Þingskjal 1998, 139. löggjafarþing 726. mál: sveitarstjórnarlög (heildarlög).
Lög nr. 138 28. september 2011.
Sveitarstjórnarlög.
1. gr.
Með stjórn sveitarfélaga fara sveitarstjórnir sem kjörnar eru lýðræðislegri kosningu af íbúum þeirra samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.
Hver maður telst íbúi sveitarfélags þar sem hann á lögheimili.
Sveitarfélög eru lögaðilar.
2. gr.
Ráðherra sveitarstjórnarmála skal gæta að og virða sjálfstjórn sveitarfélaganna, verkefni þeirra og fjárhag.
Engu málefni sem varðar sérstaklega hagsmuni sveitarfélags skal ráðið til lykta án umfjöllunar sveitarstjórnarinnar.
3. gr.
- sveitarfélög séu sjálfstæð stjórnvöld sem er stjórnað af lýðræðislega kjörnum sveitarstjórnum í umboði íbúa sveitarfélagsins,
- skipulag og starfsaðstæður sveitarfélaga séu þannig að þau geti sjálf borið ábyrgð á framkvæmd verkefna sem þeim er falið að sinna,
- sveitarfélög geti haft samvinnu sín á milli um starfrækslu þeirra verkefna sem þau geta ekki leyst af hendi á eigin vegum eða þau telja hagkvæmara að leysa með þeim hætti,
- afskipti annarra stjórnvalda af málefnum sveitarfélaga taki ávallt mið af sjálfstjórn sveitarfélaga samkvæmt stjórnarskrá og sáttmála Evrópuráðsins um sjálfstjórn sveitarfélaga,
- sveitarfélög hafi sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrám sem þeim er heimilt að setja.
4. gr.
Óheimilt er að breyta mörkum sveitarfélaga nema með lögum.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur ráðherra breytt mörkum sveitarfélaga í tengslum við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi milli sveitarfélaga. Birta skal staðfestingu ráðherra á breytingum staðarmarka sveitarfélags í Stjórnartíðindum.
Réttur sveitarfélaga til ákvarðana eða umsagna um nýtingu sjávarbotns eða sjávar innan íslenskrar lögsögu en utan marka sveitarfélags fer að ákvæðum sérlaga hverju sinni.
5. gr.
Ekki má breyta nafni sveitarfélags eða gefa nýju sveitarfélagi nafn nema með staðfestingu ráðuneytisins. Þegar nýtt heiti sveitarfélags hefur verið ákveðið skal samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, sbr. 9. gr., breytt til samræmis og tekur nýtt heiti gildi við gildistöku hennar.
6. gr.
Byggðarmerki skulu skráð hjá Einkaleyfastofu sem veitir umsóknum viðtöku og kannar skráningarhæfi merkjanna.
Viðkomandi ráðherra setur nánari reglur um skráningu byggðarmerkja, m.a. varðandi umsóknir og meðferð þeirra, skilyrði fyrir skráningu, ógildingu, birtingu og gjöld fyrir umsóknir og vottorð úr byggðarmerkjaskrá.
7. gr.
Sveitarfélög skulu vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Sveitarfélög geta tekið að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þeirra, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
8. gr.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins. Sveitarstjórn skal sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélags.
Sveitarstjórn getur ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði sveitarfélagið.
9. gr.
Ráðuneytið semur fyrirmynd að samþykkt skv. 1. mgr. og birtir hana í Stjórnartíðindum. Gildir fyrirmyndin þar til sérstök samþykkt hefur verið gerð fyrir sveitarfélagið.
10. gr.
Reykjavík er höfuðborg Íslands. Í Reykjavíkurborg nefnist sveitarstjórnin borgarstjórn, byggðarráð nefnist borgarráð, framkvæmdastjóri nefnist borgarstjóri og oddviti nefnist forseti borgarstjórnar.
11. gr.
- Þar sem íbúar eru undir 2.000: 5–7 aðalmenn.
- Þar sem íbúar eru 2.000–9.999: 7–11 aðalmenn.
- Þar sem íbúar eru 10.000–49.999: 11–15 aðalmenn.
- Þar sem íbúar eru 50.000–99.999: 15–23 aðalmenn.
- Þar sem íbúar eru 100.000 eða fleiri: 23–31 aðalmenn.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ekki skylt að fækka eða fjölga aðalmönnum í sveitarstjórn fyrr en íbúatala hefur verið hærri eða lægri en viðmiðunarmörkin í fjögur ár samfellt, talið frá næstu áramótum fyrir almennar kosningar til sveitarstjórna. Íbúatala grundvallast á íbúaskrá þjóðskrár.
12. gr.
Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórninni boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar átt jafnlengi setu í sveitarstjórninni fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein. Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
13. gr.
Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði.
Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en nú á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu oddvita skjal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita, enda fari ekki um kosningu hans skv. 5. mgr.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags má ákveða að kjósa skuli fyrsta og annan varaoddvita til að gegna, í þeirri röð, störfum oddvita í forföllum hans. Skal kosning þeirra vera hlutfallskosning, enda sé ekki full samstaða um annað innan sveitarstjórnar.
Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis þegar að því loknu.
Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er hið sama og sveitarstjórnar nema sveitarstjórn ákveði annað. Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi.
14. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
15. gr.
Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.
Íbúum sveitarfélags skal kunngert með opinberri auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórn heldur fundi. Einnig skal sveitarstjórn birta opinberlega innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarmenn fundarboð og dagskrá fundar, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi. Auglýsing á vefsíðu sveitarfélags telst fullnægjandi.
16. gr.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélags séu viðstaddir.
17. gr.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
Ef fjarlægðir í sveitarfélagi eru miklar eða samgöngur innan sveitarfélags eru erfiðar er heimilt að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar. Skal þá mælt fyrir um notkun slíks búnaðar í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
18. gr.
- samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra,
- staðfestingu ársreiknings,
- stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélags í heild eða meiri hluta þess,
- tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.
19. gr.
Ráðherra setur með auglýsingu leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna, m.a. um hvað þar er skylt að bóka, um staðfestingu þeirra þegar að loknum fundi og skráningu og meðferð rafrænna fundargerða. Þar skal einnig setja nánari viðmið um framkvæmd fjarfunda skv. 3. mgr. 17. gr.
20. gr.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélags að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélags.
Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Sveitarstjórnarmenn eða nefndarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa eða taka ákvörðun í tilteknu máli sem lagt er fyrir sveitarstjórn eða nefnd eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin eða nefndin fjallar um málið. Þetta á þó ekki við um framkvæmdastjóra.
Ákvæði 4. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn eða viðkomandi nefnd fjallar um og afgreiðir ársreikninga, fjárhagsáætlanir, skipulagsáætlanir og aðrar almennar áætlanir sveitarfélagsins, enda eigi sveitarstjórnarmaður eða nefndarmaður ekki sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta umfram aðra við afgreiðslu viðkomandi málefnis.
Sveitarstjórnarmaður, nefndarfulltrúi eða starfsmaður sveitarfélags sem veit hæfi sitt eða annars orka tvímælis skal án tafar vekja athygli oddvita, formanns nefndar eða næsta yfirmanns á því.
Sveitarstjórn tekur ákvörðun um hæfi sveitarstjórnarmanns til meðferðar og afgreiðslu einstakra mála. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Nefnd tekur ákvörðun um hæfi nefndarmanns. Nefndarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Sveitarstjórnarmaður eða nefndarmaður sem er vanhæfur til meðferðar máls má ekki taka þátt í meðferð þess eða hafa áhrif á það með öðrum hætti og skal ávallt yfirgefa fundarsal við meðferð þess og afgreiðslu.
21. gr.
Þegar kosið hefur verið til sveitarstjórnar hlutbundinni listakosningu, eða listi hefur verið sjálfkjörinn, taka varamenn af lista aðalfulltrúa sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir.
Ef framboðslisti hefur verið borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um að varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður, taki sæti hans í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn varamaður af viðkomandi lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og sá aðalfulltrúi sem í hlut á taka varamenn listans sæti samkvæmt venjulegum reglum. Hér skal ávallt miðað við stöðu viðkomandi á þeim tíma er kjör til sveitarstjórnar fór fram.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar að loknum sveitarstjórnarkosningum og gildir hún til loka kjörtímabils.
22. gr.
23. gr.
Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi starf fer fram.
24. gr.
Sveitarstjórnarmönnum ber að gegna starfi sínu af alúð og samviskusemi. Sveitarstjórnarmönnum ber í hvívetna að gæta að almennum hagsmunum íbúa sveitarfélagsins sem og öðrum almannahagsmunum.
25. gr.
26. gr.
Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.
27. gr.
Mál sem ekki er tilgreint á útsendri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/ 3 hluta fundarmanna.
28. gr.
Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.
