Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
Lög
um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda).
________
I. KAFLI
Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
1. gr.
a. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisborgarar aðildarríkja eru undanþegnir búsetuskilyrðum.
b. Á eftir orðinu „veita“ í 3. málsl. kemur: ríkisborgurum annarra ríkja.
II. KAFLI
Breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
2. gr.
a. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisborgarar aðildarríkja eru undanþegnir búsetuskilyrðum.
b. Á eftir orðinu „veita“ í 3. málsl. kemur: ríkisborgurum annarra ríkja.
3. gr.
_____________
Samþykkt á Alþingi 8. mars 2023.