Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 490 — 350. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni).
Frá matvælaráðherra.
I. KAFLI
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Nýting sjávargróðurs.
Enginn má stunda þangslátt í atvinnuskyni, sbr. 1. mgr., nema hafa fengið til þess leyfi sem Fiskistofa gefur út til allt að fimm ára í senn. Leyfið skal bundið við þau sláttutæki, eða sláttupramma, sem hagnýtt eru af leyfishafa. Leyfið er óskiptanlegt og óframseljanlegt.
Heimilt er að binda leyfi samkvæmt þessari grein skilyrðum sem varðað geta meðal annars löndun, vigtun, eftirlit og skráningu. Þá er leyfi háð skilyrði um að leyfishafi hafi sett sér nýtingaráætlun um töku þangs, sem sé a.m.k. til fimm ára í senn. Skal áætlun uppfærð áður en sláttur hefst á hverju ári. Í henni skal greina hvaða tæki verði hagnýtt við slátt, hvaða magn verði slegið, hvar verði slegið og eftir atvikum hvaða svæði verði hvíld eftir slátt til að gefa tíma til endurvaxtar. Skal áætlunin byggjast á mati á lífmassa þangs og líklegu aðgengi að því í fjörum. Leitast skal við að gera grein fyrir áhrifum nýtingar á umhverfið með hliðsjón af þeim sláttutækjum og sláttuaðferðum sem verða hagnýtt. Drög að nýtingaráætlun skal kynna Hafrannsóknastofnun bréflega og er skylt í áætlun að greina athugasemdir stofnunarinnar og hvernig brugðist hafi verið við þeim.
Heimilt er að ákveða að öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni utan fjörusvæða sé auk almenns veiðileyfis háð sérstöku leyfi Fiskistofu, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.
5. gr.
6. gr.
II. KAFLI.
Breyting á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018.
7. gr.
8. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Með því eru gerðar tillögur til breytinga sem varða öflun sjávargróðurs (þangs og þara) í atvinnuskyni, en gildandi lagaákvæði um málefnið, sem eru frá árinu 2017, eru tímabundin og falla úr gildi við lok ársins 2022.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Árið 2017, þegar gildandi ákvæði laga um sjávargróður komu í lög um stjórn fiskveiða, var uppi ákall um auknar rannsóknir á sjávarplöntum, sem tengdist auknum áhuga á nýtingu þeirra til margþættrar efnavinnslu. Nokkur markaður virðist fyrir efni úr þörungum til notkunar í iðnaði, meðal annars sem hleypiefni og íblöndunarefni í áburði. Að auki eru ýmsar þörungaafurðir ákjósanlegar til að bæta bragð, útlit og hollustu matvara og er aukin eftirspurn eftir þeim í líftækni og jafnvel til lækninga. Þessi áform hafa ekki gengið eftir í því máli sem útlit var fyrir en þess má þó geta að í samstarfi við Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum, þar sem þang hefur lengi verið þurrkað til frekari vinnslu erlendis, hafa verið gerðar ýmsar tilraunir til frekari vinnslu á þörungum eða hliðarafurðum þeirra. Þá eru nú uppi áform um að reist verði verksmiðja til vinnslu á þangi í Stykkishólmi. Loks var nýverið gefið út leyfi til rannsókna á þörungum (stórþara og hrossaþara) úti fyrir Norðurlandi, sem heimilar slátt á allt að 3% af mældum lífmassa þörunga á þeim svæðum sem eru til skoðunar. Áform leyfishafa munu standa til þess að reisa iðjuver til vinnslu á þara á Norðurlandi.
