Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 592, 153. löggjafarþing 211. mál: sjúklingatrygging (bótaréttur vegna bólusetninga).
Lög nr. 114 30. nóvember 2022.

Lög um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (bótaréttur vegna bólusetningar).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir 3. mgr. 3. gr. greiðast bætur til þeirra sem gangast undir bólusetningu á Íslandi með bóluefni gegn apabólu á árunum 2022–2023 sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til vegna tjóns sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, þ.m.t. við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns, enda megi að öllum líkindum rekja tjónið til einhvers atviks sem talið er upp í 2. gr. Sjúkratryggingastofnunin ber bótaábyrgð samkvæmt ákvæði þessu, sbr. 9. gr.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 23. nóvember 2022.