Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 394 — 146. mál.
Lagfæring.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022 (aukin réttindi foreldra).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Gleym mér ei, Sorgarmiðstöðinni og Samtökum atvinnulífsins.
Nefndinni bárust níu umsagnir auk minnisblaðs frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022, með það að markmiði að styrkja frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt um efni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lagt er til að þeir sem teljast foreldrar skv. 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna og missa maka sinn eigi rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði. Auk þess er lagt til að foreldri sem hefur verið í samfelldu starfi í skilningi laganna skuli eiga sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði, í stað þriggja, frá andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu. Þá er lagt til að mælt verði fyrir um sjálfstæðan rétt foreldris til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði, í stað tveggja mánaða, frá þeim degi sem fósturlát á sér stað eftir 18 vikna meðgöngu.
Lög um sorgarleyfi voru samþykkt á Alþingi hinn 15. júní 2022 og tóku gildi 1. janúar 2023. Meginmarkmið þess frumvarps var að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði leyfi frá störfum og greiðslur til að koma til móts við tekjutap í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis. Í meðförum þingsins komu fram sjónarmið um að veita víðtækari rétt en þar var mælt fyrir um. Í nefndaráliti velferðarnefndar (þskj. 1204 á 152. löggjafarþingi) tók nefndin undir þau sjónarmið að tryggja bæri einstaklingum sem missa maka frá ungum börnum sambærilega réttarbót og hvatti nefndin þá ráðherra til þess að hefja vinnu við nauðsynlegar breytingar á lögum þar að lútandi.
Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu endurspegla þau sjónarmið sem fram hafa komið á síðustu árum um aukin réttindi foreldra sem byggja rétt sinn á lögunum. Að mati meiri hlutans eru stigin jákvæð skref með frumvarpinu og með samþykkt þess verði stuðlað að miklum réttarbótum fyrir foreldra sem missa maka sinn frá börnum.
Tilhögun sorgarleyfis og önnur úrræði.
Fyrir nefndinni var fjallað um tilhögun sorgarleyfis og samspil þeirra réttinda sem lögin veita við önnur úrræði sem í boði eru fyrir þá sem byggja rétt sinn á lögunum.
Samkvæmt 10. gr. laga um sorgarleyfi á foreldri rétt á því að nýta rétt sinn í einu lagi, en er þó heimilt að semja við vinnuveitanda um aðra tilhögun, þ.e. skipta því niður á fleiri tímabil eða nýta það samhliða lægra starfshlutfalli. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um sorgarleyfi er ákvæðinu ætlað að tryggja foreldri viðeigandi sveigjanleika til að nýta rétt sinn til sorgarleyfis, enda um að ræða heimild en ekki skyldu til fjarveru frá vinnu. Í sumum tilvikum kann foreldri að kjósa að halda tengingu við vinnustað, í það minnsta að hluta, bjóði starfið upp á slíka tilhögun.
Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að þeir sem verða fyrir áfalli og byggja rétt sinn á lögunum hafi sveigjanleika til þess að minnka við sig starfshlutfall og haga því eins og þeir kjósa innan ramma laganna. Það er mikilvægt að einstaklingar sem verða fyrir missi haldi tengingu við vinnustað og vinni eins og þeir treysta sér til. Þá kunna þeir einstaklingar að nýta sér önnur stuðningsúrræði samhliða lækkuðu starfshlutfalli og nauðsynlegt að þeir hafi svigrúm til þess.
Ósamrýmanleg réttindi (11. gr.).
Með 11. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 32. gr. laganna, þar sem tiltekið er hvaða réttindi teljast til ósamrýmanlegra réttinda á sama tímabili og foreldri nýtir rétt sinn til greiðslna í sorgarleyfi. Lagt er til að í ákvæðinu verði skýrt kveðið á um að foreldri geti einungis fengið greiðslur í sorgarleyfi eða sorgarstyrk vegna missis eins barns eða maka á hverju tímabili. Meiri hlutinn áréttar að um er að ræða sjálfstæðan rétt foreldris. Hvort foreldrið hafi áður orðið fyrir missi hefur ekki áhrif á rétt viðkomandi til sorgarleyfis verði foreldri endurtekið fyrir slíku áfalli, en með 11. gr. frumvarpsins er áréttað að greiðslur í sorgarleyfi tvöfaldist ekki við það.
