Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 1779 — 689. mál.
Undirskrift.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá starfshópi um þátttöku íslenskra fyrirtækja og ríkisins á mörkuðum með kolefniseiningar.
Nefndinni bárust tvær umsagnir sem aðgengilegar eru á síðu málsins á vef Alþingis, auk minnisblaðs frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VI. kafla A laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sem lýtur að geymslu koldíoxíðs í jörðu.
Málið var áður lagt fram á 153. löggjafarþingi ( 889. mál) en náði ekki fram að ganga. Þá bárust nefndinni sex umsagnir vegna málsins auk minnisblaða frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og sameiginlegs minnisblaðs frá Carbfix hf., Orkuveitu Reykjavíkur og Orku náttúrunnar ohf. Málið er nú endurflutt.
Gerð hefur verið ein breyting á efni frumvarpsins frá því að það var lagt fram á 153. löggjafarþingi. Lagt er til að gert verði skýrar að í 1. mgr. 33. gr. j laganna, sem kveður á um tryggingu fyrir starfsemi á geymslusvæði, sé átt við fjárhagslega tryggingu eða ígildi hennar. Auk þess hefur samráðskafli í greinargerð frumvarpsins verið uppfærður með hliðsjón af nýjum umsögnum. Um efni frumvarpsins að öðru leyti vísast til greinargerðar með því.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Nefndin ræddi tilefni lagasetningarinnar sem rekja má til ábendinga og athugasemda frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í tengslum við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/31/EB um geymslu koltvísýrings í jörðu. Tilskipunin var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 62/2015, um breytingu á lögum um loftslagsmál. Breytingar voru gerðar á innleiðingu tilskipunarinnar með lögum nr. 12/2021, um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um mat á umhverfisáhrifum og lögum um loftslagsmál (niðurdæling koldíoxíðs), með því að heimila varanlega geymslu koldíoxíðs í jörðu. Fram kom að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti bárust ábendingar og athugasemdir frá ESA um að skýra þyrfti betur gildissvið laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig þyrfti að setja skýrari mörk milli umfjöllunar um könnunarleyfi og starfsleyfi, sbr. 33. gr. c laganna. Þá var bent á að lagfæra þyrfti orðalag í 1. mgr. 33. gr. g, sem fjallar um flutning ábyrgðar á geymslusvæði eftir að því hefur verið lokað, sem og að skýra betur skilyrði fyrir aðgangi þriðja aðila að flutningskerfi og geymslusvæði í 33. gr. h auk fleiri atriða. Frumvarpi þessu sé því ætlað að bregðast við athugasemdum ESA með því að leggja til þær breytingar sem teljast nauðsynlegar á lögum hollustuhætti og mengunarvarnir svo að sem mest samræmi verði á milli tilskipunar 2009/31/EB og íslenskra laga. Það sé m.a. mikilvægt svo ekki leiki vafi á því að rekstraraðilar sem taka þátt í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir geti nýtt Carbfix-tæknina við geymslu koldíoxíðs til frádráttar frá losun sinni.
Meiri hlutinn telur jákvætt að með frumvarpinu sé brugðist við ábendingum frá ESA í þá átt að ná samræmi á milli íslenskra laga og tilskipunar 2009/31/EB um geymslu koltvísýrings í jörðu.
Breytingartillögur.
Samstarf yfir landamæri (9. gr.).
Með 9. gr. frumvarpsins er lagt til að bæta við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nýrri 33. gr. j sem kveður á um samstarf yfir landamæri og að lögbær yfirvöld hlutaðeigandi ríkja skuli í sameiningu uppfylla kröfur laganna og annarrar viðeigandi löggjafar.
Meiri hlutinn leggur til breytingu á ákvæðinu með það að markmiði að samræma orðalag þess við ákvæði 24. gr. tilskipunar 2009/31/EB. Breytingin lýtur að því að gera skýrar að með vísun til annarrar viðeigandi löggjafar sé átt við til annarrar viðeigandi löggjafar þeirra ríkja sem í hlut eiga. Meiri hlutinn bendir í þessu samhengi á að sambærilegt orðalag er einnig í 22. gr. reglugerðar nr. 1430/2022, um geymslu koldíoxíðs í jörðu.
Samræming orðalags í frumvarpi við tilskipun 2009/31/EB.
Við umfjöllun málsins fyrir nefndinni barst minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Þar kom fram að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefði gert athugasemdir við ósamræmi á milli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og tilskipunar 2009/31/EB. Ráðuneytið leggur í minnisblaði sínu til breytingar á frumvarpinu sem meiri hlutinn tekur undir og leggur til breytingar því til samræmis. Um efni breytinganna að öðru leyti vísast til minnisblaðs ráðuneytisins.
Með vísan til framangreinds leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 6. gr. bætist nýr stafliður sem verði c-liður, svohljóðandi: Í stað tilvísunarinnar „33. gr. j“ í 2. tölul. kemur: 2. mgr. 33. gr. k.
2. Í stað a- og b-liðar 7. gr. komi nýr a-liður, svohljóðandi: 2. mgr. orðast svo:
Aðgangur sem um getur í 1. mgr. skal veittur á gagnsæjan hátt og án mismununar. Aðgangur skal veittur með sanngjörnum hætti án hindrana og hliðsjón skal höfð af:
a. geymslugetu sem eðlilegt er að sé tiltæk á geymslusvæði,
b. markmiði íslenskra stjórnvalda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum um samdrátt í losun koldíoxíðs og reglum um föngun og geymslu koldíoxíðs í jörðu,
c. nauðsyn þess að synja um aðgang í tilvikum þegar tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og erfitt er að bæta úr,
d. nauðsyn þess að virða tilhlýðilega rökstuddar og eðlilegar þarfir eiganda eða rekstraraðila geymslusvæðis eða flutningskerfis og hagsmuni allra annarra sem nota geymsluna eða netið eða viðkomandi vinnslu- eða meðhöndlunarbúnað og kunna að verða fyrir áhrifum.
3. Við efnisgrein 9. gr. bætist: þeirra ríkja sem í hlut eiga.
4. Við 10. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: 2. mgr. 33. gr. j laganna orðast svo:
Rekstraraðili skal, áður en ábyrgð á geymslusvæði flyst til Umhverfisstofnunar, greiða fyrirsjáanlegan kostnað við vöktun þar til koldíoxíð er fullkomlega og varanlega aflokað. Miða skal við áætlaðan kostnað af vöktun í a.m.k. 30 ár.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hann ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 16. maí 2024.
| Bjarni Jónsson, form. |
Ingibjörg Isaksen, frsm. |
Vilhjálmur Árnason. |
| Halla Signý Kristjánsdóttir. | Njáll Trausti Friðbertsson. | Orri Páll Jóhannsson. |
| Þórunn Sveinbjarnardóttir. |