Í samræmi við lögin frá 2017 hefur Hafrannsóknastofnun aukið verulega rannsóknir á sjávargróðri. Í janúar 2018 gaf stofnunin út ráðgjöf fyrir þangtekju í Breiðafirði sem byggðist á ítarlegum rannsóknum. Ná rannsóknir stofnunarinnar til vistfræðilegra tengsla sjávargróðurs við botndýralíf og vistkerfi fjörunnar. Þá hefur stofnunin kortlagt að nokkru leyti útbreiðslu þörunga við Ísland. Til upplýsingar er í fylgiskjali með frumvarpi þessu yfirlit um helstu rannsóknir á þangi og þangslætti í Breiðafirði, sem hafa hér þýðingu (sbr. fskj. I). Auk þess fylgir frumvarpinu greinargerð dr. Karls Gunnarssonar sérfræðings hjá Hafrannsóknastofnun um þang og þara og nýtingu þeirra (sbr. fskj. III, sem var einnig fylgiskjal með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 49/2017 á 146. löggjafarþingi).
3. Meginefni frumvarpsins.
3.1. Einföldun regluverks.
Með lögum um breytingu á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni), nr. 49/2017, voru í fyrsta sinn settar sérstakar reglur um nýtingu á sjávarplöntum í náttúru Íslands. Með þessu komu allítarleg ákvæði um þangslátt í lög um stjórn fiskveiða, sem meðal annars höfðu að geyma óvenjulega ítarleg ákvæði um samstarf stofnana á sviði náttúruvísinda.
Með frumvarpinu er lagt til að fella brott ákvæði sem snerta störf Hafrannsóknastofnunar er snúa að rannsóknum á sjávargróðri og um leið samstarf við aðrar stofnanir um þau efni. Engin þörf er á slíkum ákvæðum um rannsóknir umfram almenn ákvæði laganna og fyrirmæli um skyldur Hafrannsóknastofnunar sem og annarra ráðgjafar- og vísindastofnana, samkvæmt þeim lögum eða stofnskrám sem um þær gilda. Leiðir einnig af sjálfu sér að þar sem svo hagar til að rannsóknaráherslur kalla á samstarf eða viðræður þá geta þær átt sér stað án sérstakra ákvæða í lögum. Samráð hefur verið við Náttúrufræðistofnun Íslands og Hafrannsóknastofnun um þessa tillögu. Þá er um leið lagt til að felld verði brott ýmis önnur ákvæði sem ekki eiga lengur við og nú standa í ákvæðum til bráðabirgða við lögin.
Með þessum breytingum er á engan veg gert lítið úr þýðingu hafrannsókna og rannsókna á fjöruvistkerfum fyrir sjálfbæra nýtingu auðlinda. Stjórnsýslan er bundin af meginreglum umhverfisréttarins og má hér vísa til 8. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, þar sem segir í 1. málslið að „[á]kvarðanir stjórnvalda sem varða náttúruna skulu eins og kostur er byggjast á vísindalegri þekkingu á verndarstöðu og stofnstærð tegunda, útbreiðslu og verndarstöðu vistgerða og vistkerfa og jarðfræði landsins“. Síðan segir í 2. málslið: „Þá skal og tekið mið af því hver áhrif ákvörðunarinnar muni verða á þessa þætti. Krafan um þekkingu skal vera í samræmi við eðli ákvörðunar og væntanleg áhrif hennar á náttúruna.“
3.2. Afnám heimildar til að leyfisbinda móttökustöðvar fyrir þang.
Í lögum er heimild til að leyfisbinda móttöku á þangi frá einstökum fjörðum eða svæðum. Þessi heimild hefur ekki verið hagnýtt. Á sínum tíma var horft til þess að hún yrði aðeins hagnýtt ef verulegar eða skyndilegar viðsjár yrðu um sókn í þangtöku sem væri umfram ráðlagða árlega töku. Með reglunni getur eigendum skipa eða sláttupramma verið skylt að semja við takmarkaðan fjölda móttökustöðva um nýtingu þangs. Hefur þetta vakið tiltekin álitaefni um hvort í þessu felist bjagandi áhrif á samkeppni þrátt fyrir fyrirmæli laganna um að leitast skuli við að eigi færri en tveir aðilar hafi heimild til móttöku frá viðkomandi firði eða svæði.
