Ferill 678. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1055  —  678. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt,
lögum um almannatryggingar og lögum um húsnæðisbætur
(mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu).


Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Minni hlutinn styður þau skref sem stigin eru með frumvarpinu enda hafa þingmenn Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar kallað látlaust eftir því síðan í febrúar að brugðist verði við aukinni verðbólgu og vaxtahækkunum með mótvægisaðgerðum í þágu tekjulægri heimila eins og ríkisstjórnir víða í Evrópu hafa gert, sjá t.a.m. þingsályktunartillögu um mótvægisaðgerðir sem flokkarnir lögðu fram þann 8. febrúar síðastliðinn (þskj. 465, 330. mál). Slíkar aðgerðir eru löngu tímabærar og það er ekki í anda vandaðrar lagasetningar að aðgerðapakkinn sé afgreiddur undir tímapressu mörgum mánuðum eftir að vandinn varð ljós. Þá verður að gera alvarlegar athugasemdir við að hópar sem verða fyrir miklum búsifjum vegna hækkandi greiðslubyrði og verðlags séu skildir eftir og að ríkisstjórnin sýni enga viðleitni til að slá á þenslu með aðgerðum á tekjuhlið ríkisfjármálanna.

Atvinnuleysisbætur rýrna.
    Það eru níu þúsund manns á Íslandi án vinnu og þar af hafa 3.000 manns verið á atvinnuleysisskrá í meira en 12 mánuði. Þetta er fólk sem hefur orðið fyrir miklu tekjufalli, með einna lægstu mánaðartekjur hér á landi og er engu minna berskjaldað fyrir hækkun matvæla- og eldsneytisverðs og auknum húsnæðiskostnaði heldur en þeir hópar sem komið er til móts við með beinum hætti í frumvarpinu. Engin skynsamleg rök hafa verið færð fyrir því að skilja atvinnuleitendur eftir í þessum aðgerðapakka.
    Í fjárlögum undanfarinna ára hafa atvinnuleysisbætur alla jafna fylgt prósentuhækkun bóta almannatrygginga og laga um félagslega aðstoð. Fjallað hefur verið um þetta sem „venju“ í greinargerðum fjárlagafrumvarpa. Nú stendur hins vegar til að flýta lögbundinni hækkun bóta almannatrygginga vegna verðbólgunnar en láta bætur atvinnuleysistrygginga rýrna að raunvirði sem er með öllu óásættanlegt og vond félagsmálapólitík. Samtök launafólks mótmæla þessu harðlega í umsögnum. Minni hlutinn tekur undir þá gagnrýni og leggur til að grunnatvinnuleysisbætur skv. 33. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hækki um 3% frá 1. júní líkt og á við um hækkun almannatrygginga. Grunnatvinnuleysisbætur eru nú 313.729 kr., sbr. reglugerð 1657/2021. Minni hlutinn leggur því til að þær hækki í 323.141 kr.

Ungt fólk og fyrstu kaupendur taka skellinn.
    Verðbólga mældist 7,2% í apríl, hefur ekki mælst hærri síðan 2010 og samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga aukist í rúmlega 8% á þriðja fjórðungi ársins.
    Megindrifkraftur verðbólgunnar er hækkandi húsnæðisverð, en verðið hefur rokið upp eftir að stýrivextir voru keyrðir niður í heimsfaraldri og hömlum létt af útlánagetu bankakerfisins. Frá byrjun árs 2020 til loka ársins 2021 jukust húsnæðisskuldir heimilanna um 450 milljarða kr. Eru það rúmlega 200 milljarðar kr. á ári, um tvöfaldur taktur miðað við árin þar á undan. Á sama tíma var samdráttur í nettóútlánum til fyrirtækja og sér í lagi til byggingargeirans, auk þess sem sóttvarnaraðgerðir settu strik í reikninginn á byggingarstöðum. Allt kynti þetta undir ójafnvægi á húsnæðismarkaði en samkvæmt mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í maí hefur íbúðaverð hækkað um 22,3% á landinu öllu undanfarna tólf mánuði miðað við vísitölu paraðra viðskipta.
    Stór hluti þeirra sem tóku lán á lágum vöxtum er ungt fólk, en aldrei hafa eins margir fyrstu kaupendur verið á íbúðamarkaði og á COVID-tímanum eða um þriðjungur. Í þessum hópi eru einnig tekjulágir einstaklingar sem komust í gegnum greiðslumat á tímum sögulega lágra vaxta. Þetta er fólkið sem nú ber hitann og þungann af snörpum vaxtahækkunum.
    Samkvæmt Peningamálum Seðlabankans hefur kostnaður fólks vegna eigin húsnæðis hækkað um 17,2% á tímabilinu apríl 2021 til apríl 2022. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun spáir því að í júní verði mánaðarleg greiðslubyrði óverðtryggðra lána að lágmarki 49.700 kr. á hverjar 10 mill. kr. sem eru teknar að láni. Til samanburðar var greiðslubyrðin um 37.300 kr. á hverjar 10 mill. kr. sem teknar voru að láni þegar stýrivextir voru í lágmarki fyrir ríflega ári síðan. Þannig verði greiðslubyrðin um þriðjungi hærri í næsta mánuði en hún var fyrir ári. Fyrir heimili með 50 millj. kr. lán er þetta 62 þús. kr. kostnaðarauki á mánuði til viðbótar við hækkandi matvæla- og eldsneytisverð. Í frumvarpinu er engar aðgerðir að finna fyrir þennan hóp.