Fjárhagsáhrif og framkvæmd laga um sorgarleyfi.
Nefndin óskaði við umfjöllun málsins eftir upplýsingum frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti er varða fjárhagsáhrif frumvarpsins og framkvæmd laga um sorgarleyfi. Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar koma fram tölulegar upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa fengið greiðslur á grundvelli laga um sorgarleyfi. Þar kemur fram að á árinu 2023 hafi 71 fengið greiðslur á grundvelli laganna, 80 á árinu 2024 og 33 það sem af er þessu ári. Um bráðabirgðatölur er að ræða þar sem réttur til greiðslna fellur niður 24 mánuðum eftir að til hans stofnast og því kann fjöldi þeirra sem fá greiðslur að aukast umfram það sem kemur fram í minnisblaðinu.
Breytingartillögur.
Markmiðsákvæði (2. gr. laganna).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á markmiðsákvæði 2. gr. laganna, þ.e. að mælt verði fyrir um að lögunum sé ætlað að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarvinnslu vegna bæði barnsmissis og makamissis, og að auka líkur á því að foreldrar eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað og taki virkan þátt í samfélaginu að nýju í kjölfar barnsmissis eða makamissis.
Í ljósi þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu leggur meiri hlutinn til að sérstaklega verði tekið fram í 1. málsl. ákvæðisins að lögunum sé ætlað að styðja við eftirlifandi börn, auk systkina, enda er með frumvarpinu lagt til að foreldrar sem missa maka frá börnum öðlist rétt samkvæmt ákvæðum laganna.
Breytingar á öðrum lögum (15. gr.).
Hinn 1. september 2025 taka gildi lög um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024. Við gildistöku þeirra bætist ný málsgrein við 32. gr. laga um sorgarleyfi. Þeim breytingum sem meiri hlutinn leggur til við 15. gr. frumvarpsins er ætlað að laga 35. gr. laga nr. 104/2024 að þeim breytingum sem lagðar eru til með 11. gr. frumvarpsins.
Þá leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 1. gr. orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „barnsmissis“ í 1. og 2. málsl. kemur: eða makamissis.
b. Á eftir orðinu „systkin“ í 1. málsl. kemur: eða börn.
2. Á eftir 8. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „barnsmissi“ tvívegis í 1. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. kemur: eða makamissi.
b. Í stað orðanna „sem barnsmissir á sér stað“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: sem foreldri verður fyrir barnsmissi eða makamissi.
3. Á eftir 9. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Á eftir orðinu „barnsmissi“ í 1. mgr., 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. 21. gr. laganna kemur: eða makamissi.
4. Í stað orðanna „stofnað getur til réttar“ í a-lið 11. gr. komi: veitir rétt.
5. Í stað tilvísunarinnar „1. og 2. mgr. 7. gr. og 1. og 2. mgr. 18. gr.“ í 1. efnismgr. 13. gr. komi: 7. og 18. gr.
6. 2. mgr. 14. gr. orðist svo:
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 1. gr., a-, b- og d-liður 2. gr., 3. gr., 5. gr., a-liður 7. gr., 8. gr., 9. gr., 11. gr., 12. gr. og 1. tölul. c-liðar 13. gr. gildi 1. janúar 2026.
7. Við 15. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024: B-liður 35. gr. orðast svo: Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Foreldri sem fær greiddan virknistyrk á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir getur ekki á sama tímabili nýtt rétt sinn til greiðslna á grundvelli laga þessara.
Ingibjörg Isaksen var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 9. apríl 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. |
Ingibjörg Isaksen. | |
| Jón Gnarr. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Njáll Trausti Friðbertsson. | |
| Ragna Sigurðardóttir. | Rósa Guðbjartsdóttir. | ||