða að ráðuneytið veitti engar heimildir eða leyfi fyrir því að útbúin yrðu fölsuð trúnaðargögn í tengslum við þá rannsókn sem fyrirspurn þessi lýtur að.
2. Ef íslensk stjórnvöld hafa samþykkt slíka fölsun í þágu tálbeituaðgerðar,
a. um hvaða gögn er að ræða,
b. hvaða stofnanir innan stjórnkerfisins fjölluðu um beiðni bandarískra stjórnvalda,
c. hvaða aðili veitti leyfið, og
d. var málið rætt við ráðherra eða var um það fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar?
Með vísan til framangreinds er ekki ástæða til að svara 2. lið fyrirspurnarinnar.