Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1122  —  738. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn og nr. 270/2022 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu.
                  b.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2022 frá 23. september 2022 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tóla og ferla í félagarétti.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ofangreindum ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–VII).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 fellir inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB (tilskipunin um nútímavæðingu).
    Með tilskipuninni eru eftirtaldar tilskipanir uppfærðar: Tilskipun ráðsins 93/13/EBE um óréttmæta skilmála í neytendasamningum, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB um neytendavernd að því er varðar upplýsingar um verð á vöru sem er boðin neytendum, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/29/EB um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB um réttindi neytenda. Tilskipanirnar hafa verið innleiddar með lögum um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936, lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, og lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016. Þessar gerðir á sviði neytendaverndar hafa allar verið teknar upp í EES-samninginn og innleiddar í íslenskan rétt.
    Markmið tilskipunarinnar er að nútímavæða umræddar lykilgerðir Evrópusambandsins á sviði neytendaverndar, að þeim verði framfylgt með skilvirkari hætti og bæta réttarúrræði neytenda vegna brota gegn ákvæðum þeirra. Tilskipunin er afrakstur endurskoðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á gerðum á sviði neytendaverndar á árunum 2016 og 2017 innan vinnu um betri reglur (e. Regulatory Fitness and Performance programme (REFIT)).
    Helsta breytingin sem gerð er með tilskipun 2019/2161 er að kveðið er á um að aðildarríki skuli hafa sektarúrræði vegna brota gegn fyrrgreindum tilskipunum auk þess sem kveðið er ítarlega á um sjónarmið við sektarákvarðanir. Þá kveður tilskipunin á um nýjar reglur sem gilda um neytendasamninga um stafrænt efni og stafræna þjónustu (breytingu á tilskipun 2011/83/EB).
    Innleiðing tilskipunarinnar krefst breytinga á lögum. Áformað er að innleiða þann hluta tilskipunarinnar er lýtur að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB um neytendavernd að því er varðar upplýsingar um verð á vöru sem er boðin neytendum, tilskipun ráðsins 93/13/EBE um óréttmæta skilmála í neytendasamningum, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/29/EB um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum með frumvarpi til markaðssetningarlaga á yfirstandandi löggjafarþingi. Áformað er að innleiða þann hluta tilskipunarinnar er lýtur að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB um réttindi neytenda síðar.
    Innleiðing gerðarinnar mun hvorki fela í sér auknar tekjur né gjöld fyrir ríkissjóð. Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á afkomu ríkissjóðs vegna innleiðingarinnar. Áhrif af innleiðingu gerðarinnar eru helst aukin varnaðaráhrif og skilvirkni við eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og bætt neytendavernd í fjarsölu og netviðskiptum.     
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunar (ESB) 2019/2161 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og tilskipunin kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.
    Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2021 eru tvær gerðir felldar inn í EES-samninginn.
    Í fyrsta lagi er tekin inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu. Hún kveður á um kröfur sem gerðar eru til neytendasamninga sem gerðir eru um kaup á stafrænu efni eins og sjónvarpsþjónustu og netþjónustu, þ.e. kaup á tilteknu stafrænu efni (e. digital content). Nánar tiltekið er um að ræða gallareglur, vanefndaúrræði neytenda og réttarreglur sem tryggja að unnt sé að nýta vanefndaúrræði í framkvæmd. Í tilskipuninni er kveðið á um að lög EES-ríkjanna um slíka samninga megi ekki innihalda kröfur sem ganga skemur eða lengra en ákvæði tilskipunarinnar.
    Innleiðing tilskipunar (ESB) 2019/770 krefst breytinga á íslenskum lögum. Ákvæði um galla og vanefndaúrræði íslensks kröfuréttar vegna samninga neytenda um kaup á vörum er að finna í lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, sem eru samin að norskri fyrirmynd. Hér á landi er hins vegar engin heildstæð sérlöggjöf um galla og vanefndaúrræði vegna kaupa á sjónvarpsþjónustu, netþjónustu o.s.frv. Menningar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram frumvarp til nýrra sérlaga til innleiðingar á gerðinni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Í öðru lagi er tekin inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB.
