Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1060  —  689. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030.


Frá menningar- og viðskiptaráðherra.



    Alþingi ályktar að fela menningar- og viðskiptaráðherra að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu í málefnum tónlistar fyrir árin 2023–2030. Aðgerðaáætlun stefnunnar verði í tveimur hlutum. Aðgerðaráætlun stefnunnar verði í tveimur hlutum, fyrir árin 2023–2026 og 2027–2030.

MARKMIÐ OG FRAMTÍÐARSÝN.

    Með tónlistarstefnu verði mótuð framtíðarsýn og vegvísar með það að markmiði að styðja við tónlist sem listgrein, tónlistarfólk og aðra sem starfa við tónlist. Tryggð verði inngilding og aðgengi almennings að tónlist og tónlistarmenntun.
    Tónlistarstefnan innihaldi þrjár megináherslur sem hver um sig hafi að geyma tiltekið markmið og aðgerðir til ná að því.

TÓNLISTARSTEFNA OG AÐGERÐAÁÆTLUN 2023–2030.

Megináhersla 1. Tónlistarmenning og -menntun.
Markmið 1.1. Húsnæði til tónlistariðkunar verði greint og kortlagt.
    1.1.1. Greint verði og kortlagt hvaða húsnæði í eigu hins opinbera, t.d. menningarhús eða félagsheimili um allt land, væri hægt að nýta undir sköpun, hljóðritun eða flutning tónlistar.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Hefjist haustið 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    1.1.2. Úthlutunarreglur nýs tónlistarsjóðs verði þannig úr garði gerðar að tónleikastaðir og tónleikahaldarar geti sótt um styrki fyrir verkefni á borð við umbætur á aðstöðu, listræna stjórnun tónleikaraða og fleira.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarsjóð.

Markmið 1.2. Hugað verði að íslenskri tónlistararfleifð og varðveislu tónlistar.
    1.2.1. Starfshópur verði settur á laggirnar sem komi með tillögur að því hvernig best megi varðveita og tryggja aðgengi að tónlistarverðmætum. Enn fremur kortleggi hann hvar menningarverðmæti á sviði tónlistar sé helst að finna.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist vorið 2024.
    Kostnaður: Á ekki við.

    1.2.2. Ríkisútvarpið kanni hlut íslenskrar tónlistar í dagskrárgerð á öllum sínum miðlum. Í framhaldinu verði samtal hafið um fleiri tækifæri til miðlunar og kynningar á íslenskri tónlist og tónverkum og útfærsla gerð í tengslum við endurskoðun á þjónustusamningi.
    Ábyrgð: Ríkisútvarpið og menningar- og viðskiptaráðuneyti.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Falli undir Ríkisútvarpið.

Markmið 1.3. Tónlistarmenntun verði fjölbreytt og af miklum gæðum.
    1.3.1. Hafin verði endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Úttekt hefjist í desember 2023.
    Kostnaður: Metinn eftir að úttekt lýkur.

    1.3.2. Átak verði gert í nýliðun tónlistarkennara. Farið verði í auknar kynningar á kennaramenntun í tengslum við tónlist á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Úttekt hefst í desember 2023.
    Kostnaður: Metinn eftir að úttekt lýkur.

    1.3.3. Ráðist verði í uppbyggingu framtíðarhúsnæðis Listaháskóla Íslands. Samhliða fari fram greining á framtíðarfyrirkomulagi skólans hvað varðar rekstrarform og skólagjöld.
    Ábyrgð: Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytið.
    Tímaáætlun: Lok áætluð 2025–2027.
    Kostnaður: Fjármögnun staðfest.

    1.3.4. Áhersla verði lögð á áframhaldandi stuðning við verkefni sem miða að því að auka aðgengi og áhuga barna á tónlist og tónlistarsköpun.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: 2023–2026.
    Kostnaður: Verði metinn eftir einstökum verkefnum.

Megináhersla 2. Tónlist sem skapandi atvinnugrein.
Markmið 2.1. Tónlistariðnaðurinn verði sterkur og framsækinn.
    2.1.1. Sett verði á fót tónlistarmiðstöð sem stuðli að auknu samstarfi innlendra og erlendra fyrirtækja og veiti ráðgjöf varðandi fjáröflun til tónlistarverkefna, frá einkaaðilum og opinberum sjóðum.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: 450 millj. kr. 2023–2026.

    2.1.2. Hafin verði skoðun á rekstrarumhverfi tónlistarverkefna á Íslandi og það borið saman við rekstrarumhverfi tónlistarverkefna annars staðar á Norðurlöndum og í öðrum löndum þar sem tónlistariðnað er sterkur, þ.m.t. skattalega hvata.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Vorið 2024.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.1.3. Reglur um endurgreiðslur vegna hljóðritunarkostnaðar verði endurskoðaðar þannig að þær styðji við markmið stjórnvalda um samkeppnishæft umhverfi.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023 og ljúki 2024.
    Kostnaður: Kostnaður metinn síðar.

