Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 426  —  248. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla).

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Iðunni Guðjónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Ingólf Friðriksson og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla) og fella inn í samninginn annars vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007 og hins vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1693 frá 11. nóvember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/848 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara að því er varðar daginn þegar hún kemur til framkvæmda og tilteknar aðrar dagsetningar sem um getur í þeirri reglugerð.
    Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Nefndin leggur til breytingu þannig að númer ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar komi fram í tillögugrein og fyrirsögn málsins. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi:

BREYTINGU:


     a.      Á eftir orðunum „ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar“ í 1. málsl. tillögugreinar komi: nr. 31/2022.
     b.      Fyrirsögn tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla).

    Jakob Frímann Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 2. febrúar 2022.

Bjarni Jónsson,
form., frsm.
Birgir Þórarinsson. Diljá Mist Einarsdóttir.
Jóhann Friðrik Friðriksson. Logi Einarsson. Njáll Trausti Friðbertsson.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir.