Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 448  —  126. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um ríkisstyrki til stjórnmálasamtaka.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað hafa ríkisstyrkir til stjórnmálasamtaka verið háir frá því að lög um starfsemi stjórnmálasamtaka, nr. 162/2006, tóku gildi 1. janúar 2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum og stjórnmálaflokkum.

    Markmið laga nr. 162/2006 er að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmála. Markmið laganna er jafnframt að kveða á um almenn framlög til frambjóðenda í kjöri til embættis forseta Íslands, til Alþingis og til sveitarstjórna og opinber og almenn fjárframlög til stjórnmálasamtaka og stjórnmálastarfsemi. Með þessu fyrirkomulagi á að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum stjórnmálasamtaka.
    Í II. kafla laganna er kveðið á um reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi. Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi í næstliðnum alþingiskosningum eigi rétt á 12 millj. kr. grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju.
    Þá skal árlega úthluta stjórnmálasamtökum sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi eða hlotið hafa a.m.k. 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum fé samkvæmt ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. Heildarfjárhæðinni skal úthlutað til stjórnmálasamtaka í hlutfalli við atkvæðamagn fyrir 25. janúar ár hvert.
    Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í þremur kjördæmum eða fleiri í kosningum til Alþingis geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði vegna kosningabaráttu, að hámarki 750.000 kr. fyrir hvert kjördæmi sem boðið er fram í. Þeim umsóknum skal beint til dómsmálaráðuneytisins en fjármálaráðuneytið hefur séð um úthlutun hinna árlegu styrkja.
    Í yfirlitinu hér að aftan er annars vegar gerð grein fyrir styrkjum sem úthlutað er vegna kostnaðar við kosningabaráttu og hins vegar árlegra styrkja til stjórnmálasamtaka.

    A. Styrkir vegna kosningabaráttu skv. 3. mgr. 3. gr. laga um starfsemi stjórnmálasamtaka, nr. 162/2006, sbr. lög nr. 119/2010, sem greiddir eru á grundvelli umsóknar til dómsmálaráðuneytisins.

Árið 2025: Samtals 45.000.000. Hver eftirtalin samtök fengu 4.500.000 kr. í sinn hlut.
Framsóknarflokkur
Flokkur fólksins
Lýðræðisflokkurinn – samök um sjálfsákvörðunarrétt
Miðflokkurinn
Píratar
Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands
Sjálfstæðisflokkur
Sósíalistaflokkur Íslands
Viðreisn
Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Árið 2021: Samtals 42.189.280 kr. Hver eftirtalin samtök fengu 4.500.000 kr. í sinn hlut nema Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn sem fékk 1.689.280 kr.
Framsóknarflokkur
Flokkur fólksins
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
Miðflokkurinn
Píratar
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands
Sjálfstæðisflokkur
Sósíalistaflokkur Íslands
Viðreisn
Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Árið 2017: Samtals 27.000.000 kr. Hver eftirtalin samtök fengu 3.000.000 kr. í sinn hlut.
Björt framtíð
Framsóknarflokkur
Flokkur fólksins
Miðflokkurinn
Píratar
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands
Sjálfstæðisflokkur
Viðreisn
Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Árið 2016: Samtals 27.000.000 kr. Hver eftirtalin samtök fengu 3.000.000 kr. í sinn hlut.
Björt framtíð
Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði
Flokkur fólksins
Framsóknarflokkur
Píratar
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands
Sjálfstæðisflokkur
Viðreisn
Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Árið 2013: Samtals 33.000.000 kr. Hver eftirtalin samtök fengu 3.000.000 kr. í sinn hlut.
Björt framtíð
Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði
Flokkur fólksins
Flokkur heimilanna
Framsóknarflokkur
Hægri grænir
Lýðræðisvaktin
Regnboginn
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands
Sjálfstæðisflokkur
Vinstrihreyfingin – grænt framboð

    B. Árlegir styrkir til stjórnmálasamtaka skv. 1. og 2. mgr. 3. gr. laga um starfsemi stjórnmálasamtaka, nr. 162/2006. Upplýsingarnar eru fengnar frá fjármálaráðuneytinu.

Árið 2025
Framsóknarflokkur 56.441.922 kr.
Flokkur fólksins 90.514.598 kr.
Miðflokkurinn 80.895.970 kr.
Píratar 17.186.462 kr.
Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands 130.198.141 kr.
Sjálfstæðisflokkur 122.295.210 kr.
Sósíalistaflokkur Íslands 22.577.504 kr.
Viðreisn 102.090.193 kr.
Samtals 622.200.000 kr.

Árið 2024
Framsóknarflokkur 115.499.000 kr.
Flokkur fólksins 65.014.000 kr.
Miðflokkurinn 44.636.000 kr.
Píratar 63.697.000 kr.
Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands 71.473.000 kr.
Sjálfstæðisflokkur 158.118.000 kr.
Sósíalistaflokkur Íslands 25.542.000 kr.
Viðreisn 61.882.000 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 87.339.000 kr.
Samtals 692.200.000 kr.

Árið 2023
Framsóknarflokkur 115.499.007 kr.
Flokkur fólksins 65.013.955 kr.
Miðflokkurinn 44.635.741 kr.
Píratar 63.697.006 kr.
Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands 71.472.706 kr.
Sjálfstæðisflokkur 158.118.363 kr.
Sósíalistaflokkur Íslands 24.542.053 kr.
Viðreisn 61.882.076 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 87.339.093 kr.
Samtals 692.200.000 kr.