Ójafnaðarstefna í húsnæðisstuðningi.
    Umtalsverðar breytingar hafa verið gerðar á tilfærslukerfunum undanfarinn áratug sem hafa veikt vaxtabótakerfið. Vaxtabætur hjálpa því ekki nýjum fasteignaeigendum á sama hátt og þær gerðu fyrir tíu árum vegna brattrar eignaskerðingar sem hefur ekki þróast með eignaverði. Í dag skerðast vaxtabætur við 5 millj. kr. í eigið fé (8 millj. kr. hjá hjónum) þar til rétturinn fellur niður við 8 millj. kr. (12,8 millj. kr. hjá hjónum). Þannig falla bæturnar niður við 24% eignarhlut í meðalíbúð í Reykjavík hjá pari, 90 m2 að stærð, en hjá einstaklingi við 16% eignarhlut. Eignaskerðingarmörk vaxtabótakerfisins hafa staðið óhreyfð síðan 2018 á tímum gríðarlega fasteignaverðshækkana. Samhliða veikingu vaxtabótakerfisins hafa fjármunir færst til þeirra sem geta notað séreignarsparnað til inngreiðslu. Stærstur hluti skattafsláttarins vegna séreignarsparnaðar, rúmlega 30 milljarðar kr. frá árinu 2015, hefur nýst tekjuhæstu 30% landsmanna og helmingurinn af úrræðinu runnið til tekjuhæstu 10%.
    Við umfjöllun efnahags- og viðskiptanefndar var óskað eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu með mati á kostnaðinum af því að hækka öll eignaskerðingarmörk vaxtabótakerfisins um 25 % og hvernig ábatinn af því myndi dreifast á tekjuhópa. Samkvæmt mati ráðuneytisins, sem byggist á álagningarskrá Skattsins vegna tekjuársins 2020, myndu útgjöld vegna vaxtabóta hækka um 450 millj. kr. Meðalhækkunin hjá þeim sem fá vaxtabætur væri 25.300 kr. og er áætlað að í þeim hópi myndi fjölga um 2.800 einstaklinga. Mestu áhrifin yrðu hjá einhleypu fólki og einstæðum foreldrum sem hafa lágan tekjustofn og verða því ekki fyrir miklum skerðingum vegna tekna en hafa eignastofn sem er nálægt efri mörkum eignaskerðingarinnar. Heilt yfir myndu fleiri hjón og aðilar í sambúð njóta góðs af breytingunni. Hækkunin væri mest í tekjutíundum 6 og 7 og talið er að 55% af hækkuninni myndi koma í hlut kvenna.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins er varað við því að gerðar séu breytingar á fjárhæðar- og skerðingarmörkum vaxtabóta á miðju ári í stað þess að hækkanir séu lögfestar í lok tekjuárs vegna komandi álagningarárs. „Fjárhæð vaxtagjalda, tekjur og eignir hafa áhrif á fjárhæð vaxtabóta. Á álagningarseðli kemur fram hvaða forsendur liggja að baki útreikningi hjá hverjum og einum og áhrif þeirra á niðurstöður útreiknings. Álagning ársins 2022 vegna tekjuársins 2021 er lokið og er því ákveðinn ómöguleiki fyrir því að hækka fjárhæðar- og skerðingarmörk vaxtabóta á miðju ári,“ segir í minnisblaðinu. Minni hlutinn skorar á ríkisstjórnina að hefja strax undirbúning að aðgerðum til að verja fyrstu kaupendur og ungt fólk í eigin húsnæði fyrir áhrifum vaxtahækkana. Auk þess að brýnt er að gripið verði tafarlaust til aðgerða til að bæta réttarstöðu leigjenda, verja þá fyrir óhóflegri hækkun leigufjárhæðar og leiðrétta það ójafnvægi sem hefur myndast á leigumarkaði. Sú hækkun húsnæðisbóta sem lögð er til í frumvarpinu dugar skammt ef ekki verða gerðar grundvallarbreytingar á umgjörð og regluverki leigumarkaðarins.

