Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 274 — 106. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, HLH ráðgjöf, Tabú – femínískri fötlunarhreyfingu, Eiríki Karli Þorsteinssyni Smith, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Nefndinni bárust átta umsagnir auk minnisblaðs frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Málið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi ( þskj. 204, 187. mál). Hafði nefndin hliðsjón af umsögnum sem bárust þá og minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis.
Með frumvarpinu er lagt til að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni.
Umfjöllun nefndarinnar.
Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 12. maí 2025 ( þskj. 490) en málið hlaut ekki afgreiðslu.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það endurflutt óbreytt. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar sinnar um málið og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Staða innleiðingar einstakra ákvæða samningsins í íslensk lög.
Nefndin fjallaði um stöðu innleiðingar einstakra ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frá því að samningurinn var fullgiltur af Íslands hálfu hafi verið gerðar ýmsar lagabreytingar og ný lög sett sem miði að því að innleiða samninginn og aðlaga íslenska löggjöf að honum. Með lögum um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 115/2015, hafi orðalagi fjölda ákvæða verið breytt til að samræma hugtakanotkun samningsins auk þess sem gerðar hafi verið efnislegar lagabreytingar. Enn fremur hafi verið sett ný lög til að uppfylla betur skyldur Íslands samkvæmt samningnum, svo sem lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, sem nefndinni barst 17. október 2025, kemur fram að á árinu 2020 hafi vinnuhópur úr sex ráðuneytum tekið saman yfirlit um hverja og eina grein samningsins ásamt tilvísun til ákvæða í lögum og reglugerðum og til hvaða aðgerða þyrfti að grípa til þess að mæta áskorunum við innleiðingu samningsins. Samantektin hafi verið uppfærð í nóvember 2022 en síðan þá hafi verið gerðar nokkrar veigamiklar breytingar á lagaumhverfi. Þar megi nefna tilkomu laga nr. 88/2024, um Mannréttindastofnun Íslands, og ályktun Alþingis um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 sem samþykkt var 20. mars 2024 og feli í sér safn 60 aðgerða til að koma í framkvæmd ákvæðum samningsins. Stefnt sé að því að halda áfram vinnu við áætlunina til ársins 2030.
Með minnisblaði ráðuneytisins fylgdi uppfærð samantekt þar sem tekið hafði verið tillit til breytinga fram að yfirstandandi löggjafarþingi. Einnig var getið þingmála sem boðuð eru í þingmálaskrá á 157. löggjafarþingi, svo sem nýrra laga um réttindavernd fatlaðs fólks.
Meiri hluti nefndarinnar telur auðsýnt af samantekt ráðuneytisins að gengið hefur vel að innleiða ákvæði samningsins í íslensk lög. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sé að finna ýmis þingmál sem boðuð eru á yfirstandandi löggjafarþingi til þess að innleidd verði enn frekar ákvæði samningsins í lög eða þau færð til betri vegar, svo sem frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks, heildarendurskoðun barnaverndarlaga og frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.
Húsnæðisöryggi fatlaðs fólks.
Meiri hluti nefndarinnar telur brýnt að taka fram að samkvæmt landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 kemur fram um aðgerð C-3, Húsnæði við hæfi, að skipaður verði starfshópur sem falið verði að leggja fram kostnaðar- og ábatagreindar tillögur að úrbótum varðandi húsnæðisöryggi fatlaðs fólks. Samkvæmt tímaáætlun áætlunarinnar er skipan starfshópsins fyrirhuguð árið 2025 og er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Meiri hlutinn hvetur ráðuneytið til þess að skipa fulltrúa í starfshópinn svo fljótt sem verða má. Mikilvægt er að kortleggja hvernig tryggja megi húsnæði við hæfi fyrir fatlað fólk á Íslandi. Bindur meiri hlutinn vonir við að starfshópurinn skili vel ígrunduðum tillögum sem leiði til farsællar uppbyggingar á húsnæði fyrir fatlað fólk til samræmis við ákvæði 9. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Breytingartillögur.
Ekki hafði verið tekið tillit til breytingartillagna meiri hluta velferðarnefndar í fyrrnefndu nefndaráliti frá 156. löggjafarþingi og leggur meiri hlutinn því aftur til sömu tæknilegu breytingar og þá.
Að lokum leggur meiri hlutinn til fáeinar breytingartillögur til viðbótar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað orðanna „þessara laga“ í 1. gr. komi: laga þessara.
2. Við fylgiskjal.
a. Í stað orðanna „mannréttindi þess brotin“ í k-lið formálsorða komi: brotið gegn mannréttindum þess.
b. Við 30. gr.
1. Í stað orðsins „tungumálssjálfsmynd“ í 4. mgr. komi: tungumálasjálfsmynd.
2. Á undan orðinu „tómstunda-“ í d-lið 5. mgr. komi: og.
3. Á undan orðinu „frístunda-“ í e-lið 5. mgr. komi: og.
4. Á undan orðinu „tómstunda-“ í fyrirsögn greinarinnar komi: og.
c. Á eftir orðunum „tveir þriðju“ í 5. mgr. 34. gr. komi: hlutar.
d. Í stað orðsins „öðrum“ í 5. mgr. 36. gr. komi: til þess.
e. Í stað orðsins „þeim“ í 1. mgr. 37. gr. komi: því.
f. Í stað orðanna „aðrar bærar“ í a-lið 38. gr. komi: til þess bærar.
g. Í stað orðsins „aðalstöðvum“ í 42. gr. komi: höfuðstöðvum.
h. Á undan orðunum „slíkar stofnanir“ í 2. mgr. 44. gr. komi: um.
i. Í stað orðsins „hluta“ í 1. mgr. 47. gr. komi: hlutum; og á eftir orðunum „tveimur þriðju“ í 2. og 3. mgr. sömu greinar komi: hlutum.
Sigríður Á. Andersen og Rósa Guðbjartsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 3. nóvember 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form., frsm. |
Grímur Grímsson. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | |
| Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||