Sveitarstjórn skal í samþykkt um stjórn sveitarfélags mæla nánar fyrir um rétt sveitarstjórnarmanna til að fá afhent afrit gagna sem falla undir 1. mgr. og um fyrirkomulag og framkvæmd aðgangs að skrifstofu og stofnunum sveitarfélags skv. 2. mgr.
Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
29. gr.
Siðareglur sveitarstjórnar skulu birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélagsins eða á sambærilegan hátt.
Öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við settar siðareglur.
Samband íslenskra sveitarfélaga skipar nefnd sem veitt getur álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim. Ráðuneytið getur borið tillögur sveitarstjórna um siðareglur undir nefndina áður en það tekur þær til staðfestingar.
30. gr.
Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, svo sem vegna veikinda eða annarrar vinnu, getur sveitarstjórn létt af honum störfum eða veitt honum lausn úr sveitarstjórn, að hans ósk, um tiltekinn fyrir fram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar sveitarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélagi um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarmaður flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir sveitarstjórnarmaður kjörgengi samkvæmt hefðbundnum reglum.
Ef sveitarstjórnarmaður missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
31. gr.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilbrigðisástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.
32. gr.
Nú tekst sveitarstjórnarmaður ferð á hendur í þágu sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar og á hann þá rétt til greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Sveitarstjórn er heimilt að setja nánari reglur um réttindi sveitarstjórnarmanna samkvæmt þessari grein, svo sem varðandi lífeyrissjóði, fæðingarorlof og biðlaun.
Sveitarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
33. gr.
Sé starfsmanni sem hefur boðið sig fram til sveitarstjórnar eða verið kjörinn í sveitarstjórn sagt upp starfi skal vinnuveitandi hans sýna fram á að ástæður uppsagnar sé ekki að rekja til þeirra atriða.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á fjarveru úr starfi að því leyti sem honum er nauðsynlegt til að sinna lögbundinni mætingarskyldu á fundi í sveitarstjórn, hjá nefndum sveitarfélagsins og á aðra fundi sem hann hefur verið kjörinn til að sækja fyrir hönd sveitarstjórnar. Teljist viðvera starfsmanns nauðsynleg vegna sérstakra og rökstuddra atvika getur atvinnuveitandi þó hafnað ósk starfsmanns um fjarveru.
34. gr.
35. gr.
Byggðarráð telst til fastanefnda sveitarstjórnar, sbr. 37. gr. Ákvæði þessa kafla, þar á meðal um framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála, eiga við um byggðarráð að því leyti sem annað er ekki sérstaklega tekið fram.
Byggðarráð fer ásamt framkvæmdastjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Byggðarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir sveitarstjórn. Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.
Heimilt er að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélags að byggðarráð taki að meira eða minna leyti við starfi annarra fastanefnda sveitarstjórnar. Þá er heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélags að ályktanir, tillögur og fundargerðir annarra nefnda megi leggja fyrir byggðarráð til umfjöllunar áður en þær eru lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða endanlegrar afgreiðslu.
Byggðarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina, en meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella. Þá er heimilt að fela byggðarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála sem samkvæmt samþykktum sveitarfélags hafa áður komið til umfjöllunar annarra nefnda sveitarstjórnar.
36. gr.
Fjöldi aðalmanna í byggðarráði skal standa á oddatölu. Aðalmenn í byggðarráði skulu ekki vera fleiri en nemur helmingi af aðalfulltrúum í sveitarstjórn, þó mest níu. Kjósa skal jafnmarga aðal- og varamenn.
Aðalmenn í byggðarráði skulu koma úr hópi aðalmanna í sveitarstjórn. Varamenn skal einnig velja úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórninni. Heimilt er þó að ákveða að aðalfulltrúar og varafulltrúar af sama framboðslista og hinn kjörni byggðarráðsmaður verði varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn kýs formann og varaformann byggðarráðs úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna.
37. gr.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnarinnar, nema annað leiði af lögum eða samþykktum um stjórn sveitarfélagsins. Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr.
Heimilt er sveitarstjórn að sameina nefndir þannig að ein nefnd fari með verkefni á fleiri en einu sviði þó að svo sé kveðið á í lögum að kjósa skuli sérstaka nefnd til að fara með tiltekin verkefni.
Í sveitarfélögum þar sem erfiðlega horfir með að manna nefndir er sveitarstjórn heimilt að fara sjálf með verkefni lögskipaðrar nefndar nema verkefni hennar sé ósamrýmanlegt störfum sveitarstjórnar að mati ráðuneytisins.
38. gr.
Ef mælt er fyrir um kosningu slíkrar nefndar í lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélags telst hún til fastanefnda sveitarstjórnar.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags má ákveða að nefnd samkvæmt þessari grein skuli kosin af íbúum viðkomandi hluta sveitarfélags sem kosningarrétt eiga samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna. Eru þá jafnframt aðeins kjörgengir í nefndina íbúar viðkomandi hluta sveitarfélagsins.
Ákvörðun skv. 3. mgr. er háð samþykki ráðuneytisins og er m.a. háð því skilyrði að hægt sé að gefa út kjörskrárstofn fyrir þann hluta sveitarfélagsins sem um ræðir, sbr. 4. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna. Um kosningu samkvæmt grein þessari gilda að öðru leyti ákvæði þeirra laga.
Ákvæði 44., 45. og 49. gr. gilda ekki um skipun nefndar sem er kosin skv. 3. mgr. Að öðru leyti gilda um störf slíkrar nefndar, kjörgengi, réttindi og skyldur nefndarmanna og aðra þætti ákvæði þessara laga eftir því sem við getur átt.
39. gr.
Í nefndir samkvæmt þessari grein má kjósa einstaklinga sem ekki hafa náð aldri til að njóta kosningarréttar í sveitarfélagi og einstaklinga sem ekki eiga þar lögheimili.
40. gr.
Hafi nefnd ekki verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljast ályktanir hennar tillögur til sveitarstjórnar enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar.
41. gr.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn eða byggðarráð eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Eftir því sem við á gildir ákvæði þetta einnig um afgreiðslu sveitarstjórnar á fundargerðum byggðarráðs.
42. gr.
Á sama hátt og með sömu skilyrðum er sveitarstjórn heimilt að fela einstökum starfsmönnum sveitarfélags fullnaðarafgreiðslu mála. Sveitarstjórn, byggðarráð eða hlutaðeigandi fastanefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem eru teknar á grundvelli hennar. Þessi málsgrein hefur þó ekki áhrif á almennar heimildir starfsmanna sveitarfélags til töku ákvarðana sem varða daglegan rekstur og þjónustu sveitarfélags og teljast leiða af stöðuumboði þeirra.
Sá starfsmaður sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 2. mgr., eða þriðjungur hlutaðeigandi fastanefndar skv. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að sveitarstjórn, byggðarráð eða viðkomandi fastanefnd samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins taki ákvörðun í máli.
Þegar sveitarstjórn nýtir heimildir skv. 1. eða 2. mgr. skal jafnframt kveða á um það í samþykkt sveitarfélagsins hver skuli taka fullnaðarákvörðun í máli skv. 3. mgr. og hvernig skuli fara með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.
43. gr.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.
44. gr.
- Leggja skal fram lista þar sem fram koma tillögur um fulltrúa í viðkomandi nefnd. Hver sveitarstjórnarmaður getur aðeins staðið að tillögu um einn lista í hverja nefnd. Listi getur innihaldið allt að tvöföldum þeim fulltrúafjölda sem kjósa skal til nefndarinnar. Nafn sveitarstjórnarmanns má aðeins setja á þann lista sem hann sjálfur stendur að tillögu um.
- Ef velja á tvo eða þrjá fulltrúa í nefnd skal a.m.k. einn af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á fjóra eða fimm fulltrúa skulu a.m.k. tveir af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á sex til átta í nefnd skulu a.m.k. þrír af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á níu fulltrúa skulu a.m.k. fjórir af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á fleiri í nefnd skulu a.m.k. 40% af hvoru kyni vera á lista. Ef kjörgengi í nefnd er bundið við sveitarstjórnarmenn eða varamenn þeirra á þessi regla þó ekki við. Hið sama á við ef kjörgengi í nefnd er bundið með þeim hætti að ekki er fært að fullnægja kröfum samkvæmt þessum lið.
- Tillaga um lista skal lögð fram skriflega og undirrituð af a.m.k. einum þeirra sveitarstjórnarmanna sem standa að henni. Ef gerð er tillaga um fulltrúa sem ekki er skylt að taka kjöri í viðkomandi nefnd skal liggja fyrir samþykki hans fyrir tilnefningunni.
45. gr.
- Nefndarsætum er deilt á viðkomandi lista í hlutfalli við þau atkvæði sem hver listi fær á grundvelli eftirfarandi reglu: Deila skal atkvæðatölum listanna með tölunum 1, 2, 3, 4 o.s.frv. Útkomutölur eru skráðar fyrir hvern lista.