Fyrir þessari gagnrýni er nokkur fótur. Til hliðsjónar má líta til álits Samkeppnisstofnunar nr. 1/1995 sem varðaði veiðileyfi báts til skelfiskveiða í Breiðafirði sem bundið var skilyrði um að einvörðungu mætti vinna aflann hjá viðurkenndri skelfiskveiðistöð á Brjánslæk þar sem aðeins einni slíkri stöð var til að dreifa. Mátti ástæðu þessa rekja til eldra stjórnarfyrirkomulags sem miðaði að samræmingu veiðiheimilda og vinnslugetu, en þetta fyrirkomulag hafði ekki tekið breytingum við upptöku aflamarks við skelfiskveiði í firðinum árið 1991. Var það álit Samkeppnisstofnunar að þessi kvöð stangaðist á við markmið samkeppnislaga og gæti meðal annars komið í veg fyrir að eðlileg verðsamkeppni myndaðist milli vinnslustöðva, þótt um leið yrði ekki litið fram hjá sérstöðu þessarar atvinnustarfsemi umfram aðra.
Vegna þeirra tillagna sem frumvarp þetta hefur að geyma um gerð nýtingaráætlana fyrir þangslátt er ekki lengur þörf þessarar heimildar.
3.3. Leyfisbinding nýtingar á þangi á grundvelli nýtingaráætlunar.
Með frumvarpinu er lagt til að Fiskistofa gefi út leyfi til nýtingar á þangi fyrir hverja sláttutíð, en þó verði heimilt að gefa leyfið út til allt að fimm ára. Leyfið skal bundið við þau sláttutæki eða sláttupramma sem hagnýtt verða af leyfishafa. Helsti grundvöllur leyfisins er ætíð svonefnd nýtingaráætlun. Við gerð nýtingaráætlunar er nauðsynlegt að byggja á bestu fáanlegu upplýsingum um útbreiðslu þangs og möguleika til hagnýtingar á því að teknu tilliti til umhverfisaðstæðna. Áætlunina verður af þessum ástæðum að gera til lengri tíma og hið minnsta fimm ára þannig að tekið sé tillit til mögulegrar áfangaskiptrar nýtingar og þess að hvíla þarf svæði til endurvaxtar. Með áætluninni verður skylt að meta og áætla umfang nýtingar á fjörusvæðum. Nokkur fyrirmynd að þessu fyrirkomulagi er reynsla af þangslætti við Breiðafjörð þar sem fjörur hafa verið slegnar til þarfa Reykhólaverksmiðjunnar eftir reglulegum áætlunum sem unnar hafa verið af verksmiðjunni og sláttumönnum sem á vegum hennar hafa starfað.
Lagt er til að heimilt verði að setja viðmið um efni nýtingaráætlunar í reglugerð en þegar hefur verið sett reglugerð um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni (sbr. fskj. III). Tekið er fram í frumvarpinu að nýtingaráætlun þessi sé skilyrði þess að leyfi sé í gildi. Í því skyni að tryggja vandaðan undirbúning nýtingaráætlana er gert ráð fyrir því að Hafrannsóknastofnun veiti um þær umsögn og geti með því komið á framfæri sjónarmiðum, meðal annars um útbreiðslu og mat á lífmassa auk atriða sem varðað geta vistkerfi fjörunnar. Verður skylt samkvæmt frumvarpinu að greiða úr slíkum athugasemdum og taka afstöðu til þeirra. Þá er augljóst að sækja má þekkingu og ráðgjöf til undirbúnings þessum áætlunum bæði til sjálfstæðra vísindamanna og/eða annarra opinberra aðila.
Með leyfisbindingu nýtingar á þangi á grundvelli nýtingaráætlunar er horft til þess að ábyrgð á nýtingunni sé hjá vinnsluaðilanum. Þessi fyrirtæki munu um leið eiga samstarf við ábúendur og eigendur sjávarjarða, sem er til þess fallið að tryggja ábyrga nýtingu. Sé jörð í ábúð þarf samþykki ábúanda, sem hefur leiguliðaafnot bújarðar, til sláttar á þangi, en ellegar landeigenda.
