Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 302 — 296. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheilsu (fækkun hæfnisnefnda).
Frá heilbrigðisráðherra.
I. KAFLI
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
1. gr.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.
3. gr.
4. gr.
Greinargerð.
Frumvarpið er samið í heilbrigðisráðuneytinu. Lagðar eru til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 og lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Með frumvarpinu er lagt til að fastar hæfnisnefndir, sem falið hefur verið að meta hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytis, verði lagðar niður.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Í gildandi fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að draga úr útgjöldum í rekstri ríkisins m.a. með því að draga úr yfirbyggingu til að ná fram hagræðingu og stuðla að betri nýtingu fjármuna. Liður í því verkefni er fækkun stjórnsýslunefnda, stjórna og ráða í því skyni að ná fram frekari skilvirkni í opinberum rekstri.
Með frumvarpi þessu er lagt til að föstum, lögbundnum hæfnisnefndum, sem falið hefur verið að leggja mat á hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytisins, verði fækkað til að auka skilvirkni og hagræðingu og tryggja aukið gagnsæi við ráðningu æðstu stjórnenda stofnana.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið skiptist í tvo kafla þar sem lagðar eru til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu annars vegar og lögum um landlækni og lýðheilsu hins vegar.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um skipan og hlutverk þriggja nefnda sem falið hefur verið að meta faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og annarra stjórnenda lækninga, framkvæmdastjóra hjúkrunar og forstjóra heilbrigðisstofnana. Annars vegar er um að ræða nefndir sem falið hefur verið að leggja mat á faglega hæfni millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum, þ.e. framkvæmdastjóra og stjórnenda lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar. Hins vegar er um að ræða nefnd sem falið hefur verið samkvæmt ákvæðum laganna að leggja faglegt mat á hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana og gildir það jafnframt um embætti landlæknis, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Þar er kveðið á um að ráðherra skipi landlækni til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Í frumvarpinu er lagt til að framangreindar nefndir verði lagðar niður.
Í 5. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er kveðið á um að ráðherra skipi forstöðumann stofnunar og eftir atvikum aðra embættismenn er við hana starfa, en að forstöðumaður ráði í önnur störf hjá henni. Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum nr. 70/1996 (372. mál á 120. lögþ.) segir að ákvæðinu sé ætlað að auka sjálfstæði forstöðumanna eins og markvisst hafi verið stefnt að með frumvarpinu. Til að tryggja að forstöðumenn heilbrigðisstofnana njóti sjálfstæðis við val á aðferðum við ráðningu millistjórnenda hjá þeirri stofnun sem þeir stýra, og til að gæta samræmis við framkvæmd annarra ríkisstofnana, er því lagt til að horfið verði frá því lögbundna fyrirkomulagi að ráðherraskipaðar hæfnisnefndir meti störf faglegra stjórnenda lækninga og hjúkrunar. Eftir sem áður getur forstjóri skipað slíka hæfnisnefnd sérstaklega ef hann telur tilefni til.
Þá er jafnframt lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að lögbundnar, fastar hæfnisnefndir meti hæfni umsækjenda um stöður forstöðumanna heilbrigðisstofnana og embætti landlæknis. Í þeim nefndum sitja nefndarmenn sem skipaðir eru til fjögurra ára í senn, en það fyrirkomulag hefur þótt skjóta skökku við. Með 8. gr. laga nr. 130/2016 var bætt við ákvæði við lög nr. 70/1996, þess efnis að hlutaðeigandi ráðherra eða stjórn geti falið sérstakri hæfnisnefnd þriggja manna að meta hæfni umsækjenda um störf forstöðumanns og væri niðurstaða hennar ráðgefandi, sbr. 39. gr. b laganna. Með umræddum lagabreytingum hefur því verið komið á fót almennu fyrirkomulagi hæfnisnefnda við skipun í embætti forstöðumanna ríkisstofnana og því er ekki lengur þörf fyrir sérstakt ákvæði þess efnis í lögum um heilbrigðisþjónustu.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi fastra, lögbundinna hæfnisnefnda í því skyni að samræma framkvæmd ráðninga stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytisins við það fyrirkomulag sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Þá er tilgangurinn jafnframt að auka sjálfstæði forstöðumanna heilbrigðisstofnana um val á aðferðum við ráðningu millistjórnenda.
Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.
