Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 730, 156. löggjafarþing 288. mál: heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra (ábyrgðaskipting á uppbyggingu hjúkrunarheimila).
Lög nr. 40 26. júní 2025.

Lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra (ábyrgðarskipting á uppbyggingu hjúkrunarheimila).


I. KAFLI
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

1. gr.

     32. gr. laganna orðast svo:
     Kostnaður við öflun húsnæðis vegna sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og hjúkrunarheimila greiðist úr ríkissjóði.
     Sveitarfélög láta í té lóðir undir húsnæði skv. 1. mgr., þ.m.t. íbúðarhúsnæði sem ætlað er starfsmönnum, án gjalda og kvaða. Sveitarfélögum er þó heimilt að innheimta gatnagerðargjald af lóðum undir hjúkrunarheimili.
     Hvorugur aðili á kröfu á hinn um leigu vegna eignar eða eignarhluta vegna eigna skv. 1. mgr. sem eru í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga.

2. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Samhliða breytingum á ábyrgðarskiptingu vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila skal afskrifa og yfirfæra eignarhlut sveitarfélaga í fasteignum hjúkrunarheimila til ríkisins sem mun alfarið annast og kosta viðhald og endurbætur á viðkomandi fasteign.
     Yfirfærsla á eignarhlut sveitarfélaga skv. 1 mgr. nær aðeins til hjúkrunarheimila sem eru í rekstri og sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga og skal lokið eigi síðar en 1. janúar 2026.

II. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

3. gr.

     1.–3. málsl. 5. mgr. 9. gr. laganna falla brott.

4. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025.
     Þrátt fyrir 1. mgr. fela breytingar á ábyrgðarskiptingu vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila skv. 1. gr. ekki í sér yfirtöku ríkisins á kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna hjúkrunarheimila sem voru í byggingu fyrir gildistöku laga þessara.

Samþykkt á Alþingi 16. júní 2025.