Styrkja verður tekjuhliðina.
    Stjórnmálin geta ekki látið Seðlabanka Íslands einum eftir að sporna gegn verðbólgu. Það er verkefni stjórnmálanna að tryggja að sveiflur í efnahagslífinu komi ekki harkalega niður á viðkvæmum hópum en slíkt er unnt að gera án þess að létt sé á aðhaldsstigi opinberra fjármála í heild. Samhliða stuðningsúrræðum er t.d. hægt að draga úr þensluhvetjandi skattastyrkjum til efri millitekjuhópa og auka álögur á þau sem eiga og hafa hæstar tekjur í íslensku samfélagi.
    Veikleikarnir í undirliggjandi afkomu ríkissjóðs hafa verið ljósir frá því löngu áður en heimsfaraldur kórónuveiru skall á eins og fjármálaráð hefur margsinnis bent á. Mikilvægt er að snúa þessari þróun við og styrkja tekjuhlið ríkisins svo sjálfbærni opinberra fjármála sé tryggð til langs tíma. Þar ætti að horfa sérstaklega til skattlagningar fjármagns, eigna og hæstu tekna auk sanngjarnra auðlindagjalda og styrkingar á tekjustofnum sveitarfélaga. Við slíka tekjuöflun verður að líta til þess gríðarlega ójafnvægis sem hefur skapast milli atvinnugreina eftir að heimsfaraldurinn skall á. Sumir geirar efnahagslífsins hafa borið þungar byrðar meðan afkoma fyrirtækja hefur verið sögulega há í öðrum greinum á tímum heimsfaraldurs. Viðskiptabankarnir þrír skiluðu rúmlega 80 milljarða kr. hagnaði í fyrra og nutu þeir góðs af tugmilljarða stuðningi skattgreiðenda sem var veittur til að forða fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fleiri greinum frá gjaldþroti á farsóttartímum sem hefði valdið bönkunum gríðarlegu útlánatapi. Eins og Bandalag háskólamanna hefur bent á var samanlagður rekstrarafgangur í sjávarútvegi, byggingastarfsemi, fjármálastarfsemi, fasteignaviðskiptum og heild- og smásöluverslun rúmlega 900 milljarðar kr. á árunum 2020–2021 á verðlagi ársins 2021 sem er um 120 milljarða kr. aukning frá árunum 2018 og 2019. Rekstrarafgangur í heild- og smásöluverslun, fasteignaviðskiptum, byggingastarfsemi og mannvirkjagerð var sá mesti á öldinni mælt í milljörðum króna á föstu verðlagi, og rekstrarafgangur í fasteignaviðskiptum 392 milljarðar kr. á verðlagi ársins 2021 eða 6,2% af vergri landsframleiðslu sem er það langhæsta á öldinni. Allt eru þetta atriði sem verður að hafa til hliðsjónar þegar gripið er til tekjuöflunaraðgerða.
    Minni hlutinn leggur til eftirfarandi

BREYTINGU:


    Á eftir 3. gr. komi nýr kafli, IV. kafli Breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með einni grein, svohljóðandi:
    Í stað fjárhæðarinnar „149.523 kr.“ í 2. mgr. 33. gr. laganna kemur: 323.141 kr.

Alþingi, 24. maí 2022.

Jóhann Páll Jóhannsson,
frsm.
Björn Leví Gunnarsson. Guðbrandur Einarsson.