Ferill 100. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 210 — 100. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um verðbréfun.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndinni barst ein umsögn sem aðgengileg er undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um verðbréfun og að breyting verði gerð á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu til samræmis. Frumvarpið innleiðir í íslenskan rétt m.a. reglugerð Evrópuþingins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012. Notast hefur verið við skammstöfunina STSR sem heiti á þessum gerðum. Með STSR eru settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar og sérstakar kröfur til STS-verðbréfunar, en STS er ensk skammstöfun sem stendur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun.
Frumvarp þetta var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 8. apríl sl. ( þskj. 369, 122. mál). Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt. Breytingarnar séu í samræmi við breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar í fyrrgreindu nefndaráliti og breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar við 3. umræðu (þskj. 537, 122. mál).
Nefndinni barst ein umsögn frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Þar segir m.a. að samtökin telji frumvarpið jákvætt skref til þess að setja enn skýrari lagaramma um verðbréfun hér á landi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 16. október 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form., frsm. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | Pawel Bartoszek. | |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||