    Tilskipun (ESB) 2019/771 kveður á um gallareglur, vanefndaúrræði neytenda og réttarreglur sem tryggja að unnt sé að nýta vanefndaúrræði í framkvæmd vegna samninga um neytendakaup. Tilskipunin leysir af hólmi eldri tilskipun 1999/44/EB um sama efni sem innleidd var með lögum um neytendakaup, nr. 48/2003. Ákvæði tilskipunarinnar eru að miklu leyti sambærileg ákvæðum tilskipunar 1999/44/EB sem hún leysir af hólmi. Helsta nýmælið er hins vegar að kveðið er á um að lög aðildarríkjanna megi ekki fela í sér efnisákvæði sem ganga skemur eða lengra en ákvæði tilskipunarinnar. Í hinni eldri tilskipun var einungis kveðið á um lágmarkssamræmingu.
    Innleiðing tilskipunarinnar krefst breytinga á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, . Menningar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram breytingalagafrumvarp þess efnis á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Tilskipunin tók gildi innan Evrópusambandsins á sama tíma og tilskipun (ESB) 2019/770 og hafa þær í för með sér ítarlegar breytingar á íslenskum lögum og því brýnt að unnið verði að innleiðingu þeirra samtímis. Innleiðing gerðanna mun hvorki fela í sér auknar tekjur né gjöld fyrir ríkissjóð. Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á afkomu ríkissjóðs vegna innleiðingarinnar. Áhrif af innleiðingu gerðanna eru helst þau að réttarstaða neytenda að einkarétti við kaup á stafrænu efni og stafrænni þjónustu verður skýrari en áður.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunar (ESB) 2019/770 og (ESB) 2019/771 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og tilskipanirnar kynntar nefndinni sérstaklega.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2022 frá 23. september 2022 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.
    Í júní 2019 var gefin út tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tóla og ferla í félagarétti. Með tilskipun (ESB) 2019/1151 eru settar reglur um stofnun fyrirtækja og skráningu útibúa rafrænt. Reglurnar eru settar með það að markmiði að auðvelda stofnun fyrirtækja og skráningu útibúa í aðildarríkjunum og draga úr kostnaði, tíma og stjórnsýslubyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Tilskipun (ESB) 2019/1151 skyldar aðildarríkin til að gera þeim fyrirtækjum sem tilskipunin tekur til og útibúum þeirra kleift að senda tilkynningar til fyrirtækjaskrár rafrænt, bæði tilkynningar um stofnun og tilkynningar um önnur atriði sem skrá skal samkvæmt tilskipun (ESB) 2017/1132, svo sem um stjórn félags, framkvæmdastjóra, hlutafé o.fl. Kveðið er á um rafræna auðkenningu við slíka skráningu. Einnig er kveðið á um skyldu aðildarríkjanna til að setja reglur um hæfi stjórnarmanna þeirra fyrirtækja sem tilskipunin tekur til. Aðildarríkjum er heimilt að gera að skilyrði fyrir skráningu framangreindra aðila að viðkomandi sé ekki vanhæfur til starfans í öðru aðildarríki.
    Við upptöku gerðarinnar í samninginn fengu EFTA-ríkin aðlögun sem felur í sér aukinn frest, allt til eins árs, til innleiðingar gerðarinnar, ef þörf krefur.
    Upptaka fyrrgreindrar gerðar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á lagabreytingar. Tilskipunin verður innleidd með breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög og mun menningar- og viðskiptaráðherra leggja fram frumvarp þar að lútandi á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Gert er ráð fyrir að með innleiðingunni megi draga úr kostnaði, tíma og stjórnsýslubyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að nokkur kostnaður hljótist af innleiðingu tilskipunarinnar þar sem gera þarf breytingar á tölvukerfum fyrirtækjaskrár.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1151 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin gerði ekki athugasemdir við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og tilskipunin kynnt nefndinni sérstaklega.

5. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samn-ingnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_I.pdf



Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_II.pdf



Fylgiskjal III.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_III.pdf



Fylgiskjal IV.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_IV.pdf



Fylgiskjal V.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_V.pdf



Fylgiskjal VI.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2022 frá 23. september 2022 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_VI.pdf



Fylgiskjal VII.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tóla og ferla í félagarétti.

www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s1122-f_VII.pdf