Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 295, 152. löggjafarþing 189. mál: kosningalög (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga).
Lög nr. 137 30. desember 2021.

Lög um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir ákvæði 7. tölul. 2. mgr. 22. gr., 143. gr. og 3. tölul. 144. gr. skulu lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lög um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, halda gildi sínu við atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga á grundvelli 38. gr., 107. gr. og 119. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sem fara fram fyrir 14. maí 2022. Fer um framkvæmd þeirra atkvæðagreiðslna eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eftir því sem við getur átt.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 28. desember 2021.