Það fyrirkomulag sem lagt er til með frumvarpinu er grundað á því að nýting og vinnsla á þangi krefst mikillar þekkingar hjá fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Starfsemin mótast af aðstæðum í Breiðafirði þar sem þangsláttur hefur aðallega farið fram við Ísland að einhverju marki og aðgangur að hlunnindaréttindum er háður samkomulagi við landeigendur. Um leið mótast tillögurnar af langri reynslu af þessari starfsemi og af mikilli þekkingu sem er til að dreifa um sláttuaðferðir, útbreiðslu þangs o.fl.
3.4. Svæðastjórnun við öflun sjávargróðurs utan fjöru.
Með lögum nr. 49/2017 var mælt fyrir um heimild til að skipta nýtingarsvæðum sjávargróðurs utan fjörusvæða í tiltekin afmörkuð svæði og takmarka öflun sjávargróðurs utan þeirra. Þá er heimilt að banna tímabundið öflun innan þessara svæða til að gefa tíma til endurvaxtar. Ekki hefur komið til þess að heimild þessari sé beitt. Gert er ráð fyrir því að hún verði efnislega óbreytt í lögunum, þótt að vísu sé nú lagt til að einföld tilvísun verði gerð til fyllri ákvæða þessa efnis í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með þessu hafa stjórnvöld möguleika á að afmarka þau svæði þar sem skurður á sjávargróðri er heimilaður á ári hverju og tryggja að ekki sé við nýtingu farið umfram ráðgjöf fyrir hlutaðeigandi svæði.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið gaf ekki tilefni til sérstaks mats til samræmis við grundvallarlög landsins. Þó má geta þess að við meðferð laga sama efnis nr. 49/2017 urðu nokkrar umræður um heimildir eigenda sjávarjarða til sjávarins, sem ástæðulaust er að rekja. Þang er slegið í fjöru og er merkjum jarða oftast lýst til fjörunnar. Til þangsláttar þarf samþykki landeiganda (fjörueiganda) og raskar frumvarp þetta því í engu.
5. Samráð.
Frumvarp þetta var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í september 2020 (mál nr. S-172/2020). Alls bárust 15 umsagnir um það.
Í skýrslu Háskólasetur Vestfjarða, sem barst í samráðsgáttina, kom fram að íslensk fyrirtæki væru komin skammt í vöruþróun fyrir afurðir úr sjávargróðri, en útlit væri fyrir að það mundi breytast. Nú væru um það bil 14 fyrirtæki eða vöruþróunarverkefni (e. start-ups) sem hagnýttu sjávargróður við framleiðslu vöru eða rannsóknir. Til nánari skýringa vísast til skýrslunnar sem hefur að geyma ágætt yfirlit yfir þessi efni og eru færðar þakkir fyrir að vekja athygli á henni. Þá má vekja athygli á þeirri ábendingu Þörungaverksmiðjunnar hf. að á Reykhólum hefur verið starfandi rannsóknar- og þróunarstöð frá 2017 undir heitinu Þörungaklaustur, sem sinnt hefur þróun aðferða og úrvinnslu til frekari verðmætaaukningar á þeim afla sem berst á land á Reykhólum.
