Ferill 1134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2247 — 1134. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um áhrif fyrirhugaðs afnáms persónuafsláttar til lífeyrisþega sem eru búsettir erlendis.
1. Hversu margir lífeyrisþegar sem eru búsettir erlendis fá lífeyristekjur frá Íslandi og í hvaða ríkjum eru þeir búsettir, sundurliðað eftir fjölda lífeyrisþega og búsetulöndum?
Við vinnslu þessa svars var leitað til Skattsins um upplýsingar og byggist svarið á upplýsingum frá stofnuninni. Auk þess er vísað í svar á þskj. 1704 á 154. löggjafarþingi (976. mál), um samráð stjórnvalda og persónuafslátt lífeyrisþega.
Í framtölum ársins 2024, vegna tekna ársins 2023, voru 5.258 einstaklingar búsettir erlendis sem fengu lífeyrisgreiðslur frá Íslandi. Nánari skipting eftir ríkjum er eftirfarandi. Ekki eru birtar upplýsingar þar sem fjöldi lífeyrisþega er 10 eða færri.
| Land | Fjöldi | Land | Fjöldi |
| Danmörk | 1.053 | Litáen | 47 |
| Noregur | 970 | Holland | 41 |
| Svíþjóð | 869 | Ástralía | 33 |
| Pólland | 673 | Finnland | 31 |
| Spánn | 321 | Lúxemborg | 29 |
| Bandaríkin | 262 | Lettland | 27 |
| Bretland | 160 | Indland | 22 |
| Þýskaland | 155 | Austurríki | 21 |
| Portúgal | 119 | Sviss | 16 |
| Útlönd – ótilgreint | 80 | Ítalía | 15 |
| Færeyjar | 74 | Tékkland | 13 |
| Kanada | 48 | Slóvakía | 12 |
| Frakkland | 47 | Önnur ríki | 42 |
2. Hversu margir þeirra eru með meiri hluta tekna sinna frá Íslandi og hversu margir þeirra eru með 75% eða hærra hlutfall tekna sinna frá Íslandi?
Í 70. gr. a laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, er heimild til handa lífeyrisþegum til að njóta persónuívilnana þegar 75% eða meira af heildartekjum þeirra koma frá Íslandi. Sú heimild var lögfest árið 2011 í kjölfar dóma Evrópudómstólsins þar sem því var slegið föstu að upprunaríki tekna væri skylt að veita slíkar ívilnanir þegar búseturíki væri ekki í aðstöðu til að veita þær, þ.e. í þeim tilfellum þegar allar tekjur eða yfirgnæfandi meiri hluti þeirra kemur frá einu ríki. Af þessu leiðir að þegar tekjur frá Íslandi eru undir þessum mörkum þá kemur það í hlut erlenda búseturíkisins að veita persónuívilnanir ef það á við. Upplýsingar um það og tekjur í búseturíkinu liggja ekki fyrir hjá íslenskum skattyfirvöldum þar sem einstaklingar búsettir erlendis bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, sbr. 3. gr. laga um tekjuskatt. Í framtali hér á landi ber þessum aðilum einungis að gera grein fyrir þeim tekjum sem eiga uppruna sinn á Íslandi. Persónuívilnanir, líkt og persónuafsláttur, eru þannig almennt eingöngu í boði þar sem viðkomandi einstaklingur býr (búseturíkinu).
3. Hversu margir þeirra sem eru með meiri hluta tekna sinna frá Íslandi sóttu um að vera skattlagðir hér á landi árið 2023 líkt og innlendir aðilar og fá þar með persónuafslátt?
Eins og að framan greinir þá hafa íslensk skattyfirvöld ekki upplýsingar um fjölda þeirra einstaklinga sem búsettir eru erlendis og eru með meiri hluta tekna sinna frá íslenskum aðilum, þar sem tekjur þeirra í búseturíkinu liggja ekki fyrir. Þó má taka fram að í framtölum ársins 2024 óskuðu 11 skattaðilar eftir því að vera skattlagðir skv. 70. gr. a laga um tekjuskatt, þ.e. að njóta persónuafsláttar þar sem 75% eða meira af tekjum þeirra voru frá Íslandi, og lögðu fram gögn til staðfestingar á tekjum í búseturíki með umsókninni. Einni umsókn var synjað við álagningu. Þegar svar þetta er ritað hafa níu skattaðilar óskað eftir skattlagningu skv. 70. gr. a í kærufresti. Kærufresti vegna álagningar 2024 lýkur 2. september. Þá hafa aðilar heimild til þess að óska eftir leiðréttingu álagningar sex tekjuár aftur í tímann. Því er ekki ljóst á þessum tímapunkti hversu margir munu að lokum óska eftir því að vera skattlagðir hér á landi, sbr. tilvitnaða 70. gr. a, en miðað við framkomnar umsóknir er útlit fyrir að þeir verði fáir.
