Ferill 690. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1714 — 690. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu til 2030.
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur, Baldur Þóri Guðmundsson, Bryndísi Jónatansdóttur og Hildi Jörundsdóttur frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu, Erling Jóhannesson frá Bandalagi íslenskra listamanna, Veru Sveinbjörnsdóttur og Guðrúnu Erlu Geirsdóttur frá Myndstefi, Margréti Elísabetu Ólafsdóttur frá Listfræðafélagi Íslands, Jóhann Ásgeir Hansen frá Fold uppboðshúsi ehf. og Önnu Láru Steindal og Unni Helgu Ottósdóttur frá Landssamtökunum Þroskahjálp.
Þá bárust nefndinni umsagnir frá Bandalagi íslenskra listamanna, Fold uppboðshúsi ehf., Jóhönnu Þ. Ingimarsdóttur, Landssamtökunum Þroskahjálp, Listfræðafélagi Íslands, Ljósmyndarafélagi Íslands og Ljósmiðstöð Íslands og Myndstefi. Einnig barst nefndinni minnisblað frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
Meginefni og markmið tillögunnar.
Með tillögunni er menningar- og viðskiptaráðherra falið að vinna að framkvæmd stefnu og aðgerðaáætlunar í myndlist sem miði að því að efla myndlistarmenningu landsins og auka áhuga og þekkingu almennings á myndlist. Myndlistarstefnan byggist á fjórum meginmarkmiðum sem stuðli að umbótum og jákvæðum breytingum svo framtíðarsýn stefnunnar verði að veruleika. Markmið þessi, sem nánar eru útfærð í stefnunni, séu í fyrsta lagi að á Íslandi ríki kraftmikil myndlistarmenning, í öðru lagi að stuðningskerfi myndlistar verði einfalt og skilvirkt, í þriðja lagi að íslensk myndlist verði sýnileg og vaxandi atvinnugrein og í fjórða lagi að íslensk myndlist skipi alþjóðlegan sess. Samhliða myndlistarstefnunni er lögð fram aðgerðaáætlun í 18 liðum til að tryggja framgang myndlistar í landinu.
Umfjöllun meiri hluta nefndarinnar.
Almennt.
Meiri hlutinn fagnar framkominni tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu til ársins 2030 og telur brýnt að hún nái fram að ganga. Meiri hlutinn áréttar að umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir í garð stefnunnar og fagna því að lögð sé fram opinber stefna um myndlist í fyrsta sinn, enda brýnt að stjórnvöld marki sér skýra stefnu í málaflokknum sem endurspegli samfélagslegt gildi myndlistar. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að stefna stjórnvalda í málaflokknum sé skýr, enda sé það til heilla fyrir hina kraftmiklu og lifandi myndlistarmenningu og myndlistarstarfsemi sem tíðkast hér á landi.
Skattumhverfi myndlistar.
Meiri hlutinn fjallaði um skattumhverfi myndlistar sérstaklega en í 11. tölul. aðgerðaáætlunar með myndlistarstefnu er lagt til að gerð verði ítarleg greining á þeim möguleika að færa myndlist í 11% virðisaukaskattsþrep. Samkvæmt virðisaukaskattslögum, nr. 50/1988, eru listamenn undanþegnir virðisaukaskattsskyldu að því er varðar sölu á þeirra eigin verkum, enda falli þau undir ákveðin tollskrárnúmer, sbr. 2. tölul. 4. gr. laganna. Bæði fyrir nefndinni og í umsögn sinni lýsti Myndstef yfir áhyggjum af því að það hefði letjandi áhrif á myndlistarmenn yrði starfsemi þeirra gerð virðisaukaskattsskyld, yki á flækjustig í smærri starfsemi myndlistarmanna og drægi úr framleiðni. Jafnframt var lögð áhersla á það í umsögn þeirra að myndlist yrði ekki færð í 11% virðisaukaskattsþrep nema að yfirstaðinni ítarlegri greiningu á kostum þess og göllum.