- Þegar ákveðnar hafa verið útkomutölur fyrir hvern lista skal ákvarða hvaða fulltrúar hafa fengið kosningu í nefnd. Það er gert á eftirfarandi hátt: Fyrsta fulltrúa fær sá listi sem hefur hæsta útkomutölu. Sú tala er síðan felld niður. Annan fulltrúa fær sá listi sem nú hefur hæsta útkomutölu. Þessu skal fram haldið þar til úthlutað hefur verið jafnmörgum fulltrúum og kjósa á.
- Ef of fá nöfn eru á lista þegar til úthlutunar kemur skal ganga fram hjá þeim lista við frekari úthlutun. Ef tvær eða fleiri útkomutölur eru jafnháar skal varpa hlutkesti.
- Ef í ljós kemur að þessu loknu að annað kynið hefur ekki eins marga fulltrúa af hverjum lista fyrir sig og krafist er í 2. tölul. 44. gr. skal færa einstaklinga af því kyni sem fulltrúa vantar svo langt upp listann sem þarf þannig að tilskilið hlutfall náist.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. við skipun í viðkomandi nefnd.
46. gr.
47. gr.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn, og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn af þeim lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
48. gr.
Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.
Ákvæði þessa kafla um varamenn eiga einnig við um varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.
49. gr.
Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/ 3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélags skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. um kynjahlutföll.
50. gr.
Réttur skv. 2. og 3. málsl. 1. mgr. nær ekki til barnaverndarnefnda. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn.
Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skv. 1. mgr. skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.
51. gr.
52. gr.
Ákvæði III. og IV. kafla gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélaga eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem viðkomandi fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
53. gr.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélagi væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélags í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
54. gr.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími framkvæmdastjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar. Heimilt er að semja um gagnkvæman uppsagnarfrest innan ráðningartíma.
55. gr.
Framkvæmdastjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda sveitarstjórnar.
Framkvæmdastjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.
Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarfélags. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags skal setja nánari ákvæði um verksvið framkvæmdastjóra og mörk milli þess og ákvörðunarvalds sveitarstjórnar og byggðarráðs.
56. gr.
57. gr.
Starfsmenn sveitarfélaga og aðrir sem sveitarfélög ráða til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
58. gr.
- staðfestingu ársreiknings,
- fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
- fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
- viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
- lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélags,
- sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
- álagningu skatta og gjalda,
- ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags er heimilt að fela byggðarráði að taka fullnaðarákvarðanir í þeim málefnum sem tilgreind eru í 5. og 6. tölul. 1. mgr., enda sé ekki um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða og ákvörðun rúmist innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar til fjögurra ára, eigi hún við.
59. gr.
60. gr.
- A-hluti, sem í lögum þessum merkir aðalsjóð sveitarfélags auk annarra sjóða og stofnana sem sinna starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð af skatttekjum.
- B-hluti, sem í falla stofnanir sveitarfélaga, fyrirtæki og aðrar rekstrareiningar sem að hálfu eða meiri hluta eru í eigu sveitarfélaga og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar.
Sveitarfélögum er heimilt eftir því sem leiðir af viðkomandi lagareglum að ákveða sér eðlilegan afrakstur af því fjármagni sem er bundið í rekstri stofnana þeirra og fyrirtækja.
61. gr.
Í ársreikningi skal koma fram samanburður við
- ársreikning undanfarins árs,
- upphaflega fjárhagsáætlun ársins,
- fjárhagsáætlun ársins ásamt viðaukum.
Ársreikningur sveitarfélags skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði eða framkvæmdastjóra sveitarfélags þar sem ekki er byggðarráð og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélags, stofnana sveitarfélags og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.
62. gr.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.
Byggðarráð eða framkvæmdastjóri, eftir því sem kveðið er á um í samþykkt um stjórn sveitarfélags, leggur tillögu um fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um þær á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða þær, þó ekki síðar en 15. desember. Ráðherra getur að ósk sveitarstjórnar veitt henni lengri tíma til afgreiðslu fjárhagsáætlunar ef brýn nauðsyn krefur.
Tillögum skv. 3. mgr. skulu fylgja upplýsingar um þær forsendur sem byggt er á. Tillögunum skal fylgja lýsing helstu framkvæmda og skuldbindinga sem gert er ráð fyrir.
63. gr.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.
Í reglugerð sem sett er á grundvelli 75. gr. er heimilt að skilgreina þau tilvik þar sem tilfærslur innan málaflokka eru heimilaðar án þess að fyrir liggi samþykktur viðauki, sbr. 1. málsl. 2. mgr. Þó skulu allar slíkar breytingar færðar í viðauka við fyrsta tækifæri.
64. gr.
Skyldu skv. 1. mgr. skal sveitarstjórn fullnægja m.a. með því að:
- samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. séu á hverju þriggja ára tímabili ekki hærri en nemur samanlögðum reglulegum tekjum, og
- heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. séu ekki hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum.
Ráðherra skilgreinir í reglugerð nánar þau viðmið sem lögð eru til grundvallar skv. 2. mgr., þar á meðal um útgjöld, tekjur, eignir, skuldir og skuldbindingar og aðlögun sveitarfélaga að þeim. Þar skal jafnframt heimilt að undanþiggja nánar tilgreindar skuldir eða skuldbindingar einstakra sveitarfélaga þannig að þær hafi engin eða aðeins hlutfallsleg áhrif skv. 2. tölul. 2. mgr.
65. gr.
66. gr.
Í mati skal gera grein fyrir kostnaðaráætlun og forsendum hennar, áhrifum á fjárhag sveitarfélags til lengri tíma og áhrifum af rekstrarkostnaði sé um hann að ræða. Í þeim tilvikum sem fjárfestingu, framkvæmd eða skuldbindingu er skipt á fleiri en eitt tímabil eða einingar skal líta á ákvörðunina í heild sinni. Mat skal framkvæmt af sérfróðum aðila sem ekki er tengdur sveitarfélaginu.
67. gr.
68. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. getur sveitarfélag veitt Lánasjóði sveitarfélaga ohf. veð í tekjum sínum vegna lána sem það tekur hjá sjóðnum og vegna ábyrgða sem það veitir honum skv. 1. og 2. mgr. 69. gr. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um tryggingar lánasjóðsins samkvæmt þessari málsgrein.
69. gr.
Sveitarfélag getur einnig veitt einfalda ábyrgð til tryggingar á lánum stofnana og fyrirtækja sem það á og rekur í samvinnu við önnur sveitarfélög eða aðra opinbera aðila. Innbyrðis skal ábyrgð eigenda skiptast í hlutfalli við eignarhlut. Skilyrði er að viðkomandi lögaðili sé að fullu í eigu opinberra aðila, að trygging sé bundin við lántöku vegna lögákveðins verkefnis sveitarfélaga og að allir eigendur ábyrgist lán í samræmi við eignarhlut sinn. Ábyrgð fellur úr gildi ef lögaðili færist að einhverju leyti í eigu einkaaðila.
Sveitarfélag má ekki ganga í ábyrgðir vegna annarra skuldbindinga en greinir í 1. og 2. mgr. Prókúruhafa sveitarfélags er þó heimilt fyrir þess hönd að ábyrgjast með framsalsáritun greiðslu viðskiptaskjala sem sveitarfélagið hefur eignast á eðlilegan hátt í tengslum við daglegan rekstur þess.
70. gr.
Fjármálastofnun má ekki nýta fjármuni sem sveitarfélag hefur afhent henni til varðveislu skv. 65. gr. til skuldajafnaðar til fullnustu kröfu sem stofnunin kann að eiga á sveitarfélagið.
71. gr.
72. gr.
Endurskoðandi skal endurskoða ársreikning sveitarfélags skv. 61. gr. í samræmi við 1. mgr. og í því sambandi kanna bókhaldsgögn sveitarfélagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu. Endurskoðandi skal gera grein fyrir áliti sínu í áritun sinni á ársreikninginn.
Endurskoðandi sveitarfélags skal jafnframt kanna hvort fullnægjandi heimildir hafi verið fyrir útgjöldum og hvort almenn stjórnsýsla sveitarfélags og einstakar ákvarðanir af hálfu þess eru í samræmi við reglur um fjármál sveitarfélags, ábyrga fjármálastjórn og upplýsingaskyldu sveitarfélaga.
Endurskoðandi sveitarfélags skal skila skriflegri skýrslu til sveitarstjórnar um mikilvæg atriði sem fram hafa komið við endurskoðun ársreiknings og könnun skv. 3. mgr. Í skýrslunni skal sérstaklega, ef við á, geta um veikleika í innra eftirliti í vinnuferli við gerð reikningsskila.
Sveitarstjórn skal veita endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki aðgang að öllum þeim upplýsingum og gögnum sem þörf er á vegna endurskoðunar. Reglur um þagnarskyldu takmarka ekki rétt endurskoðenda í þessu efni.
Endurskoðandi sem ber ábyrgð á endurskoðun sveitarfélags skal taka sér hlé frá endurskoðun þess í a.m.k. tvö ár samfellt eigi síðar en sjö árum eftir að hann var ráðinn til verksins.
