Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 783 — 304. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um lífeindafræðinga.
1. Hve mörg stöðugildi lífeindafræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
Árið 2016 var 132,1 stöðugildi lífeindafræðings á Landspítalanum og 20,7 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 voru 139,6 stöðugildi lífeindafræðinga á Landspítalanum og 20,3 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
2. Hversu margir lífeindafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
Árið 2016 voru 172 lífeindafræðingar á Landspítalanum og 29 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 voru 193 lífeindafræðingar á Landspítalanum og 24 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
3. Hve mörg stöðugildi lífeindafræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda stöðugilda lífeindafræðinga eftir heilbrigðisumdæmum fyrir árin 2016 og 2021:
| Lífeindafræðingar Stofnun |
2016 Stöðugildi |
2021 Stöðugildi |
| Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | 2,7 | 0 |
| Einkareknar heilsugæslur | 0 | 1 |
| Reykjavíkurborg | 0 | 0 |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | 0 | 0 |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | 3,25 | 2,5 |
| Heilbrigðisstofnun Norðurlands | 3,5 | 4 |
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | 1,37 | 0,87 |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | 5,9 | 11,31 |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | 3,7 | 3,3 |
| Stöðugildi lífeindafræðinga alls | 20,42 | 22,98 |
4. Hversu margir lífeindafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda starfandi lífeindafræðinga á heilsugæslum eftir heilbrigðisumdæmum:
| Lífeindafræðingar Stofnun |
2016 Fjöldi starfsmanna |
2021 Fjöldi starfsmanna |
| Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | 4 | 0 |
| Einkareknar heilsugæslur | 0 | 1 |
| Reykjavíkurborg | 0 | 0 |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | 0 | 0 |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | 4 | 3 |
| Heilbrigðisstofnun Norðurlands | 4 | 4 |
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | 3 | 0 |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | 16 | 20 |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | 4 | 6 |
| Lífeindafræðingar alls | 35 | 34 |
5. Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
Nei. Ráðuneytið hefur ekki sett viðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum.
Landsráð um menntun og mönnun var stofnað í maí 2021. Hlutverk þess er að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana ráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði þvert á menntastofnanir, fagfélög, sjúklingasamtök og aðra hagsmunaaðila.
Í ráðuneytinu fer einnig fram vinna við umfangsmikla mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið sem mun hjálpa til við að kortleggja mönnunina í dag og þörfina til framtíðar. Mönnunarþörf lífeindafræðinga þarf að greina út frá fjölmörgum breytum. Meðal annars þarf að taka tillit til breyttrar aldurssamsetningar samfélagsins, mannfjöldaþróunar, fjölda ferðamanna, fjármagns, verkefnis hverrar stofnunar og skipulags vinnunnar.
6. Hefur ráðuneytið hafið vinnu við að skilgreina störf lífeindafræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
Nei. Ráðuneytið hefur ekki skilgreint störf lífeindafræðinga í heilbrigðiskerfinu umfram það sem fram kemur í reglugerð nr. 1132/2012 um menntun, réttindi og skyldur lífeindafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi. Reglugerðin er sett á grundvelli laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. Markmið laga um heilbrigðisstarfsmenn er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um menntun, kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra. Í 4 gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, segir: „Rétt til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar skv. 3. gr. og starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.“ Samkvæmt 25 gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, hefur landlæknir eftirlit með að heilbrigðisþjónusta uppfylli faglegar kröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu og ákvæði heilbrigðislöggjafar á hverjum tíma.
Það er hlutverk hverrar stofnunar fyrir sig að tryggja að hæfni, menntun og reynsla hverrar starfsstéttar nýtist sem best og stuðla að teymisvinnu.
Þá kveða allar reglugerðir heilbrigðisstétta á um að heilbrigðisstarfsmenn viðkomandi stéttar skuli þekkja skyldur sínar og virða faglegar takmarkanir sínar og eftir atvikum óska eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef þeir telja sig ekki geta veitt honum viðeigandi þjónustu.
7. Hvert er lágmarksviðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
Ráðuneytið hefur ekki sett lágmarksviðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum, sbr. svar við 5. tölul. fyrirspurnar.
Ekki er einhlítt svar við því hvert rétt mönnunarviðmið sé. Almennt er það skilgreint út frá starfsemi hverrar einingar eða deildar. Einingin getur verið heilsugæsla, mismunandi deildir sjúkrahúsa, hjúkrunardeildir eða hjúkrunarheimili. Einnig getur mikill breytileiki verið í umfangi starfsemi hverrar einingar. Taka þarf tillit til stærðar, íbúafjölda á hverjum stað og samsetningar innbyrðis, eins og aldursdreifingar íbúa, auk sveiflu í þörf fyrir þjónustu, svo sem tengdri ferðaþjónustu. Við skipulag mönnunar horfa stofnanir einnig til fjárveitinga/fjárheimilda og aðgengis að starfsfólki. Þannig getur verið munur á skipulagi mönnunar heilbrigðisstarfsfólks eftir landsvæðum.
Við rekstur heilsugæslustöðva á landsbyggðinni er fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni til viðmiðunar, útg. 2022 (september). Almennt byggjast greiðslur til stöðvanna á fjölda skráðum á stöðina, lýðfræðilegri samsetningu og einkennum. Tekið er mið af aldri, kyni, mældri sjúkdómsbyrði, félagslegum aðstæðum einstaklinga, mældum þjónustuþáttum o.s.frv. Þegar um er að ræða minnstu stöðvarnar á landsbyggðinni er greitt sérstakt smæðarálag. Við rekstur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er fjármögnunalíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu til viðmiðunar, útg. 2022 (september).
Landspítalinn skilgreinir ekki lágmarksviðmið um mönnun lífendafræðinga, heldur miðar við fjármögnuð stöðugildi sem lágmarksstöðugildi. Hvað snertir starfsemi rannsóknarþjónustu Landspítala er annars vegar horft til öryggisviðmiða og hins vegar raunmönnunar. Landspítali er að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar út frá sinni starfsemi.
Viðmið Sjúkrahússins á Akureyri hafa miðast við fjárheimildir og hvernig aðgengi er að starfsfólki. Sjúkrahúsið er að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar.
Að lokum má nefna að allar stofnanirnar eru með svokallaða verkfallslista sem sendir eru til stéttarfélaga. Slíkir listar eru hugsaðir sem öryggislistar, þar sem skilgreind er lágmarksmönnun til að halda starfseminni gangandi til skemmri tíma.
8. Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt lífeindafræðinga?
Samkvæmt Félagi lífeindafræðinga er meðalaldur lífeindafræðinga 51,4 ár. Í stétt lífeindafræðinga eru um 97% konur og 3% karlar. Ekki liggja fyrir upplýsingar um önnur kyn.
9. Getur ráðuneytið upplýst um fjölda einstaklinga sem leggja stund á nám í lífeindafræði til BS-gráðu (180 ECTS)?
Alls leggja 195 einstaklingar stund á nám í lífeindafræði til BS-gráðu við Háskóla Íslands.
10. Getur ráðuneytið upplýst um fjölda einstaklinga sem leggja stund á diplómanám til starfsréttinda í lífeindafræði (60 ECTS)?
Alls leggja 11 einstaklingar stund á diplómanám til starfsréttinda í lífeindafræði. Til viðbótar leggja 29 einstaklingar stund á MS-nám í lífeindafræði sem einnig leiðir til starfsréttinda.