Ferill 806. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1934 — 806. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar o.fl.).
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Kára Kárason og Eggert Pál Ólason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Flóka Halldórsson, Hjálmar S. Brynjólfsson og Kristjönu Jónsdóttur frá Seðlabanka Íslands.
Umsögn barst frá Seðlabanka Íslands auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, sem leiðir af innleiðingu meginhluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/879 frá 20. maí 2019 um breytingu á tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar tapþol og endurfjármögnunargetu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og tilskipun 98/26/EB (BRRD II-tilskipunin). Þá eru lagðar til aðrar breytingar á lögunum og lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem reynsla af framkvæmd laganna þykir kalla á.
Afmarkaðir þættir tilskipunarinnar voru innleiddir með lögum um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og fleiri lögum (lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki), nr. 38/2022, en með frumvarpinu er lagt til að meginefni hennar verði innleitt. Þá verði afmarkað og tæknilegt efni tilskipunarinnar um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar innleitt með reglugerð ráðherra á grundvelli lagastoðar sem lögð er til í frumvarpinu.
Umfjöllun.
Málsmeðferð fjármálaeftirlits vegna 6. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
Í umsögn Seðlabanka Íslands kemur fram að bankinn telji nauðsynlegt að gera breytingu á 6. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja svo að skýrt sé að tiltekin ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gildi ekki um málsmeðferð og ákvörðun fjármálaeftirlitsins um hvort fyrirtæki sé á fallanda fæti skv. 34. gr. laganna. M.a. kunni að reynast nauðsynlegt að ákvörðun um hvort fyrirtæki sé á fallanda fæti sé tekin án tafar svo að mögulegt sé að grípa til aðgerða með skjótvirkum hætti og að aðdragandi að falli fyrirtækis geti verið mjög skammur.
Meiri hlutinn bendir á, líkt og fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins, að í IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga eru fáar og almennt orðaðar meginreglur sem mæla fyrir um lágmarkskröfur sem almennt hefur verið talið að stuðli að vandaðri stjórnsýslu og ákvarðanatöku. Almennt sé viðurkennt að eðli ákvarðana, aðdragandi og nauðsyn á hraðri og öruggri afgreiðslu hafi áhrif á þessa þætti og að málsmeðferðarreglur laganna eigi ekki að koma í veg fyrir áhrifaríka og skilvirka stjórnsýslu. Með vísan til þessa og frekari sjónarmiða sem rakin eru í minnisblaði ráðuneytisins telur ráðuneytið ekki hafið yfir vafa að rétt væri að lögfesta slíka undanþágu. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið ráðuneytisins og bendir á að með setningu stjórnsýslulaga voru lögfestar í fyrsta skipti almennar lágmarksreglur um málsmeðferð allra stjórnvalda við undirbúning og töku stjórnvaldsákvarðana og um réttarvernd aðila máls í því tilliti. Meiri hlutinn áréttar að viðamiklar ástæður þurfa að vera fyrir hendi svo að vikið verði frá lágmarksreglum stjórnsýslulaga með sérlögum.
Um ábendingu Seðlabanka Íslands sem varðar framsetningu markmiðsákvæðis laganna vísar meiri hlutinn til minnisblaðs ráðuneytisins um málið.
Breytingartillögur.
Í umsögn Seðlabanka Íslands kemur fram að óheppilegt sé að í lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sé Seðlabankanum falið að setja reglur til að innleiða tæknistaðla Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) sem gera kröfur til skilavaldsins sjálfs enda sé honum ætlað að uppfylla skyldur samkvæmt sömu tæknistöðlum. Nánar tiltekið er um að ræða reglur sem Seðlabankanum er falið að setja á grundvelli 4. mgr. 25. gr., 8. mgr. 30. gr., 5. mgr. 31. gr. og 4. mgr. 32. gr. laganna.
Í minnisblaði ráðuneytisins er tekið undir þessi sjónarmið. Með vísan til þess sem fram kemur í umsögn Seðlabankans og í minnisblaði ráðuneytisins um málið leggur meiri hlutinn til að ákvæðunum verði breytt þannig að ráðherra verði falið að setja reglugerð á grundvelli umræddra ákvæða.
Auk þess leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. C-liður 7. gr. orðist svo: Í stað orðanna „um eigið fé“ í 10. og 11. tölul. 3. mgr. kemur: um eiginfjárgrunn.
2. Á eftir 13. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Í stað orðanna „Seðlabanki Íslands setur reglur“ í 4. mgr. 25. gr. og orðanna „Seðlabanki Íslands skal setja reglur“ í 8. mgr. 30. gr., 5. mgr. 31. gr. og 4. mgr. 32. gr. kemur: Ráðherra skal setja reglugerð.
3. Inngangsmálsliður c-liðar 14. gr. orðist svo: Á eftir orðunum „niðurfærslu eða umbreytingar fjármagnsgerninga“ í 2. tölul. og „niðurfærslu eða umbreytingu fjármagnsgerninga“ í 3. og 4. tölul. 1. mgr. kemur.
4. Í stað orðanna „Við 1. mgr. 94. gr. laganna bætast“ í inngangsmálslið 32. gr. komi: Á eftir 1. tölul. 1. mgr. 94. gr. laganna koma.
Alþingi, 1. júní 2023.
| Guðrún Hafsteinsdóttir, form., frsm. |
Ágúst Bjarni Garðarsson. | Diljá Mist Einarsdóttir. |
| Guðbrandur Einarsson. | Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir. | Jóhann Páll Jóhannsson. |
| Steinunn Þóra Árnadóttir. |