5. Samráð.
Ákvæði frumvarpsins snerta fyrst og fremst nefndarmenn þeirra lögbundnu hæfnisnefnda sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði lagðar niður sem og forstöðumenn heilbrigðisstofnana. Nefndarmönnum umræddra nefnda ásamt forstöðumönnum heilbrigðisstofnana var því tilkynnt sérstaklega um fyrirhugaða lagasetningu.
Áform um lagasetningu voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda frá 6. ágúst til 3. september 2024 (mál nr. S-153/2024). Þá voru drög að frumvarpinu birt í samráðsgátt stjórnvalda (mál nr. S-170/2024) frá 3. september 2024 til 17. september 2024. Helstu hagsmunaaðilum var gert viðvart um samráðsferlið og bárust tvær umsagnir.
Í umsögn Læknafélags Íslands segir m.a. að kosturinn við það fyrirkomulag að fastri nefnd sé falið að leggja mat á hæfni umsækjenda sé að matið á faglegri hæfni sé sambærilegt. Í umsögn félagsins er vísað til ákvæða 39. gr. b laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og á það bent að umrætt ákvæði heimili en skyldi ekki hlutaðeigandi ráðherra eða stjórn að fela sérstakri hæfnisnefnd þriggja manna að meta hæfni umsækjenda um störf forstöðumanns. Í umsögn félagsins er áréttað að ávallt þurfi að leggja mat á faglega hæfni umsækjenda um þær stöður sem tilgreindar eru í 36. gr. gildandi laga um heilbrigðisþjónustu. Þá telur félagið að lögbundnar fastar hæfnisnefndir dragi ekki úr sjálfstæði forstöðumanna við ráðningar í störf.
Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að tryggja verði að lágmarkskröfur séu gerðar um faglega hæfni við ráðningu í æðstu stöður í heilbrigðisþjónustu og gera þurfi kröfu um sérfræðimenntun. Þá leggur félagið áherslu á að hjúkrunarfræðingar eigi fulltrúa í öllum nefndum og ráðum sem meta faglega hæfni stjórnenda á heilbrigðisstofnunum í samræmi við forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðisþjónustu. Félagið lýsir yfir áhyggjum af fækkun nefnda ef þeim verði fækkað án þess að aðkoma hjúkrunarfræðinga að ráðningarferli stjórnenda sé tryggð. Telur félagið að fái forstöðumenn heilbrigðisstofnana aukið sjálfstæði um val á aðferðum við mat á hæfni umsækjenda um störf sé hætta á að sjónarmið hjúkrunarfræðinga fái minna vægi.
Hvað varðar framangreindar athugasemdir umsagnaraðila er bent á að gildandi lög um heilbrigðisþjónustu takmarka mat á hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar við faglega hæfni. Að mati ráðuneytisins er brýnt að tryggja að í stöður stjórnenda og millistjórnenda ráðist hæfustu umsækjendur hverju sinni. Ferli ráðninga þarf að byggjast á gagnsæi og jafnræði og fela í sér mat á allri þeirri hæfni sem nauðsynleg er til starfans hverju sinni, þ.e. faglegri hæfni og öðrum þáttum sem til greina geta komið við val og mat á umsækjendum hverju sinni, svo sem stjórnunarreynslu og samskiptahæfni. Fáheyrt er að fastar, lögbundnar hæfnisnefndir meti hæfni umsækjenda um stöður millistjórnenda, en samkvæmt gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu má eingöngu ráða umsækjanda um annars vegar stöðu framkvæmdastjóra lækninga og hins vegar framkvæmdastjóra hjúkrunar, sem hæfnisnefnd hefur metið hæfan. Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins ræður forstöðumaður í störf hjá stofnun sem hann stýrir og er því bæði rétt og eðlilegt að forstöðumaður hafi svigrúm um val á aðferðum við ráðningu millistjórnenda.
6. Mat á áhrifum.
Verði frumvarpið samþykkt má gera ráð fyrir jákvæðum fjárhagslegum áhrifum á ríkissjóð, með fækkun fastra, lögbundinna hæfnisnefnda.
Þá er með frumvarpinu stefnt að því að einfalda og samræma ráðningar stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytis við það sem tíðkast og kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Efni frumvarpsins gefur ekki tilefni til að ætla að það stuðli að mismunun á grundvelli kyns eða hafi misjöfn áhrif á stöðu kynja.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.