    2.1.4. Skoðað verði hvort útvíkka eigi endurgreiðslur vegna hljóðritunarkostnaðar svo að þær nái til fleiri þátta, svo sem framleiðslu tónlistarmyndbanda.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023 og ljúki 2024.
    Kostnaður: Kostnaður metinn síðar.

    2.1.5. Sett verði á laggirnar tónlistarráð sem hafi það hlutverk að vera samráðsvettvangur hagaðila og stjórnvalda og vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málefni tónlistar.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2023.
    Kostnaður: Á ekki við.

Markmið 2.2. Tónlist verði fullgild og eftirsóknarverð atvinnugrein.
    2.2.1. Ráðist verði í kynningarátak á þeim störfum sem tónlistargeirinn býður upp á.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Vorið 2024.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.2.2. Hvatt verði til aukins samstarfs og þekkingaryfirfærslu þvert á hugverkagreinar á sviði fyrirtækja- og atvinnuuppbyggingar.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Hefjist vorið 2024.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.2.3. Í nýrri tónlistarmiðstöð verði svið sem sinni fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við tónlistarfólk á öllum stigum ferils þess og haldi úti verkefnum á borð við viðskiptahraðla sem miði að því að styðja við uppbyggingu sprotafyrirtækja.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

Markmið 2.3. Betri yfirsýn fáist yfir umfang tónlistargeirans.
    2.3.1. Gerð verði úttekt á skráningu tónlistartengdra fyrirtækja og þeim grunngögnum sem notuð eru í tölfræðiúttektum Hagstofu Íslands.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2025.
    Kostnaður: Verði metinn síðar.

    2.3.2. Tónlistarmiðstöð hýsi miðlægan grunn með ýmiss konar tölulegum upplýsingum um tónlist og sé tengiliður tónlistar við Hagstofu Íslands, háskólastofnanir og aðra sem sinna rannsóknum á sviði menningar og lista. 
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Haustið 2024.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.3.3. Gerð verði greining á því í hvaða alþjóðlegu, evrópsku og norrænu tölfræðirannsóknum tengdum tónlist Ísland taki þátt og samstarfi verði komið á við Hagstofu Íslands um gerð aðgerðaáætlunar tengdri því. 
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Vorið 2025.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.3.4. Hafin verði skoðun á samstarfi við nágrannalönd um rannsóknir á hagrænum áhrifum tónlistar.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Vorið 2025.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

    2.3.5. Vinna verði hafin við að móta mælaborð tónlistariðnaðarins.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Hefjist vorið 2024.
    Kostnaður: Verði metinn síðar.

Markmið 2.4. Sjóðakerfi tónlistar verði skilvirkt.
    2.4.1. Hljóðritasjóður, Tónlistarsjóður og Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar verði sameinaðir í nýjum tónlistarsjóði. Í tónlistarsjóði verði mismunandi deildir sem sinni ólíkum stigum tónlistarverkefna, allt frá frumsköpun til markaðssetningar og útflutnings.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2023.
    Kostnaður: 645 millj. kr. 2023–2026.

    2.4.2. Markmið nýs tónlistarsjóðs og árangursmælikvarðar verði skilgreindir. Árangur verði metinn árlega.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarsjóð.

    2.4.3. Efld verði kynning á erlendum styrktarsjóðum sem standa til boða fyrir íslensk verkefni og verkefni þvert á landamæri.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Verði metinn síðar.

Megináhersla 3. Útflutningur á íslenskri tónlist.
Markmið 3.1. Útflutningstekjur af tónlist aukist.
    3.1.1. Leitað verði leiða til að vekja athygli á íslenskri tónlist.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: Hefjist 2024.
    Kostnaður: Verði kostnaðarmetinn þegar greiningu er lokið.

    3.1.2. Tónlistarsjóður styðji við efnileg tónlistarverkefni sem eiga möguleika á hröðum vexti á erlendum mörkuðum.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Vorið 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarsjóð.

    3.1.3. Skoðað verði hvernig virkja megi enn frekar samstarf við sendiskrifstofur Íslands erlendis í útflutningi og kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarfólki.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð í samstarfi við utanríkisþjónustuna og sendiráð.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Á ekki við.

    3.1.4. Samtal verði hafið við stærri streymisveitur um íslenska ritstjórn og hagsmuni íslensks tónlistarfólks.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Á ekki við.

    3.1.5. Stuðningur við tónlistarhátíðir verði markviss, m.a. með því að nýr tónlistarsjóður bjóði upp á rekstrarstuðning til lengri tíma.
    Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarsjóð.

    3.1.6. Skoðað verði hvernig efla megi kynningar á landinu, tónlist þess og tónlistarhátíðum.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð og Íslandsstofa.
    Tímaáætlun: Hefjist 2023.
    Kostnaður: Verði metinn þegar möguleikar hafa verið greindir.