Svo sem segir í umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga um frumvarpið er samspil allra aðila sem vinna að rannsóknum á lífríki Breiðafjarðar mikilvægt því að nýting þangs og þara skarar rannsóknarvettvang. Í umsögn Samtaka náttúrustofa sagði að taka yrði fram í lögum að Hafrannsóknastofnun væri skylt að rannsaka lífríki þaraskóga og þangfjara. Náttúrufræðistofnun Íslands gerði ýmsar athugasemdir við frumvarpið og lýsti sig reiðubúna til að gera betur grein fyrir þeirri afstöðu á síðari stigum, sem leiddi til frekara samráðs við stofnunina. Breiðafjarðarnefnd hafði einnig allnokkrar athugasemdir af sama meiði. Í kafla 3.1 er rakið hvers vegna er ekki ástæða til að setja sérstök lagafyrirmæli um þetta samstarf. Hefur þetta meðal annars verið rætt við fulltrúa Náttúrufræðistofnunar Íslands. Athuga má það mikilvæga hlutverk sem sú stofnun hefur við að samræma undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og skipulega heimildasöfnun um náttúru Íslands. Við undirbúning þessa frumvarps lét Náttúrufræðistofnun ráðuneytinu í té yfirlit um rannsóknir eða vöktunarverkefni sem stofnunin hefur stundað á næstliðnum árum, meðal annars í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, og tengjast vistkerfum fjörunnar og sjávargróðri. Horft er til þess að áframhaldandi samstarf verði milli stofnana á þessu sviði á næstu árum.
Það sem nú hefur verið sagt um Náttúrufræðistofnun á að mörgu leyti við um náttúrustofur. Það er rétt sem fram kemur í umsögn Samtaka náttúrustofa að starfsfólk þeirra býr yfir margvíslegri þekkingu á fjölmörgum sviðum náttúruvísinda sem nýta má við staðbundnar rannsóknir. Samtök náttúrustofa telja mikilvægt að lög um stjórn fiskveiða endurspegli vilja löggjafans til að nýta hagkvæmni þess að þekking sé dreifð um landið. Taka má undir að mikilvægt er að efla starfsemi opinberra stofnana á landsbyggðinni þótt ekki verði fallist á þörf á því að hafa sérstök fyrirmæli þar um í lögum um stjórn fiskveiða. Af þessu tilefni má einnig athuga að Hafrannsóknastofnun er með starfsemi víða á landsbyggðinni, meðal annars í Ólafsvík og á Ísafirði.
Af þessu tilefni verður einnig að athuga að með frumvarpinu er gert ráð fyrir að allt annað fyrirkomulag verði tekið upp við stjórnun nýtingar en samkvæmt þeim lagaákvæðum sem falla úr gildi í upphafi næsta árs. Með gerð nýtingaráætlunar fyrir þangslátt verður til nákvæmara stjórntæki en áður. Sjálfbærni nýtingar verður ekki gætt svo vel sé nema á grunni svæðisbundinna áætlana. Verði frumvarpið að lögum tekur Hafrannsóknastofnun nýtingaráætlanir til athugunar. Það er í góðu samræmi við lög um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, en í þeim segir að stofnunin skuli „rannsaka lífsskilyrði og lifnaðarhætti gróðurs, dýrasvifs og botndýra, einkum vistfræðileg tengsl hinna ýmsu samfélaga og samhengi þeirra við nytjastofna í sjó og í ferskvatni“, einnig „[a]ð veita stjórnvöldum og hagsmunaaðilum ráðgjöf og þjónustu varðandi sjálfbæra nýtingu á lifandi auðlindum í sjó og ferskvatni á grundvelli sjálfbærra viðmiða og nýtingarstefnu stjórnvalda“. Er því eðlilegt að Hafrannsóknastofnun hafi þetta hlutverk samkvæmt frumvarpinu.
Í umsögnum nokkurra einstaklinga var gerð athugasemd við að netlög hefðu hvergi verið nefnd sérstaklega í frumvarpinu, sem með því víki frá gildandi lögum þar sem segir að áður en öflun sjávargróðurs hefjist innan netlaga sjávarjarða (eða í netlögum) þurfi að hafa náðst samkomulag við landeiganda um heimild til öflunarinnar. Ástæðulaust er að rekja þessar athugasemdir en vísað er til 4. kafla. Rétt þótti þó að bregðast við þessu með því að geta netlaga þar sem fjallað er um heimild til að nýta fjörur til að slá þang. Þá voru einnig gerðar athugasemdir við að skylt væri að greiða veiðigjald vegna afla klóþangs. Sláttur þangs fari fram í fjöru sem lúti einkaeignarrétti og séu aðstæður því allt aðrar en við stjórnun fiskveiða. Fallast má á þessi sjónarmið og er því lagt til með frumvarpinu að klóþang verði undanskilið veiðigjaldi.