Endurskoðandi sveitarfélags skal vera óháður sveitarfélaginu, bæði í reynd og ásýnd, sbr. lög um endurskoðendur. Endurskoðanda er óheimilt að taka þátt í ákvörðunum sveitarstjórnar eða stjórnenda sveitarfélags sem geta leitt til þess að hlutleysi hans við framkvæmd endurskoðunarstarfa sé stefnt í hættu.
73. gr.
Berist sveitarstjórn skriflegt álit endurskoðanda um að reikningsskil eða fjármál sveitarfélags séu ekki í samræmi við kröfur skal oddviti tryggja að álitið hafi borist öllum aðalmönnum í sveitarstjórn ekki síðar en sjö dögum eftir að það liggur fyrir.
Endurskoðandi sveitarfélags getur krafist þess sérstaklega að álit hans sé tekið til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar. Enn fremur skal taka slíkt álit til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar ef sveitarstjórnarmaður krefst þess.
74. gr.
Nefndin skal í störfum sínum stuðla að samræmingu í reikningsskilum sveitarfélaga og öðrum fjárhagslegum ráðstöfunum þeirra. Þá sinnir hún öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni á þessu sviði.
75. gr.
- bókhald sveitarfélaga, þar á meðal um samræmdan upplýsingalykil,
- vinnslu, meðferð, form og efni fjárhagsáætlana,
- vinnslu, meðferð, form og innihald ársreiknings og meðferð á skýrslum endurskoðanda um hann.
Reikningsskila- og upplýsinganefnd getur eftir því sem tilefni er til gefið út nánari leiðbeiningar og álit um bókhald, fjárhagsáætlanir og reikningsskil sveitarfélaga.
76. gr.
Ársreikning sveitarfélags, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneytinu og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert. Álit endurskoðanda skv. 73. gr. skal hann sjálfur senda ráðuneytinu jafnskjótt og það er afhent sveitarfélagi.
Að fengnum tillögum reikningsskila- og upplýsinganefndar skal ráðherra setja reglugerð um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir ráðuneytið, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga. Í reglugerð skal m.a. mælt fyrir um framsetningu og form slíkra upplýsinga, sem og um rafræn skil þeirra eftir því sem við á. Haft skal samráð við Hagstofu Íslands um setningu reglugerðarinnar.
77. gr.
Komist sveitarfélag í fjárþröng þannig að sveitarstjórn telur sér ekki unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Á sama hátt skal sveitarstjórn gera eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga viðvart telji hún að fjármál sveitarfélags eða einstakar fjárhagslegar ráðstafanir séu ekki í samræmi við lög þessi eða fjármál sveitarfélags stefni að öðru leyti í óefni. Ef skilyrði 86. gr. eru fyrir hendi skal tilkynning fela í sér ósk um skipun fjárhaldsstjórnar.
78. gr.
Kostnaður af störfum eftirlitsnefndarinnar, þ.m.t. þóknun nefndarmanna, greiðist úr ríkissjóði. Skal þóknunin ákveðin af ráðherra.
Nefndin er sérstakt stjórnvald sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Ákvarðanir hennar sæta þó ekki kæru til ráðherra.
79. gr.
Eftirlit nefndarinnar og ákvarðanir hennar skulu byggjast á heildarmati á fjárhagslegri stöðu viðkomandi sveitarfélaga. Nefndinni ber í einstökum málum að velja þau úrræði sem líklegast er að nái því markmiði sem að er stefnt að teknu tilliti til sjálfstjórnar sveitarfélaga.
80. gr.
Sveitarfélög skulu veita eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og starfsmönnum hennar aðgang að starfsstöðvum sveitarfélagsins, bókum, fylgiskjölum og öðrum gögnum sveitarfélags sem henni er þörf á vegna starfs síns auk skýringa um slík atriði innan frests er nefndin tiltekur.
81. gr.
82. gr.
- birt reglubundið almennar grunnupplýsingar um fjárhag sveitarfélaga,
- sent fyrirspurnir til sveitarstjórna þar sem óskað er skýringa eða gagna innan ákveðins frests,
- sent skriflegar ábendingar eða tilmæli til sveitarstjórnar vegna fjárhagslegrar stöðu sveitarfélags eða einstakra fjárhagslegra ákvarðana,
- látið fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitarfélags og lagt síðan fyrir sveitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast innan hæfilegs frests,
- birt opinberlega tilkynningu eða ályktun um stöðu eða einstakar fjárhagslegar ákvarðanir sveitarfélags,
- vísað máli til ráðherra, sbr. 83.–85. gr.
83. gr.
Ráðherra getur einnig gert samkomulag samkvæmt þessari grein að beiðni viðkomandi sveitarstjórnar. Skal þá leitað umsagnar eftirlitsnefndar áður en samkomulag er gert.
Þegar samkomulag liggur fyrir skal það staðfest af ráðuneytinu annars vegar og viðkomandi sveitarstjórn hins vegar. Ráðuneytið getur gert þá kröfu að 2/ 3 fulltrúa á fundi sveitarstjórnar greiði atkvæði með samkomulaginu til að það öðlist gildi. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur eftirlit með framkvæmd sveitarfélags á samkomulagi samkvæmt þessari grein.
84. gr.
- veitt sveitarfélagi styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl, enda sé haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðgjafarnefnd skv. 15. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, um þá ráðstöfun,
- heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn að leggja álög á útsvör og eða fasteignaskatta sem nemi allt að 25% umfram það hámark sem ákveðið er í lögum um tekjustofna sveitarfélaga,
- sett sveitarfélagi fyrirmæli um rekstur og stjórnsýslu, sbr. 85. gr.
Ef þörf er á getur ráðherra einnig samhliða samkomulagi skv. 83. gr. beitt úrræðum skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr.
Beiting úrræða samkvæmt kafla þessum útilokar ekki að ráðherra beiti einnig úrræðum skv. XI. kafla.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur eftirlit með framkvæmd ákvarðana ráðherra samkvæmt þessari grein.
Ákvæði 2. mgr. 79. gr. gildir um ákvarðanir ráðherra eftir því sem við á.
85. gr.
- sveitarfélag skili mánaðarlega upplýsingum úr bókhaldi, sem a.m.k. gefi yfirlit um tekjur, gjöld, handbært fé, eignir og skuldir,
- sveitarfélag vinni og afgreiði fjárhagsáætlun til allt að 10 ára, þar á meðal um að slík áætlun skuli gerð árlega og fullnægi, eftir því sem við á, reglum um fjögurra ára áætlun,
- sveitarfélag leiti aðstoðar hjá sérhæfðum ráðgjafa eða öðrum sérfræðingi,
- fjárhagsáætlanir, þar á meðal áætlun skv. 2. tölul., og starfsemi sveitarfélags að öðru leyti, séu í samræmi við tiltekin viðmið um:
- framlegð af rekstri,
- samdrátt í rekstri eða samdrátt í ákveðnum þætti rekstrar,
- takmarkanir á fjárfestingum,
- takmarkanir á lántökum og öðrum skuldbindingum, þar á meðal um gjaldmiðil sem heimilt er að taka lán í, um endurfjármögnun og önnur lánskjör,
- nýtingu tekjustofna, og
- annað sem telja má þýðingarmikið fyrir fjármál viðkomandi sveitarfélags,
- mat skv. 66. gr. skuli framkvæmt af tilteknum aðila eða aðila með tiltekna sérfræðikunnáttu um lægri viðmiðun en tilgreind er í 66. gr. og nánari fyrirmæli um það sem leggja skal mat á.
86. gr.
Hið sama á við ef greiðslubyrði sveitarfélags umfram greiðslugetu er svo mikil að ljóst er að ekki mun úr rætast í bráð.
Birta skal ákvörðun um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar í Lögbirtingablaði.
87. gr.
Fjárhaldsstjórn skal skipuð til tiltekins tíma og ekki lengur en til eins árs í senn. Þóknun til fjárhaldsmanna skal ákveðin af ráðherra og greiðist úr ríkissjóði.
88. gr.
Eftir að fjárhaldsstjórn hefur verið skipuð skal almennt heimilt að ráðstafa fjármunum sveitarfélagsins vegna:
- lögbundinnar þjónustu sveitarfélagsins,
- launa sem sveitarfélaginu ber að greiða og tengdra greiðslna,
- aðgerða sem telja má víst að séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir verulegt tjón.
Fjárhaldsstjórn ákveður greiðslur skv. 2. mgr. og vegna annarra útgjalda sem hún telur rétt að mæta á meðan á greiðslustöðvun stendur.
Að öðru leyti en að framan greinir leiðir skipun fjárhaldsstjórnar til sömu réttaráhrifa og greiðslustöðvun eftir ákvæðum IV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl. í allt að eitt ár frá því að fjárhaldsstjórnin var fyrst skipuð.
89. gr.