    3.1.7. Hafin verði greining á því hvenær á ferli tónlistarfólks mest þörf er fyrir útflutningsstuðning.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: 2024.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

Markmið 3.2. Tónlistargeirinn verði sjálfbær og umhverfisvænn.
    3.2.1. Mótaður verði staðall fyrir tónlistarfólk, tónleikahaldara og tónlistarhátíðir um hvernig minnka megi kolefnisfótspor viðburða og tónleikaferðalaga og stuðla að meiri sjálfbærni.
    Ábyrgð: Tónlistarmiðstöð.
    Tímaáætlun: 2025.
    Kostnaður: Falli undir tónlistarmiðstöð.

Greinargerð.

    Tillaga til þingsályktunar um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030 byggist á tillögum starfshóps sem ráðherra menningarmála skipaði 1. desember 2020. Hlutverk starfshópsins var að rýna umhverfi tónlistargeirans á Íslandi, skoða hvernig stuðnings- og sjóðakerfi tónlistar væri best skipulagt, leggja drög að tónlistarstefnu og skilgreina hlutverk og ramma tónlistarmiðstöðvar, sem ráðgert var að setja á laggirnar.
    Starfshópurinn skilaði skýrslu vorið 2021 sem fól m.a. í sér drög að tónlistarstefnu og upplegg fyrir nýjan tónlistarsjóð. Á grunni þeirrar skýrslu var unnið að frekari mótun tónlistarstefnu með aðkomu hagaðila, þar á meðal Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, Ríkisútvarpsins, Tónverkamiðstöðvar, STEF, Félags íslenskra hljómlistarmanna, Félags íslenskra tónlistarmanna, Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, Listaháskóla Íslands, Félags tónskálda og textahöfunda, Tónskáldafélagsins, Hörpu og annarra aðila tengdra menningu og listum. Tónlistarmenntun er órjúfanlegur hluti heilbrigðs tónlistarumhverfis og því var menntunarhluti stefnunnar unnin í góðu samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.
    Við mótun stefnunnar var hliðsjón höfð af öðrum stefnum og skýrslum á borð við kvikmyndastefnu, menningarstefnu og sérstaklega menningarsókn sem er aðgerðaáætlun um listir og menningu til ársins 2030.
    Litið var til aðferðafræði stefnumótunar sem lögð er til af Stjórnarráðinu þar sem mat er gert á núverandi stöðu, framtíðarsýn sett fram og í kjölfarið valin besta leið að henni. Staða tónlistarumhverfisins á Íslandi hafði verið nokkuð ítarlega rýnd í skýrslum og rannsóknum sem teknar voru með í reikninginn í vinnu starfshóps um tónlistarmiðstöð sem lagði til drög að tónlistarstefnu og framtíðarsýn. Í samstarfi við hagaðila voru helstu áskoranir, tækifæri og áherslur greindar og tillögur að aðgerðum mótaðar. Í framhaldinu var unnið lengra með aðgerðatillögurnar, þær kostnaðarmetnar eftir föngum og þær aðgerðir sem líklegar voru til að ná fram að ganga á næstu þremur árum voru valdar á fyrri hluta aðgerðaáætlunarinnar, fyrir árin 2023–2026 Lögð var áhersla á að hver aðgerð hefði tilgreindan ábyrgðaraðila og tímamörk.
    Það er ekki að ástæðulausu að ákveðið var að tími væri kominn til að setja skýra tónlistarstefnu. Tónlistarlíf á landinu hefur getið af sér ríkan menningararf sem á sér fastan sess í hjörtum landsmanna. Kórastarf, söngur fjölbreyttar tónlistarstefnur og tónlistarfólk hafa glætt menningu landsins lífi í áranna rás. Tónlistarsenan hefur svo sannarlega blómstrað frá aldamótum og var upptakturinn hafinn rúmum áratug þar á undan. Tónlistarlífið hefur einkennst af sköpunargleði, samstarfi og óttaleysi við að fara nýjar leiðir. Íslenskt tónlistarfólk sem starfar við alls kyns tónlistarstefnur og tegundir tónlistar hefur náð gífurlegum árangri á erlendri grundu og unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir störf sín.

