Ferill 1160. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2027 — 1160. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna (hækkun launa).
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Ákærendafélagi Íslands, Dómarafélagi Íslands, dómstólasýslunni og Lögreglustjórafélagi Íslands.
Fjórar umsagnir bárust um málið og eru þær aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
Efni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er lagt til að fyrirhuguð hækkun launa samkvæmt gildandi ákvæðum tiltekinna laga, sem kveða á um árlega breytingu á launum þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna, komi ekki til framkvæmda hinn 1. júlí 2024 heldur skuli hækkun launa þann dag nema fastri krónutölu, eða 66.000 kr. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun sem gildir um fyrirhugaða hækkun launa 1. júlí 2024.
Umfjöllun.
Á 153. löggjafarþingi voru samþykkt lög sama efnis, utan þess að kveðið var á um 2,5% hækkun launa í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, sbr. lög nr. 52/2023. Við umfjöllun nefndarinnar á þeim tíma var nokkuð fjallað um áhrif launabreytinga með sérstakri lagasetninga á sjálfstæði dómara og ákærenda. Líkt og rakið er í nefndaráliti þáverandi meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (þskj. 2096 á 153. löggjafarþingi) og í greinargerð með frumvarpinu er um að ræða almenna lagasetningu að því leyti að það tekur til allra þeirra þjóðkjörnu fulltrúa og embættismanna sem eins háttar til um. Um er að ræða þann hóp opinberra starfsmanna sem nýtur bestra launakjara og eðlilegt er að sýni gott fordæmi. Eðlilegt er að aðstæður dómara og ákærenda taki mið af aðstæðum og kjörum annarra hátt settra embættismanna.
Meiri hlutinn styður framgang frumvarpsins en bendir á að þörfin á því að bregðast við launaþróun þessa hóps með sérstakri lagasetningu jafn ítrekað og raun ber vitni gefur fullt tilefni til þess að hugað verði að endurskoðun lagaákvæða er lúta að launaþróun hópsins. Líkt og rakið er í greinargerð frumvarpsins eru mögulegar breytingar á umræddu fyrirkomulagi til skoðunar í starfshóp sem skipaður er af fjármála- og efnahagsráðherra. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þeirrar vinnu.
Breytingartillaga.
Í þeim ákvæðum laga sem frumvarpinu er ætlað að lögfesta tímabundnar undanþágur frá er kveðið á um krónutölu mánaðarlauna viðkomandi þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna og forsendur sem stýra skuli breytingum á launum. Verði frumvarpið að lögum munu þær forsendur ekki stýra launabreytingum viðkomandi heldur munu mánaðarleg heildarlaun þeirra, þar til kemur að næstu launabreytingu, 1. júlí 2025, nema fastri krónutölu, þ.e. 66.000. kr. Meiri hlutinn telur að með því að tiltaka í ákvæðinu að laun skuli hækka um 66.000 kr. „á mánuði“ sé sá skilningur ekki afdráttarlaus að um sé að ræða einsskiptishækkun mánaðarlegra heildarlauna en ekki mánaðarlega hækkun heildarlauna. Leggur meiri hlutinn því til að orðin „á mánuði“ hvarvetna í frumvarpinu falli brott.
Í 7. gr. er kveðið á um hækkun launa ríkissáttasemjara samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Í ákvæðinu er ekki gert ráð fyrir því að krónutalan skiptist í sama hlutfalli og ákvörðun samkvæmt lögum nr. 79/2019, með sama hætti og gert er í 3.–5. gr. Meiri hlutinn leggur til breytingu til leiðréttingar á þessu.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Orðin „á mánuði“ í 1. gr. og sömu orð hvarvetna annars staðar í frumvarpinu falli brott.
2. 7. gr. orðist svo:
Ákvæði til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. 20. gr. skulu laun ríkissáttasemjara hækka um 66.000 kr. frá og með 1. júlí 2024 í stað hækkunar samkvæmt ákvæðinu hinn 1. júlí 2024 og þar af skal hækkun fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 15.860 kr. á mánuði.
Alþingi, 21. júní 2024.
| Ágúst Bjarni Garðarsson, frsm. |
Sigríður Elín Sigurðardóttir. | Diljá Mist Einarsdóttir. | |
| Jóhann Friðrik Friðriksson. | Steinunn Þóra Árnadóttir. | ||