Fjárhaldsstjórn getur með samþykki ráðuneytisins selt eigur sveitarfélagsins til lúkningar skuldum, þó ekki þær sem eru nauðsynlegar til framkvæmda á lögskyldum verkefnum. Með sama móti getur fjárhaldsstjórn ákveðið að færa tiltekna starfsemi sem rekin hefur verið á vegum sveitarfélags í hendur einkaaðila eða leitað samvinnu um rækslu hennar við annað sveitarfélag samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Ef sveitarfélagi hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn og fyrir liggur að það er og verður um ófyrirséða framtíð ófært um að standa í skilum með skuldbindingar sínar getur fjárhaldsstjórn ákveðið einhliða að leita nauðasamnings fyrir það. Einhliða nauðasamninga skal einungis leita hafi samningar við lánardrottna ekki borið árangur. Um slíkan nauðasamning gilda almennar reglur laga um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir því sem við getur átt en þó þannig að umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum lætur ekki greiða atkvæði um frumvarp að nauðasamningi.
90. gr.
91. gr.
Í eitt ár eftir að svipting fjárforráða fellur brott þarf ávallt samþykki ráðuneytisins á viðaukum við fjárhagsáætlanir sem fjárhaldsstjórn vann og ráðuneytið staðfesti. Á sama tímabili getur ráðuneytið einnig einhliða ákveðið viðauka við umræddar fjárhagsáætlanir sé það nauðsynlegt af tilliti til fjárhags sveitarfélagsins til lengri eða skemmri tíma. Haft skal viðeigandi samráð við sveitarstjórn um slíka ákvörðun.
92. gr.
Samvinna sveitarfélaga skal ávallt grundvallast á samningi viðeigandi sveitarfélaga, sem ekki öðlast gildi fyrr en hann hefur fengið staðfestingu viðkomandi sveitarstjórna. Sé ekki ítarlegri ákvæði að finna í lögum skal í samningi um samvinnu að lágmarki kveðið á um form samvinnu, ákvarðanatöku, slit samvinnu og fjárhagsleg atriði.
Ákvarðanir sem eru teknar á grundvelli samnings um samvinnu sveitarfélaga, jafnvel þótt þær byggist á framsali á valdi til töku ákvörðunar um rétt eða skyldu manna, sæta ekki kæru til viðkomandi sveitarfélaga.
93. gr.
94. gr.
Byggðasamlögum er einum rétt og skylt að hafa orðið byggðasamlag í heiti sínu eða skammstöfunina bs.
Í samningi um byggðasamlag skulu m.a. vera ákvæði um:
- heiti byggðasamlags, eignarhluti einstakra sveitarfélaga í byggðasamlaginu, hvaða verkefnum það sinnir og valdheimildir,
- kjör til stjórnar, fjölda stjórnarmanna, kjörtímabil og varafulltrúa,
- ályktunarhæfi funda og annað sem máli skiptir í því sambandi,
- umboð stjórnar til að skuldbinda aðildarsveitarfélög,
- hvenær þörf er staðfestingar sveitarstjórna á ákvörðunum stjórnar,
- heimildir til samninga við einkaaðila, sbr. 100. gr.,
- heimildir til samninga við einstök aðildarsveitarfélög um að þau taki að sér afmarkaða þætti í þeirri starfsemi sem falin hefur verið byggðasamlagi,
- úrgöngu úr byggðasamlagi, þar á meðal um uppgjör aðildarsveitarfélaga, ábyrgð á skuldbindingum og rétt til innlausnar á eignarhlutum.
Tryggt skal að umboð stjórnar byggðasamlags til að skuldbinda aðildarsveitarfélög sé í samræmi við reglur laga þessara um fjármál sveitarfélaga, þ.m.t. bindandi gildi fjárhagsáætlunar næstkomandi árs.
Kjör til stjórnar byggðasamlags getur annaðhvort farið fram á aðalfundi byggðasamlags eða á grundvelli tilnefninga sveitarstjórna einstakra aðildarsveitarfélaga. Ef kjör til stjórnar fer fram á aðalfundi byggðasamlags skulu í samningi um byggðasamlag einnig vera viðeigandi ákvæði um aðalfund þess, þar á meðal um öll þau atriði sem getur í 2.–5. tölul. 3. mgr.
Byggðasamlög lúta að öðru leyti ákvæðum laga þessara um meðferð mála, skyldur og réttindi stjórnarmanna, starfslið, fjármál, fjárhagsáætlanir og endurskoðun ársreikninga og stjórnsýslueftirlit og þeim almennu reglum sem að öðru leyti gilda um störf sveitarfélaga og annarra stjórnvalda.
Einstakar sveitarstjórnir og endurskoðendur aðildarsveitarfélaga eiga rétt á aðgangi að öllum gögnum um stjórnsýslu byggðasamlags.
Sveitarfélög bera einfalda ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum byggðasamlags sem þau eru aðilar að en innbyrðis skiptist ábyrgðin í hlutfalli við íbúatölu.
95. gr.
Einstök sveitarfélög geta með tveggja ára fyrirvara sagt upp aðild að byggðasamlagi, hafi ekki verið samið um annan tímafrest. Samhliða getur sveitarfélag krafist innlausnar á nettó eignarhlut sínum í samlaginu núvirðisreiknuðum í samræmi við ákvæði samnings skv. 94. gr.
Ef ósætti rís um úrgöngu sveitarfélags úr byggðasamlagi er hægt að vísa málinu til ráðuneytisins. Ráðuneytið getur ákveðið að viðkomandi sveitarfélagi sé ekki heimilt að ganga úr byggðasamlagi um tilgreindan tíma, þó ekki lengur en í fimm ár að telja frá ákvörðun ráðuneytisins, vegna mikilvægra samfélagslegra hagsmuna eða vegna mikilvægra hagsmuna annarra aðildarsveitarfélaga sem að byggðasamlagi standa. Af sömu ástæðum er ráðuneytinu heimilt að ákveða frestun innlausnar á eignarhlut sveitarfélags.
Tillaga um að starfsemi byggðasamlags sé hætt nær því aðeins fram að ganga að hún sé staðfest af 2/ 3 hlutum sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga eða hún hafi verið samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu á starfssvæði byggðasamlagsins. 2/ 3 hlutar stjórnarmanna í byggðasamlagi eða 2/ 3 hlutar fulltrúa á aðalfundi byggðasamlags, sé slíkur fundur haldinn, geta krafist atkvæðagreiðslu í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga um slit byggðasamlags.
Nú er ákveðið að hætta starfsemi byggðasamlags eða svo er fyrir mælt í lögum og skal þá skipa því sérstaka skiptastjórn er gerir upp eignir þess og skuldir og slítur rekstri þess. Heimilt er skiptastjórn að auglýsa eftir kröfum á hendur byggðasamlaginu með opinberri innköllun. Eftir að kröfur hafa verið greiddar skal afgangi eigna eða eftirstöðvum skulda jafnað á þau sveitarfélög sem að byggðasamlagi standa í hlutfalli við íbúatölu. Skiptastjórn skal kjörin af stjórn byggðasamlags.
96. gr.
Þegar sveitarfélag tekur að sér verkefni fyrir annað eða önnur sveitarfélög er heimilt að ákveða að þau sveitarfélög sem teljast kaupendur þjónustu tilnefni áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundi viðkomandi nefndar í því sveitarfélagi sem telst þjónustuveitandi þegar málefni samstarfsverkefnisins eru þar til umræðu.
Fulltrúar í sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem hafa falið öðru sveitarfélagi að annast fyrir sig afmörkuð verkefni samkvæmt þessari grein eiga sama rétt á aðgangi að gögnum og upplýsingum um það verkefni hjá því sveitarfélagi sem veitir þjónustuna og þeir hefðu ella haft skv. 28. gr.
Í samningi um samvinnu samkvæmt þessari grein skulu að lágmarki eftirfarandi atriði tiltekin:
- hvaða sveitarfélög eru aðilar að samstarfinu,
- hvert þeirra sér um rækslu verkefnis,
- nákvæm tilgreining viðkomandi verkefnis eða verkefna,
- hvaða valdheimildir færist til þess sveitarfélags sem sér um verkefni,
- gildistími samnings og á hvaða tíma sveitarfélagið taki verkefnið yfir,
- þörf á staðfestingu á ákvörðunum um framkvæmd verkefnis,
- hvort sveitarfélagi sé heimilt að gera samning við einkaaðila um framkvæmd verkefnis skv. 100. gr.,
- upplýsingagjöf til annarra samstarfsaðila,
- fjárhagslegt uppgjör og samskipti vegna verkefnisins,
- eignarhald á mannvirkjum, rekstrartækjum og öðrum verðmætum, ef við á, og önnur mikilvæg atriði sem varða framkvæmd verkefnis og fjárútlát vegna þess.
Ef sveitarfélög sem eru aðilar að samningi samkvæmt þessari grein eru um það sammála má slíta samstarfi þegar í stað. Að öðrum kosti getur hvert sveitarfélag sagt upp aðild sinni að samningi með eins árs fyrirvara hafi ekki verið samið um annan uppsagnarfrest.