4. Hvaða tvísköttunarsamningar sem Ísland hefur gert heimila eingöngu heimilisfestarríki skattlagningarrétt á lífeyri?
5. Við hvaða ríki hefur Ísland gert tvísköttunarsamninga þar sem kveðið er á um að einungis megi skattleggja lífeyrisþega/lífeyristekjur í upprunaríki?
6. Við hvaða ríki hefur Ísland gert tvísköttunarsamninga þar sem kveðið er á um að hvoru ríkinu um sig sé heimilt að skattleggja lífeyristekjur?
4.–6. lið fyrirspurnarinnar er hér svarað saman. Í flestum tvísköttunarsamningum eru þrír flokkar lífeyristekna: almennir lífeyrissjóðir þar sem séreignarsjóðir falla undir, lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna (séreignarsjóðir opinberra sjóða falla þar undir) og loks greiðslur frá almannatryggingum, en greiðslur frá Tryggingastofnun falla þar undir. Samningar geta kveðið á um mismunandi skattlagningu eftir því hver er greiðandi lífeyristekna. Ísland hefur í heildina gert 42 tvísköttunarsamninga sem eru nú í gildi og fleiri eru í vinnslu. Undir samninginn við Norðurlönd falla, ásamt Íslandi, Danmörk, Finnland, Færeyjar, Noregur og Svíþjóð og telst hann sem einn samningur.
Almennir lífeyrissjóðir.
Flestir samningar, eða um 34, kveða á um að greiðslur úr almennum sjóðum skuli einungis skattleggja í því ríki þar sem viðtakandi hefur heimilisfesti. Samningar við Bretland, Georgíu, Grænland, Japan, Kanada, Liechtenstein, Norðurlöndin og Sviss kveða þó á um að upprunaríkið megi skattleggja umræddar tekjur. Samningurinn við Bretland kveður jafnframt á um að eingreiðslu megi einungis skattleggja í upprunaríki og samningurinn við Holland er með sambærilegt ákvæði varðandi eingreiðslur og óreglulegar greiðslur.
Lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna.
Samningarnir sem Ísland hefur gert kveða flestir, eða 38, á um að greiðslur frá sjóðum sem stofnaðir eru af ríki eða sveitarfélögum megi einungis skattleggja í upprunaríki teknanna. Flestir þessara samninga eru þó með undanþáguákvæði um að ef móttakandi er ríkisborgari í því ríki sem hann er heimilisfastur í, skuli hann einungis skattlagður af greiðslunum þar, að Liechtenstein, Möltu og Norðurlöndunum undanskildum. Samningarnir við Grænland og Sviss kveða á um að upprunaríkið megi skattleggja umræddar greiðslur og samkvæmt ákvæðum samninganna við Ungverjaland og Þýskaland má einungis heimilisfestisríkið skattleggja greiðslurnar.
Tryggingastofnun/almannatryggingar.
Í flestum samningum sem Ísland hefur gert, eða 29, má einungis skattleggja umræddar greiðslur í því ríki þar sem móttakandi hefur heimilisfesti. Upprunaríkið má þó einungis skattleggja samkvæmt ákvæðum samninga við Bandaríkin, Belgíu, Kanada, Kína, Lettland, Litáen, Lúxemborg og Tékkland. Þá má upprunaríkið skattleggja samkvæmt samningum við Georgíu, Holland, Japan, Norðurlöndin og Víetnam.
7. Í hvaða ríkjum sem Ísland hefur gert tvísköttunarsamning við er veitt skattfrjáls lágmarksfjárhæð til þeirra sem eru búsettir í ríkinu?
Íslensk skattyfirvöld búa ekki yfir þessum upplýsingum.
8. Hver er kostnaður ríkissjóðs á ári af persónuafslætti til lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis og fá lífeyristekjur frá Íslandi?
Ætla má að við álagningu 2024, vegna tekjuársins 2023, hafi nýttur persónuafsláttur lífeyrisþega með lögheimili erlendis numið um 1.573 millj. kr.
9. Hvernig er áformað að umsóknarferli lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis, til þess að vera skattlagðir eins og innlendir aðilar og fá þannig persónuafslátt, fari fram?
Í dag er ferlið þannig að umsókn um að vera skattlagður skv. 70. gr. a laga um tekjuskatt er fyrst hægt að leggja fram með framtali árið eftir að tekjurnar voru greiddar. Þannig er í fyrsta lagi hægt að sækja um í framtali ársins 2026 vegna tekjuársins 2025 o.s.frv. Skilyrði fyrir afgreiðslu umsóknar er að heildartekjur ársins liggi fyrir og þarf skattaðili að leggja fram afrit af skattframtali sem hann hefur skilað til skattyfirvalda í heimilisfestisríki. Þá hafa aðilar heimild til að óska eftir leiðréttingu álagningar sex tekjuár aftur í tímann. Sem dæmi verður hægt að sækja um að vera skattlagður skv. 70. gr. a vegna tekjuársins 2025 allt til loka ársins 2031. Ef sótt er um skattlagningu skv. 70. gr. a utan framtals skal eyðublað RSK 5.23 notað og er það aðgengilegt á vef Skattsins.