Í umsögn Reykhólahrepps er lögð áhersla á mikilvægi þörungavinnslu fyrir byggðina að Reykhólum. Í umsögninni segir að sveitarstjórn leggi áherslu á að varlega verði farið í allar breytingar sem varða öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni. Horft verði til byggðasjónarmiða og þróunar byggðar á landsbyggðinni. Einnig leggst sveitarstjórnin gegn breytingum sem fela í sér afslátt af rannsóknarskyldu áður en leyfi er veitt fyrir nýtingu. Farið hefur verið yfir umsögn hreppsins og leiddi hún ekki til breytinga á frumvarpinu.
Í umsögn Þörungaverksmiðjunnar segir að með frumvarpinu sé kastað fyrir róða viðurkenningu á nýtingarrétti sem byggist á sögulegri nýtingarreynslu. Bent er á að réttur til að slá þang í fjöru heyrir til eiganda sjávarjarðar. Sláttur á þangi byggist samkvæmt frumvarpsdrögum áfram á samkomulagi milli fulltrúa fyrirtækja og eigenda sjávarjarða. Þá þykir, svo sem kemur fram á öðrum stað í greinargerð, eigi rétt út frá samkeppnissjónarmiðum að binda eigendur sjávarjarða við heimild til sölu á aðgengi að fjörum við takmarkaðan hóp vinnsluaðila. Vísast nánar um þetta til umfjöllunar í kafla 3.2.
Með þeirri tillögu sem frumvarp þetta hefur að geyma er horft til þess að leyfi til nýtingar verði grundvölluð á nýtingaráætlunum fyrir fjörusvæði. Þessi aðferð er til muna skilvirkari til stjórnunar og þannig betur til þess fallin að tryggja sjálfbærni nýtingar en gildandi lög. Er því hafnað sem haldið er fram í umsögn Þörungaverksmiðjunnar hf. að með frumvarpinu sé horfið frá áherslu á vísindalegan grundvöll undir stjórnun nýtingar enda er það rangt. Í þessu sambandi skal athugað að árið 2018 lagði Hafrannsóknastofnun til, á grundvelli rannsókna og í samræmi við varúðarsjónarmið, að heildartekja klóþangs í Breiðafirði árin 2018–2022 yrði ekki meiri en 40 þús. tonn á ári. Um er að ræða yfir helmingi meira magn en nemur árlegum slætti á vegum Þörungaverksmiðjunnar. Fyrir liggur að vinnsla úr þörungum hér við land, úr þangi og þara, getur orðið stærri iðnaður í framtíðinni, svo sem bent er á í skýrslu Háskólaseturs Vestfjarða. Við þær aðstæður er eðlilegt að sett verði ný almenn löggjöf um þessa auðlindanýtingu til að auka fyrirsjáanleika og ýta undir sjálfbærni nýtingar.
6. Mat á áhrifum.
Þar sem klóþang vex aðeins í fjörum hefur því verið haldið fram að ekki sé þörf á lögum um skráningu og eftirlit með nýtingu. Megi helst líkja töku þangs við leigu á túnum. Á það var ekki fallist árið 2017 en þó er mikilvægt að athuga þá sérstöðu sem er ólík því sem gildir um aðra nýtingu hlunninda sjávar.
Eðlilegast virðist vera að setja ótímabundin lög um þessa nýtingu til að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri atvinnufyrirtækja sem stunda þessa nýtingu eða hyggjast stunda hana á næstu árum. Nú liggja auk þess fyrir betri áætlanir um lífmassa, samkvæmt samræmdri aðferðafræði, og hvernig megi tryggja sjálfbæra nýtingu sjávarplantna, samkvæmt rannsóknum sem Hafrannsóknastofnun hefur stundað. Um þessar rannsóknir vísast til upplýsinga í fylgiskjali I með frumvarpinu.
