Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 400  —  335. mál.




Beiðni um skýrslu


frá ríkisendurskoðanda um réttaraðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd.


Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Andrési Inga Jónssyni, Bergþóri Ólasyni, Birni Leví Gunnarssyni, Gísla Rafni Ólafssyni, Halldóru Mogensen, Jakobi Frímanni Magnússyni, Jódísi Skúladóttur, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Oddnýju G. Harðardóttur og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.


    Með vísan til 17. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, er þess óskað að ríkisendurskoðandi geri stjórnsýsluendurskoðun á réttaraðstoð í málum um alþjóðlega vernd, sbr. 30. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016.
    Er óskað eftir að í skýrslunni verði farið yfir fyrirkomulag, umfang og kostnað við veitingu réttaraðstoðar skv. 30. gr. laga um útlendinga allt frá setningu laganna. Jafnframt verði farið yfir það hvort framkvæmdin samræmist markmiðum laganna og tilgangi aðstoðarinnar og hvort fyrirkomulagið einkennist af góðum stjórnsýsluháttum.
    Að lokum verði könnuð hagkvæmni ríkisins í heild af fyrirkomulaginu, meðal annars til samanburðar við það fyrirkomulag sem áður var með samningi við Rauða krossinn á Íslandi.

Greinargerð.

    Réttur umsækjenda um alþjóðlega vernd til réttaraðstoðar kom fyrst inn í lögin með 2. mgr. 34. gr. laga nr. 96/2002 en var þá takmarkaður við málsmeðferð á kærustigi. Frá 19. júní 2012 var réttaraðstoð tryggð á fyrsta stjórnsýslustigi einnig, sbr. lög nr. 83/2012, um breytingu á þágildandi lögum um útlendinga, nr. 96/2002.
    Framan af var aðstoðin í höndum sjálfstætt starfandi lögmanna og lögfræðinga. Árið 2014 tók Rauði krossinn við þjónustunni með samningi við stjórnvöld. Samningurinn var endurnýjaður nokkrum sinnum en rann út 30. apríl 2022. Ekkert útboð fór fram í kjölfarið eða önnur samningagerð og hefur aðstoðin síðan verið í höndum sjálfstætt starfandi lögmanna og lögfræðinga.