97. gr.
Starfssvæði landshlutasamtaka fer eftir ákvörðun aðildarsveitarfélaga sem staðfest hefur verið af ráðuneytinu. Landshlutasamtök skulu þó aldrei vera fleiri en átta á landinu öllu. Sveitarfélög sem liggja innan starfssvæðis landshlutasamtaka eiga rétt á aðild að þeim. Ráðuneyti og opinberar stofnanir skulu ávallt leita umsagnar hlutaðeigandi landshlutasamtaka um stefnumótun eða ákvarðanir sem varða viðkomandi landsvæði sérstaklega.
Landshlutasamtök geta með samningum eða samkvæmt heimildum í sérlögum tekið að sér verkefni eða aðra starfsemi sem tengist hlutverki þeirra skv. 1. mgr., svo sem verkefni tengd byggðaþróun eða öðrum sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaga.
98. gr.
Sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga sem eiga aðild að sambandinu kjósa fulltrúa á landsþing sambandsins eftir þeim reglum sem ákveðnar eru í samþykktum þess.
Þegar ráðherra setur almenn stjórnvaldsfyrirmæli á grundvelli laga þessara skal hann ávallt hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um efni þeirra.
99. gr.
100. gr.
Í samningi samkvæmt þessari grein skal m.a. skilgreina umfang og gæði þeirrar þjónustu sem sveitarfélag kaupir, samningstíma, greiðslur úr sveitarsjóði, eftirlit með þjónustu og meðferð ágreiningsmála. Samningstími skal lengstur vera sex ár í senn en þó er heimilt að semja til lengri tíma ef sveitarfélag gerir kröfu um að verksali byggi upp kostnaðarsama aðstöðu eða búnað vegna verkefnisins eða þjónustunnar. Uppsagnarfrestur samnings skal stystur vera sex mánuðir.
Ákvæði þessarar greinar skulu gilda með sama hætti um samninga sem falla undir 1. mgr. og sveitarfélag gerir við einkaaðila með heimild í öðrum lögum nema ríkari kröfur séu gerðar til samninga í sérlögum. Lög um opinber innkaup gilda eftir því sem við á um útboð verkefna.
101. gr.
Sama gildir geri byggðasamlag slíka samninga við einkaaðila.
102. gr.
Áhrif íbúa má m.a. tryggja með:
- virkri upplýsingagjöf til íbúa,
- samráði við íbúa, svo sem á borgarafundum eða íbúaþingum og í íbúakosningum,
- skipun íbúa- og notendaráða,
- því að skipuleggja starfsemi sveitarfélagsins eftir staðbundnum forsendum,
- samstarfi eða annarri aðstoð við íbúa sem vilja vinna að málefnum sveitarfélagsins.
103. gr.
Sveitarstjórn skal leitast við að upplýsa með almennum hætti um þær leiðir og aðferðir sem hún notar til samráðs við íbúa, m.a. við undirbúning mála og áætlana skv. 1. mgr.
Sveitarstjórn skal enn fremur leitast við að íbúar sveitarfélagsins fái með reglulegum hætti upplýsingar um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, umfang þess og kostnað.
104. gr.
Ráðuneytið getur sett nánari fyrirmæli um gagnaveitu skv. 1. mgr. í reglugerð.
105. gr.
Eigi atkvæðagreiðsla að fara fram á fundi skal það tiltekið í fundarboði ásamt þeirri tillögu sem greiða á atkvæði um. Telji sveitarstjórn ástæðu til skal hún gera kjörskrá yfir þá sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna og eru þá aðeins þeir sem eru á kjörskránni atkvæðisbærir á borgarafundi. Að öðrum kosti hafa atkvæðisrétt allir þeir sem til fundarins mæta. Um gerð kjörskrár og auglýsingu gilda ákvæði 4.–7. gr. og 9.–11. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna.
Ályktanir almennra borgarafunda eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
106. gr.
107. gr.
Til atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. skal boða með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara með opinberri auglýsingu. Samhliða skal sveitarstjórn opinberlega kynna þá tillögu sem borin verður undir atkvæði og þær upplýsingar sem kjósendum eru nauðsynlegar til að geta tekið til hennar upplýsta afstöðu.
Rétt til þátttöku í atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. eiga þeir sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna. Sveitarstjórn skal gera kjörskrá fyrir atkvæðagreiðsluna. Um gerð hennar og auglýsingu gilda ákvæði 4.–7. gr. og 9.–11. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna.
Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg og atkvæðisréttur jafn.
Atkvæðagreiðsla samkvæmt þessari grein, sem og 108. gr., er ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði að hún skuli binda hendur hennar til loka kjörtímabils. Í auglýsingu skv. 2. mgr. skal koma fram hvort atkvæðagreiðsla er bindandi. Slíka ákvörðun má binda skilyrði um að tiltekið hlutfall þeirra sem voru á kjörskrá hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslu.
Við framkvæmd atkvæðagreiðslu samkvæmt þessari grein skal að öðru leyti farið eftir meginreglum laga um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við getur átt.
108. gr.
Ef minnst 20% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst. Sveitarstjórn er heimilt að ákveða hærra hlutfall í samþykkt um stjórn sveitarfélags en þó aldrei hærra en þriðjung þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi. Sveitarstjórnin á ákvörðunarvald um framkvæmd viðkomandi viðburðar og þá spurningu sem borin verður upp sé um að ræða almenna atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélagsins. Um framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélags fer eftir ákvæði 107. gr.
Almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. verður ekki krafist um efni fjárhagsáætlunar skv. 62. gr. og viðauka skv. 63. gr., um tekjustofna sveitarfélaga eða álagningu annarra lögheimilla gjalda, um ráðningu í störf hjá sveitarfélagi, um laun og önnur starfskjör sveitarstjórnarmanna eða starfsmanna sveitarfélags eða tillögu sem gengur gegn lögum eða mundi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki fullnægt af hálfu sveitarfélagsins.
Ráðuneytið skal í reglugerð mæla nánar fyrir um það hvernig staðið verður að söfnun undirskrifta eða annarrar staðfestingar á ósk íbúa skv. 1. mgr. Þar má m.a. kveða á um að undirskriftir skuli lagðar fram á sérstöku eyðublaði sem ráðuneytið eða viðkomandi sveitarfélag lætur gera eða að staðfesting skuli lögð fram rafrænt á nánar tiltekinn hátt. Sé mælt fyrir um rafræna staðfestingu skal þó ávallt jafnframt gefinn kostur á að undirskriftir verði lagðar fram skriflega á þar til gerðum eyðublöðum.
Við mat á því hvort tilskilinn fjöldi hafi lagt fram ósk skv. 1. mgr. skal miðað við þá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna á þeim degi sem söfnun undirskrifta og/eða staðfestinga lýkur samkvæmt kjörskrárstofni sem Þjóðskrá Íslands lætur sveitarfélagi í té.
109. gr.
Eftirlit ráðherra tekur ekki til Sambands íslenskra sveitarfélaga eða landshlutasamtaka sveitarfélaga nema þessum aðilum hafi verið falin stjórnsýsluverkefni fyrir hönd einstakra sveitarfélaga skv. 1. mgr. sem ráðherra hefði ella haft eftirlit með. Ráðherra hefur ekki heldur eftirlit með ákvörðunum sveitarfélaga í starfsmannamálum, um gerð kjarasamninga né stjórnsýslu sem fram fer á vegum sveitarfélaganna og öðrum stjórnvöldum á vegum ríkisins er með beinum hætti falið eftirlit með.
110. gr.
- við staðfestingu reglna sveitarfélaga hafi ráðherra verið falið það hlutverk,
- við meðferð mála sem lúta að fjármálum sveitarfélaga, sbr. VIII. kafla,
- við meðferð kærumála, sbr. 111. gr., og
- við meðferð frumkvæðismála, sbr. 112. gr.
Þegar ráðherra þarf að beita úrræðum samkvæmt lögum þessum í tengslum við eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga skal hann velja það úrræði sem líklegast er að nái því markmiði sem að er stefnt að teknu tilliti til sjálfstjórnar sveitarfélaga. Heimilt er að nota fleiri en eitt úrræði samkvæmt lögum þessum samhliða eftir því sem tilefni er til.
Áður en ráðherra tekur ákvörðun um beitingu úrræða samkvæmt kafla þessum skal hann gefa sveitarstjórn færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
111. gr.
Kæra skal borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun, nema lög mæli á annan veg. Um kæruleiðbeiningar, kærufrest og meðferð kærumáls fer að öðru leyti að ákvæðum stjórnsýslulaga.
Þrátt fyrir 2. mgr. 109. gr. er þó hægt að bera undir ráðherra samkvæmt þessari grein ákvörðun sveitarfélags um uppsögn starfsmanns, enda eigi hún rætur að rekja til brota hans í starfi, vankunnáttu eða óvandvirkni í starfi, til athafna í starfi eða utan þess sem þykja ósamrýmanlegar starfinu eða til annarra sambærilegra ástæðna.
