Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 198 — 105. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá innviðaráðuneyti.
Nefndinni bárust fjórar umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, m.a. vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins.
Umfjöllun nefndarinnar.
Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 5. júní sl. ( þingskj. 653, 271. mál). Líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er það endurflutt með þeirri breytingu sem lögð var fram með nefndaráliti meiri hlutans að tekin yrði út heimild ráðherra til að leggja fram eina innviðastefnu í stað sjálfstæðrar stefnu á hverju sviði fyrir sig. Þar með er framkvæmdin skv. 3. gr. í meginefnum óbreytt, þ.e. að ráðherra leggi fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til fimmtán ára á hverju sviði fyrir sig. Þá er lögð til smávægileg breyting á orðalagi 4. gr. svo skýrt sé af lagatexta að ráðherra eigi val um hvort skipað sé eitt stefnuráð eða fleiri. Meiri hlutinn vísar að öðru leyti í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Dagur B. Eggertsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 14. október 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form., frsm. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Dagur B. Eggertsson. | |
| Jónína Björk Óskarsdóttir. | Sigurður Helgi Pálmason. | ||