Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 921  —  434. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um tilkynningarskylda aðila.


     1.      Teljast fleiri til tilkynningarskyldra aðila hér á landi skv. 17. tölul. 3. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en teljast til slíkra aðila samkvæmt ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849? Ef svo er, hvaða rök standa því að baki?
    Markmið laga nr. 140/2018 er að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með því að skylda aðila sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka til að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi. Um er ræða mikilvægt úrræði stjórnvalda, m.a. til að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Með tilkynningarskyldum aðilum er átt við einstaklinga og lögaðila sem upptaldir eru í 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Bera þeir lögbundna skyldu til að sporna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með ýmsum aðgerðum í starfsemi sinni.
    Með lögum nr. 140/2018 voru m.a. innleiddar fjórðu og fimmtu peningaþvættistilskipanir Evrópusambandsins, þ.e. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/843, en sú síðarnefnda er breyting á hinni fyrrnefndu. Báðar tilskipanir teljast lágmarkstilskipanir, þ.e. eru þar sett lágmarksviðmið sem ríkjum ber að uppfylla. Tilskipanirnar byggjast, eins og löggjöfin hér á landi, á tilmælum alþjóðlega fjármálaaðgerðarhópsins (FATF) með áhættumiðaða nálgun að leiðarljósi. Með því er átt við að aðgerðir og ráðstafanir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skuli vera í samræmi við þá áhættu sem greind hefur verið til að ná markmiðum um skilvirkar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Áhættumiðuð nálgun er grundvallarregla og markmið bæði tilskipana Evrópusambandsins og íslenskra laga.
    Í fjórðu peningaþvættistilskipuninni er að finna þær grundvallarskilgreiningar og lágmarksviðmið um hvaða aðilar eigi að teljast tilkynningarskyldir, til að mynda lánastofnanir, fjármálastofnanir, endurskoðendur, bókarar og aðrir sérfræðingar við ákveðin fjármála- eða fasteignatengd verkefni, þjónustuveitendur á sviði fyrirtækja- og fjárvörsluþjónustu, fasteignasölur, aðilar sem versla með vörur og taka við reiðufé að fjárhæð 10.000 evrur eða meira, og veitendur fjárhættuspilaþjónustu. Í fimmtu peningaþvættistilskipuninni var fleiri aðilum bætt við, til að mynda þjónustuveitendum í gjaldeyrisviðskiptum á milli sýndarfjár og gjaldmiðla, þjónustuveitendum stafrænna veskja og einstaklingum sem stunda viðskipti eða hafa milligöngu í viðskiptum með listaverk sem nema 10.000 evrum.
    Í lögum nr. 140/2018 eru framangreind viðmið um tilkynningarskylda aðila útfærð í 1. mgr. 2. gr. og aðlöguð að íslensku regluverki og umhverfi í 20 stafliðum. Er að sama skapi um að ræða fjármálafyrirtæki og skylda starfsemi, auk tiltekinna starfsgreina og fyrirtækja, sem hætta er á að verði notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka. Við samanburð á ákvæðum laganna og viðmiðum sem fram koma í ákvæðum tilskipana Evrópusambandsins má nefna að útfærslan í 1. mgr. 2. gr. kann að vera sérgreindari en leiðir af tilskipununum. Til dæmis eru lífeyrissjóðir sérstaklega upptaldir í h-lið 1. mgr. 2. gr. en falla undir skilgreiningu á aðilum sem veita fjármálaþjónustu í tilskipununum.
    Löggjöfin tekur þó ekki einungis mið af tilskipununum, eins og áður kemur fram, heldur hefur verið leitast við að hún sé í takt við nýjustu alþjóðlegu viðmið hverju sinni. Er þar einkum um að ræða tilmæli FATF sem breyst hafa frá setningu laganna og eru því umfram það sem fram kemur í tilskipununum. Til dæmis teljast skartgripa- og gullsalar tilkynningarskyldir samkvæmt q-lið 1. mgr. 2. gr. laganna og þjónustuveitendur sýndareigna í j-lið 1. mgr. 2. gr., sem byggist á breyttum tilmælum FATF.
    Loks hefur áhættumat og eftirlitsframkvæmd stjórnvalda haft í för með sér að tilteknar starfsgreinar og starfsemi fellur undir gildissvið laganna hér á landi með öðrum hætti en leiðir af tilskipununum. Má sem dæmi nefna að í h-lið 1. mgr. 2. gr. þeirra eru tilgreind bifreiðaumboð og -sala auk fyrirtækja- og skipasala, sem teljast tilkynningarskyldir óháð fjárhæðum í viðskiptum. Í stjórnarfrumvarpi þáverandi dómsmálaráðherra sem lagt var fyrir 150. löggjafarþing 2019–2020 um breytingar á lögum nr. 140/2018, sem varð að lögum nr. 96/2020, þar sem þessar breytingar voru lagðar til, kom fram: „[l]agt er til að við n-lið 1. mgr. 2. gr. laganna bætist bifreiðaumboð og bifreiðasalar. Ákvæðið byggir á tillögu embættis ríkisskattstjóra og reynslu embættisins af beitingu laganna. Í skýringum við frumvarp til núgildandi laga kemur fram að ákvæði r-liðar gildi m.a. um bílasölur þegar sala nær þeim fjárhæðum sem um er getið í ákvæðinu. Fjallað er um skyldur bifreiðasala í lögum um verslunaratvinnu, nr. 28/1998. Þykja sömu sjónarmið gilda um bifreiðaumboð og bifreiðasala annars vegar og fasteignasölur, fasteignasala, skipasala og fyrirtækjasala hins vegar. Lagt er til að fella starfsemi þessara aðila með skýrum hætti undir gildissvið laganna óháð fjárhæðum í viðskiptum. Með því er komið í veg fyrir þá óvissu sem komið hefur upp um þetta atriði við framkvæmd laganna.“ Í meðförum þingsins voru gerðar umtalsverðar breytingar á frumvarpinu af hálfu meiri hluta nefndarinnar í því skyni að fella fleiri aðila undir lögin. Þar kom fram að: „[b]reytingarnar miða m.a. að því að aðlaga frumvarpið reynslu af beitingu laga nr. 140/2018, um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.“
    Með því að víkka út gildissviðið og fjölga tilkynningarskyldum aðilum voru stjórnvöld og Alþingi að leitast við að ná utan um fleiri starfsgreinar og tegundir viðskipta sem kunna að vera berskjaldaðar fyrir misnotkun, að fenginni reynslu við framkvæmd laganna. Rökin að baki þessu eru og voru að tryggja skilvirkari varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ekki er vikið frá lágmarksviðmiðum tilskipananna né heldur gengið lengra en heimilt er.

     2.      Eru dæmi þess að með skilgreiningum á tilkynningarskyldum aðilum hér á landi hafi verið vikið frá skilgreiningum slíkra aðila samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar þannig að hér á landi falli stærri hluti starfsemi aðilanna undir skilgreiningarnar en samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar? Ef svo er, hvaða rök standa því að baki, hver eru þessi dæmi og um hvaða tilkynningarskylda aðila er að ræða?
    Sjá svar við 1. lið fyrirspurnarinnar.