Þá fjallaði meiri hlutinn einnig um virðisaukaskatt af flutningskostnaði listaverka til landsins en í umsögn Foldar uppboðshúss ehf. var bent á að 24% virðisaukaskattur væri af flutningskostnaði listaverka til landsins og hvatt til þess að slíkur flutningur yrði gerður gjaldfrjáls. Í því sambandi var bent á að mikill fjöldi íslenskra listaverka væri staðsettur erlendis. Þá kom fram í umsögninni að nauðsynlegt væri að lækka svonefnd fylgiréttargjöld af endursölu upprunalegs listaverks úr 10% í 5%, sbr. 1. tölul. 3. mgr. 25. gr. b höfundalaga, nr. 73/1972, til samræmis við önnur Evrópulönd en gjaldið væri hvergi hærra en hér á landi.
Meiri hlutinn fjallaði um mögulegar útfærslur á því að koma á virðisaukaskattsskyldu á sviði myndlistar, til að mynda með því að taka upp einhvers konar hvatakerfi þar sem fólk yrði hvatt til að kaupa myndlist en allir gætu sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts á keyptum verkum, líkt og tíðkast í Hollandi.
Meiri hlutinn leggur áherslu á að starfshópur sem mælt er fyrir um í 11. tölul. aðgerðaáætlunarinnar og ætlað er að meta mögulegar breytingar á skattumhverfi myndlistar horfi til þeirra sjónarmiða sem fram komu við þinglega meðferð þessa máls.
Ráðstafanir gegn málverkafölsunum.
Meiri hlutinn fjallaði um ráðstafanir gegn málverkafölsunum en ekki er vikið sérstaklega að þeim í stefnu og aðgerðaáætlun um myndlist. Í umsögnum Bandalags íslenskra listamanna, Myndstefs og Foldar uppboðshúss ehf. var bent á það og athygli jafnframt vakin á þeim vanda sem málverkafalsanir hafi í för með sér á íslenskum listaverkamarkaði og kallað eftir umfjöllun og aðgerðum í þeim málaflokki. Nefndin fjallaði til að mynda um að lagaheimildir skorti til að gera fölsuð listaverk upptæk og farga þeim.
Í umsögn Myndstefs var vikið að starfshópi sem komið var á fót árið 2015 um ráðstafanir gegn málverkafölsunum í kjölfar þingsályktunartillögu nr. 40/143 um sama efni. Hlutverk starfshópsins var að gera tillögur að ráðstöfunum gegn málverkafölsunum og skilgreiningu á ábyrgð hins opinbera í lögum gagnvart varðveislu þessa hluta menningararfsins. Þá var einnig lagt til að hið opinbera fengi frumkvæðisskyldu til að rannsaka og eftir atvikum kæra málverkafalsanir. Starfshópurinn hittist aðeins tvisvar sinnum og er starfi hans því enn ólokið. Myndstef kallar því eftir að starfsemi hópsins verði endurvakin, enda sé afar mikilvægt að hópurinn ljúki störfum.
Um þetta atriði bendir menningar- og viðskiptaráðuneytið á í minnisblaði sínu til nefndarinnar að áður hafi verið skipaður starfshópur til að bregðast við þeim vanda sem stafi af málverkafölsunum. Hafi það verið gert árið 2004 í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 325/2003, sem kallað hefur verið „stóra málverkafölsunarmálið“. Sá starfshópur hafi bent á að ákveðin úrræði séu fyrir hendi í VII. kafla höfundalaga, nr. 73/1972, sem væru til þess fallin að sporna við því að fölsuð málverk séu í umferð, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 54. gr. og 1. mgr. 55. gr. laganna, en hefði ekki verið beitt við rannsókn og saksókn málsins. Í ljósi þess telur ráðuneytið óþarft að svo stöddu að aðhafast um frekari úrbætur á því sviði.
Meiri hlutinn fagnar ábendingum umsagnaraðila um úrbætur á sviði málverkafalsana en tekur á hinn bóginn undir framangreind sjónarmið ráðuneytisins um að fullnægjandi úrræði séu fyrir hendi í lögum til að hamla því að fölsuð listaverk séu í umferð. Þá telur meiri hlutinn rétt að árétta að í greinargerð með þingsályktunartillögu nr. 40/143 var fjallað um að listaverkafalsanir feli í sér blekkingar og séu til þess fallnar að hafa fé af fólki með ólögmætum hætti og eigi því að varða við 248. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 5. maí 2023.
| Bryndís Haraldsdóttir, form. |
Jóhann Friðrik Friðriksson, frsm. | Birgir Þórarinsson. |
| Helga Vala Helgadóttir. | Jódís Skúladóttir. | Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. |