Grundvöllur ríkrar tónlistarmenningar er tónlistarmenntun.
    Tónlist er ekki einungis veglegur hluti af menningu landsins, hún er einnig atvinnuskapandi og mikilvæg útflutningsgrein þar sem hvert tónlistarverkefni getur skapað mörg afleidd störf. Tónlistarframleiðsla hefur aukist töluvert á undanförnum áratugum en þó hefur starfsemi tónlistartengdra fyrirtækja, vaxið hægar en starfsemi hins skapandi hluta. Blómlegur tónlistariðnaður er forsenda þess að utanumhald tónlistarverkefna geti haldist á Íslandi og að upp byggist sterkt tónlistarumhverfi. Umhverfi tónlistar á landinu er frjótt og er það öflugu tónlistarfólki og fagfólki innan tónlistar að þakka. Hlutverk stjórnvalda er að hlúa að tónlistargeiranum með því að styðja við bakið á tónlistarfólki, passa upp á að jarðvegurinn sé hentugur fyrir grasrót og vaxtarsprota og að tryggja inngildingu og aðgengi almennings að tónlist og tónlistarmenntun.
    Stórt skref verður stigið með stofnun tónlistarmiðstöðvar sem ætlað er að veita greininni aukna kjölfestu og trúverðugleika og greiða leið íslensks tónlistarfólks innan lands sem utan. Áhersla verður lögð á að teikna upp nútímalegt og hvetjandi umhverfi fyrir íslenskt tónlistarlíf. Markmiðið er að miðstöðin verði raunverulegur miðpunktur tónlistargeirans og skýr tengipunktur við stjórnvöld. Það er því mikilvægt að markmið, hlutverk og skipulag miðstöðvarinnar séu frá upphafi skýr og endurspegli fjölbreytni tónlistargeirans.
    Tónlist er útflutningsgrein sem oft og tíðum krefst töluverðra ferðalaga. Á sama tíma stendur heimurinn á tímamótum þar sem mikilvægt er að huga að sjálfbærni og umhverfissjónarmiðum. Nýsköpun og útsjónarsemi geta komið að góðum notum en einnig þarf að móta sérsniðin verkfæri og miðla þeim til tónlistartengdra verkefna og verður það eitt af áhersluverkefnum fyrsta hluta aðgerðaáætlunarinnar.
    Aðgengi, inngilding og jafnrétti eru mikilvæg leiðarstef í tónlistarstefnu. Allir þátttakendur eiga hlut í því en stjórnvöld geta tekið forystuna með því að hafa leiðarstefin til hliðsjónar þegar teknar eru ákvarðanir sem snúa að styrkveitingum og opinberum verkefnum.

