Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1137, 152. löggjafarþing 318. mál: almenn hegningarlög (erlend mútubrot).
Lög nr. 30 9. júní 2022.

Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (erlend mútubrot).


1. gr.

     Við 5. mgr. 81. gr. laganna bætist: nema vegna brota er varða við 109. gr. og 1. mgr. 264. gr. a þar sem fyrningarfrestur er 10 ár.

2. gr.

     Í stað orðanna „5 árum“ í 1. mgr. 109. gr. laganna kemur: 6 árum.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 264. gr. a laganna:
  1. Orðin „í atvinnurekstri“ í 1. og 2. mgr. falla brott.
  2. Á eftir orðunum „í opinberri eigu“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða undir stjórn hins opinbera.
  3. Í stað orðanna „í bága við starfsskyldur“ í 1. mgr. kemur: sem tengist starfsskyldum.
  4. Í stað orðanna „5 árum“ í 1. mgr. kemur: 6 árum.
  5. Í stað orðanna „í bága við starfsskyldur sínar“ í 2. mgr. kemur: sem tengist starfsskyldum hans.


4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 1. júní 2022.