Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 906 — 485. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Einari Jóhannesi Guðnasyni um tekjur Vegagerðarinnar.
1. Hvaða tekjur á eftir að gjaldfæra til Vegagerðarinnar, sbr. tekjuliðinn „Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára“ í ársreikningi Vegagerðarinnar, undanfarin fimm ár?
Með innleiðingu laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem öðluðust gildi 1. janúar 2016, var reikningsskilaaðferðum ríkisins breytt og innleiddur alþjóðlegur reikningsskilastaðall fyrir opinbera aðila (IPSAS). Með þeim breytingum á reikningshaldi ríkisins var byrjað að eignfæra varanlega rekstrarfjármuni í efnahagsreikningi í stað þess að gjaldfæra þau útgjöld í rekstrarreikningi eins og áður tíðkaðist. Eignirnar eru síðan afskrifaðar jafnt og þétt með gjaldfærslu í rekstrarreikningi yfir áætlaðan líftíma þeirra. Með þessu fyrirkomulagi á reikningshaldinu eru fjárveitingar í fjárlögum til fjárfestinga færðar um efnahagsreikning sem fyrirframgreidd fjárfestingarframlög á móti heimildum til að fjárfesta í eignum. Fyrirframgreiddu fjárfestingarframlögin eru síðan tekjufærð yfir líftíma eignanna á móti gjaldfærðum afskriftum og þannig jafnað saman tekjum og gjöldum í rekstri viðkomandi stofnana til að þetta fyrirkomulag hafi engin áhrif á bókfærða afkomu þeirra.
Tekjufærsla frestaðra tekna hjá Vegagerðinni felst í að tekjufæra fjárhæðir á móti afskriftum hvers árs, sem eru mjög miklar hjá stofnuninni þar sem í ríkisreikningi hefur allt vegakerfið verið eignfært í bókum Vegagerðarinnar. Þetta fyrirkomulag er því í samræmi við bókhald allra A1-hluta ríkisstofnana.
2. Hversu hátt hlutfall af kílómetragjaldi, bifreiðagjaldi, kolefnisgjaldi, vörugjaldi, eldsneytisgjaldi, þungaskatti, bensínskatti og virðisaukaskatti sem innheimtur hefur verið í tengslum við eldsneyti og bílakaup undanfarin fimm ár hefur runnið beint til Vegagerðarinnar?
Með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, var tekið upp breytt fyrirkomulag rammastýringar á útgjöldum ríkisins. Það fól m.a. í sér að horfið var frá því að fjármagna verkefni með beinni mörkun skatttekna, auk þess sem reikningsskilum ríkisins var breytt í það horf að skatttekjur færast hjá ríkissjóði en ekki á reikninga einstakra rekstraraðila og verkefna. Breytingarnar vörðuðu þannig meðferð tekna hjá ríkissjóði í heild og einstökum aðilum í A-hluta ríkissjóðs, sbr. 51. gr. laganna. Ákvæðið endurspeglar þá meginreglu að skatttekjur skuli ekki eyrnamerktar verkefnum eða rekstraraðilum heldur sé það í verkahring Alþingis, sem fer með fjárstjórnarvald ríkisins, að ákveða til hvaða aðila og verkefna skatttekjum er ráðstafað.
Með lögum nr. 47/2018, um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um markaðar tekjur, sem samþykkt voru á Alþingi í maí 2018, var ákveðið að mörkun tekna, þ.m.t. skatttekna, yrði afnumin í nær öllum tilvikum. Markmið laganna var m.a. að taka á veikleika í fjárlaga- og áætlanagerð ríkisins sem fólst í ráðstöfun ýmissa skatttekna með sérlögum. Tekjurnar yrðu þó líkt og áður færðar í reikningshaldi ríkissjóðs og væru þar tiltækar til samanburðar við útgjöld viðkomandi stofnana og málaflokka. Síðan þá hafa tekjustofnar sem áður voru markaðir runnið í ríkissjóð en eftir sem áður eru tekjur ríkisins af viðkomandi tekjustofnum birtar í fjárlögum og ríkisreikningi.
Frá gildistöku laga nr. 123/2015 hafa þannig engir skattar eða gjöld verið lögð á bifreiðar og eldsneyti beinlínis til fjármögnunar á framkvæmdum í samgöngumálum og slíkar tekjur því ekki runnið beint til Vegagerðarinnar.