Áherslur.
    Stefnan samanstendur af þremur megináherslum. Sú fyrsta snýr að tónlistarmenningu og tónlistarmenntun og hefur þrjú markmið.
    Fyrsta markmiðið snýr að aðstöðu. Húsnæði til tónlistariðkunar er nauðsynlegt og þarf að svara fjölbreyttum þörfum. Rými þarf til að vinna að tónlist og til æfinga og einnig til hljóðritunar og tónleikahalds. Þarfir í tengslum við tónlistarstarfsemi eru ólíkar, bæði eftir tegund tónlistar og fjölda áhorfenda, og aðgengi að húsnæði af öllum stærðum og gerðum þarf að vera til staðar.
    Aðgengi að rými til tónleikahalds getur verið í ýmsum myndum. Hlúa þarf að umhverfi sérstakra tónleikastaða af ólíkum stærðargráðum og æskilegt er að slíka starfsemi megi finna víða um land. Ýmis tækifæri geta leynst til betri nýtingar á húsnæði í eigu ríkis eða sveitarfélaga um land allt, á borð við skóla, félagsheimili og menningarhús, sem gæti talist heppilegt til tónleikahalds, æfinga eða annarrar tónlistariðkunar.
    Við opnun Hörpu árið 2011 eignuðust landsmenn tónleikahús á heimsmælikvarða sem núna er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslensku óperunnar, Stórsveitar Reykjavíkur og fleiri og hýsir Harpa árlega fjöldann allan af tónleikum, tónlistarhátíðum og öðrum tónlistarviðburðum. Mikilvægt er að halda á lofti mikilvægi Hörpu sem tónlistarhúss og tryggja að kostnaður sé ekki hindrun fyrir því að haldnir séu fjölbreyttir tónlistarviðburðir í húsinu.
    Tónleikastaðir og svið í fjölbreyttu húsnæði, allt frá menningarhúsum til veitingastaða, eru jafnan vettvangur fyrir tónlistarfólk sem stígur þar oft og tíðum sín fyrstu skref og þróar list sína og sviðsframkomu. Tónleikastaðir gegna einnig mikilvægu hlutverki í menningarþátttöku ungs fólks þar sem því gefst tækifæri til að njóta lifandi tónlistar, kynnast fjölbreyttri tónlist og upplifa tónlist á mismunandi hátt. Listræn stjórnun viðburða leikur þar stórt hlutverk og styðja þarf tónleikastaði og tónleikahaldara um land allt í að byggja upp og þróa listræna stjórnun viðburða og nýsköpun í tónleikahaldi. Þar að auki þarf að auðvelda minni tónleikastöðum að koma sér upp aðstöðu fyrir lifandi flutning, svo sem hljóðkerfi, ljósum, sviði og aðstöðu baksviðs, og aðgengi fyrir fatlaða.
    Annað markmiðið snýr að tónlistararfleifð og varðveislu menningarverðmæta á sviði tónlistar. Tónlistarverðmæti má finna á fjölmörgum stöðum. Landsbókasafnið, Ríkisútvarpið og Tónverkamiðstöð geyma töluvert af merkum tónlistarminjum á borð við tónlistarupptökur og frumrit af nótum. Auk þess má finna stafrænar útgáfur af dýrmætum lögum sem gefin voru út á síðustu öld á hörðum diskum í misgóðum geymslum.
    Varðveisla og miðlun menningarverðmæta er eitt af markmiðum aðgerðaáætlunarinnar Menningarsókn til ársins 2030 og á það m.a. við um tónlistarverðmæti. Fyrstu skref eru að fá yfirsýn yfir hvar þessi verðmæti er að finna og móta leiðir til að varðveita þau og gera aðgengileg almenningi.
    Ríkisútvarpið er eitt af hryggjarstykkjunum í miðlun á íslenskri tónsköpun hér á landi og hefur sinnt því hlutverki á fjölbreyttan hátt, m.a. hefur Rás 2 haft það að stefnu að spila að miklu leyti íslenska tónlist. Skoða þarf hvar fleiri tækifæri til miðlunar og kynningar á íslenskri tónlist geta legið í útvarpi, sjónvarpi eða þeim alþjóðlegu samstarfsverkefnum sem Ríkisútvarpið á hlut að.
    Þriðja markmiðið snýr að tónlistarmenntun. Tónlistarmenntun er undirstaða sterkrar tónlistarmenningar og á stóran þátt í grósku og velgengni íslenskrar tónlistar. Í tónlistarnámi er lögð rík áhersla á skapandi hugsun, sjálfstæði, öguð vinnubrögð og samvinnu sem nýtist nemendum á hvaða sviði sem er og er góður undirbúningur fyrir framtíðina. Þar að auki er forvarnargildi tónlistarkennslu ótvírætt.
    Á Íslandi skal vera aðgengi að fjölbreyttri tónlistarmenntun á öllum skólastigum og börn og unglingar eiga að geta haft aðgang að tónlistarnámi óháð bakgrunni og búsetu. Í hljóðfærakennslu er mikilvægt að boðið sé upp á einstaklingsmiðað nám þar sem hugað er að þörfum hvers og eins nemanda. Til að ná góðri færni í hljóðfæraleik er kennslan þess eðlis að mikilvægt er að kennt sé í einkatímum.     
    Tryggja þarf eðlilega samfellu í námi, frá fyrstu stigum yfir mið- og framhaldsstig almennra tónlistarskóla og loks á háskólastig. Þar er jafnframt mikilvægt að huga að því að námsframvinda sé eðlileg á milli skólastiga.
    Tónlistarkennarar eru hjarta og drifkraftur tónlistarkennslu og er starf tónlistarkennara bæði fjölbreytt og gefandi. Mikill skortur er á tónlistarkennurum á öllum skólastigum og er meðalaldur stéttarinnar með því hæsta í kennarastétt. Kerfið er ekki sjálfbært og þörf á markvissu átaki í nýliðun. Vekja þarf athygli á tónlistarkennaranámi, bæði kennslu á hljóðfæri og í fræðigreininni, með það að markmiði að fjölga kennurum og mæta þörfum á öllum skólastigum.
    Tónlistarnám er fjölbreytt og mun víðtækara en eingöngu hljóðfæranám. Tónsmíðar eru ekki einungis mikilvægur hluti tónlistarnáms heldur einnig dæmi um afbragðs verkfæri til að þjálfa skapandi hugsun. Þar sem höfundaréttur er ein grunnstoða afkomu tónlistarfólks er mikilvægt fyrir nemendur að þekkja grundvallaratriði höfundaréttar. Skoða þarf heildstætt hvernig samsetning tónlistarnáms skuli vera í takt við breytta tíma og horfa þarf til fyrirkomulags tónlistarnáms við þá endurskoðun á fyrirkomulagi listnáms sem er á döfinni.