Árið 2022
Framsóknarflokkur 121.749.000 kr.
Flokkur fólksins 68.215.000 kr.
Miðflokkurinn 46.606.000 kr.
Píratar 66.819.000 kr.
Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands 75.064.000 kr.
Sjálfstæðisflokkur 166.941.000 kr.
Sósíalistaflokkur Íslands 26.024.000 kr.
Viðreisn 64.894.000 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 91.888.000 kr.
Samtals 728.200.000 kr.

Árið 2021
Framsóknarflokkur 80.705.807 kr.
Flokkur fólksins 56.138.831 kr.
Miðflokkurinn 81.751.906 kr.
Píratar 71.016.317 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 89.326.315 kr.
Sjálfstæðisflokkur 173.975.322 kr.
Viðreisn 54.896.589 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 120.388.911 kr.
Samtals 728.200.000 kr.

Árið 2020
Framsóknarflokkur 80.705.807 kr.
Flokkur fólksins 56.138.831 kr.
Miðflokkurinn 81.751.906 kr.
Píratar 71.016.317 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 89.326.315 kr.
Sjálfstæðisflokkur 173.975.322 kr.
Viðreisn 54.896.589 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 120.388.911 kr.
Samtals 728.200.000 kr.

Árið 2019
Framsóknarflokkur 82.422.909 kr.
Flokkur fólksins 57.241.953 kr.
Miðflokkurinn 83.495.152 kr.
Píratar 72.491.259 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 91.258.862 kr.
Sjálfstæðisflokkur 178.023.424 kr.
Viðreisn 55.968.664 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 123.097.777 kr.
Samtals 744.000.000 kr.

Árið 2018
Framsóknarflokkur 70.422.909 kr.
Flokkur fólksins 45.241.953 kr.
Miðflokkurinn 71.495.152 kr.
Píratar 60.491.259 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 79.258.862 kr.
Sjálfstæðisflokkur 166.023.424 kr.
Viðreisn 43.968.664 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 111.097.777 kr.
Samtals 648.000.000 kr.

Árið 2017
Björt framtíð 20.938.113 kr.
Framsóknarflokkur 33.604.607 kr.
Flokkur fólksins 10.342.607 kr.
Píratar 42.354.264 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 16.799.220 kr.
Sjálfstæðisflokkur 84.801.082 kr.
Viðreisn 30.640.764 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 46.519.373 kr.
Samtals 286.000.000 kr.

Árið 2016
Björt framtíð 25.002.659 kr.
Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði 9.393.645 kr.
Framsóknarflokkurinn 74.079.041 kr.
Flokkur heimilanna 9.156.197 kr.
Píratar 15.479.059 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 38.976.809 kr.
Sjálfstæðisflokkur 80.948.996 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 32.963.593 kr.
Samtals 286.000.000 kr.

Árið 2015
Björt framtíð 25.002.659 kr.
Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði 9.393.645 kr.
Framsóknarflokkur 74.079.041 kr.
Flokkur heimilanna 9.156.197 kr.
Píratar 15.479.059 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 38.976.809 kr.
Sjálfstæðisflokkur 80.948.996 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 32.963.593 kr.
Samtals 286.000.000 kr.

Árið 2014
Björt framtíð 22.117.737 kr.
Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði 8.309.763 kr.
Framsóknarflokkur 68.531.459 kr.
Flokkur heimilanna 8.099.713 kr.
Píratar 16.693.014 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 34.479.485 kr.
Sjálfstæðisflokkur 74.608.728 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 29.160.101 kr.
Samtals 262.000.000 kr.

Árið 2013
Borgarahreyfingin 21.542.358 kr.
Framsóknarflokkur 44.138.011 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 88.849.678 kr.
Sjálfstæðisflokkur 70.704.635 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 64.665.318 kr.
Samtals 289.900.000 kr.

Árið 2012
Borgarahreyfingin 21.928.768 kr.
Framsóknarflokkur 44.929.724 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 90.443.394 kr.
Sjálfstæðisflokkur 71.972.880 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 65.825.234 kr.
Samtals 295.100.000 kr.

Árið 2011
Borgarahreyfingin 22.604.985 kr.
Framsóknarflokkur 46.315.223 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 93.232.397 kr.
Sjálfstæðisflokkur 74.192.308 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 67.855.087 kr.
Samtals 304.200.000 kr.

Árið 2010
Borgarahreyfingin 24.856.567 kr.
Framsóknarflokkur 50.928.474 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 102.518.859 kr.
Sjálfstæðisflokkur 81.582.272 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 74.613.828 kr.
Samtals 334.500.000 kr.

Árið 2009
Framsóknarflokkur 43.539.012 kr.
Frjálslyndi flokkurinn 26.987.294 kr.
Íslandshreyfingin 12.140.510 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 99.904.118 kr.
Sjálfstæðisflokkur 136.127.477 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 53.301.589 kr.
Samtals 371.500.000 kr.

Árið 2008
Framsóknarflokkur 43.539.012 kr.
Frjálslyndi flokkurinn 26.987.294 kr.
Íslandshreyfingin 12.140.510 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 99.904.118 kr.
Sjálfstæðisflokkur 136.127.477 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 53.301.589 kr
Samtals 371.500.000 kr.

Árið 2007
Framsóknarflokkur 55.778.262 kr.
Frjálslyndi flokkurinn 23.220.337 kr.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands 97.359.544 kr.
Sjálfstæðisflokkur 105.946.758 kr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð 27.695.099 kr.
Samtals 310.000.000 kr.