112. gr.
Þegar ráðuneytið tekur mál til meðferðar að eigin frumkvæði getur það:
- gefið út leiðbeiningar um túlkun laga og stjórnsýslu sveitarfélagsins að öðru leyti,
- gefið út álit um lögmæti athafna eða athafnaleysis sveitarfélags eða annars er eftirlit beinist að,
- gefið út fyrirmæli til sveitarfélags um að það taki ákvörðun í máli, felli ákvörðun úr gildi eða komi málum að öðru leyti í lögmætt horf,
- beitt öðrum úrræðum samkvæmt kafla þessum, sé tilefni til.
Niðurstöður skv. 2. mgr. skulu rökstuddar eftir því sem tilefni er til. Í þeim skal einnig koma fram með skýrum hætti hvort og þá með hvaða hætti ráðuneytið muni fylgja niðurstöðu sinni eftir.
113. gr.
Ráðuneytið getur óskað þess að starfsmenn þeirra aðila sem lúta eftirliti ráðuneytisins skv. 109. gr. veiti því upplýsingar og skýringar sem varða einstök mál, og ráðuneytinu er þörf á vegna eftirlits síns. Lögbundin þagnarskylda stendur ekki í vegi slíkrar upplýsingagjafar.
Við framkvæmd upplýsingaöflunar skal taka tillit til hagsmuna viðkomandi stjórnvalda og einkaaðila ef við á og ekki ganga lengra en þörf er á.
114. gr.
Þegar sérstakar ástæður mæla með því getur ráðuneytið ákveðið að fresta réttaráhrifum ákvörðunar sem sveitarfélag hefur tekið meðan það hefur mál til meðferðar skv. VIII. kafla eða 111. og 112. gr.
115. gr.
Hið sama á við hafi sveitarfélag eða annar aðili sem eftirlit ráðuneytisins beinist að gert samning sem í veigamiklum atriðum fullnægir ekki ákvæðum sem fram koma í VII. kafla um fjármál sveitarfélaga eða VIII. kafla um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, enda hafi eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga lagt það til með rökstuddum hætti.
Ákvæði þetta á þó ekki við ef samningur telst marklaus gagnvart sveitarfélagi vegna veigamikilla ágalla á gerð hans.
116. gr.
Ráðherra skal í reglugerð ákveða lágmarks- og hámarksfjárhæð dagsekta. Ákvörðun um dagsektir skal taka mið af alvarleika brots og íbúafjölda sveitarfélags.
Ákvæði þessu verður beitt gagnvart byggðasamlögum eftir því sem við á.
Dagsektir renna í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Gera má aðför, án undangengins dóms, til fullnustu sekta. Dagsektir skulu innheimtar ekki sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Fresta skal innheimtu dagsekta ef það málefni sem um ræðir er borið undir dómstóla. Óinnheimtar dagsektir falla niður þegar skyldu er fullnægt.
117. gr.
118. gr.
119. gr.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu um sameiningu skulu viðkomandi sveitarstjórnir taka málið á dagskrá. Skal hafa tvær umræður um málið án atkvæðagreiðslu.
Að lokinni umræðu sveitarstjórna skal fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameininguna. Viðkomandi sveitarstjórnir ákveða sameiginlega hvenær atkvæðagreiðsla fer fram og skal kosið sama dag í öllum viðkomandi sveitarfélögum.
Samstarfsnefndin eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um og helstu forsendur hennar með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara, svo sem með kynningarfundum og/eða dreifibréfum. Tillagan skal innan sama frests auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum.
Sveitarstjórn lætur gera atkvæðaseðil til afnota við atkvæðagreiðsluna. Form atkvæðaseðils skal staðfest af ráðuneytinu. Um atkvæðagreiðslur samkvæmt þessari grein fer eftir ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við getur átt. Ekki er heimilt að hefja talningu atkvæða fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað í þeim sveitarfélögum sem taka þátt í atkvæðagreiðslu um sameiningartillögu.
120. gr.
Sveitarstjórnum sveitarfélaga þar sem sameiningartillaga hlýtur samþykki meiri hluta kjósenda er heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga þótt tillaga samstarfsnefndar hljóti ekki samþykki meiri hluta kjósenda í öllum sveitarfélögunum sem að tillögunni stóðu, enda sé um að ræða a.m.k. 2/ 3 sveitarfélaganna og í þeim sveitarfélögum búi a.m.k. 2/ 3 hlutar íbúa á svæðinu.
121. gr.
122. gr.
Stjórn til undirbúnings nýs sveitarfélags skal semja samþykkt um stjórn og fundarsköp hinnar nýju sveitarstjórnar sem gilda mun fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verið sett sérstök samþykkt. Stjórnin getur ákveðið að samþykkt um stjórn og fundarsköp eins af hinum eldri sveitarfélögum muni gilda fyrir nýja sveitarfélagið þar til því hefur verið sett ný samþykkt. Hún skal einnig taka ákvarðanir um fjárhagsmálefni hins nýja sveitarfélags, taka saman yfirlit yfir allar samþykktir og reglugerðir sem gilda í þeim sveitarfélögum sem sameinuð hafa verið og hefja vinnu við endurskoðun þeirra og samræmingu. Ákvarðanir þessar skulu sendar ráðuneytinu sem staðfestir sameininguna að því gefnu að það telji að sameiningin sé svo vel undirbúin að hún geti gengið hnökralaust. Ráðuneytið getur í þessu sambandi leitað umsagna viðkomandi sveitarstjórna um þær tillögur sem stjórn til undirbúnings að stofnun nýs sveitarfélags hefur gert.
123. gr.
124. gr.
125. gr.
Ef kosið skal til nýrrar sveitarstjórnar ákveður ráðuneytið að tillögu stjórnar til undirbúnings að stofnun hins nýja sveitarfélags hvaða dag kosningar til hins sameinaða sveitarfélags fara fram. Um kosningar til nýrrar sveitarstjórnar fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins nýja sveitarfélags 15 dögum eftir kjördag. Á sama tíma tekur sameining gildi.
Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara og laga um kosningar til sveitarstjórna um skipti á sveitarstjórnum.
Ef sveitarstjórn eins hinna sameinuðu sveitarfélaga tekur yfir stjórn þess nýja til loka kjörtímabils tekur sameining gildi á þeim degi sem ráðuneytið ákveður. Sama dag fellur umboð annarra sveitarstjórna hinna sameinuðu sveitarfélaga úr gildi.
126. gr.
Að því leyti sem ákvörðunum, svo sem um skatta, verður ekki breytt innan ársins vegna ákvæða annarra laga er heimilt að hafa mismunandi reglur innan hins nýja sveitarfélags þann tíma sem af ákvæðum viðkomandi laga leiðir.
127. gr.
128. gr.
Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga skal funda að lágmarki einu sinni á ári. Fast sæti á fundum samstarfsráðsins eiga ráðherra sveitarstjórnarmála og fjármálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aðrir ráðherrar sitja fundi samstarfsráðsins eftir því sem tilefni er til hverju sinni. Um skipan samstarfsráðsins fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum samstarfssáttmála, sbr. 4. mgr.
Yfirumsjón með samstarfi samkvæmt þessari grein hefur samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga. Í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar ráðuneytis sveitarstjórnarmála og fjármálaráðuneytis og þrír fulltrúar tilnefndir af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ef þörf er á getur samstarfsnefndin ákveðið að kalla til fulltrúa fleiri ráðuneyta. Samstarfsnefndin starfar í umboði samstarfsráðsins og er vettvangur fyrir reglulega umfjöllun um samskiptamál ríkis og sveitarfélaga.
Samstarf samkvæmt þessari grein skal nánar útfært í samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga sem unninn skal af samstarfsnefnd eða í sérlögum eftir því sem við á. Þar skal einnig fjallað um gerð árlegrar þjóðhags- og landshlutaspár sem leggja ber til grundvallar í samstarfi samkvæmt þessari grein og sveitarfélögum er skylt, eftir því sem við á, að byggja á við gerð fjárhagsáætlana.
129. gr.
Þegar mat á fjárhagslegum áhrifum tillögu að lagafrumvarpi, tillögu að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana, sbr. 1. mgr., liggur fyrir skal það þá þegar lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar.
Mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög samkvæmt þessari grein skal liggja fyrir áður en frumvarp er afgreitt úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi eða áformuð stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar aðgerðir af hálfu stjórnvalda eru endanlega ákveðnar.
Verði ágreiningur um niðurstöðu kostnaðarmats á lagafrumvarpi skal gerð sérstök grein fyrir því í kostnaðarumsögn sem skal fylgja frumvarpi þegar það er lagt fyrir Alþingi. Verði ágreiningur um niðurstöðu kostnaðarmats tillögu að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu stjórnvalda ríkisins skal niðurstaða um það koma fram í endanlegu kostnaðarmati þeirrar ákvörðunar, sbr. 3. mgr.