    Nýtt framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands (LHÍ) mun styrkja umgjörð tónlistarnáms á háskólastigi til muna. Samhliða þeirri framkvæmd þarf að greina framtíðarfyrirkomulag LHÍ hvað varðar rekstrarform.
    Það á þó ekki eingöngu að horfa á framboðshlið tónlistar heldur þarf einnig að efla menningarlæsi og áherslu á nýja menningarneytendur sem eru tónlistarunnendur framtíðarinnar. Börn eiga að hafa aðgengi að fjölbreyttum tónlistartegundum í ólíkum birtingarmyndum og þau þurfa að sjá að tónlist er tungumál sem á sér engin mörk.
    Framhalds- og háskólanám í tónlist þarf að tengjast atvinnulífi tónlistar á skipulegan hátt og stefnan þarf að því að hvetja til aukinnar menntunar á háskólastigi á laga- og viðskiptaumhverfi tónlistar. Þá má einnig nefna mikilvægi tækniþekkingar en tónlistarfólk notar í auknum mæli tækni við gerð og dreifingu tónlistar.
    Tónlistarskólakerfið á Íslandi er undirstaða tónlistarmenntunar, öflugs tónlistarlífs og tónlistargeira en rúmlega 80 tónlistarskólar eru starfræktir út um land allt. Tónlistarskólar eru víða lykilstofnanir í sínu nærsamfélagi á sviði menntunar, menningar og lista.
    Önnur megináhersla stefnunnar snýr að tónlist sem atvinnugrein og skiptist hún í fjögur markmið.
    Fyrsta markmiðið er að hér á landi verði sterkur og framsækinn tónlistariðnaður. Tónlistarframleiðsla og -útgáfa á landinu hefur blómstrað frá aldamótum og trúlega státa fá lönd af jafn mörgum útgefnum titlum á ári miðað við höfðatölu. Á sama tíma og gróska í tónlist hefur aukist gríðarlega hefur uppbygging tónlistargeirans sem atvinnugreinar gengið hægar. Lítið er um innviði á borð við stöndug útgáfufyrirtæki, tónlistarforlög og umboðsskrifstofur og er stærstur hluti tónlistartengdra fyrirtækja með færri en fimm starfsmenn. Rekstrarlegt utanumhald stærri tónlistarverkefna hefur af þessum sökum í mörgum tilfellum færst út fyrir landsteinana en með því glatast verðmæt þekking og ekki síður virðisauki fyrir hagkerfið.
    Til að vinna gegn þessari þróun þarf að styðja uppbyggingu innviða og þekkingar með því að hlúa að tónlistartengdum sprotafyrirtækjum og grasrót í tónlist og efla nýsköpun. Hér þarf líka að skoða þekkingu á höfundarétti og aðlögun höfundalaga að breyttu viðskiptaumhverfi. Hlutverk umsýslustofnana á sviði höfundaréttar er mikilvægt fyrir tónlistarfólk og nýleg lög um sameiginlega umsýslu höfundarréttar, nr. 88/2019, eiga að tryggja samræmi og gagnsæi í starfsemi þeirra, bæði innan lands og í alþjóðlegu samhengi. Mikið uppbyggingartímabil er fram undan í íslenskum tónlistariðnaði og það kallar á virkt samtal geirans og stjórnvalda með aðkomu helstu fagfélaga og hagaðila innan tónlistar.
    Ísland var fyrsta landið til að bjóða upp á endurgreiðslur vegna hljóðritunarkostnaðar en slíkar endurgreiðslur hafa víða þekkst í öðrum greinum, svo sem í kvikmyndaframleiðslu. Halda þarf áfram að byggja upp kynningar á endurgreiðslunum og skoða hvort ónýtt tækifæri á borð við endurgreiðslu vegna framleiðslu tónlistarmyndbanda geti styrkt samkeppnisstöðu Íslands enn frekar.
    Annað markmiðið snýr að því að tónlist verði fullgild og eftirsóknarverð atvinnugrein. Markmiðið felur í sér að nýjar kynslóðir tónlistarfólks hafi atvinnuöryggi og sjái möguleika og tækifæri til að vinna að list sinni, hvort sem um staðbundin verkefni eða útflutningsverkefni er að ræða og í öllum tónlistartegundum.
    Ungt fólk þarf að fá upplýsingar um hefðbundin hlutverk innan tónlistar sem atvinnugreinar og sjá möguleika í því að stefna á starfsframa i tónlistartengdri starfsemi. Styðja þarf við uppbyggingu tónlistartengdra sprotafyrirtækja og leggja áherslu á atvinnusköpun og fjölgun fagfólks í viðskiptaumgjörð tónlistar.
    Sagan hefur sýnt að íslensk tónlist hefur alla burði til að verða öflug útflutningsgrein. Hvati þarf að vera til staðar fyrir stofnun tónlistartengdra fyrirtækja og fyrir því að utanumhald tónlistarverkefna haldist í íslensku hagkerfi. Töluvert má læra af uppbyggingu greina á borð við kvikmyndagerð og tölvuleikjaframleiðslu hér á landi og liggja þar mikil tækifæri til samstarfs og þekkingaryfirfærslu.
    Tónlistariðnaðurinn á að vera aðgengilegur tónlistarfólki og öðru fagfólki af ólíkum bakgrunni og áhersla skal lögð á fjölbreytileika og inngildingu. Leitast verður við að virkja og hvetja nýja Íslendinga til sköpunar og þátttöku í tónlistargeiranum, m.a. með því að hafa ráðgjöf og upplýsingar aðgengilegar á ensku jafnt sem íslensku, m.a. um höfundarétt og mikilvægi hans í samningum um tónlist.
    Þriðja markmiðið er að ná betri yfirsýn yfir umfang tónlistargeirans. Töluverð sköpun og framleiðsla á sér stað í íslenskum tónlistargeira. Á sama tíma er stærð og umfang hans og útflutningsverðmæti tónlistar að mörgu leyti á huldu þar sem skortur hefur verið á greinargóðri tölfræði. Tónlistartengdur rekstur er oft fjölbreyttur og tengdur inn í aðrar greinar sem getur haft áhrif á ÍSAT-skráningu þeirra hjá fyrirtækjaskrá sem notuð er við opinbera tölfræðivinnslu. Því þarf að skoða hvort grunngögn sem notast er við gefi rétta mynd af iðnaðinum.
    Tölfræði um íslenskan tónlistargeira þarf að vera samanburðarhæf í alþjóðlegu samhengi, kortleggja þarf hvers kyns tölfræði þörf er á og hvar nauðsynleg gögn er að finna. Tölfræði, rannsóknir og ýmsar greiningar eru gerðar á ólíkum stöðum en mikilvægt er að hafa yfirsýn yfir þær greiningar sem liggja fyrir ásamt því að fylgjast með straumum og stefnum í alþjóðlegum greiningum sem gagnlegt er fyrir Ísland að fylgjast með. Mikil tækifæri liggja í því að ný tónlistarmiðstöð sinni þessu hlutverki og byggi upp yfirgripsmikla þekkingu á tónlistariðnaði sem nýtist í stuðningi við uppbyggingu á honum hér á landi.