Skylda til að gera nýtingaráætlun fyrir fjörusvæði leggur auknar skyldur á þá sem stunda þangslátt. Í framkvæmd má þó ætla að hún verði ekki um of íþyngjandi. Í Breiðafirði, þar sem talið er að meiri en helmingur lífmassa þangs sé við Ísland, hafa allar þangfjörur verið kortlagðar auk þess sem safnað hefur verið upplýsingum um eignarhald á þeim.
Verði frumvarpið að lögum má gera ráð fyrir því að tekjur ríkissjóðs dragist saman um um það bil 8,5 millj. kr. vegna þess að sjávargróður verður undanskilinn veiðigjaldi.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1.–3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. og 6. gr.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Fylgiskjal I.
Minnisblað Hafrannsóknastofnunar 23. júní 2020:
Rannsóknaverkefni sem unnið hefur verið að á vegum Hafrannsóknastofnunar
í tengslum við þang- og þaratekju í Breiðafirði; 2016 til 2020.
Útbreiðsla og magn klóþangs í Breiðafirði.
Árið 2016 var farið á 40 stöðvar um allan Breiðafjörð og á hverri stöð var þang athugað á tveimur sniðum niður fjöruna frá efstu mörkum klóþangs niður að sjávarmáli um fjöru. Þéttleiki þangs og stærð plantna var mælt. Út frá þessum mælingum, loftmyndum, gervitunglamyndum og drónamyndum af afmörkuðum stöðum var heildarmagn klóþangs í Breiðafirði áætlað. Skýrsla um niðurstöður rannsóknanna hefur verið birt (Klóþang í Breiðafirði – Skýrsla). Unnið er áfram við að þróa aðferðir til að meta lífmassann með nákvæmari gervitunglamyndum og betra mati á áhrifum umhverfisþátta á lífmassa þangsins.
Endurvöxtur þangs eftir skurð.
Árið 2016 hófust mælingar á endurvexti þangs eftir skurð í Breiðafirði. Fjórir staðir voru valdir þar sem þrjár 50 og 100 m strandlengjur voru afmarkaðar. Á einni þeirra var þang skorið með þangsláttuprömmum og hinar tvær látnar óhreyfðar. Lífmassi þangs var mældur á öllum reitunum áður en það var slegið og síðan strax eftir að það var slegið. Síðan hefur verið farið árlega á þessa staði til að mæla breytingar á lífmassa þangsins. Gert er ráð fyrir að þessar mælingar standi yfir til 2022. Unnið er að samantekt þeirra gagna sem þegar hefur verið safnað í þessu verkefni.
Útbreiðsla og magn þara í Breiðafirði.
Árin 2018 og 2019 voru gerðar bergmálsmælingar á Breiðafirði til að kortleggja útbreiðslu og þéttleika þara. Siglt var eftir þéttum línum um allan fjörð innan þess dýpis sem þari vex, þ.e. frá fjöruborði niður á um 20 m dýpi yst í firðinum en niður á 12 til 15 m dýpi innar. Myndatökur neðansjávar eru notaðar til að ákvarða tegundir þara á botni. Gert er ráð fyrir að gagnasöfnun ljúki í sumar og að skýrsla liggi fyrir í vetur.
Skammtímabreytingar á lífríki fjörunnar eftir þangslátt.
Árið 2018 voru gerðar mælingar á áhrifum þangskurðar á lífríki fjörunnar, þ.e. áhrif á dýr í þanginu og lífríki botnsins. Fjórir reitir voru afmarkaðir og þang slegið með þangsláttuprömmum á tveimur reitanna en tveir voru ekki slegnir. Athuganir voru gerðar í fjörunni í 5 skipti á einu ári og bornar verða saman breytingar á lífríki fjörunnar á tímabilinu. Gagnasöfnun er lokið, úrvinnsla er í gangi og von er á skýrslu 2021.