Ráðuneyti sveitarstjórnarmála skal árlega taka saman yfirlit um kostnaðarmat samkvæmt þessari grein, þar á meðal um ágreining um slíkt mat. Formlegar viðræður skulu fara fram um yfirlitið og niðurstöður þess í samstarfsráði skv. 128. gr.
130. gr.
Mál það sem er notað í starfsemi sveitarfélags eða á vegum þess skal vera vandað, einfalt og skýrt.
131. gr.
Ráðuneytið skal birta ákvörðun skv. 1. mgr. í Stjórnartíðindum og getur hún aðeins gilt í fjóra mánuði í senn.
132. gr.
Ráðuneytinu er á sama hátt og kveðið er á um í 1. mgr. heimilt við staðfestingu samstarfssamnings skv. 93. gr. að heimila í tilraunaskyni frávik frá ákvæðum IX. kafla um samvinnu sveitarfélaga og samninga um starfrækslu verkefna.
Tilgangur heimildar skv. 1. og 2. mgr. er að veita færi á yfirvegaðri þróun á sveitarstjórnarstiginu, m.a. vegna stækkunar sveitarfélaga. Samþykktir um stjórn og fundarsköp sem staðfestar eru á grundvelli þessarar greinar skulu vera ítarlegar og taka til allra þátta sem nauðsynlegir eru svo að stjórn sveitarfélags geti gengið hnökralaust. Miða skal við að ekki séu gerðar fleiri en ein stjórnskipulagstilraun sama eðlis í einu.
Sé heimild skv. 1. og 2. mgr. beitt skal það ekki gert til skemmri tíma en átta ára í senn, nema veigamiklar ástæður mæli með að fallið sé frá því. Ef fallið er frá stjórnskipulagi sem ákveðið er samkvæmt þessari grein skal sveitarstjórn þegar setja sveitarfélaginu nýja samþykkt um stjórn og fundarsköp sem er í samræmi við ákvæði laga þessara. Verður þessari heimild þá ekki beitt á ný af hálfu viðkomandi sveitarfélags fyrr en að átta árum liðnum.
133. gr.
134. gr.
- Lög um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, með síðari breytingum:
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
- 1. mgr. orðast svo:
- 2. mgr. fellur brott.
- 2. gr. laganna orðast svo:
- 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
- Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
- Í stað orðsins „héraðsnefnd“ í 2. málsl. kemur: stjórn fjallskilaumdæmis; og í stað orðsins „hreppsnefndar“ í sama málslið kemur: sveitarstjórnar, ef við á.
- Í stað orðanna „hreppsnefndir, með samþykki héraðsnefndar“ í 3. málsl. kemur: sveitarstjórnir, með samþykki stjórnar umdæmis, ef við á.
- Í stað orðsins „héraðsnefndar“ í 4. málsl. kemur: sveitarstjórnar.
- Lokamálsliður fellur brott.
- Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
- 1. málsl. orðast svo: Stjórn fjallskilaumdæmis semur skrá yfir alla afrétti er héraðsbúar nota.
- Í stað orðsins „sýslunni“ í 3. málsl. kemur: fjallskilaumdæminu.
- Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
- Í stað orðsins „sýslunefnd“ í 2. og 3. málsl. 1. mgr. kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðanna „og færi sýslunefnd“ í a-lið 2. mgr. kemur: og færir stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðanna „heilar sýslur“ í 17. gr. laganna kemur: heil fjallskilaumdæmi.
- Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
- Í stað orðsins „héraðsnefndir“ í inngangsmálslið kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðanna „Héraðsnefndir aðliggjandi sýslna“ í c-lið kemur: Stjórnir aðliggjandi fjallskilaumdæma.
- Orðið „héraðsnefnd“ í 19. gr. laganna fellur brott.
- Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:
- Í stað orðsins „héraðsnefnd“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eða stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðsins „sýslu“ í 5. málsl. 2. mgr. kemur: svæðis.
- Í stað orðanna „viðkomandi héraðsnefnd“ í 5. mgr. kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðsins „héraðsnefnd“ í 1. málsl. 21. gr. laganna kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðanna „viðkomandi sýslunefnd“ í 2. málsl. 41. gr. laganna kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:
- Í stað orðanna „Héraðsnefnd ákveður í fjallskilasamþykkt“ í 1. málsl. kemur: Í fjallskilasamþykkt skal ákveða.
- Í stað orðsins „héraðsnefndar“ í 3. málsl. kemur: stjórnar fjallskilaumdæmis.
- Í stað orðsins „héraðsnefnd“ í 55. gr. laganna kemur: stjórn fjallskilaumdæmis.
- Lög um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum: Orðin „eða héraðsnefndar“ og „og héraðsnefndir“ í 1. mgr. 11. gr. laganna falla brott.
- Lög um landgræðslu, nr. 17/1965, með síðari breytingum: 19. gr. laganna orðast svo:
- Barnaverndarlög, nr. 80/2002: Orðin „héraðsnefnd eða“ í 3. mgr. 10. gr. laganna falla brott.
- Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum: 7. gr. laganna orðast svo:
- Lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, með síðari breytingum: Í stað orðanna „Héraðsnefndir Dalasýslu, Austur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Barðastrandarsýslu og Snæfellinga tilnefna einn fulltrúa hver“ í 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: Sveitarfélög sem liggja að Breiðafirði tilnefna fjóra fulltrúa á þann hátt sem ráðherra ákveður í reglugerð.
- Lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum:
- 3. gr. laganna orðast svo:
- 7. gr. laganna orðast svo:
- 2. málsl. 8. gr. laganna orðast svo: Í auglýsingunni skal tekið fram að þeir sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá skuli senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Stjórn fjallskilaumdæmis fer með yfirstjórn allra afrétta- og fjallskilamála samkvæmt lögum þessum í viðkomandi umdæmi. Sveitarstjórnir annast stjórn og framkvæmd fjallskilamála í hverri fjallskiladeild eftir því sem nánar er ákveðið í fjallskilasamþykkt eða af stjórn fjallskilaumdæmis.
Enginn telst hafa óflekkað mannorð sem er sekur eftir dómi um verk sem er svívirðilegt að almenningsáliti nema hann hafi fengið uppreist æru sinnar.
Dómur fyrir refsivert brot hefur ekki flekkun mannorðs í för með sér nema sakborningur hafi verið fullra 18 ára að aldri er hann framdi brotið og refsing sé fjögurra mánaða fangelsi óskilorðsbundið hið minnsta eða öryggisgæsla sé dæmd.
- Ef fasteign liggur innan tveggja eða fleiri sveitarfélaga skulu viðkomandi sveitarfélög ekki síðar en 1. janúar 2013 hafa komist að samkomulagi um breytingu á mörkum viðkomandi sveitarfélaga þannig að fullnægt sé ákvæðum 4. gr.
- Þrátt fyrir ákvæði 11. gr. er ekki skylt að breyta fulltrúafjölda í sveitarstjórn fyrr en við aðrar almennar kosningar til sveitarstjórna frá gildistöku laga þessara.
- Ákvæði 2. tölul. 44. gr. um kynjakvóta og þær reglur laga þessara sem vísa til hans með beinum hætti taka fyrst gildi við nefndaskipan að afloknum næstu almennu sveitarstjórnarkosningum frá gildistöku laga þessara.
- Ákvæði 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. gildir frá og með reikningsárinu 2011. Fyrri reikningsár teljast ekki með við afmörkun á þriggja ára tímabili samkvæmt ákvæðinu.
- Samningar sveitarfélaga við endurskoðendur sem eru í gildi við gildistöku laga þessara halda gildi sínu í þann tíma sem viðkomandi samningur kveður á um, þó mest í sex ár frá gildistöku laga þessara.
- Frá gildistöku laga þessara má ekki gera samninga um samvinnu sveitarfélaga eða við einkaaðila sem ganga gegn ákvæðum laga þessara. Slíkir samningar sem þegar eru í gildi halda hins vegar gildi sínu, að því leyti sem þeir eru í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, og ákvæði annarra laga en tryggja skal að þeir fullnægi ákvæðum laga þessara ekki síðar en 15. október 2014.
- Þær fjallskilasamþykktir sem settar hafa verið á grundvelli laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, og í gildi eru við gildistöku þessara laga halda gildi sínu. Þau verkefni sem lögð eru til héraðsnefnda samkvæmt samþykktunum falla til stjórna fjallskilaumdæma. Ef fleiri sveitarfélög mynda saman fjallskilaumdæmi skulu sveitarstjórnir þeirra hafa ákveðið skipan fjallskilastjórnar fyrir gildistöku laga þessara.
- Endurskoða skal ákvæði laga þessara um fjármál sveitarfélaga innan fimm ára frá gildistöku með hliðsjón af framkvæmd þeirra.
Samþykkt á Alþingi 17. september 2011.