    Fjórða markmiðið snýr að skilvirku sjóðakerfi fyrir tónlist. Sjóðakerfi tónlistar á að styðja við nýsköpun og framgang tónlistargeirans og auka aðgengi almennings að fjölbreyttri tónlist á ólíku formi. Fylgja þarf eftir þeirri endurskoðun sem farið hefur fram á sjóðakerfi tónlistar með stofnun nýs tónlistarsjóðs. Markmið og árangursmælikvarðar sjóðsins eiga að vera skýrir og eftirfylgni á framgangi verkefna sem hlotið hafa styrki úr sjóðnum á að vera tryggð.
    Fjölmargir evrópskir og norrænir styrktarsjóðir standa íslenskum verkefnum og samstarfsverkefnum á milli landa til boða. Mikilvægt er sjóðirnir séu vel kynntir og auðvelt sé að nálgast upplýsingar og ráðgjöf þeim tengdum.
    Greina þarf betur hvenær þörf er á styrkjum í ferli tónlistarfólks og -verkefna og hvernig styrkjakerfið getur stutt við tónlistarverkefni á mismunandi stigum til að hámarka árangur í víðum skilningi, samkvæmt markmiðum nýs tónlistarsjóðs.
    Þriðja megináherslan fjallar um útflutning á tónlist og hefur hún tvö markmið.
    Fyrra markmiðið er að auka útflutningstekjur af tónlist. Ísland er vel staðsett á milli Norður-Ameríku og Evrópu og er vinsæll viðkomustaður á ferðalögum fólks á milli heimsálfa. Þessi staðsetning landsins ætti jafnframt að koma skapandi greinum til góða. Íslensk tónlist hefur undanfarna áratugi náð að vekja athygli um heim allan og fjöldi fólks kemur til landsins til að njóta tónlistar, flytja tónlist eða taka upp tónlist. Þetta gefur tækifæri á að landið marki sig sem alþjóðlega miðstöð tónlistar í Norður-Atlantshafi. Því til viðbótar hefur sterkur kvikmyndaiðnaður og tölvuleikjaiðnaður skotið rótum og gætu frekari tækifæri falist í sameiginlegri kynningu á landinu sem miðstöð sköpunar.
    Miklir möguleikar liggja í tónlist sem útflutningsafurð. Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) hefur byggt upp sterkt tengslanet við íslenskt tónlistarfólk og -fyrirtæki og verðmæta þekkingu á útflutningi tónlistar sem skoða þarf sérstaklega hvernig hægt er að viðhalda við yfirfærslu verkefna frá ÚTÓN í nýja tónlistarmiðstöð. Að sama skapi hefur samstarf ÚTÓN og Íslandsstofu, m.a. á vettvangi Skapandi Íslands og samstarfi Record in Iceland og Film in Iceland, verið uppbyggilegt og árangursríkt. Áhersla þarf að vera á áframhaldandi samstarf í færslu á hlutverki ÚTÓN til nýrrar tónlistarmiðstöðvar. Halda þarf áfram að byggja upp þekkingu á lykilmörkuðum og velja lykilmarkaði út frá því hvar mestu tækifærin liggja og nota til þess markaðsgreiningar sem haldið verður áfram að þróa og uppfæra í samstarfi við Íslandsstofu og utanríkisþjónustuna.
    Líta ber heildstætt á útflutning á tónlist. Áherslur í útflutningi á tónlist þurfa að taka til flytjenda, tónskálda og tónlistarfólks úr öllum tónlistarstefnum, sem og útflutnings á nótum, en útflutningur tekur einnig til ferðamanna sem njóta íslenskrar tónlistar hér á landi.
    Sendiskrifstofur Íslands erlendis búa yfir mikilvægri staðarþekkingu og þekkingu á viðkomandi mörkuðum. Tækifæri eru falin í markvissri tengingu við utanríkisþjónustuna, m.a. varðandi tengslamyndun, markaðsþekkingu og samstarf um viðburði og kynningarverkefni á sviði tónlistar.
    Streymi er einn vinsælasti miðillinn fyrir tónlist og mikilvægur tekjuliður fyrir tónlistarfólk. Rödd Íslands þarf að heyrast hjá stóru streymisveitunum sem að miklu leyti stýra tónlistarneyslu en núna er Ísland til dæmis hið eina af Norðurlöndunum sem ekki hefur ritstjóra efnis hjá Spotify.
    Á Íslandi er rík tónlistarmenning. Gera þarf tónlistarviðburði, tónlistararfinn og tónlistarsenuna alla sýnilegri við komuna til landsins, í borg og á landsbyggð, bæði gagnvart heimamönnum og ferðamönnum. Mikil tækifæri eru falin í uppbyggingu á menningarferðamennsku í tengslum við tónlist. Tónlistarhátíðir eru gluggi umheimsins inn í íslenska tónlist og stökkpallur íslensks tónlistarfólks út í heim og mikilvægt er að hlúa að starfsumhverfi tónlistarhátíða á hér á landi þannig að þær geti blómstrað og að hlutverk þeirra sem grunnstoða í íslenskum tónlistariðnaði sé viðurkennt. Kynningar á Íslandi sem áfangastað ættu að endurspegla hina miklu grósku sem finna má í tónlist á landinu og sýna hvar tækifæri til menningarneyslu er að finna hér á landi.
    Kjarni tónlistarútflutnings er tónlistarfólkið sjálft og tónlistarsköpun þess. Mörg dæmi eru um að ferill tónlistarverkefna, mislangt kominna, taki ótímabært enda. Oft á það við um verkefni sem hafa náð töluverðri athygli utan landsteinanna. Skoða þarf heildstætt hvenær á ferli tónlistarfólks og tónskálda þörf er á útflutningsstuðningi og nýta þá þekkingu við útfærslu á stuðningi við útflutningsverkefni.
    Síðara markmiðið snýst um að tónlistargeirinn sé sjálfbær og umhverfisvænn.
    Sjálfbærni og græn skref skal hafa í huga í öllum verkefnum, ekki síst útflutningstengdum verkefnum. Íslenskur tónlistariðnaður á að vera framarlega og leiðandi í sjálfbærni og umhverfisvitund. Móta þarf fræðsluefni og ráðleggingar um sjálfbærniviðmið þar sem litið verði til þess efnis sem þróað hefur verið fyrir Græn skref, verkefni Umhverfisstofnunar, auk sjálfbærniverkefna, innlendra sem erlendra, sem gefið hafa góða raun.
    Leiðarstefið á alltaf að vera: Stækkum menningarfótsporið, minnkum kolefnisfótsporið.

