Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1139 — 486. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um lagaheimildir fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Telur ráðherra að Fjármálaeftirlitið hafi lagaheimildir til að rannsaka embættisfærslu fjármála- og efnahagsráðherra, en ráðherra fer með málefni Fjármálaeftirlitsins, sbr. 15. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019?
2. Hefur Fjármálaeftirlitið einhverjar heimildir til að rannsaka ákvarðanir og ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka?
3. Hefur Fjármálaeftirlitið að lögum einhverjar heimildir til að rannsaka starfsemi Bankasýslu ríkisins?
Fjallað er um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi í samnefndum lögum, nr. 87/1998, um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samnefndum lögum, nr. 155/2012, og um Bankasýslu ríkisins í samnefndum lögum, nr. 88/2009. Hvorki þau né önnur lög sem varða eftirlit Fjármálaeftirlitsins fela það í sér að hafa eftirlit með embættisfærslum fjármála- og efnahagsráðherra eða rannsaka ákvarðanir og ábyrgð hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Bankasýsla ríkisins er ekki eftirlitsskyldur aðili og Fjármálaeftirlitið fer því ekki heldur með eftirlit með henni í þessu samhengi.
Ráðuneyti og stofnanir ríkisins sæta hins vegar, eftir því sem við á, almennu eftirliti opinberra aðila. Þar á meðal er eftirlit Fjármálaeftirlitsins með meðferð innherjaupplýsinga og hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum á grundvelli laga þar um. Einnig getur verið um að ræða eftirlit á grundvelli samkeppnislaga og laga um skráningu raunverulegra eigenda.
Alþingi hefur falið Ríkisendurskoðun eftirlit með fjárreiðum, starfsemi, verkefnum og árangri ráðuneyta og stofnana með lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016. Honum er m.a. falið að leiða í ljós frávik frá lögum og reglum í starfsemi þeirra og gera tillögur að úrbótum. Um þessar heimildir er m.a. fjallað í svari ráðherra á þskj. 1405 á 152. löggjafarþingi við fyrirspurn um beiðni ráðherra um úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka. Ríkisendurskoðun skilaði í nóvember 2022 skýrslu um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór 22. mars sama ár og tekur sú skýrsla til þess hvernig staðið var að sölunni af hálfu ráðuneytisins og Bankasýslu ríkisins út frá lögum, skilgreindum markmiðum og sjónarmiðum um góða stjórnsýsluhætti. Undir það falla m.a. embættisfærslur og ákvarðanir ráðherra.
Í skýrslunni segir að það falli í hlut Fjármálaeftirlitsins að leggja mat á mögulega bresti í framkvæmd sölunnar af hálfu umsjónaraðila, söluráðgjafa eða söluaðila, m.a. hvað varðar hagsmunaárekstra og athugun á hæfi fjárfesta.