Langtímabreytingar á lífríki fjörunnar eftir þangslátt.
Á þeim svæðum sem endurvaxtarmælingarnar eru gerðar eru einnig gerðar athuganir á áhrifum þangsláttar á lífríki fjörunnar til lengri tíma, þ.e. langtímaáhrifum á dýr í þanginu og lífríki botnsins. Einu sinni á ári er sýnum safnað þar til að meta hve lengi breytingar á lífríki fjörunnar vara. Gert er ráð fyrir að síðustu gögnum í þessu verkefni verði safnað í ár (2020). Enn er eftir að greina sýnin. Lögð verður áhersla á að ljúka vinnu við þau sýni árið 2021.
Áhrif þangsláttar á dýr sem koma í og nýta fjöruna á flóði.
Árið 2019 voru fjórir reitir afmarkaðir í þangfjöru þar sem tveir voru slegnir með þangsláttupramma en tveir voru látnir óhreyfðir. Á tveimur stöðum í hverjum reit var veitt með fjölmöskva netum og krabbagildrum af mismunandi gerð til að veiða þau krabbadýr og fiska sem fara upp í fjöruna á flóði í leit að skjóli og fæðu, en hverfa svo aftur úr fjörunni þegar fjarar út. Þessar athuganir voru gerðar í 5 skipti yfir eitt ár. Auk þess var sérstaklega hugað að þéttleika krabba víðar í firðinum, í fjörum sem mislangt er síðan slegnar voru. Gagnasöfnun að mestu lokið og gagnagreining hafin. Áætlað er að ljúka skýrslu um verkefnið 2021.
Árstíðabreytingar í vexti klóþangs.
Klóþangsplöntur voru einstaklingsmerktar í þremur hæðarbilum í fjöru, annars vegar við Stykkishólm og til samanburðar við Reykjavík. Mánaðarlega eru plönturnar myndaðar og vöxtur þeirra mældur út frá myndunum. Mældur er lengdar- og þykknunarvöxtur klóþangsplantna. Gagnasöfnum lýkur í byrjun sumars 2021. Mat á nýtingarhlutfalli og endurvexti með samanburði á svæðum sem mislangt er síðan voru slegin. Sambærilegar þangfjörur verða valdar út frá skráðum upplýsingum frá þangsláttumönnum og samtölum við þá. Gerðar verða þéttleikamælingar á þangi og mat á þekju mismunandi þangtegunda. Verkefnið hefst 2021
Fylgiskjal II.
Greinargerð Karls Gunnarssonar hjá Hafrannsóknastofnun um þang og þara
og nýtingu þeirra.
www.althingi.is/altext/pdf/152/fylgiskjol/s0490-f_II.pdf
Fylgiskjal III.
Reglugerð um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.
1. gr.
Gildissvið og leyfisbinding.
Um aðgang að netlögum sjávarjarða til sláttar á þangi fer samkvæmt samkomulagi við ábúanda eða landeiganda hverju sinni. Skylt er að veita Fiskistofu aðgang að slíku samkomulagi eða samn.ingi, verði eftir því leitað, í þágu aflaskráningar.
2. gr.
Þangsláttur.
Óheimilt er að stunda slátt á svæði þegar færri en fern áramót eru liðin síðan svæðið var slegið síðast. Fiskistofa getur veitt undanþágu frá þessu.
3. gr.
Þaratekja.
4. gr.
Eftirlit, skráningar o.fl.
Auk eftirlits Landhelgisgæslu með slætti og nýtingu hafa veiðieftirlitsmenn Fiskistofu eftirlit með að ákvæðum reglugerðar þessarar sé fylgt og er leyfishöfum skylt að gera þessum aðilum kleift að framkvæma athuganir á búnaði og aðstöðu.
5. gr.
Viðurlög o.fl.
Ráðherra er heimilt að fela Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi skv. 1. gr. sé talin ástæða til að takmarka öflun sjávargróðurs eða endurskipuleggja stjórnun hennar.
6. gr.
Gildistaka.