Innleiðing aðgerðaáætlunar.
    Tónlistarstefnan inniheldur framtíðarsýn og markmið fyrir tónlist til ársins 2030 auk aðgerða sem mótaðar hafa verið sem liðir í að ná tilsettum markmiðum. Aðgerðaáætlun stefnunnar verður í tveimur hlutum. Fyrri hluti aðgerða hefur nú þegar verið mótaður, fyrir árin 2023–2026. Á komandi árum verður mótuð aðgerðaáætlun fyrir árin 2027–2030. Sú aðgerðaáætlun verður mótuð í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, vísinda- og iðnaðarráðuneytið sem og í samráði við hagaðila.
    Öllum aðgerðum er úthlutað ábyrgðaraðila og tímaramma. Eftirfylgni með innleiðingu aðgerðaáætlunar verður á hendi menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Samráð.
    Grunnur að tónlistarstefnu var lagður með skýrslu starfshóps um tónlistarmiðstöð frá árinu 2021. Starfshópurinn var skipaður helstu hagaðilum tónlistar. Á þeim grunni hefur verið unnið að frekari mótun stefnunnar með virku samtali, endurgjöf og tillögum frá hag- og fagaðilum innan tónlistargeirans, á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, Tónverkamiðstöð, STEF, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag íslenskra tónlistarmanna, Tónlistarborgina Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Félag tónskálda og textahöfunda, Tónskáldafélagið, Hörpu og fleiri aðila tengdum menningu og listum.
    Menntahluti stefnunnar var unninn í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið, sem sá um samskipti við hagaðila tengda tónlistarmenntun á grunn- og framhaldsskólastigi, og háskóla-, vísinda- og iðnaðarráðuneytið.
    Mikilvægt er að almenn sátt sé um þá stefnu sem er mörkuð í málefnum tónlistar og að stjórnvöld hafi sem besta innsýn inn í ólík sjónarmið. Drög að stefnunni voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 17. ágúst 2022 (mál nr. S-146/2022) þar sem kallað var eftir umsögnum um innihald, áherslur og aðgerðir og gafst með því tækifæri til enn breiðara samráðs. Alls bárust 43 umsagnir sem tekið var tillit til við lokavinnslu stefnunnar. Sérstaklega bárust margar umsagnir er tengdust menntahluta stefnunnar þar sem kallað var eftir skýrari sýn í málefnum tónlistarmenntunar. Í kjölfarið fór af stað vinna í mennta- og barnamálaráðuneytinu þar sem niðurstaðan var að tímabært væri að hefja heildarendurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla. Nú þegar er hafin undirbúningsvinna við gerð verkáætlunar sem áætlað er að ljúki í janúar 2023.
    Sumar umsagnir sem bárust í samráðsgátt tengdust öðrum málefnasviðum eða efni sem tónlistarstefna nær ekki til, sem dæmi má nefna umsagnir sem tengdust einstökum greinum frumvarps til tónlistarlaga og umsagnir tengdar óperustarfsemi, en sú listgrein heyrir undir sviðslistir. Þeim umsögnum var þó komið á framfæri við viðeigandi aðila til að þær mættu nýtast á öðrum vettvangi.