Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 879  —  137. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóni Gunnarssyni um skatta og gjöld á farartæki.


     1.      Hvaða skattar og gjöld, álögð ár hvert frá árinu 2015, hafa verið lögð á bifreiðar, eldsneyti eða annað sem snýr að farartækjum og sérstaklega er getið um að sé lagt á vegna framkvæmda í samgöngumálum?
    Með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem öðluðust gildi 1. janúar 2016, var tekið upp breytt fyrirkomulag rammastýringar á útgjöldum ríkisins. Það fól m.a. í sér að horfið var frá því að fjármagna verkefni með beinni mörkun skatttekna auk þess sem reikningsskilum ríkisins var breytt í það horf að skatttekjur færast hjá ríkissjóði en ekki á reikninga einstakra rekstraraðila og verkefna. Breytingarnar vörðuðu þannig meðferð tekna hjá ríkissjóði í heild og einstökum aðilum í A-hluta ríkissjóðs, sbr. 51. gr. laganna. Ákvæðið endurspeglar þá meginreglu að skatttekjur skuli ekki eyrnamerktar verkefnum eða rekstraraðilum heldur sé það í verkahring Alþingis, sem fer með fjárstjórnarvald ríkisins, að ákveða til hvaða aðila og verkefna skatttekjum er ráðstafað.
    Með lögum nr. 47/2018, um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um markaðar tekjur, sem samþykkt voru á Alþingi í maí 2018, var ákveðið að mörkun tekna, þ.m.t. skatttekna, yrði afnumin í nær öllum tilvikum. Markmið laganna var m.a. að taka á veikleika í fjárlaga- og áætlanagerð ríkisins sem fólst í ráðstöfun ýmissa skatttekna með sérlögum. Tekjurnar yrðu þó líkt og áður færðar í reikningshaldi ríkissjóðs og væru þar tiltækar til samanburðar við útgjöld viðkomandi stofnana og málaflokka. Síðan þá hafa tekjustofnar sem áður voru markaðir runnið í ríkissjóð, en eftir sem áður eru tekjur ríkisins af viðkomandi tekjustofnum birtar í fjárlögum og ríkisreikningi.
    Frá gildistöku laga nr. 123/2015 hafa þannig engir skattar eða gjöld verið lögð á bifreiðar og eldsneyti beinlínis til fjármögnunar á framkvæmdum í samgöngumálum.
    Tekjur af sérstöku vörugjaldi af bensíni, kílómetragjaldi, sérstöku kílómetragjaldi og olíugjaldi voru fyrir framangreindar breytingar ætlaðar til vegagerðar, að frádregnum 0,5% af tekjunum sem runnu í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við innheimtu þeirra.
    Til upplýsingar í þessu samhengi eru þessar tekjur sem voru áður sérstaklega markaðar framkvæmdum í vegagerð, en eru það ekki lengur, sýndar í eftirfarandi töflu fyrir umbeðið tímabil. Upplýsingar um tekjurnar eru fengnar úr ríkisreikningum fyrir árin 2015–2024. Tekjurnar eru á verðlagi hvers árs og í milljónum króna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hver eru heildarfjárframlög til samgöngumála frá árinu 2015, sundurliðað eftir árum?
    Starfsemi málaflokksins 11.10 Samgöngur er á ábyrgð innviðaráðherra og falla þar undir þrjár stofnanir: Samgöngustofa, Vegagerðin og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Þar að auki eru í gildi þjónustusamningar við Isavia ohf. um rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Þá annast fyrirtækið viðhald, framkvæmdir, þjónustu á flugvallakerfinu og flugleiðsögu.
    Undir málaflokkinn fellur því allt sem varðar skipulag, uppbyggingu, viðhald og rekstur samgöngukerfa á landi, í lofti og á sjó. Þar undir teljast flugvellir, vegir, hafnir, vita- og sjóvarnir og þjónusta tengd þessum innviðum, þ.m.t. vetrarþjónusta. Málaflokkurinn felur í sér stefnumótun og framkvæmd samgönguáætlana, sem móta framtíðarsýn og forgangsröðun í samgöngumálum. Jafnframt er lögð áhersla á samgönguöryggi og samgönguvernd, sem fela í sér að tryggja öryggi farþega og farms, þróa leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi og tryggja viðbúnað við hættum. Einnig er fylgst með skráningu, búnaði og ástandi samgöngutækja, hvort sem um er að ræða bíla, skip eða loftför, og eru réttindi og hæfni áhafna skipa, flugmanna og ökumanna tryggð með reglum og eftirliti.
    Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar slys sem verða í samgöngum, hvort sem er á landi, í lofti eða á sjó, með það að markmiði að greina orsakir og stuðla að öryggisbótum. Samgöngustofa hefur eftirlit með samgöngum og skráningum, samræmir reglur og tryggir að búnaður og rekstur samgöngutækja sé í samræmi við lög og reglugerðir. Vegagerðin annast vegakerfið, allt frá skipulagi og framkvæmd vegaframkvæmda til daglegs viðhalds og þjónustu, á meðan Isavia ohf. sér um rekstur flugvalla og flugleiðsögu samkvæmt þjónustusamningum við hið opinbera, auk þess sem fyrirtækið sinnir viðhaldi og þjónustu við flugvallakerfið.

Yfirlit yfir fjárframlög ríkissjóðs til samgangna frá árinu 2015, ásamt væntum fjárframlögum.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Framangreindar kostnaðartölur ná til beins kostnaðar ríkissjóðs vegna samgöngumála samkvæmt framangreindri skilgreiningu. Til viðbótar því má gera ráð fyrir umtalsverðum óbeinum kostnaði, t.d. við löggæslu og umferðareftirlit, heilbrigðisþjónustu vegna umferðarslysa og kostnaði sem hlýst vegna stjórnsýslu málaflokksins. Ekki liggur fyrir mat á umfangi þess.